Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.07.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sveitarsljórí Skútustaðahrepps Léttir fyrir flesta íbúa SIGBJORN Gunnars- son, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, segir úrskurð skipu- lagsstjóra ríkisins um áframhaldandi vinnsluleyfi kísilgúrs mikinn létti íyrir flesta íbúa við Mývatn. „Það kemur mér samt ekkert á óvart að andstæðingar Kísiliðj- unnar skuli ætla að kæra. Þetta eru tvenn sjónarmið sem takast á og ég held að það sé nánast ekkert mál sem fer í umhverfis- mat eða ólík sjónar- mið eru um, sem ekki er kært í dag; þannig að ég held að það hefði verið kært, á hvom veg sem úrskurðurinn hefði fallið. Hins vegar verða menn að átta sig á því, að þetta umhverfis- mat held ég að sé langflóknasta um- hverfismat sem gert hefur verið, og það auðvitað ræðst af því að lífríkið hér er svo gífurlega fjölbreytt. Úrskurðurinn er mikil lyftistöng fyrir sveitarfélagið, þegar nú endan- lega liggur fyrir að ekki verða hér veruleg- ar breytingar á at- vinnuháttum sem ég og flestir óttuðust, af því að það hefði auðvitað kippt stoðunum undan því samfélagi sem við byggjum í dag. Það er ekkert öðruvísi. Byggðastofnun gerði úttekt á þessu 1997 og mat óháðra aðila þar var, að ef kísilgúr- vinnsla legðist hér af myndu tekjur sveitar- sjóðs dragast saman um 50% með afleiðing- um sem öllum ættu að vera ljósar. í kjölfar þess að vinnsluleyfi verður veitt í Syðiiflóa er mögulegt fyrir sveitarfélagið og íbúana að horfa til framtíðar. Und- anfarin ár, meðan óvissa hefur ríkt, hafa á marga lund verið erfið. íbúar hafa horfið á braut og sveitarfélagið haldið að sér höndum um ýmsar framkvæmdir sem nauðsynlegar mega teljast. Ég hlýt því að horfa björtum augum til framtíðar.“ Sigbjörn Gunnarsson Morgunblaðið/Helgi Bjamason Rússnesku tvíþekjunni Antonov AN-2 með merkjum rússneska flugfélgsins Aeroflot hefur þegar verið komið fyrir í Vatnagarðaskýlinu sem verið er að endurbyggja á Hnjóti í Örlygshöfn. Ingi Bogi Hrafnsson heldur í spaðann á flugvélarmótornum. Vatnagarðaflugskýlið klætt UNNIÐ er að klæðningu á grind Vatnagarðaflugskýlisins sem sett hefur verið upp á Hnjóti við Pat- reksfjörð á vegum Flugminjasafns Egils Ólafssonar. Flugskýlið verð- ur megin bygging Flugminjasafns- ins og á endurbyggingu þess að ljúka í sumar. Egill Ólafsson, bóndi og minja- vörður á Hnjóti, safnaði ýmsum merkum munum sem tengjast sögu flugsins og gaf Flugmála- stjórn safnið fyrir nokkrum árum. Meðal muna safnsins var grind flugskýlisins frá Vatnagörðum í Reykjavík. Flugskýlið var framleitt í þýsku Junkers-flugvélaverksmiðjunum og reist við Vatnagarða í Reykja- vík 1930 til að hýsa Junkers- sjóflugvélar Flugfélags íslands. Það var tekið niður á sjöunda ára- tugnum. Egill Ólafsson fékk grind- ina til sín og var hún reist þar. Er nú verið að ljúka endurbyggingu skýlisins á vegum Flugmálastjórn- ar og samgönguráðuneytisins. Stúdentagarðar í Reykjavík Aldrei fleiri umsækjendur GÍSLI Már Gíslason, stjómarformaður Nátt- úrurannsóknastöðvar- innar við Mývatn, er harðorður í garð skipu- lagsstjóra og telur að úrskurður hans um skil- yrt námaleyfi fyrir Kís- ilgúrverksmiðjuna sé pólitísk ákvörðun. Vill hann að úrskurður Skipulagsstofnunar um kísilgúrvinnslu úr Mý- vatni verði kærður og hyggst leggja það til. „I íyrsta lagi varpar skipulagsstjóri, að mínu áliti, ábyrgðinni yfir á leyfisveitendur, varðandi tilhögun námuvinnslunnar í framtíðinni, í stað- inn fyrir að setja inn ákveðin skilyrði, ef hún yrði veitt á annað borð. í öðru lagi tel ég, á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir