Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 60
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Stofnun hlutafélags um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
A NYLIÐNU þingi
var samþykkt f'rum-
varp til laga sem ríkis-
stjórnin lagði fram um
stofnun hlutafélags um
Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Frumvarp þetta
var seint fram komið
^gins og því miður ýmis
þau mál sem samþykkt
voru með hraði á síð-
ustu dögum þingsins í
vor án þess að ráðrúm
gæfist til að fjalla um
þau í almennri um-
ræðu. Að vísu mun mál-
ið um skeið hafa verið
til umræðu innan Sjálf-
stæðisflokksins enda
alkunna hversu áhugi fyrir einka-
væðingu hvers konar á eigum ríkis-
ins er útbreiddur þar á bæ en sú um-
ræða hafði ekki farið út fyrir innsta
hring.
Það er þó svo að það fer um mig
þegar talað er um að stofna hlutafé-
_ Íag um slíka stofnun sem þarna er
um að ræða, því sporin hræða, einka-
væðing eða einkavinavæðing stofn-
unarinnar gæti verið handan við
hornið. Enda sagði utanríkisráð-
herra í umræðu á Alþingi að slíkt
væri fyllilega mögulegt. En auk þess
gefur þessi formbreyting strax betra
svigrúm fyrir þá sem hafa viljað
koma þarna í kring ákveðnum
mannaráðningum án þess að óþægi-
leg gagnrýni kæmi frá Alþingi. Nú er
þetta orðið hlutafélag og utanríkis-
ráðherra hefur þá í hendi sér að
4gkoma í gegn þeim mannaráðningum
sem hann lystir en það hefur þvælst
nokkuð fyrir sem kunnugt er.
Það er mikill gróði af rekstri Frí-
hafnarinnar á Keflavíkurflugvelli og
þessi rekstur hefur á undanförnum
árum reynst sannkölluð gullkista
fyrir ríkissjóð sem hefur getað tekið
þarna mörg hundruð milljóna króna
gróða árlega á undanfömum árum.
En gróðinn er auðvitað mikill af því
að verðið er hagstætt og þess vegna
sér fólk sér hag í að versla þama.
Verðlag t.d. á snyrtivörum er lægra
en í fríhöfnum í nágrannalöndunum
væntanlega vegna þess að þarna er
Sigríður
Jóhannesdóttir
ekki þessi þriðji aðili
sem þyrfti að taka til
sín hluta af ágóðanum
ef þessi fríhöfn yrði
einkavædd og rekin á
sama hátt og fríhafn-
irnar í nágrannalönd-
unum sem þegar hafa
verið einkavæddar. Ég
er hrædd um að ef
verðlagið þama færðist
til jafns við það sem er í
þeim fríhöfnum sem
era næstar okkur þá
mundi kannski draga
töluvert úr viðskiptum.
Samkeppnin er nefni-
lega eins og öllum má
ljóst vera við erlendar
fríhafnir fyrst og fremst.
Þær búðir sem reknar hafa verið í
Rekstur
Það er bjargföst trú
mín, segir Sigríður
Jóhannesdóttir, að
hámarksgróði fyrir
ríkissjóð sé af því
að reka fríhöfnina sem
mest í því formi sem
gert er í dag.
flugstöðinni af einkaaðilum og hafa
fengið að selja vömr sem jafnframt
hafa verið teknar út af vörulista frí-
hafnarinnar er það að segja að þær
hafa vægast sagt gengið misjafnlega
og er sá rekstur yfirleitt ekki ábata-
samur fyrir ríkissjóð þegar það er
haft í huga að við stofnun þeirra
fengu þær úthlutað vömm sem áður
vom seldar í fríhöfninni og nam ár-
leg velta þeirra allt að 300 milljónum.
Það er bjargíost trú mín að há-
marksgróði fyrir ríkissjóð sé af því
að reka fríhöfnina sem mest í því
formi sem gert er í dag, það er undir
umsjá úrvals starfsfólks sem hefur
margt unnið þarna um árabil og unn-
ið mjög gott starf þó að því miður
hafi ríkið ekki alltaf borið gæfu til að
meta það við það í launum. Og það er
einmitt einn angi þessa máls að ríkis-
starfsmenn hafa ævinlega verið að
greiða fyrir visst starfsöryggi, góðan
veikindarétt og betri lífeyrisréttindi
með lægri launum en þegar á svo að
einkavæða þessar stofnanir virðist
vera hægt að afnema það starfs-
öryggi sem ríkisráðning hefur boðið
upp á með einu pennastriki og það
bótalaust.
