Morgunblaðið - 06.07.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 06.07.2000, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens E6 OSKA ÞESS A£> LANA VILJIFARA ÚTMEÖMÉR Grettir Ferdinand Við virðumst vera á sðmu leið. Eigum við að vera samferða? Nema auvitað, ha, ha, að þú haldir að ég sé of gamail fyrir þig. Ert þú ekki of tungulipur fyrir mig? BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eftirminnilegt kvöld Frá Ásgerði Jónsdóttur: EG dvaldist meirihluta sl. maímán- aðar á Húsavík. Hinn 13. maí var mér boðið á vortónleika Tónlistar- skóla Hafralækjarskóla í Aðaldal. Mér þykir sá at- burður þess verð- ur að minnast hans og þakka. Eg sá í einni svip- anaðhérvar skóli með „brag“ þar sem ekki er að- eins kennt á hljóðfæri heldur einnig sú yfirveg- aða og látlausa framkoma sem hæfir tónlistinni. Þá gladdi það hug minn að ég sá í framkomu nemenda sama svip þess glaðlega, frjálsa en þó sterka aga sem einkennir nem- endatónleika Tónlistarskóla Isa- Qarðar og vekur ávallt aðdáun mína. A tónleikunum komu fram 37 nemendur og lék hver um sig tvö tónverk. Mér virtust þeir vera á hin- um ýmsu aldursstigum grunnskóla nema ein stúlka og leikni þeirra vera samkvæmt því. Sumir voru byrjend- ur og aðrir lengra komnir með um- talsverðan árangur, s.s. álitlegur trompetleikari og annar klarinett- leikari. Sérstaka athygli mína vakti fyrrnefnd ung stúlka, Kristín Björk Kristjánsdóttir. Hún lék þarna eigin hugverk af innlifun og leikni. Aður en lengra er haldið langar mig til að minnast þess að í Þingeyj- arsýslum hefur löngum ríkt áhugi á tónlist, bæði söng og hljóðfæraleik og heimildir benda til mikillar og al- mennrar iðkunar á því sviði. Á síð- asta hluta 19. aldar og framan af 20. öld er víða getið um hljóðfæri á heimilum. Þar var um að ræða fiðlur og flautur, aðallega fiðlur. Þessi hljóðfæri gátu vel átt heima í bað- stofum. Fyrir um 30-40 árum var gerð talsverð könnun á fiðlueign fólks í S-Þingeyjarsýslu á þeim lið- lega helmingi 20. aldar er þá var lið- inn (Mér er ekki kunnugt um hvort önnur slík fór fram í N-Þingeyjar- sýslu). Samkvæmt þeirri könnun var sú fiðlueign með ólíkindum, einkum framan af öldinni. I sumum sveitum var þá fiðla á öðrum hverjum bæ og í stöku tilvikum tvær á sama bæ enda var víða margbýlt á jörðum. í öðrum sveitum var eignin minni og í enn öðrum meiri. Þar vísa ég á Reykja- dal. Þar var í bamsminni mínu fiðla á næstum því hverjum bæ. í sumum sveitum, t.d. Mývatnssveit mátti finna dæmi um fimm manna fiðlu- sveit er lék fyrir dansi. Með breytt- um byggingarháttum og húsagerð fyrir og eftir mót 19. og 20. aldar bættust orgel við hljóðfæraeign Þingeyinga. Þau yfirgnæfðu brátt fiðlumar og sjálflærða leikara þeirra. Píanó tók við af orgeli sem aðalhljóðfæri og fábreytni ríkti í hljóðfæraeign og hljóðfæranámi fram undir síðasta áratug. Nú er öldin önnur sem betur fer og Tónlistarskóli Hafralækjarskóla ber ótvírætt vitni þess. Fjölbreytni þeirra hljóðfæra er nemendum bjóð- ast til náms er mikil og næsta ótrú- legt þegar litið er til kennarafjölda skólans. Ég sá á sviðinu leikið á eftir- talin hljóðfæri: Fiðlu, píanó, blokk- flautu, þverflautu, klarinett, tromp- et, tvenns konar hom og harmoniku. Auk þessara: Hljómborð, gítar og trommu þegar hljómsveit skólans kom fram við lok tónleikanna. Uppá- koma hennar, frammistaða og leikni reyndist einstaklega skemmtileg. Hún hefur fallið í góðan jarðveg víð- ar en á skólalóðinni samkvæmt frá- sögn skólastjóra tónlistarskólans: Hljómsveit Tónlistarskóla Hafra- lækjarskóla tók, á liðnu starfsári, þátt í alþjóðlegri keppni reyklausra grunnskóla um tóbaksvamir og var heilbrigðismálaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, verndari íslensku keppninnar. Hljómsveitin sendi til keppninnar frumsamið ljóð og lag sem hún flutti og ávann sér fyrstu verðlaun meðal íslenskra keppenda. Verðlaunin em ferð til Berlínar í júlí nk. á sameiginlegt mót þeirra þjóða er tóku þátt í keppninni. Áheyrendur fögnuðu mjög þessum tíðindum og klöppuðu skólastjóra, kennumm og hljómsveit lof í lófa. Mér er sagt að kennrarar þessa tónlistarskóla séu aðeins tveir, þ.e. skólastjórinn og eiginkona hans, og að þau kenni á öll fyrrgreind hljóð- færi og stjórni hljómsveitinni. Þetta em ensk kraftaverkahjón - Juliet og Robert Fauikner - sem hafa búið hér alllengi og endurreist, byggt upp og auðgað tónlistar- og tónmenntalíf þessara byggða. Hafi þau ómælda þökk og heiður fyrir unnin menning- arstörf í þágu landsbyggðar á Is- landi. Ég óska Þingeyingum þeirrar gæfu að mega njóta starfa þeirra meðan þeim endist aldur. Það er vissulega vert að geta þess að fleiri erlendir tónlistarmenn, virk- ir og snjallir, starfa í S-Þingeyjar- sýslu og raunar mjög víða á lands- byggðinni. Að lokum: Kvöldstundin í Hafralækjarskóla varð mér sérlegur gleðigjafi vegna þess að þar sá ég ungmennum sveita og dreifbýlis veitast sömu tækifæri til tónlistar- menntunar og gerist eða getur gerst í hinum stærri skólum þéttbýlis. Aðstandendum þessa starfs verður seint fullþakkað. ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR, fv. kennari. Ásgerður Jónsdðttir Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.