og á grundvelli áratuga rannsókna á Mý- vatni, sem hafa ótvírætt sýnt þann skaða sem hefur átt sér stað í Ytriflóa og með miklum Ukum að það verði skaði í Syðriflóa, flytjist vinnslan þangað. Leyfisveitandi mun aldrei geta stöðvað námagröft síðar, þótt hann vildi. Það yrði mikið slys, því hér er um að ræða vatn sem er ákaflega mikilvægt á alþjóðavísu hvað náttúru varðar, eins og allir vita, og er nokk- urs konar andaverksmiðja Evrópu. I þriðja lagi finnst mér það vera móðgun við íslenska vísindasamfélag- ið, að kalla til álit danskrar verkfræði- stofu, þegar liggja íyrir skýrslur frá íslenskum vísindamönnum í Háskóla Islands, Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn, Vegagerðinni og að auki ýmsum rannsóknastofnunum og verkfræðistofum, er varða líffræði- lega þætti, sem og eðlis- og efna- fræðilega þætti. Þessar skýrslur eru miklar að vöxtum. í íyrsta lagi eru þar rannsóknir á einstökum þáttum; niðurstöðurnar voru teknar saman árið 1990 í svo kallaðri Sérfræðinga- nefndarskýrslu. Árið 1993 tók svo verkefnahópur saman skýrslur, sem einblíndu fyrst og fremst á set- flutninga og flutning á fæðuefnum inn á ný graftarsvæði. Síðan liggur fyrir Mats- skýrslan, sem byggir á enn frekari rannsókn- um, og svo umsagnir matshóps sem fór rfir hinn lífiræðilega þátt í skýrslunum. Sá mats- hópur segir, að í fyrsta lagi eigi iðnrekstur ekki við á Mývatni, í öðru lagi að rannsóknimar við Mývatn séu mjög vel unnar, og í þriðja lagi, að ef það skyldi verða heimilaður námagröftur, þá verði áhrifin minnst í Bolum, á svæði 1. Úrskurður skipulagsstjóra núna heimilar námagröft á svæði 2, en ekki svæði 1. Ég bendi á, að beiðni var send tii Danmerkur 16. maí og álit manna þar var tilbúið 22. maí, og ekki komu þeir til íslands til rannsókna. En afrakst- urinn er engu að síður tvær skýrslur, önnur er 5 blaðsíður að lengd og hin 2 blaðsíður. Mér sýnist þetta í fljótu bragði vera eitt prósaljóð, frá upphafi til enda, og í þeim um svo mikla van- þekkingu að ræða, að jafnvel skipu: lagsstjóri hefði átt að geta séð það. í skýrslunum segir, að aðalástæður fyrir þeim sveiflum sem hafa átt sér stað í lífríki Mývatns séu áhrif fiski- stofna sem séu rándýr á þörungaæt- ur, og að þörungaætumar hafi mikil áhrif á þömngavöxt í vatninu og að þau áhrif séu miklu meh'i í Ytriflóa heldur en nokkra sinni hefur átt sér stað með námagreftrinum. Stað- reyndin er hins vegar sú, að það eru engar sannanir um slíkt í Mývatni, eins og skandinavíski matshópurinn benti á og vora þeir sérfræðingar í fiskistofnum. En þessu er haldið hér fram, blákalt. Síðan eru engir út- reikningar, heldur einungis sagt að sennilega séu setflutningamir of- metnir, án þess að það sé rökstutt á annan hátt, og að þeir muni ekki hafa þau skaðlegu áhrif, sem aðrir hafa bent á, líka þessi skandinavíski mats- hópur sem var fenginn til að meta rannsóknaniðurstöður sem lágu fýrir sl. haust. Eðli setsins er sem sagt ekki rannsakað, þ.e.a.s. hvað mikið er af fæðu í því fyrir pöddur og hvað er ólífrænt, en það skiptir sköpun hvemig set fellur til í námagryfjum- ar en ekki magnið. Mér finnst vera mjög einkennilegt, að það skuli vera hægt að taka jafn mikilvæga ákvörð- un á grandvelli skýrslu sem ekki er betur unnin en raun ber vitni.