Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 61
UMRÆÐAN
Yið dagrenninffu
nýs árþúsunds
UM allan heim hafa
vestrænar þjóðh- fagn-
að árinu 2000. Margir
töldu nýja öld og nýtt
árþúsund hafið en það
verður um næstu ára-
mót. Við íslendingar
minnumst í ár tveggja
stórviðburða í sögu
okkar.
Á helgasta
samkomustað þjóðar-
innar minntumst við
kristnitökunnar og
þúsund ára kristni á
Islandi. Þar á Alþingi
Islendinga var kristni
lögtekin því nauðsyn
þótti að í landinu öllu
ríkti einn siður og ein lög. Megin-
tilgangur þess var að setja niður
átök og tryggja frið og eindrægni fá-
mennrar þjóðar. Annað markmið var
að tryggja greið samskipti Islend-
inga við grannþjóðir, útflutning og
nauðsynleg aðföng. Hvort tveggja
tókst. Samferðar kristni og þjóðar,
vægis kærleikboðskapar kristninnar
og kirkjustarfs í lífi og önn fólksins
hefur áður verið gerð skil á kristni-
tökuhátíðum framan af ári í hverri
kirkjusókn með mikilli þátttöku al-
mennings. Þjóðhátíðin á Þingvöllum
var lokaþáttur vel sóttra hátíðar-
halda vegna þessa einstæða viðburð-
ar.
Við minnumst einnig með marg-
víslegu móti þúsund ára frá því að
Leifur heppni fann Vínland hið góða,
Ameríku, og siglinga íslendinga
vestur um haf frá Grænlandi og Is-
landi. Landafundirnir og vestursigl-
ingarnar voru einstæð þrekvh'ki og
dæmi bæði um mannkosti forfeðra
okkar og um einstæða þekkingu
þeirra til skipasmíða og úthafssigl-
inga.
Framfarir og lífsgæði
í sjónmáli
Er við minnumst þessara ein-
stæðu viðburða leiðir maður hugann
einnig að því hvað fram undan muni
vera, hvernig okkur muni takast ný
viðfangsefni á nýrri öld og nýju ár-
þúsundi. Hugur víkur fljótt að mál-
efnum sem varða lífsgæði okkar og
barna okkar. Eitt það svið þekkingar
sem hvað oftast snertir líf nútíma-
mannsins er læknavísindin. Á þessu
ári hafa komið fram athygli verðar
upplýsingar sem vísa veg til nýrra
framfara í heilbrigðisþjónustu. Ég
stikla á stóru.
Á dögunum lagði Jónína S. Gísla-
dóttir fram afar rausnarlega gjöf til
stofnunar öflugs sjóðs við Landspít-
ala - háskólasjúkrahús til eflingar
hjartalækningum og meðhöndlun
hjartasjúkdóma. Sjóðurinn veitir
umtalsverðum fjármunum til kaupa
á nýjasta búnaði á hverjum tíma og
setur okkur í fremstu röð á þessu
sviði. Mest um vert eru bætandi
áhrif á líf þeirra mörgu sem glíma við
hjartasjúkdóma.
Nýlega birtust niðurstöður sam-
anburðai-athugana OECD á tilkostn-
aði við heilbrigðisþjónustu og skil-
virkni hennar í mörgum ríkjum. Þar
eru skýrar vísbendingar um að ná
megi betri árangri og
jafnframt spara miklar
fjárhæðir með því að
beina fjármunum og at-
orku heilbrigðisþjón-
ustunnar að for-
varnastarfl, þ.e.
fyrirbyggjandi heilsu-
gæslu í meira mæli en
hingað til.
Fyrir nokkru var til-
kynnt beggja vegna
Atlantsála um kort-
lagningu erfðaefnis
mannsins, þekkingar-
starf sem mun leiða til
ÁrniRagnar mikilla landvinninga í
Árnason læknavísindum. Þekk-
ing á grundvelli manns-
ins, erfðum hans og eiginleikum mun
skapa grunn að nýjum aðferðum í
baráttu við sjúkdóma, hrörnun, slit
og afleiðingar slysa og veikinda.
I fyrra mánuði var Landspítala -
háskólasjúkrahúsi í Fossvogi afhent-
ur nýr búnaður, holómsjá til rann-
sókna á meltingarsjúkdómum. Hún
færir okkur stórt skref áfram í við-
brögðum við þessum sjúkdómum
sem hafa áhrif á líðan og starfsgetu
margra. Hún gefur skýrari gögn og
myndir svo sjúkdómsgreining er nú
öruggari og fljótari en áður. Ná-
kvæmni hennar veldur því að hana
má nota til leitar að sjúkdómum á
frumstigum, þ.e. að byrjunarein-
kennum.
