Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR PIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 49 ÞÓRÐUR EIRÍKSSON + Þórður Eiríksson fæddist í Reykja- vík hinn 21. apríl 1941. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans hinn 16. júní síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Árbæjar- kirkju 29. júní. „Föðurland vort er á himni“ skrifaði Páll postuli. Þessum orðum viljum við samstarfs- fólk, vinir og félagar Þórðar Eiríkssonar trúa er hann, langt um aldur fram, hverfur frá jarðneskri dvöl til föðurlands vors á himnum. Þóður gerðist umsjónarmaður Ar- túnsskóla 1994 og sinnti því starfi af natni meðan heilsa leyfði. Síðustu tvö árin dró jafnt og þétt úr starfs- þreki hans, en með hörku hetjunnar og kristnu hugarfari hélt hann erfiðleikum og þrautum að mestu fyrir sjálfan sig og lét ekki bugast fyrr en öll sund lokuðust. Hann var góður drengur og einlægur, naut samvistar við fólk geislandi af gleði og glensi. Samskipti hans við samstarfsfólk og nem- endur einkenndust af góðum hug og ræktar; semi við skólann. í erfiðum veikindum var honum stai-fið og skylduræknin jafnan ofarlega í huga. „Það er engin spurning, ég kem aftur. Það er svo margt sem ég þarf að gera niðri í skóla,“ sagði hann fullur trúar sem gaf honum ómældan styrk til hinstu stundar. Með þökk í huga og hjarta eru honum þökkuð samferðarspor í Ar- túnsskóla. Því miður urðu þau spor ekki fleiri en raun ber vitni, en þau skilja eftir hlýjar og mætar minning- ar um gleði og gáska, einlægni og umhyggju, baráttu og bros í blíðu og stríðu. Laus frá þrautum, laus úr stríði lagt í fór á æðstu strendur. Tak þú Guð minn, gæskublíði góðan dreng í þínar hendur. (E.B.) I föðurlandi voru á himnum á Þórður nú samastað í líknandi návist Guðs. Við í Ártúnsskóla vitum að enn þarf margt að gera niðri í skóla og trúum að Þórður muni verða þar með í verkum frjáls af þrautum og laus úr viðjum sárra veikinda. Góður drengur og hjartahreinn er kært kvaddur og menn sakna vinar í stað. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Guðrúnu eiginkonu Þórðar, börnum þeirra, barnabömum svo og ástvinum öllum. Samstarfsfólk Artúnsskóla. AÐALS TEINN MÁR BJÖRNSSON + Aðalsteinn Már Björnsson fædd- ist á Akureyri 17. ágúst 1979. Hann lést 25. júní siðastlið- inn og fór útför hans fram frá Glerár- kirkju 4. júlí. Elsku Alli. Spaug- ari og tónlistarmaður eru fyrstu orðin sem mér koma í hug þegar ég sest niður og hugsa um þig. Aldrei mun ég gleyma aprfl- gabbinu, þegar þú hringdir í mig og sagðir mér að koma blöðunum þínum heim strax, því það væru komnir menn til að ná í þau því að þú hefðir ekki borgað af þeim. Eg var ekki heima og fór í fár en þú sagðir: „Eg verð bara að brjótast inn til þín og ná í þau.“ Þú gast svo ekki meira og fórst þvílíkt að hlæja og sagðir: „Ég náði þér.“ Þú áttir svo góðar setningar og komst með svo skemmtilegar athugasemdir þegar enginn átti von á. Ég man svo vel þegar þú varst að leggja fyrir mig gáturnar, á endanum sagðir þú: „Bíddu, ertu með litað hár, þú hlýtur að vera ljóska." Ég man þegar Trausti bað þig að gefa sér lagið þitt sem honum fannst svo fallegt og auðvitað sagðir þú já, og færðir okkur disk fullan af lögum eftir þig. Þetta var ómetanleg gjöf, minnisvarði um þig. Það eru svo mörg atvik sem við gætum talið upp en við eigum þau í hjarta okk- ar. Minning um yndislegan dreng lifir í hjarta allra sem þig þekktu. Kannski ertu á einhverju skýinu og dinglar fótunum og vinkar í okkur eins og sonur minn sagði, hver veit. Vertu sæll vinur. Elsku Sólveig, Bjössi, Elmar, Anna og aðrir ættingjar, megi guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Jóhanna, Trausti og börn. UNNUR Á. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR + Unnur Ásta Sig- ríður Sigurðar- dóttir fæddist í Reykjavík 6. nóvenib- er 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli hinn 5. