Morgunblaðið - 13.07.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 13.07.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LOKAÐIR FJALLVEGIR 13. JÚLÍ 2000 Nauðsynlegl að ríkið eignist Geysissvæðið Ríkisstjórnin hefur veitt 1,5 milljónum króna til landvörslu og uppbyggingar á Geysissvæðinu. Flestir Qall- vegir nú opnir Nánast allir fjallvegir landsins eru nú opnir fyrir umferð. Aðal ferðamannastraumurinn á hálendinu hefst vanalega um miðjan júlí og hefur verið tiltölulega rólegt á helstu gististöðum til þessa. NÆR allir fjallvegir landsins eru opnir frá og með deginum í dag. Þá opna eystri hluti Fjallabaksleiðar syðri (F210) og Álftavatnskrókur (F233). Að sögn Pálma Jónssonar hjá Vegagerð íslands þá er þetta mjög svipaður tími og vanalega. Umferð á hálendinu tekur mikinn kipp upp úr miðjum júlí og segja landverðir tímabilið frá miðjum júlí til miðs ágústs aðal ferðatímabil ein- staklinga um hálendið. Pétur Hannes Ólafsson, landvörð- ur á Hveravöllum, segir ívið minna um gistingu í ár en vanalega og telur verkfall rútubílstjóra hafa sitt að segja þar. „Fólk lætur það nú samt ekki stoppa sig alveg því það hefur verið töluvert af íslendingum og út- lendingum á bflaleigubílum hér und- anfarið. Einnig hefur verið slatti af hestafólki hér síðustu daga, í gær [fyrradag] voru t.d. áttatíu manns hér í gistingu." Vegir ágætir og veður gott Pétur segir vegi í ágætu standi núna og veðrið hafa verið gott. Undir það tekur Marinó Tryggvason í Nýjadal á Sprengisandi. „Það virðist þó ekki hafa neitt að segja að veðrið hefur leikið við okkur undanfarið. Ferðamannastraumurinn er að fara Vegagerðin og Náttúruverndarráð hafa sent frá sér upplýsingar um hvaða svæði á hálendinu eru lokuð allri umferð vegna snjóa og/eða aurbleytu. Vegir á skyggðu svæðunum eru lokaðir allri umferð þar til annað verður auglýst. Símar Vegagerðarinnar eru: 563-1500 eða 1777 (fjögurra stafa númer). „FORSENDA þess að hægt sé að taka með viðeigandi hætti á þessu svæði er að ríkið eignist það,“ sagði Siv Friðleifsdóttir umhverfís- ráðherra á blaðamannafundi sem hún boðaði til í gær. Fundinn sátu einnig Árni Bragason, forstjóri Náttúruverndar rfldsins, og Helgi Torfason, jarðfræðingur á auð- lindadeild Orkustofnunar, sem staðið hefur fyrir rannsóknum á svæðinu. Á fundinum kom fram að ríkis- stjórnin samþykkti í síðustu viku að veita 1,5 milljónum króna til landvörslu og lagfæringa í tengsl- um við öryggismál á Geysissvæð- inu. Þórir Sigurðsson, sem ráðinn var til starfsins, tók þegar til starfa og mun starfa fram í september en ekki hefur verið tekin ákvörðun um framhaldið. Svæðið ekki nema svipur hjá sjón Ráðherra sagði vilja til þess að skipuleggja Geysissvæðið þannig að auðveldara væri að fylgjast með því og skoða það en skipulag strandað á eignarhaldi. Ríkið á í dag hluta Geysissvæðisins en hefur hug á að kaupa 20 hektara í viðbót. Heimild er fyrir því í fjárlögum að kaupa landið sem um ræðir en hingað til hafi samningaviðræður við landeigendur gengið illa. „Svæðið er ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem það gæti verið,“ sagði Árni Bragason á fund- inum. „Við höfum samið við Einar Sæmundsson landslagsarkitekt að stýra fyrstu þrepum uppbyggingar á svæðinu en hann vann skipulag að svæðinu fyrir nokkrum árum. Hann mun koma með tilllögur að því hvernig bæta má göngustíga- kerfi og fleira." Árni sagði ljóst að skipulag svæðisins byggðist á því að ríkið keypti svæðið, hingað til hefðu gagngerar endurbætur á því strandað á því að ekki hefur náðst samkomulag við landeigendur sem hótuðu lögbanni þegar ætlunin var að setja upp göngustíga fyrir nokkrum árum. Árni sagði að leggja þyrfti í verulegan kostnað á svæðinu, fyrir utan það sem land- svæðið sjálft kostar. Talið er að milli 150 og 200 þús- und gestir komi árlega á Geysis- svæðið og er jafnvel búist við aukn- ingu vegna aukinnar virkni á svæðinu í kjölfar jarðskjálftanna í júní. Ráðherra sagði það miður hve slæm umgengni væri á svæðinu og væru íslendingar þar verri en er- lendir gestir. Gestir virtust ekki fylgja merkingum og átta sig á hve hættulegt svæðið væri. Bent var á á fundinum að aukin brunahætta væri á Geysissvæðinu vegna hækkandi hita í hverunum og vegna þess að Geysir er farinn ekki enn þá.“ Gæsavatnsleið og Dyngjufjallaleið opnuðu óvenju snemma í ár, í lok júní og í byrjun júlí. Það er tveimur til þremur vikum fyrr en vanalega. Marinó segir þó ekki hafa verið mikla umferð um þær enn sem komið er og telur skýringu þess að fólk átti sig ekki á hve lítið snjóaði á norðanverðu hálendinu sl. vetur, öfugt við Suðurlandið. Ástand vega er ágætt, segir Marinó, en árn- ar þó nokkuð grafnai-, jafnvel vara- samar, eftir mikla rigningu á dögun- um. „Þetta eru náttúrlega jökulár og því alltaf varasamar. Það hefur hins vegar enginn lent í neinum vandræð- um í ár en betra er að hafa varann á.