Það hefur verið bent á það að við
hlutafjárvæðingu ríkisstofnana auk-
ist svigrúm til að launa fólki betur en
samningar segja til um, en þegar lit-
ið er til þeirra fordæma sem á undan
em gengin hér á landi svo sem
Landssímans, þá em það einungis
toppamir sem hafa verið hækkaðir
upp úr öllu valdi, aðrir era látnir
dúsa á gömlu töxtunum sem ævin-
lega var haldið í lágmarki. Með því
að samþykkja fyrrnefnd lög um
hlutafjárvæðingu Leifsstöðvar vom
starfskjör þess fólks sem þar vinnur
sett í uppnám og ekki íyrirséð hvem-
ig þau mál verða til lykta leidd.
Það væri í sjálfu sér ekki úr vegi
að breyta rekstrarfyrirkomulagi ein-
hverra þátta í rekstri flugstöðvarinn-
ar sem slíkrar ef tryggt yrði að ekki
héngi annað á þeirri spýtu, þ.e.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sínii 545 5500.
Www.flis.is • nctfang: flis@flis.is
einkavæðing þeirra þátta í rekstrin-
um sem gæfu af sér tekjur.
Nú standa yfir umfangsmiklar
byggingarframkvæmdir í Leifsstöð
vegna aðildar okkar að Schengen-
samningnum og er gert ráð fyrir að
kostnaður af fyrsta áfanga þeirra
nemi um 4 milljörðum króna. Gert er
ráð fyrir að hið nýja hlutafélag taki
við öllum skuldbindingum vegna
hennar bæði þeim sem nú liggja fyrir
ogþeim sem við bætast.
I Ijósi þess að fyrri framkvæmdir
við byggingu Leifsstöðvar fóm langt
fram úr áætlun hefði þá ekki verið
eðlilegt að láta þessi hlutafélagavæð-
ingaráform bíða uns endanlegur
kostnaður við a.m.k. fyrsta hluta
framkvæmdanna lægi fyrir svo ein-
hver yfirsýn væri yfir möguleika
hlutafélagsins til að standa undir
skuldbindingum. Það hefðu verið
eðlilegri vinnubrögð að mínu mati en
að rokið væri í slíkt núna þegar ekki
liggja einu sinni fyrir endanlegar
teikningar af fyrirhuguðum fram-
kvæmdum og því mjög óljóst hversu
mikill hinn endanlegi kostnaður
verður.
Höfundur er þingmaður Samfylking-
arinnar í Reykjaneskjördæmi.
FÓLK I FRÉTTUM
ataf tyrlr st>f.
Fréttagetraun á Netinu
Brúiðhjón
Allur boiöbúiiiUlur Gld*sileq qjdUfaid Biúðhjóiidlisldr
• — - vttv, -
/,c urc \\y\V viKsil ’SlS
l.iiiigtiregi 52. i. 563 4244.
HGGSKQT
J-2.v>,, , í> .-v.•;(-».» Þ íc'
Barnamyndatökur
í sumar
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, Ijósmyndari
vANTIQUEy
Fornsala Fornleifs — aðeins q vefnum
Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499
Veffang:www.simnet.is/antique
Horft á
sjónvarp
Þú eyðir 1/3 hluta
ævinnar í rúminu!
Með því einu að snerta takka getur þú
stillt rúmið í hvaða stellingu sem er.
Með öðrum takka færð þú nudd sem
þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið
þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér.
Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er
allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks
slökun og þannig dýpri og betri svefni.
...gerðu kröfur um
heilsu & þægindi
Einnig fylgir öllum einbreiðum,
stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í júlí.
Slappað af
Lesið
/ .'-/ * / ; / . ’./
Sofið
Betra
rm i * * ”
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477
Opib: Mán. - fös kl. 10-18