“ Gísli segir ennfremur, að margt sé afar óljóst í úrskurði skipulagsstjóra, eins og t.d. að halda beri áburðar- efnaákomu í lágmarki. Það sé engan veginn augljóst hvað J)að merki. Og hann heldur áfram. „Arið 1993 gerðu iðnaðarráðherra, umhverfisráðherra og Náttúraverndarráð með sér sam- komulag, um að það námaleyfi sem þá var gefið út yrði seinasta náma- leyfi sem gefið yrði út. Að því unnu fyrir hönd iðnaðarráðuneytis Bjöm Friðfinnsson, þáverandi ráðuneytis- stjóri, og Jón Ingimarsson; fyrir um- hverfisráðuneyti Magnús Jóhannes- son, ráðuneytisstjóri, og Jón Gunnar Ottósson sem þá var deildarstjóri í ráðuneytinu; og frá Náttúravemdar- ráði voru það Amþór Garðarsson prófessor, sem þá var formaður ráðs- ins, og ég. Þetta átti sem sagt að verða endanlegt námaleyfi; það var farið eins langt í öllum mörkum í Ytri- flóa eins og talið var forsvaranlegt, og reyndar út fyrir þau mörk sem var ráðlagt, til þess að gefa aðlögunar- tfma til að ljúka námagreftrinum þar. Verksmiðjan fékk heimild til að leita að kísilgúr utan Mývatns, sem var gert en án árangurs. Jafnframt var ákveðið að friða Syðriflóa alveg, þannig að þar yrði ekki námavinnsla. Þetta var samkomulagið og ég lít svo á, að það samkomulag sé ennþá í gildi.“ ALDREI hafa fleiri stúdentar sótt um vist á Stúdentagörðum í Reykjavík en nú. Alls bárust 835 umsóknir fyrir skólaárið 2000- 2001, en umsóknarfrestur rann út 20. júní og úthlutun lýkur í lok júlí. Aðeins verður mögulegt að út- hluta um 60% þeirra sem sóttu um, en íbúðir og herbergi til leigu á Stúdentagörðum eru 511 talsins. Umsóknum hefur fjölgað hlut- fallslega mun meira, um 30% frá 1998, en nemendum við Háskóla íslands, sem fjölgaði um 6% á sama tímabili. Ástæða fyrir fjölgun umsókna er hagstætt leiguverð, en samkvæmt upplýsingum frá Stúdentagörðum var leiga í júlí fyrir 12 fermetra herbergi á Gamla Garði, með hús- gögnum, tengdum síma, sameigin- legu baðherbergi og fullbúnu eld- húsi, setustofu, rafmagni og hita, 18.758 krónur. Til samanburðar er meðalverð á 13 fermetra herbergi, með aðgangi að baðherbergi og eldhúsi, á almennum markaði 22.700 krónur, samkvæmt upp- lýsingum frá Leigumiðlun stúd- enta. Félagsstofnun stúdenta á aðeins eftir að byggja eitt íbúðarhús á há- skólasvæðinu. Ráðgert er að helm- ingur hússins, sem í verða 130 ein- staklingsíbúðir, verði tekinn í notkun haustið 2002 og hinn helm- ingurinn árið 2003. Þegar bygg- ingu hússins lýkui' verður það svæði sem úthlutað var undir stúd- entaíbúðir uppurið. Seglskútan Elding Komin til Narss- aq á Grænlandi SEGLSKÚTAN Elding sigldi inn í höfnina í Narssaq við Breiða- Qörð á Grænlandi i fyrrinótt. Þar lagðist skútan utan á íslenska togarann Hrísey, sem er fylgdar- skip víkingaskipsins íslendings. Leiðangurinn Vínland 2000 hafði þá verið sambandslaus við umheiminn í rúma viku, frá því lagt var af stað frá íslandi. Skip- verjarnir átta eru að sögn leiðang- ursstjóra, Rúnars H. Sigdórsson- ar, allir við góða heilsu og vel á sig komnir. Siglingin gekk hægt en öragg- lega. Vindátt var lengstum óhag- stæð og stóð af suðvestri. Hávaða- rok var síðasta sólarhringinn, áður en náð var landi við vestan- vert Grænland. Elding mun halda kyi-ru fyrir í Narssaq þar til á laugardag, en þá verður haldið til Brattahlíðar í Eiríksfirði. Þar verða hátíðarhöld til að minnast 1.000 ára afmælis landafunda. Eftir helgi verður siglt áleiðis til L’Anse aux Meadows, eða Leifsbúða, á Ný- fundnalandi. Þangað er áætlað að koma í tæka tíð fyrir hátíðarhöld vegna landafunda 28. júní. Heldur áfram á laugardag Frá Leifsbúðum verður haldið áfram í vestur, til Québec í Kan- ada. Þaðan er svo áformað að snúa aftur heim til íslands með við- komu í St. John’s á Nýfundna- landi um miðjan ágúst. Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn um úrskurð skipulagsstjöra um kísiliðjuna Hyggst kæra úrskurðinn Gísli Már Gislason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.