“ í Snæfellsskála hefur verið tals- vert rólegra í ár en á sama tíma í fyrra. Þá var óvenjumikil umferð um þær slóðir vegna áhuga á Eyjabökk- um. Skálavörður segir umferðina þó vera að aukast eins og venja er á þessum tíma en yfirleitt sé vinsælasti tíminn fyrstu tvær vikumar í ágúst. Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. ®BÚNAÐARBANKINN HEIMILISLÍNAN Traustur banki www.bLLi Morgunblaðið/Knstinn Ámi Bragason, forstjóri Náttúruvemdar ríkisins, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Helgi Torfason jarðfræðingur. að gjósa litlum gosum og ganga gusurnar yfir barma hans. Það kom einnig fram að sumir hverir eru komnir í suðuhita sem voru það ekki áður og hætta er á því að hverir eða rennsli frá þeim grafi út sprungu og glufur neðan frá og fólk geti þannig stigið niður úr þunnri skorpu sem er yfir slíkum stöðum. Geysisgos hafa ekki áhrif á Strokk Helgi Torfason jarðfræðingur sagði á fundinum frá þessum breytingum sem orðið hafa í kjöl- far skjálftanna. Helgi skýrði einnig frá því að rannsóknir sýndu að engin greinileg tengsl væru á milli Geysisgoss og goss i Strokki. Nið- urstöður fengust eftir að Geysir var látinn gjósa 8. júní sl. og sagði Helgi það nokkurt happ að hver- irnir hefðu verið rannsakaðir áður en skjálftarnir gengu yfir. Ráðherra sagði þessa niðurstöðu merka. Menn hafi alltaf verið treg- ir til að framkalla gos í Geysi vegna hættu á því að þau hefðu slæm áhrif á Strokk. Nú virtist svo ekki vera og svo virtist sem hægt væri að framkalla gos með því að taka pokann sem settur var í rauf- ina á Geysi á dögunum. Þessi gos væri jafnvel hægt að skipuleggja með ferðamenn í huga. „Það þarf að leggja fram heildstæða áætlun um svæðið. Heimamenn hafa staðið sig vel hvað varðar uppbyggingu á þjónustu á svæðinu. Ríkið þarf hins vegar að koma inn til að ganga bet- ur frá umhverfinu sjálfu, náttúr- unni,“ sagði ráðherra í samtali við Morgunblaðið að loknum fundi. af stað núna og byrjar rólega eins og venja er.“ Marinó telur verkfall rútubflstjóra ekki hafa haft teljandi áhrif og segir gistingu í skálanum svipaða og á sama tíma í fyrra. „Hópferðirnar hafa ekki fallið niður þvi flestar ferðaskrifstofumar skipta við litlu aðilana sem eru búnir að semja en áætlunarbfllinn gengur auðvitað Alvarlega slasaður eftir vél- hjólaslys MAÐURINN sem meiddist í vélhjólaslysi í Jökulheimum í fyrrakvöld var þá um nóttina fluttur á slysadeild Landspítal- ans í Fossvogi. Var hann þang- að kominn um klukkan 7 í gær- morgun. Að sögn læknis þar gekkst hann síðar um morgun- inn undir minniháttar aðgerð vegna meiðsla í brjóstholi. Auk brjóstholsmeiðslanna hlaut maðurinn áverka á baki og segja læknar hann alvarlega slasaðan, en ekki í lífshættu. Slysið varð þegar maðurinn var ásamt tveimur félögum sín- um í vélhjólaferð í Jökulheim- um í fyrrakvöld. Að sögn Harð- ar Árnasonar, annars félaga mannsins, urðu fyrir þeim tveir sandhólar með djúpri kvos á milli, en þegar ekið var yfir fyrri hólinn reyndist bæði brattara og dýpra á milli hól- ana en virst hafði í fyrstu. Tveir þeir fremstu komust þó klakk- laust yfir, en sá þriðji í hópnum virtist ekki átta sig á hættunni ogféllafhjóli sínu. Þyrlunni snúið við Slysið varð um klukkan 22:30 og hringdu þeir félagar strax í Neyðarlínuna. Eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar þurfti að snúa við vegna þoku var ákveð- ið að flytja manninn landleiðina og voru björgunarsveitir kall- aðar á vettvang. Fyrstu sveitir komu innan úr Veiðivötnum og voru komnar á slysstað um klukkan 2 um nóttina, en Flug- björgunarsveitin á Hellu var komin um klukkustund síðar. Yfir milljón gestir í ís- lenska skál- anum í Hannover AÐSÓKN að íslenska sýning- arskálanum á heimssýningunni Expo 2000 í Hannover hefur verið samkvæmt væntingum, þrátt fyrir dræma aðsókn að sýningunni í heild. í gær var tekið á móti gesti númer 1.030.000 í íslenska skálanum. Gestir hafa verið alls 3.500.000 frá opnun hennar 1. júní. Samkvæmt þeim tölum hefur íslenski skálinn laðað til sín tæplega 30% gesta hingað til, en aðstandendur höfðu gert sér vonir um 10% aðsókn. Aðstand- endur sýningarinnar höfðu gert ráð fyrir um 40 milljón gestum. Sigríður Sigurðardótt- ir, forsvarsmaður íslenska skál- ans, segir að gestir hafi að með- altali verið 22.000 á dag. „Við gerðum ráð fyrir 20-25.000 gestum á dag, miðað við að 10% þessara 40 milljóna myndu heimsækja íslenska skálann. Sú áætlun hefur staðist.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.