Morgunblaðið - 06.07.2000, Page 68

Morgunblaðið - 06.07.2000, Page 68
38 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ I.EIKFÉLAG ÍSLAND5S FÓLK í FRÉTTUM faslftEMk 5513°°° THRILLER fnimsýning fös. 7/7 kl. 2030 nokkur sæti laus fös. 14/7 kl. 20.30 laus sæti lau. 15/7 kl. 20.30 laus sæti fös. 21/7 kl. 20.30 laus sæti 530 3030 Hádegisleikhús með stuðningi Símnns — BJÖRNINN fim. 6/7 kl. 12 UPPSELT fös. 7/7 kl. 12 nokkur sæti laus lau. 8/7 kl. 12 nokkur sæti laus fim. 13/7 kl. 12, fös. 14/7 kl. 12 Miðasalan er opin frá kl. 12-18 f loftkastalanum og frá kl. 11-17 f Iðnó. Á báðum stöðum eropið fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar sýning er. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús. (Loftkastalinn/lðnó). Ath. Úsóttar pantanir sefdar 3 dógum fyrir sýningu. Miðasala S. 555 2222 The Hammer of Thor A mythological action-comedy fim. 6/ kl. 14.30 aukasýning Fim. 6/7 kl. 20 uppselt Fös. 7/7 kl. 20 Sýningarta'mi 50 mínútur. Ath. Takmarkaður sýningafjöfdi. — Einstakur viðburður Tónleikar/spuni/dans Kuran kompaní, Lipur tré, Distanz. Föstudagskvöld kl. 21. MIÐASALA í síma 551 9055. Oryggisnet frá rug’linu Þeir tilkynntu þjóðinni að hún myndi öll deyja. Þeir eru enn sprelllifandi og ætla að snúa aftur í sumar. Birgir Örn Steinarsson hitti Utangarðsmennina Mike og Daniel Pollock við upptökur á nýju lagi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Bræðurnir Mike og Daniel Pollock styrkja öryggisnet sitt. Úr hljódverinu ROKKIÐ er lífskraftur. Þetta er til- finning sem flestir finna án þess að vita endilega af því. Ef til vill eftir nokkra klukkustunda langt sjón- varpsgláp fær áhorfandinn þá til- finningu að nú sé kominn tími til þess að slökkva á sjónvarpinu, standa upp, fara út og framkvæma eitthvað sem brýtur hversdagsleik- ann í mola. Þeir sem guggna á þessu verða alltaf áhorfendur, þeir sem fylgja hvötinni eftir eru rokkarar. Utangarðsmenn eru líklegast sú rokkhljómsveit sem reif flesta upp úr sófasettunum fyrir tæpum tveimur áratugum síðan. Þeir sem sátu eftir í sætum sínum tóku síðan að ókyrrast. Utangarðsmenn voru endanleg staðfesting á því að breska pönkbylgjan hefði náð að ströndum íslands. I dag kemur út safnplata með Ut- angarðsmönnum sem inniheldur þekktustu lög þeirra ásamt áður óútgefnu efni. I kjölfar plötunnar ætlar hljómsveitin í tónleikaferð um landið, eins konar riddaraför sem endar svo með endurkomu þeirra í Laugardalshöllina. Til þess að gullhúða endurkomu sína endanlega var hljómsveitin að taka upp nýtt lag á dögunum, það fyrsta í tæp tuttugu ár. Islenski draumurinn „Við erum að taka upp eitt lag fyrir bíómyndina „íslenski draum- urinn“,“ segir Daniel Pollock, annar gítarleikari Utangarðsmanna, er blaðamaður hitti hann í hljóðveri. „Þetta er svört afbragðsgaman- mynd og það getur ekki komið sér betur fyrir okkur því við höfum ver- ið með svarta kímnigáfu alla okkar ævi,“ segir Mike Pollock, hinn gítar- leikari Utangarðsmanna og bróðir Daniels. Bræðurnir fengu að sjá hálftíma úr myndinni, sem er sú nýjasta úr smiðju Júlíusar Kemp, urðu fyrir andagift og fóru heim í sitt hvoru lagi til þess að semja lag. „Þetta var svoldið fyndið,“ segir Mike. „Því hann [Daniel] var með heilt Iag og ég var með heilt lag og við vorum mikið að velta því fyrir okkur hvort lagið væri betra fyrir myndina. Svo fór viðlagið úr mínu lagi út og hans viðlag kom inn í staðinn þannig að lögin sameinuð- ust í eitt. Svo kom Bubbi og samdi strax textann.