Morgunblaðið - 06.07.2000, Síða 52

Morgunblaðið - 06.07.2000, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Jakkinn er prjónaður úr Funny-pelsgarni sem er einstaklega mjúkt og þægilegt að vera í. Fyrirsæta: Vilborg Magnúsdóttir. Hönnun: Sandnes Prjónakona: María Markúsdóttir Garn - Funny-pelsgarn: upplýsingar í síma 565-4610 Blátt 5836: 4-5-5-6-6-7 dokkur Stærðir: 2-4-6-8-10-12 ára Yfírvídd: 74-78-82-86-90-94 cm. Sídd: 34-38-42-46-50-53 cm. Ermalengd: 24-27-30-34-37-40 cm. Prjónar: Hringprjónar og sokka- prjónar nr. 3,5 og 4,5. Tölur : 5-5-6-6-6-7 stykki Prjónfesta: 20 lykkur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4,5 = 10 cm. Ath. Áður en byrjað er að prjóna er gott að merkja með penna allar þær tölur sem tilheyra þeirri stærð sem valin er. Fram og bakstykki: Fitjið upp með hringprjón nr. 3,5 138 - 146 - 150 - 158 - 162 - 170 lykkjur og prjónið slétt fram og til baka alls 2 cm = garðaprjón. Skiptið yfír á hringprjón nr. 4,5 og aukið í með jöfnu millibili 10 - 10 - 14 -14 - 18 -18 lykkjur = 148 -156 - 164 - 172 - 180 - 188 lykkjur. Prjónið áfram slétt prjón, þ.e.a.s. slétt á réttu og brugðið á röngu. Fyrsta og síðasta lykkja eru alltaf -^prjónaðar slétt = kantlykkjur. Það er gott að setja nælu á réttuna til að átta sig strax á hvort er réttan Jakki úr Funny- pelsgarni eða rangan. Þegar flíkin mælist 18 - 21 - 24 - 27 - 30 - 32 cm, skiptist hún í fram og bakstykki þannig: 37 - 39 - 41 - 43 - 45 - 47 á hvoru fram- stykki og 74 - 78 - 82 - 86 - 90 - 94 lykkjur á bakstykki. Prjónið hvern hluta fyrir sig. Framstykki: Prjónið þar til handvegur mælist 11 -12 -13 - 13 - 14 -15 cm. Fellið af í hálsmáli 7-8 -9-9-10-11 lykkjur einu sinni og síðan 2 lykkjur tvisvar sinnum og síðan 1 lykkju þar til eftir standa 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 lykkjur á öxlinni. Fellið af þegar handvegur mælist 16 -17 -18 -19 - 20 - 21 cm. Bakstykki: Prjónið þar til vantar 1,5 cm í fulla sídd. Fellið þá af miðjulykkjurnar 20 - 22 - 24 - 26 - 28 - 30 og prjónið síðan hvora öxl fyrir sig. Fellið næst tvær lykkjur einu sinni og síðan eina lykkju einu sinni á öllum stærðum við hálsmál- ið. Fellið síðan lykkjurnar af þegar fullri sídd er náð. Prjónið hina hliðina eins. Ermar: Fitjið upp á hringprjón nr. 3,5 40 - 40 - 42 - 42 - 44 - 44 lykkjur og prjónið fram og til baka. Aukið í eftir 2 cm. eina lykkju í hvorri hlið. Setjið lykkjurnar yfir á sokka- prjóna nr. 4,5 og prjónið áfram í hring. Aukið í með tveggja cm. millibili á samskeytunum um tvær lykkjur (ath. það þarf að auka í að- eins hraðar í restina) eða þar til lykkjurnar eru orðnar 64 - 68 - 72 - 76 - 80 - 84 í allt og ermasídd er náð. Fellið passlega laust af. Frágangur: Saumið axlir saman. Saumið saman kantana neðst á ermunum og saumið þær í handveginn. Hálskantur: Prjónið upp með prjón nr. 3,5 ca. 70 - 74 - 78 - 82 - 86 - 90 lykkjur og prjónið 1,5 cm. slétt prjón fram og til baka = garðaprjón. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum. Vinstri listi: Prjónið upp með prjón nr. 3,5 ca. 10 lykkjur á hverja 5 cm. meðfram framhlið- inni. Prjónið 2 cm. slétt prjón fram og til baka = garðaprjón. Fellið af. Hægri listi: Prjónið á sama máta en með 5-5-6-6-6-7 hnappa- götum. Það efsta á miðjan háls- kantinn og það neðsta tvo cm frá kantinum og hin með jöfnu milli- bili. Festið tölur á jakkann. ,Þá hló Þormóður [Kol- brúnarskáld] og mælti, setjumst niður og rekjum spuna okkarn“ I hinni frægu bók Gerplu eftir Halldór Kiljan Lax- ness er skemmtileg sena þar sem fram kemur kynngimagnaður kraftur ullarinnar og spunans. Jafnframt kemur berlega í ljós hvernig kona, sem kann sitthvað fyrir sér, nýtir sér og magnar upp þann kraft af mikilli þekk- ingu sem þó er vart hægt að sjá hvort að er þessa heims eða annars. Það er kannski ekki skrýtið því spuninn, eins og við þekkjum hann, virðist í fyrstu mjög raun- verulegur og áreiðanlega þessa heims en það er ljóst að eitthvað er það við spunann sjálfan sem veldur því að manni finnst um einhvern galdur vera að ræða. Spuninn hefur