Morgunblaðið - 06.07.2000, Side 72

Morgunblaðið - 06.07.2000, Side 72
72 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Börkur og Stefán Hallur munda tökuvélamar. Frá brúðum yfir í bíó Það iðar allt af lífí við Ránargötuna, það er verið að búa til bíómynd. Jóhanna K. Jóhannesdóttir rétt náði í skottið á öðrum leikstjóranum, Unni Ösp Stefánsdóttur, og fræddist um hvernig tilfinning það er að kalla: „Taka tvö!a VERO mODK Laugavegi 97 - Kringlunni P.s. Amazing buxur vereða ekki seldar á útsölu, Davíð og Biddi bíða skipana frá Birni leikstjöra (t.h.) ÞEGAR blaðamann ber að garði sit- ur hópur fólks á gangstéttinni við nýbakað gistihúsið við Ránargötuna og maular hamborgara. Það er há- degishlé og viðstaddir kunna vel að meta augnablikshvíld í blíðunni. Ekki að það sé komin nokkur þreyta í mannskapinn, öðru nær, þetta er annar tökudagur og allir eru fullir lífsorkuj hugmynda og athafnagleði. Unnur Osp, Bjöm Thors og Börkur Sigþórsson eru forsprakkar kvik- myndarinnar, þau skrifuðu handrit- ið, leikstýra, kvikmynda og eru framleiðendur hennar. Hilmir Snær og Margrét Vilhjálmsdóttir rétt fyrir tökur. Dagskráin er stíf og Garún, fram- kvæmdastjóri í tökum, lítur á skeið- klukkuna, matartíminn er búinn og tími til að taka næsta atriði. Unnur Ösp fær undanþágu frá leikstjórn- inni í nokkrar mínútur til að spjalla við blaðamann, hleypur upp stigana upp á þriðju hæð, skýst inn í eitt hinna fjölmörgu herbergja og lætur fara vel um sig. Hún blæs ekki úr nös en blaðamaður lötrar lafmóður á eft- ir og nær varla að bera upp fyrstu spurninguna, hvernig ævintýrið hófst. „Þetta byrjaði allt miklu smærra í sniðum,“ segir Unnur, hikar og bæt- ir svo við: „Svo ég segi bara sannleik- ann átti þetta að verða brúðumynd. Við vorum forvitin og okkur langaði að vinna með þetta form. Við byrjuð- um að fabúlera eitthvað með að gera brúðumynd en svo, í anda sannra ís- lendinga, vatt þetta upp á sig og end- aði í kvikmynd í fullri lengd með at- vinnuleikurum. Þetta þróaðist eiginlega óvart í þessa átt og það hef- ur alltaf verið mjög jákvæður andi í kringum þetta. Það hefur ekki komið neitt slæmt upp á í ferlinu og allt hreinlega gengið framar björtustu vonum.“ Unnið allan sólarhringinn Handrit myndarinnar var unnið í vetur jafnhliða dagvinnu ofurhug- anna. Önnur Ösp og Björn eru bæði nemendur í Leiklistarskóla íslands og Börkur er ljósmyndari. Unnur Ösp viðurkennir að álagið hafi verið mikið meðan á handritsgerðinni stóð. „Við þrjú erum bestu vinir og höfum unnið mikið saman. Auk þess eigum við vel skap saman sem er mjög mikilvægt í svona vinnu. Við unnum handritið á kvöldin, um helg- ar og á nóttinni, unnum eins og brjál- æðingar með skólanum í vetur og hægt og rólega komst handritið end- anlega saman.“ Margir þekktustu leikarar þjóðarinnar eru í stórum hlutverkum í myndinnni og má þar nefna Kristbjörgu Kjeld, Margréti Vilhjálmsdóttur og Brynhildi Guð- jónsdóttur. Ungur leikari, Stefán Eiríksson, er að stíga sín fyrstu spor á leiklistarbrautinni enda er hann ekki nema níu ára gamall og segir Unnur að hann standi sig eins og hetja í öðru aðalhlutverkinu á móti hinum þrautreynda Hilmi Snæ Guðnasyni. Aðspurð segir Unnur að vel hafi gengið að fá atvinnuleikarana til liðs við verkið og tilkoma þeirra hafi einnig hleypt auknum metnaði í verkefnið. Leikararnir fylgdust með öllu handritsferhnu. „Við hittumst oft og ræddum karakterana svo að leikararnir náðu að kynnast persón- um sínum mjög vel. Við ákváðum að fara þá leið að æfa senurnar lítið svo Morgunblaðið/Grolli F.v. Garún, Elín Jónína farðari, Unnur Ösp leikstjóri og Begga skrifta. að það yrði spennandi og „spontant11 stemmning á tökustað. Allir vita ná- kvæmlega hvað er að gerast í hveiri senu og svo mætast þeir fyrir fram- an myndavélina. Þetta er mjög skemmtileg aðferð sem virðist ætla að ganga mjög vel upp.“ Dagur eitt „Fyrsta tökudeginum fylgdi svo- lítið skrítin tilfinning. Við erum ein- hvers konar samsuða af atvinnufólki og áhugamönnum, það er mikill eld- ur í fólki en við erum um leið að læra inn á formið og hvert annað. Þetta hefur samt hingað til gengið mjög vel, við erum byrjuð á vinnunni og búin að átta okkur á hlutunum. Ástæðan fyrir því hvað allt gengur vel er mikið til að þakka henni Gar- únu sem er alveg frábær skipuleggj- andi. Hún stjórnar öllu á tökustað, er dugleg og það hlusta allir á hana. Grundvöllurinn fyrir góðu samstarfi og að hlutirnir gangi upp er einmitt þetta, skipulag. Ef ramminn er rétt- ur er flæðið rétt innan rammans." Áætlaður tökutími er þijár vikur og þegar handritið var skrifað var þessi knappi tími tekinn inn í dæmið en einnig höfðu höfundarnir í huga að hafa tökustaðina fáa og lítinn hóp leikara því það var aldrei ætlunin að gera stórmynd. „Við vildum segja frumlega sögu með fáum persónum þar sem karakterarnir væru í for- grunni. Þetta er aðallega persónu- drifin mynd, þ.e. persónurnar eiga að grípa athygli áhorfandans og halda honum við efnið.“ Nú standa yfir samningaviðræður við hljómsveit um að semja tónlist fyrir myndina. Unnur er leyndar- dómsfull, glottir og harðneitar að segja hver hljómsveitin er, segir að það verði gefið upp síðar. Frumsýning er fyrirhuguð haustið 2001 en Únnur hefur engan tíma til að hugsa um það. Framundan eru æsispennandi tökudagar þar sem líf og fjögurra daga þroskasaga gisti- húseigandans undarlega á Ránar- götunni verður skrásett. Hún kveður með bros á vör, stekkur út og kallar til liðsmanna sinna: „Taka tvö!“ Tökur hafnar á nýrri íslenskri bíómynd, Rvk. Guesthouse - rent a bike

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.