í síðustu viku fréttist að í undir-
búningi er nú hér á landi átak tO að
vekja og fræða almenning, vitundar-
vakning um einkenni nokkurra mjög
algengra meltingarsjúkdóma. Jafn-
framt er haflð starf sérfræðinga-
nefndar á vegum landlæknis og
starfshópa læknafélaga á ýmsum
sérfræðisviðum við að leggja fræði-
legan og faglegan grundvöll að
skipulegri leit að sjúkdómseinkenn-
um. Þetta starf byggir á þeirri vitn-
eskju að þeim mun fyrr sem sjúk-
dómur uppgötvast því auðveldari og
kostnaðarminni verður meðhöndlun.
Oþægindi, tekjumissir og önnur
neikvæð áhrif á líf fólks verða líka
því minni. Mestu varðar að því meiri
líkur eru á árangri.
Fyrirbyggjandi heilsugæsla
Leit að byrjunareinkennum er
grundvöllur forvarna og fyrirbyggj-
andi heilsugæslu við sjúkdómum
sem læknar þekkja á frumstigum.
Það á við um marga algenga melting-
arsjúkdóma og krabbamein. Til að
tryggja árangur þarf fleira til en hol-
skoðun sjúklinga: skráningu kirti-
læxla, sem eru meðal fyrstu ein-
kenna krabbameinssjúkdóma;
skipulega og reglubundna skimun
eftir öðrum einkennum sjúkdóma
OP^
55.
ÚTIYISTAR a* NARKAÐUR
við Faxafen i Roykjavík
Vísindi
Árangursríkar forvarnir
og fyrirbyggjandi
heilsugæsla, segir Árni
Ragnar Arnason,
grundvallast á vitund
almennings og
almennum vilja fólks til
þátttöku áður en sjúk-
dómar gera vart við sig.
ásamt skráningu; ættfræðitengda
skrá vegna áhættu í fjölskyldum
þeirra sem greinast og aldurshópum.
Þessar aðgerðir ásamt rannsóknar-
leit að einkennum mynda heildstætt
leitar- og forvarnanet og verða
grunnur fyrirbyggjandi heilsugæslu
gagnvart meltingarsjúkdómum, þ. á
m. krabbameinum. Það starf' krefst
þátttöku heimilis- og heilsugæslu-
lækna, sérfræðilækna og síðast en
ekki síst almennings sem á að njóta
þjónustunnar og ávinningsins.
Þegar uppbygging heilsugæslu-
stöðva hófst var talað um fyrirbyggj-
andi heilsugæslu. Hingað til hefur
hún aðeins náð til eftirlits með heilsu
þungaðra kvenna, nýbura og mæðra
þeirra. Krabbameinsleit er einungis
á vegum leitarstöðvar Krabbameins-
félagins og beinist eingöngu að kon-
um.
Árangursríkar forvarnir og fyrir-
byggjandi heilsugæsla grundvallast
á vitund almennings og almennum
vilja fólks til þátttöku áður en sjúk-
dómar gera vart við sig. Árangur
verður betri heilbrigðisþjónusta og
betra heilsufar, aukin lífsgæði.
Hér er eindregið hvatt til þess að
fyrirbyggjandi heilsugæsla verði
stórum aukin. Heilsugæslustöðvar
og heimilislæknar annist skipulega
leit meðal allra áhættuhópa að ein-
kennum sjúkdóma sem læknisfræðin
þekkja á frumstigum og bregðist við
byrjunareinkennum með smærri að-
gerðum og meðferð. Meðhöndlun
sjúkdóma á frumstigi verður miklu
kostnaðai-minni og líklegri til árang-
urs en langt genginna sjúkdóma.
Með forvörnum og fyrirbyggjandi
heislugæslu og heilbrigðisþjónustu
má bæta lífsgæði íslendinga í fram-
tíðinni og spara fé til annarra við-
fangsefna sem einnig eru mikilvæg
og bi-ýn.
Ég skora á alla þá sem láta sig
þessi mál varða að taka undir og
vinna eindregið að þessari útvíkkun
fyi-irbyggjandi heilsugæslu.
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisfíokksins fyrir Reykjanes-
kjördæmi.
HRINGRASARDÆLUR
DAB dælurnar eru sér-
staklega hljóðlátar,
eyðslugrannar og af-
kastamiklar.
Fjölbreytt úrval af hring-
rásardælum, skolpdælum
o.s.frv. frá DAB.
Leitið upplýsinga
VATNSVIRKINN ehf.
ÁRMIÍIA 21 • SlMI 533 2020 • FAX 533 2022
—Stöðugt rennsli í 45 ór —
MEÐGÖNG UBELTI
Þumalína,
Pósthússtræti 13
Utsalan er hafin
40% afsláttur
kringlunni