Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000
.■■■....
>
Anand o g
Adams efstir
í Dortmund
•*
SKAK
H o r t m u ii d
DORTMUND
SPARKASSEN
7.-16. júlí 2000
ENSKI stórmeistarinn Michael
Adams kom svo sannarlega á óvart
í fjórðu umferð Dort-
mund Sparkassen of-
urmótsins þegar hann
lagði sjálfan Vladimir
Kramnik og skaust
þar með upp í efsta
sætið ásamt indverska
stórmeistaranum An-
and. Það er ekki á
hverjum degi sem
Kramnik tapar skák.
Hann hafði teflt 82
skákir í röð án taps og
IV2 ár er frá því hann
tapaði síðast skák!
Þetta setur Kramnik í
erfiða stöðu gagnvart
því að ná efsta sætinu,
en vafalítið hefði hann
viljað sýna að hann
væri rétti áskorandinn fyrir Kasp-
arov með því að ná efsta sætinu á
þessu móti.
Með sigrinum gegn Kramnik
hefur Michael Adams skotist upp í
efsta sætið ásamt Anand og eru
þeir nú með hálfs vinnings forystu
á næstu „menn“, Peter Leko og
skákforritið Deep Junior.
Önnur athyglisverð úrslit í fjórðu
umferð voru jafntefli Junior gegn
Alexander Khalifman. Khalifman
fékk tapaða stöðu eftir byrjunina
og sagðist hafa verið að hugsa um
að gefa skákina eftir tuttugu leiki.
Við nánari umhugsun sagðist hann
þó hafa komist að þeirri niðurstöðu
að það væri ekki nógu frumlegt (og
vísaði þar til viðureignar Hiibners
við skákforritið). Khalifman tók sig
síðan verulega á í framhaldinu og
náði að halda jöfnu. Það er kannski
rétt að rifja upp viðureign Junior
við Hubner, þar sem mistök í
vinnslu Morgunblaðsins urðu til
Viswanathan Michael
Anand Adams
Dortmund Sparkassen
Dortmund 7.-16. júlí 2000
Nr, Nafn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn. Röð
1 Evgeny Bareev Rússl. 2702 1/2 y2 1/2 y2 2 5.-6.
2 Michael Adams Engl. 2755 1/2 1 1 y2 3 1.-2.
3 Vladimir Kramnik Rússl. 2770 1/2 0 1 y2 2 5.-6.
4 Viswanathan Anand Indl. 2762 1/2 1 1/2 1 3 1.-2.
5 Peter Leko Ungv. 2743 1 1/2 y2 y2 21/2 3.-4.
6 Dr. Robert Hiibner Þýsk. 2615 0 % y2 0 1 9.-10.
7 Alexander Khalifman Rússl. 2667 0 1/2 1/2 % VÁ 7.-8.
8 Vladimir Akopian Arm.2660 0 1/2 1/2 1/2 VÁ œ I. |4
9 Jereon Piket Holl. 2649 0 1/2 0 1/2 1 CD £ o
10 Junior 6 1/2 1/2 1 1/2 TÁ 3.-4.
þess að stöðumynd úr skákinni féll
niður. Þetta var fyrsta viðureign
Roberts Hubner við skákforrit.
Hubner, sem hafði svart í skákinni,
tefldi franska vörn og virtist ná að
jafna taflið. í 19. leik lék Deep Jun-
ior Kgl-hl, leik sem Leko kallaði
heimskulegan — leik án áætlunar.
Anand hafði á orði að þessi leikur
þýddi, að skákforritið væri í „leik-
þröng“, þ.e. hefði ekki hugmynd
um hvernig ætti að tefla þessa
stöðu. Eftir 19. leik Deep Junior
var þessi staða komin upp:
Hér valdi Húbner að leika
19...Dd7 og bauð jafntefli. Skák-
forritið var hins vegar fljótt að sjá,
að þrátt fyrir að svartur hefði haft
um fjölmarga góða möguleika að
velja var þetta kannski ekki einn af
þeim. Stjórnandi Deep Junior kaus
því að hafna jafnteflisboðinu. Leik-
urinn sem skákforritið sá sem svar
við 19...Dd7 var 20. dxc5 og svo
virðist sem hvítur vinni peð vegna
20...bxc5 21. Re4. Málið er þó ekki
alveg svo einfalt, því eftir 21...Hfb8
nær svartur að halda taflinu gang-
andi. Það má því heita með öllu
óskiljanlegt hvers vegna Htibner
kaus að gefa skákina.
Stöðuna á mótinu má sjá í með-
fylgjandi töflu.
Spennandi verður að sjá úrslit
fimmtu umferðar, en þá mætast
sex efstu menn á mótinu, þar á
meðal þeir Anand og Adams.
Góð frammistaða
íslenskra
ungmenna
íslensku drengja- og stúlknaliðin
á Evrópumóti ungmenna 18 ára og
yngri eiga við ofurefli að etja,
a.m.k. ef skákstig þeirra eru borin
saman við stig keppinautanna.
Drengjaliðið er stigalægst í sínum
flokki og það sama gildir um
stúlknaliðið. Hins vegar virðist bar-
áttuandi liðanna ekki vera í neinu
samhengi við stigatöluna og bæði
liðin hafa náð prýðilegum árangri í
fyrstu þremur umferðunum.
Drengjaliðið er þannig skipað:
1. Stefán Kristjánsson (2300) 2.
Davíð Kjartansson (2230) 3. Sig-
urður P. Steindórss. (2240) 4. Dag-
ur Amgrímsson (1945) v. Halldór
B. Halldórsson (1910).
Stúlknalið íslands skipa:
1. Ingibjörg Edda Birgisd. (1440)
2. Aldís Rún Lárusdóttir (1395) v.
Anna Lilja Gísladóttir.
Mótið er haldið í Balatonlelle í
Ungverjalandi, en því lýkur 15. júlí.
Tefldar verða 7 umferðir. I
drengjaflokki tefla 11 lið, en í
stúlknaflokki fjórtán.
í þriðju umferð gerðu bæði liðin
jafntefli gegn liðum Slóveníu. Sig-
urður Páll vann sína skák, Davíð og
Dagur gerðu jafntefli, en Stefán
tapaði sinni skák. í stúlknaflokki
gerðu Ingibjörg Edda og Aldís Rún
jafntefli, en voru báðar nálægt
sigri.
Islenska drengjaliðið er nú með 6
vinninga af 12 en stúlknaliðið hefur
fengið 2V2 vinning í 6 skákum. Það
er því ljóst að baráttuandinn hefur
sitt að segja gegn ofureflinu.
Daði Örn Jónsson
útbor
Fyrsta greiðslál
nóvember 2000
Lán í allt að
60 mánuði
A notuðum bílum
frá Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf.
£3 on Gj J-\ J i £3 J Lj\ £>jx J
taV37T3?l-SV3r]Í 1 1 - =?fmi 3BRÍÚIÖO