Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
UTSALA
Góðarvörur
Mikill afslóttur
Hverfisgötu 78, sími 552 8980
EIGNAMIÐIIMN
StorfMiwnn: Swrir KriJlinsson ___________._____,........
lögfr. og lögg.fmteignosoli, skjalogerð. Slefón Hrofn Stefónsson
Hollgeinson, sölumoður, Jóhonno Voldimorsdóttir, oug
Steinorsdóttir, súnovorslo og öflun skjolo, Rokel Dógg
.......... . Kjprton
, Ingo Hannesdóttir, símovorslo og ritori, Olöf
símovorslo og öflun skjolo.
W
Sími 5B« 9090 • Fax 58« 9095 • Síðumúla 2 1
Sérhæð óskast
Fjársterkur kaupandi hefur beðið okkur um að útvega 140-180 fm
sérhæð í Hiíðunum eða vesturbænum. Staðgreiðsla í boði. 9616
„Penthouse“ - íbáð óskast
Traustur kaupandi hefur beðið okkur um að útvega
„pentbouse'1 íbúð eða íbúð ofarlega í lyftublokk með útsýni.
Stóreignir óskast
Höfum verið beðnit um að útvega:
2500 - 3000 fm skrifstofúbyggingu (arvinnuhúsnæði).
4000-5000 fm skrifstofúbyggingu (atvinnuhúsnæði).
Staðgreiðsla t boði.
Allar nánari upplýsingar veita Sverrir, Stefán Hrafn eða Óskar.
Isfírskar stúlkur
á saltfískslóðum
TONLIST
Háteigskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kórsöngvar frá ýmsum löndum.
Stúlknakór Tónlistarskólans á
Isafirði söng, meðleikari var
Sigríður Ragnarsdóttir og stjórn-
andi Margrét Geirsdóttir.
Þriðjudag kl. 20.30.
TÓNLISTARSKÓLINN á ísa-
firði státar vafalítið af einum betri
unglingakórum á landinu. Kórinn
söng í Háteigskirkju á þriðjudags-
kvöldið, en er nú farinn til Spánar
til að syngja á kóramóti nærri
Barcelona. Söngur kórsins var í
heild skínandi fallegur, umfram allt
klingjandi hreinn og tær og oft
mjög htjómmikill. Það liggur mikil
vinna að baki þeim árangri sem kór-
inn hefur náð á þeim örfáu árum
sem hann hefur starfað. Söngstjór-
inn, Margrét Geirsdóttir, hefur unn-
ið afbragðs gott starf. Efnisskráin á
tónleikunum, væntanlega sú sama
og sungin verður á Spáni, var mjög
fjölbreytt bæði hvað varðar stíl og
erfiðleikastig og sýndi mikla breidd
í getu kórsins. Þetta litla samfélag
vestur á fjörðum má vera stolt af
stúlkunum sínum. Bestu lögin á efn-
isskránni voru sérlega vel sungin og
smekklega útfærð í músíkölskum
tilþrifum. Negrasálmurinn Oh, Pet-
er, go ring them bells var í þessum
flokki og stúlkurnar sungu af mikilli
innlifun og gleði viðlagið: „I heard
from heaven today! Himnasam-
bandið var ekki síðra í sálmi Þorkels
Sigurbjörnssonar við bæn Kolbeins
Tumasonar, Heyr himna smiður,
sem var borið uppi af andagift.
Þjóðlögin á efnisskránni voru meðal
þess sem best var sungið. Þar má
nefna sönginn frá Wales, Enn
dvelur þú hjarta, Maríubæn frá
Katalóníu og ítalska lagið Bella
bimba. Lag Atla Heimis Sveinsson-
ar, Kvæðið um fuglana, var ákaflega
fallegt í flutningi kórsins, og var
pantað sem aukalag af tónleikagest-
um í tónleikalok. Þótt heildarsvipur
söngs Unglingakórs Tónlistarskóla
Isafjarðar hafi verið mjög fallegur
var einu og öðru smálegu ábótavant.
Framburður kórsins hefði í heild
mátt vera skýrari. Betri framburð-
ur hefði líka hjálpað til við að laga
annað vandamál, linku eða slapp-
leika í hendingalok, þar sem stund-
um var eins og hendingarnar dyttu
niður án þess að fá að lifa til enda.
Góður framburður hjálpar til við að
móta laglínurnar og gefur þeim líf
sitt og lit. Markvissari öndun hefði
líka hjálpað til við að laga þetta.
Stundum var andað á kolómöguleg-
um stöðum, eins og á milli orðanna
„yfir“ og „boðaföllin" í lagi Pauls
Simons við texta Ómars Ragnars-
sonar, Brú yfir boðaföllin (Bridge
Over Troubled Water). Þar hefði
setningin sjálf: „brú yfir boðaföllin"
átt að vera næg vísbending um að
ekki mætti rjúfja „brúna“, þ.e. lag-
línuhendinguna með algjörlega
ónauðsynlegum andardrætti í miðri
hendingu.
