Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Borgar stj órinn
í Paimpol
á Fáskrúðsfírði
Fáskrúðsfirði - Borgarstjórinn í
Paimpol í Frakklandi, frú Paulette
Capri, heimsótti Fáskrúðsfjörð á
dögunum á vegum Reykjavíkur -
menningarborgar 2000. Borgarstjór-
inn kom til Islands í tengslum við
siglingakeppnina Paimpol-Reykja-
vík-Paimpol. Hún skoðaði grafreit
franskra sjómanna og minjar tengd-
ar Frökkum á Fáskrúðsíirði undir
leiðsögn sveitarstjórans, Steinþórs
Péturssonar. Þá var sýningin
„Fi-ansmenn á íslandi" heimsótt.
Albert Eiríksson, forstöðumaður
sýningarinnar, hélt stutt erindi um
frönsku sjómennina. Borgarstjórinn
þakkaði höfðinglegar móttökur, en
sagði að erfitt væri að ímynda sér
erfiðleika skútusjómannanna á þess-
um degi, þegar Fáskrúðsfjörður
skartaði sínu fegursta. Vissulega
væri saga þeiira Frökkum þó ákaf-
lega hugleikin og lýsti hún sérstakri
ánægju með að nú hefði verið sett
upp sýning til að minnast þessa
merka þáttar í samskiptasögu land-
anna.
„Eins og frá er greint í bók Elínar
Pálmadóttur, „Fransí Biskví“, munu
um 4.000 skútusjómenn hafa farist á
80 ára blómatíma veiðanna við Is-
landsstrendur. I hinum hrikalegu
mannlegu örlögum sjómannanna er
falin stórbrotin saga, sem ekki er öll-
um kunn,“ sagði Albert Eiríksson.
Frakkar hafa sýnt sýningunni
mikinn áhuga og hefur hún verið
mikil lyftistöng íyrir ferðamennsku á
Fáskrúðsfirði frá því hún var opnuð í
júní sl.
Grágæsinni fjölgar
Blönduósi - Undanfarin ár hefur
grágaes ijölgað mikið á Blönduósi.
Um ástæðuna eru ekki allir sammála
en margir telja virkjun Blöndu vera
eina höfuðástæðuna því með tilkomu
virkunarinnar hefur vatnsyfírborð
Blöndu verið stöðugt og varp grá-
gæsa um Langadal allan misferst
ekki af völdum flóða.
Fólk er misjafnlega ánægt með
íjölgun þessarar fuglategundar. Til
að mynda eru eigendur grasnytja
niðri við Blöndu ekkert yfír sig
hrifnir því áhugi beggja dýrateg-
undanna á grasi er næstum hinn
sami. Grágæsirnar halda sig alltaf
við árbakkann og oftast sem næst
lögreglustöðinni eða Héraðshælinu.
Ef menn nálgast þessa fugla með
meiri hraða en þeir hafa áhuga á
hvæsa þeir að gestum og láta þá vita
hver það er sem ræður. Þó svo gæsin
éti gras og hálkublettir geti myndast
vegna gæsaskíts þykir nú langflest-
um vænt um þessa fugla, sem koma
með vorið og fara með haustið.
Klæjar ykkur í iljarnar
að komast í hitann?
Þið verðið svöl í
þessum...
Slate-Slide sandalar
Vandaðir sandalar úr leðri, fóðraðir með neoprene. Stamur
gúmmísóli heldur þér á jörðinni. Kr. 6.990.-
s&Columbia U D E YCTI
SportswcarCompanyjt WMHm Bm IKll H ittH B
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
------- Skeifunni 19 - S. 568 1 717 -
Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14
Keppendur í mótslok á Þingeyri. Fremsta röð frá vinstri: Vilhjálmur Hauksson, Grétar Hrafnsson, Ingvar
Ingvarsson og Gunnar Guðjónsson. Efri röð frá vinstri: Guðmundur Otri Sigurðsson, Auðunn Jónsson, Magnús
Ver Magnússon, Svavar Már Einarsson, Unnar Garðarsson og Magnús Magnússon.
Magnús Ver Magnússon
V estfj arðavíkingur
ARLEGA aflraunamótið Vestfjarða-
víkingur var haldið um síðustu helgi
á nokkrum stöðum á norðanverðum
Vestfjörðum. Keppendur voru tíu
víðs vegar af landinu.
Bæjarstjóri ísafjarðar, Halldór
Halldórsson, setti mótið fyrir fyrstu
keppnisgreinina, sem var í Neðsta-
kaupstað á ísafirði. Hlaða átti fjór-
um misþungum steinum upp á stór
kefli í brjósthæð á sem skemmstum
tíma. Magnús Ver Magnússon var
öruggur sigurvegari í þessari grein,
næstur kom Svavar Már Einarsson,
Gunnar Guðjónsson og Auðunn
Jónsson.
Næstu tvær keppnisgreinar voru í
eyjunni Vigur í Isafjarðardjúpi og
var fyrri greinin svokallað Herkúles-
arhald. Keppendur áttu að halda
tveimur bobbíngum, en hvor um sig
vó 130 kg með búnaði. Magnús Ver
sigraði með 50,1 sekúndu og næstur
var Gunnar með 41,36 og Auðunn
með 39,8. Seinni greinin var hleðslu-
grein og átti að hlaða nokkrum
þungum hlutum upp í bát. Magnús
Ver sigraði örugglega á 23,81 sek-
úndu, næstur kom Svavar með 26,31
og Unnar Garðarsson með 27,04.
