Morgunblaðið - 13.07.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 13.07.2000, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR13. JÚLÍ 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ytri áhrif vega þyngra Boston. Reuters. NORRÆNIR vísindamenn hafa komist að því, að helstu orsakir krabbameins eru efni sem fólk kemst í snertingu við, en ekki arfber- ar, samkvæmt ritgerð sem birtist í læknaritinu NewEngland Journal of Medicine í dag. Danskir, sænskir og finnskir vís- indamenn rannsökuðu hátt í 90 þús- und tvíburapör og komust að því að arfgengi var orsök 42% tilfella blöðruhálskirtislkrabbameins, 35% ristilkrabbatilfella og 27% brjósta- krabbatilfella. Þessar tölur sýna, að í flestum tilfellum eru það ekki óhjá- kvæmileg örlög fólks að fá krabba- mein vegna arfbera, segir dr. Robert N. Hoover, við Bandarísku krabba- meinsstofnunina, í leiðara ritsins. Paul Lichtenstein, við Karolinska Institutet í Stokkhólmi, fór fyrir rannsókninni og segir hann að það hlutverk sem arfgengi gegni í þróun sumra tegunda krabbameins bendi þó til þess að enn vanti mikið upp á í þekkingu á krabbameini. Krabbameins- rannsóknir Þjarmað að russ- neskum auðjöfrum Moskvu. Reutcrs. YFIRVÖLD í Rússlandi skýrðu frá því í gær að sakamál hefði verið höfð- að gegn stærsta bílafyrirtæki lands- ins og fleiri stórfyrirtæki yrðu sótt til saka vegna meintra skattsvika. Þetta hefur kynt undir vangaveltum um að rússnesk stjómvöld hyggist hefja herferð gegn auðjöfrum sem auðguð- ust með vafasömum hætti á valdatíma Borís Jeltsíns, íyrrverandi forseta. Vladímír Pútín forseti hefur spáð þvi að auðkýfingamii- eigi erfiðari tíma íyrir höndum. Pútín sagði í viðtali við Reuters í fýrrakvöld að hann vildi byggja upp frjálsan markaðsbúskap þar sem eng- inn væri hafinn yfir lögin. ,Auðvitað em til menn sem þrífast vel í ringul- reið,“ sagði Pútín og skírskotaði til auðjöfra sem högnuðust á óreiðunni í efnahags- og viðskiptalífi landsins íyrstu árin eftir hmn Sovétríkjanna. Pútín bætti við að þessir menn vildu að ástandið héldist óbreytt. „Ég tel þó að rússneska þjóðin og vinir okkar er- lendis sætti sig ekki við það.“ Rússneska skattalögreglan höfðaði í gær sakamál gegn stjómendum stærsta bílafyrirtækis landsins, Avto- VAZ, sem framleiðir aðallega Lada- bíla, og kvaðst ætla að lögsækja fleiri íyrirtæki vegna meintra skattsvika. Ekki lengur friðhelgir Daginn áður lögðu saksóknarar hald á skjöl fjölmiðlasamsteypu auð- jöíúrsins Vladímírs Gúsínskís, sem var fangelsaður í nokkra daga í síð- asta mánuði vegna ásakana um fjár- svik. Skattalögreglan hefur einnig höfðað mál gegn Vagit Alekperov, forstjóra LUKOIL, stærsta olíuíyrir- tækis Rússlands. Þá hafa yfirvöld beint spjótum sínum að auðjöfrinum Vladímír Potanín, aðaleiganda eins af stærstu málmvinnslufyrirtækjum heims, Norilsk Nickel. Míkhaíl Kasyanov forsætisráð- herra sagði í gær að rússneskir auð- kýfingar, sem væm sakaðir um fjár- málaglæpi, væm ekki lengur frið- helgir. Sprenging í Brooklyn BJÖRGUNARMENN höfðu ígær fundið eitt lík í rústum tveggja húsa er hrundu í Brooklyn-hverfí í New York-borg á þriðjudagskvöld. Tveggja var enn saknað. Telja yfir- völd að gassprenging hafi orðið í öðru húsinu, sem var fjögurra hæða, og hafi það hrifið með sér næsta hús, sem