“ Textinn fjallar um það hvernig efnishyggja ameríska draumsins hefur breitt arma sína yfir allan heiminn og er m.a. orðinn að ís- lenska draumnum. „Þetta er svona martröð af hon- um í okkar nágrenni," segir Mike. Tónleikaferð í sumar Tónleikaferð þeirra Utangarðs- manna hefst á Neskaupstað 14. júlí og endar svo í Laugardalshöll rúmri viku síðar. „Þetta ferli endar 22. júlí í Laug- ardalshöllinni. Þá segjum við þetta gott í bili en það er aldrei að vita. Rúnar býr náttúrulega erlendis en það gæti samt alveg gerst að við kæmum saman aftur,“ segir Daniel. „Það er búið að taka okkur 20 ár að koma saman. Við erum búnir að vera að vinna í því í heilt ár að að undirbúa þessa tónleikaferð þannig að þetta er voðaleg vinna að koma öllum saman. Við erum allir hver í sínum verkefnum og að spá hvort það sé eitthvað fram undan er bara kæruleysi. Þetta er ekki lengur eini hluti lífs okkar,“ segir Mike og skellir upp úr. En skyldu þeir félagar finna fyrir stuðningi frá fólki? „Já,“ svara þeir báðir í kór. „Ahæg ótrúlega. Þetta er líka svo breiður hluti fólks,“ segir Daniel. „Ég hef verið að tala við 17-18 ára krakka og þeir eru mjög spenntir." „Þessi hljómsveit er miklu stærri en einhver einn einstaklingur innan hennar,“ segir Mike. „Ég get svarið að síðan hljómsveitin hætti fyrir tuttugu árum síðan hefur varla liðið vika hjá án þess að einhver komi til mín og þakki mér fyrir. Ég hef allt- af fundið fyrir því að fólk vilji þetta og það sé þörf á þessu. Núna er rétti tíminn kominn. Það er líka mjög gaman að hlusta á gamlar tón- leikaupptökur og átta sig á því að hljómsveitin er miklu betri í dag heldur en hún var þá. Við erum enn betri rokkarar." ,A-ð vísu var góð stemming í þá daga því þá var þetta „splúnkunýtt" fyrir íslenskt tónlistarlíf," bætir Daniel við. „Mér finnst þetta mjög gaman og andinn á milli okkar er mjög já- kvæður. Við enduðum mjög illa síð- ast og ég verð að segja að það hefði verið ljótt að láta það liggja þannig. Nú gerum við þetta með stíl,“ segir Mike. Bræðurnir taka fram að uppá- komur sveitarinnar séu tónleikar enda hafi þeir lítinn áhuga á því að ryðjast inn á sveitaballamarkaðinn. Með höfuðin 50 metrum fyrir ofan jörðina Eins og flestir vita var líferni þeirra félaga ekki það heilsusam- legasta hér áður fyrr. Gæti verið að betra líferni þeirra í dag sé ástæðan fyrir því að hljómsveitin er jafn fersk og þeir félagar fullyrða? „Við erum reynslunni ríkari,“ segir Mike. „Ég held að það hafi ör- ugglega sitt að segja. Þegar ég er að vinna í hljóðveri í dag eða spila á tónleikum er það aðeins tónlistar- innar vegna. Eg hef verið að hlusta á eldri upptökur með okkur og það heyrist greinilega á þeim hvaða áhrif þetta hafði á okkur. Stundum eru 5 menn með fæturna á sviðinu en höfuðin á þeim voru 50 metrum fyrir ofan jörðina. Við vorum ekkert að spila saman þannig að betra líf- erni spilar stóran þátt inn í það að við erum betri í dag. Við erum að hugsa um tónlist í stað þess að hugsa um að komast í vímu.“ „Tónlistin hefur bjargað mér frá ruglinu í lífinu," segir Daniel. „Hún var öryggisnet mitt. Maður gerði alls konar tilraunir á sínum yngri árum en í dag náum við orkunni úr okkur á annan hátt.“ 0PIÐ: MÁNUD. - F0STUD. KL. 12 -18 • LAUGARD. KL. 10-16 Laugavegi 103 • Sími 511 2619 Leðurbuxur......kr. 3.900 Leðurjakkar.....kr. 3.900 Rússkinsjakkar..kr. 3.900 Bolir ...........kr. 690 Pils...............kr. 1.900 Gallabuxur.......kr. 1.490 Toppar..............kr. 990 I skipstjóraklæðn- aði til London Á SJÓMANNADEGINUM var skorað á sjómenn í Reykjavík að mæta á hátíðarsvæði sjómanndags- ráðs á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í sem glæsilegustum sjómannaklæð- um. Lágfargjaldaflugfélagið Go hét ferð fyrir tvo til London í sumar til handa þeim sem valinn yrði „flottasti sjóarinn". Sjómenn létu ekki á sér standa og voru nokkrir um hituna. En sá sem hlaut titilinn eftirsótta heitir Ágúst Magnússon, skipstjóri á hafnsögubátum Reykjavíkurhafnar. Hann sést á meðfylgjandi mynd í skipstjóragallanum sem tryggði honum ferðina með Go með staðfest- inguna á ferðinni til London í hönd- unum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.