lengi verið tengd- ur göldrum. Astæðuna er sennilega að finna í spunanum sjálfum því þegar verið er að spinna á hala- snældu þarf að einbeita sér mjög að verkinu, gæta þess að þráðurinn sé jafn, slitni ekki né verði of þykkur. Halasnældan snýst og snýst og þráðurinn spinnst upp af hraða, ör- yggi og takti sé rétt að farið. Það var nefnilega alls ekki á færi allra að spinna á halasnældu en sumir gátu náð mikilli leikni svo unun hef- ur verið á að horfa. Það er því ekki óhTdegt að sá sem spinnur og þeir sem fylgjast með spunanum dáleið- ist og þar með gleymi stund og stað, svo ekki sé nú talað um ef kveðið er undir, þá getur andrúmsloftið orðið talsvert undarlegt. í Gerplu er það Þórdís Kötludótt- ir úr Ögri sem nýtir sér kunnáttu sína þannig að hún vefur garnvind- um sem hún hefur spunnið utan um Kolbak þræl sinn og Þormóð Kol- brúnarskáld ástmann sinn þeim til varnar gagnvart höggum hvor ann- ars. Ástæðan er sú að Þórdís biður Kolbak um að drepa Þormóð fyrir sig og vefur hún því garnvindum um Kolbak honum til varnar við til- ætlað dráp. Þegar Kolbakur er lagður af stað til verksins er eins og hún sjái eftir því að hafa beðið hann þessarar bónar og biður þá Þormóð að fara aðra leið en venjulega þeg- ar hann ætli heim til sín en það ger- ir hún til að koma í veg fyrir að þeir hittist. Þormóður neitar því og þess vegna bregður hún á það ráð að veíja hann líka garnvindum og bið- ur hann í yfirskini að fara með þessar vindur fyrir sig til Mjóafjarðar í leið- inni, því þar búi góðir vefarar. Þormóður leggur af stað sömu leið og hann er vanur en þegar hann gengur undir hlíð nokkra á leið sinni fara steinar að hrynja úr henni. Þor- móður kemur fljótlega auga á Kolbak þræl Þórdísar og sér að hann er valdur að steinhruninu og þá fara þeir auðvitað að beijast upp á líf og dauða. „Höfðu nú þau undur gerst í bar- daganum að hvornugan manninn bitu járn. Þá kastaði Þormóður öx- inni og hljóp undir fyrirsátursmann og takast þeir á fángbrögðum. Þeir glímdu nokkra stund, en menn vóru léttir og úngir og veitti hvorugum betur. En í ryskíngunum rifnaði stakkur þrælsins og sá í bláan veft undir milli laga. Þá hló Þormóður og mælti, setjumst niður og rekjum spuna okkarn. Þeir hættu áflogun- um og settust niður. Kolbakur steypti af sér stakki sínum og dró fram tuttugu vindur gams. Þor- móður fór úr kyrtlinum og vafði af sér jafnmargar, - mun ein nom hafa spunnið báðum okkur, mælti hann.“ Kraftur spunans er svo mikill að ekki einu sinni öxi getur klofið hann. Vindumar vörðu mennina gagnvart höggunum sem þeir létu dynja á hvor öðrum og er þar senni- lega bæði fyrir að þakka göldrum Þórdísar en ekki síður raunveru- legum styrk ullarinnar sem getur orðið sterk og þolin sé hún þétt og þykk. Þess má líka geta að ullin var oft þæfð hér áður og var hún mönnum góð brynja bæði fyrir vatni og vindi og ekki síður gegn óæskilegum höggum. Svo virðist sem þæfð ull sé að verða vinsæl aftur og er það vel enda um þvílíkt gæðaefni að ræða eins og þessi frásögn ber vitni um!I I júlí-spuna er boðið upp á skemmtilegan jakka úr Funny- pelsgarni sem er virkilega fallegt og mjúkt garn sem auðvelt og fljót- legt er að prjóna úr á allar prinsess- ur sem vilja vera fínar. Hvort ein- hver Þórdís hafi komið nálægt spunanum á þessu garni er ekki vit- að en það kemur áreiðanlega í ljós fyrr eða síðar. Gangi ykkur vel. Nýjar vörur Verðdæmi:_________________ Jakkar frá kr. 4.900 Pils frá kr. 2.900 Buxur frá kr. 1.690 Bolir frá kr. 1.500 Kvartbuxur kr. 2.500 Stuttbuxur og bermudabuxur frá kr. 1.900 Alltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. NÁTTHAGI GARÐPLÖNTU9TÖÐ austur í Ölfusi Verðdœmi: Alparifs 450, Glidmispill 290 Blátoppur 450, Alaskavíðir 110 og margt fleira ó mjög hagstœðu verði. Mikið úrval alls konar runna, trjóa og blóma í garða og skógrœktarplöntur af bœdi lerki, ösp og birki i f jölpottum Upplýsingar í síma 483 4840 og fax 483 4802 Netpóstur: natthagi@centrum.is ÚTIVISTAR » HARKAÐUR viö Paxafen í Reykjavik www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.