Agallar í söng kórsins eru langt
frá því að vera óyfirstíganlegir og
með sömu ástundun og þeim skín-
andi góða árangri sem náðst hefur á
örfáum árum er engu að kvíða um
framtíð hans.
Bergþóra Jónsdóttir
Bach í
Breiðholts-
kirkju
FIMMTU tónleikar í tónleikaröð
þar sem leikin verða öll orgelverk
Bachs verða í Breiðholtskirkju í
kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl.
20. Jörg E.
Sonderman org-
anisti leikur, en
tónleikarnir eru
haldnir í tilefni
af 250 ára ártíð
Johanns Sebasti-
ans Bach.
A efnisskrá
eru Prelúdía,
Adagio og fúga í
C-dúr (BWV 545/529), Fimm sálm-
forleikir úr „Neumeister-Samml-
ung“ O, Jesu, wie ist dein Gestalt
(BWV 1094), Christe, der du bist
Tag und Licht (BWV 1096), Aus
tiefer Not schrei ich zu dir (BWV
1099), Allein zu dir, Herr Jesu
Christ (BWV1100), Wir glauben
alle an einen Gott (BWV 1098),
Þrír sálmforleikir Wer nun den
lieben Gott láBt walten (BWV
691,690, 691b), Partíta um sálma-
lagið Wenn wir in höchsten Nöten
sein (BWV Anhang 78), Kontra-
punktar I, III, IV úr Kunst der
Fuge (BWV 1080), Tokkata og
fúga í d-moll (BWV 565) og Soli
Deo Gloria.
Jörg starfar sem organisti í
Hveragerðis- og Kotstrandar-
kirkju. Hann kennir einnig kór-
stjórn og orgelleik við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar. Hann hefur haldið
tónleika víða, hér heima og erlend-
is, og hefur lagt mesta áherslu á
verk J.S. Bach í efnisvali sínu,
jafnframt Max Regers og sam-
tímamanna hans, auk verka núlif-
andi tónskálda.
Jörg E.
Sondermann
Morten Spanggaard gftarleikari og Lise Lotte Riisager mezzosópran.
Sumartónleikar í
Stykkishólmskirkju
FIMMTUDAGINN 13. júlí nk. kl.
20:30 verða tónleikar í Sumartón-
leikaröðinni í Stykkishólmskirkju. Þá
kemur fram Ydun duo frá Danmörku,
það eru þau Lise Lotte Riisager
mezzosópran og Morten Spanggaard
gítarleikari.
Á efnisskrá þeirra eru verk eftir
dönsku tónskáldin P.E. Lange Miiller
(1850-1926), Egil Harder (1954), Carl
Nilsen (1865-1931) og einleiksverk
fyrir gítar eftir Manuel de Falla
(1876-1946).
Lise Lotte Riisager stundaði nám
við Nordjysk Musikkonservatorium í
Álaborg í Danmörku, Tónlistarhá-
skólann í Malmö í Svíþjóð og Det
kongelige Musikkonservatorium í
Kaupmannahöfn og frá þeim skóla
lauk hún burtfararprófi árið 1999.
Hún hefur stundað nám hjá Evy
Bráhammar og Bodil Giimoes og tek-
ið þátt í námskeiðum hjá Dorothy Irv-
ing og Judith Bechmann. Lise Lotte
Riisager hefur komið fram sem ein-
söngvari við ýmis tækifæri, meðal
annars við Den Jyske Opera í Árósum
og Det Nye Teater í Kaupmannahöfn.
Morten Spanggaard stundaði gít-
arnám hjá Carlos Bonell í London
1996-1997 og hefur tekið þátt í nám-
skeiðum hjá gítarleikaranum Pepe
Romero og Aldo Lagnitta og einnig
hjá píanóleikaranum George Hadjin-
ikos. Árið 1998 lauk Morten Spang-
gaard burtfararprófi frá Nordjysk
Musikkonservatorium í Álaborg, en
kennari hans þai- var Karl Petersen.
Spanggaard hefur haldið tónleika
víða um Danmörku, á Englandi og
Grikklandi og tekið þátt í Tónlistar-
hátíðinni í Schleswig-Holstein.
Lise Lotte Riisager og Morten
Spanggaard hafa unnið saman frá ár-
inu 1992 undir heitinu Ydun duo.
Eftir tónleikana í Stykkishólmi
halda þau til Akureyrar og síðan til
Seyðisfjarðar.
Tónleikaferð þeirra er styrkt af
Norræna menningarsjóðnum.