Frá Vigur var haldið til Isafjarð-
ar, en þar átti að keppa í dekkjaveltu
á sjúkrahústúninu. Magnús Ver
sigraði enn einu sinni á tímanum
27,45, annar varð Auðunn á 31,48,
svo Svavar á 38,51. Gunnar Guðjóns-
son meiddist í þessari grein og var
ekki meira með þennan daginn, en
hann hafði unnið keppnina árið á
undan.
Fimmta greinin var í Vestfjarða-
göngunum og nú átti að lyfta stein-
um upp fyrii- höfuð. Magnús Ver og
Auðunn voru efstir og jafnir og lyftu
báðir 123 kg. Svavar var svo næstur
með 113 kg.
Sjötta. greinin var á bryggjunni að
Holti í Önundarfirði og þar átti að
draga Hummer-bíl með reipi langa
vegalengd. Magnús Ver vann þessa
grein á 34,19 sekúndum, næstur kom
Unnar á 35,06, svo Guðmundur Otri
Sigurðsson á 41,64.
Sjöunda greinin nefndist uxa-
ganga og áttu keppendur að ganga
með tvo gaskúta, alls 300 kg, á
bakinu ákveðna vegalengd.
Hér kom næstyngsti keppandinn
Svavar á óvart og gekk 71,4 m, ann-
ar var Gunnar með 65,6 m, Magnús
Ver 57,2 m.
I áttundu greininni var keppt á
Þingeyri og nú átti að kasta 20 kg öl-
kút yfir vegg. Hér urðu efstir og
jafnir Magnús Ver og Auðunn og
köstuðu báðir yfir 5,1 metra.
Síðasta greinin fór einnig fram á
Þingeyri og nú átti að draga rútu eft-
ir aðalgötu bæjarins. Þessa grein
vann Aðunn á 24,43 sekúndum, ann-
ar varð Gunnar Guðjónsson á 24,52
sek. og þriðji Magnús Ver á 24,97
sek.
Urslit urðu þessi:
1. Magnús Ver Magnússon 85 stig.
2. Auðunn Jónsson 69 stig.
3. Svavar Már Einarsson 60 stig.
4. -5. Gunnar Guðjónsson 51,5 stig.
4.-5. Unnar Garðarsson 51,5 stig.
6. Magnús Magnússon 45 stig.
7. Guðmundur O. Sigurðss. 40 stig.
8. Ingvar Ingvarsson 33,5 stig.
9. Vilhjálmur Hauksson 32 stig.
10. Grétar Hrafnsson 27,5 stig.
Sr. Guðni Þór Olafsson blessar húsnæðið. Hjá honum standa Þorbergur
Guðmundsson og Agnes Magnúsdóttir.
eigandi Ísprjóns/Drífu, Kristinn
Karlsson framleiðslusljóri á
Hvammstanga og einnig alþing-
ismennirnir Páll Pétursson og
Hjálmar Jónsson. Að lokum flutti
Valgerður Sverrisdóttir viðskipta-
ráðherra ræðu og sagði það merki-
lega staðreynd að á Hvammstanga
væri ein fullkomnasta og trúlega
stærsta prjónastofa í ullariðnaði í
Norður-Evrópu. Lýsti hún mikilli
ánægju með gang mála og óskaði
stjórnendum, starfsfólki og eigend-
um velfarnaðar í störfum.
Ráðhcrra fékk að lokum það
verkefni að sniða stykki í peysu
sem hún gerði með dyggri aðstoð
Elínar Líndal sem er kunnug
saumaiðnaði úr sinni heimasveit.
Var ráðherra síðan afhent peysa að
gjöf sem þakklætisvottur fyrir
komuna. Fjölmenni var við þessa
athöfn og nutu allir góðra veitinga
að henni lokinni.
/
Isprjón/
Ðrífa
í nýtt
húsnæði
Hvammstanga - Um helgina var
tekin formlega í notkun stórbygg-
ing á Hvammstanga, en það hýsir
sauma- og prjónastofuna Isprjón/
Drífu ehf. Húsið var reist á síðasta
ári en það er stálgrindarbygging á
einni hæð. Húsið er hannað og
byggt af heimainönnum og var
byggt. upp á um hálfu ári. Það er í
eigu eignarhaldsfélags nokkurra
aðila en leigt Íspiýóni/Drífu hf.
Sr. Guðni Þór Olafsson prófastur
flutti húsblessun með aðstoð
tveggja starfsmanna Isprjóns/
Drífu. I máli Guðmundar Hauks
Sigurðssonar, formanns eignar-
haldsfélagsins, kom fram að Drífa
hf. var stofnuð árið 1972 og er elsta
saumastofa landsins. Fyrir nokkru
var stofnað sérstakt félag um fram-
leiðsluna, Isprjón ehf., en Drífa
gerðist sölu- og markaðsaðili. Sagði
Guðmundur frá ferli Isprjóns/
Drífu, m.a. frá kaupum á þrotabúi
Foldu hf. á Akureyri.
Þá töluðu Ágúst Eiríksson, aðal-