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru lijónin Sigurðnr Vigfússon og Ingibjörg Einars- dóttir. Sigríður átti eina hálfsystur, Pál- ínu Þorkelsdóttur, sem er látin. Sonur hennar er Hannes Hafliðason. Sigríður giftist Steingrími Jóns- syni í apríl 1946, á fermingardegi cinkadóttur Steingríms, Jónínu, en móðir Jónínu, Lovísa Guðlaugs- dóttir, fyrri eiginkona Steingríms, var þá látin. Jónína giftist Leifí Steinarssyni og saman eignuðust þau sex dætur: Ástu, Ásdísi, Dagnýju, Sig- rúnu, Árnýju og Unni, en af þeim er aðeins Dagný ein á lífi. Dætur Jónínu og Leifs eign- uðust 11 börn, en af þeim eru nú tvö látin. Sigíður og Steingrím- ur eignuðust engin börn saman. Þau bjuggu lengst af á Laugateigi 13 í Reykjavík en síðar í Bólstaðarhh'ð 41. Bæði nutu þau umönnunar á hjúkrunarhciinilinu Skjóli síðustu ár ævi sinnar. Sigríður var lengst af húsmóðir, en vann um tíma utan heimilis, m.a. lijá Samvinnutryggingum. Utför Sigríðar fer fram frá Foss- vogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Formáli minn- ingargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Þessar upplýsingar koma aðeins fram í fonnálanum. H H H H H H H H H Erfisdrykkjur <*- P E R L A N Sími 562 0200 fÍlIIIIIIIllllIIlí Elsku Sigga, nú ert þú lögst til hinstu hvfldar. Þú hefur eflaust verið farin að þrá hana. Loksins færðu að hitta afa aftur. Þú saknaðir hans ef- laust mikið, enda voruð þið eitt. Ég veit að hann og stelpurnar taka vel á móti þér. Mig langaði bara að þakka þér fyrir þær stundir er við áttum saman. Þær verða vel geymdar í huga mínum. Það var mér ómetan- legt að ná að kveðja þig áður en þú sagðir skilið við þennan heim. Þitt barnabarnabarn Ámý. Legsteinar h. í Lundi SOLSTEINAK við Nýbýlaveg, Kópavogl ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Bcildur Fredcriksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is + Elskuleg systir okkar, GUNNHILDUR G. SMITHSON, lést á sjúkrahúsi í Washington 25. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd ættingja, Ásgeír B. Guðlaugsson, Sævar Guðlaugsson. t Hjartkær systir mín, BERGLJÓT JÓNA GUÐNÝ SVEINSDÓTTIR, Dalbraut 18, Reykjavík, lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 11. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Jónína Margrét Sveinsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÞÓRSTEINN BERGMANN MAGNÚSSON kaupmaður, Baughúsum10, lést sunnudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 14. júlí kl. 10.30. Karitas Bjargmundsdóttir, Þorsteinn Þórsteinsson, Berglind Karitas Þórsteinsdóttir, Stefán Garðar Óskarsson, Karitas Alfa, ísak Hrafn og Jakob Steinn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ASTRID ÞORSTEINSSON hjúkrunarfræðingur, sem lést laugardaginn 1. júlí, verður jarðsung- in frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 17. júlí kl. 13.30. Kjartan Jóhannsson, Ingigerður María Jóhannsdóttir, María Kjartansdóttir, Jóhann Guðni Reynisson, Birna Reynisdóttir Biagioli, Astrid Maria Reynisdóttir Browne, David Browne og barnabarnabörn. Irma Karlsdóttir Reynir Guðnason, Þorkell Guðmundsson, Elínborg B. Benediktsdóttir, Fernando Biagioli, + Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, YNGVI KJARTANSSON blaðamaður, Hrísalundi 16a, Akureyri, sem lést fimmtudaginn 6. júlí, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. júlíkl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta lyfjadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, hjálparsveitir eða Krabbameins- félagið njóta þess. Bryndís Arngrímsdóttir, Andri Yngvason, Rut Hermannsdóttir, Hlff Einarsdóttir, Einar Kjartansson, Árni Kjartansson, Ólafur Kjartansson, Elín Kjartansdóttir, Arnfríður Kjartansdóttir, Jóhann Ragnar Kjartansson Óttar Kjartansson, Arnar Yngvason, Bryndís Guðmundsdóttir, Kjartan Jónsson, Marcia J. M. Vilhjálmsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir, Kristín Dúadóttir, Agnar Kristjánsson, Kim Kappel Christensen, Jónína Guðjónsdóttir, Bryndís Hafþórsdóttir. rfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt aó300 manns. EINNIG UiTTUIi HADEGISMA'niII MEIKCAFFI OG TERTU A EFTIR - SAMA VERD . »04, 6 SSaSr “ 'iohnuí Glœsilegar veitingar frá Veislunni Auslurströnd I2 • 170 Sdtjarnames • Sfani: 561 2031 • Fax: 561 2008 VEISLAN A G3 VF.ITINGAELDHUS www.veislan.is _ _ -C3 ( Sími 564 4566
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.