var þriggja hæða, er það hrundi. Rannsókn á spreng- ingunni stendur yfir. Kona beið bana þegar gasspreng- ing varð í Sevema Park í Maryland á þriðjudagskvöld. Eiginmaður hennar og sonur fengu alvarleg bmnasár. Hús þeirra gereyðilagð- ist í sprengingunni. Stokkað upp í með- ferð nauðgunarmála HANNE Harlem, dómsmálaráð- herra Noregs, hefur ákveðið að stórbæta meðferð nauðgunarmála í Noregi og hefur hún skipað lög- reglunni að rannsaka mál af þessu tagi betur en nú er gert og tryggja að þau verði eitt af forgangsmál- unum í kerfinu. Harlem styðst í þessu við tillög- ur sérstakrar nefndar sem norski ríkissaksóknarinn skipaði en þær vom kynntar fyrr á árinu. Em þær nú til umfjöllunar hjá ýmsum stofnunum og samtökum en Harlem vill að sumum þeirra verði hrint í framkvæmd án tafar. Skýrði hún frá því í viðtali við Aft- enposten. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að lögreglan gerðí ekkert með átta af hverjum tíu nauðgun- arkæram og einnig var sýnt fram á að rannsókn á þessum málum er skipulagslítil og tekur langan tíma. Þær tillögur nefndarinnar sem Harlem vill gera að vemleika nú strax era þessar: Skýr fyrirmæli verði um að nauðgunarkæra sé forgangsmál og rannsóknin verði í höndum hæfra manna. I sérstökum málum skal leitað aðstoðar rannsóknarlögreglunnar. Færsla sakavottorða skal bætt og tryggt að þar sé getið nauðgun- ardóma eins og annarra. Hert verði á faglegri yfirstjóm saksóknara yftr lögreglunni. Ríkissaksóknari gefi út reglur og fyrirmæli um hvemig taka skuli á nauðgunarmálum. Ýmis norsk kvennasamtök halda því fram að óbreyttir lög- reglumenn kunni ekki og hafi ekki verið kennt að ræða við konur sem kæra nauðgun og Harlem vill að á því verði ráðin bót í Lögregluskól- anum. Hefur hún falið nefnd að koma með tillögur um úrbætur í því efni. Auk þess vill hún að kann- að verði skipulega hvemig þessar konur upplifa samskipti sín við lögregluna og meðferð málsins í framhaldi af því. Sprengjutilræði í miðborg Madrid Madrid. Reuters, AFP. SPRENGJA sprakk í bíl á verslun- argötu í miðborg Madrid fyrir dög- un í gær og aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, var talin hafa staðið fyrir tilræðinu. Sjö manns særðust í sprengingunni og tveir fengu taugaáfall. Sprengjan sprakk við stórverslun Corte Ingles og framhlið tveggja neðstu hæða byggingarinnar skemmdist. 52 ára Israeli mjaðmargrindar- brotnaði og særðist alvarlega af völdum sprengjubrota. Aðrir urðu fyrir minniháttar meiðslum. Lögreglan sagði að 20 kg af sprengiefni hefðu verið í bílnum. Sprengingin varð áður en verslanir vom opnaðar. Markmiðið að verða lögreglumönnum að bana? Óþekktur maður hringdi í nafni ETA tuttugu mínútum fyrir sprenginguna til að vara við henni. Lögreglunni gafst þó ekki tími til að finna sprengjuna og gera hana óvirka. Ríkislögreglustjóri Spánar, Juan Cortino, sagði að sprengingin hefði orðið tíu mínútum fyrr en maðurinn hafði sagt. Grunur leikur því á að viðvörunin hafi verið brella til að tæla lögreglumenn nær sprengingunni. „Hugsanlegt er að megin- markmiðið hafi verið að verða lög- reglumönnum að bana þegar þeir kæmu á staðinn,“ sagði lögreglu- stjórinn. Lögreglumaður lét lífið þegar sprengja sprakk í bíl á sama stað 1995. Talið er að liðsmenn ETA hafi orðið fimm manns að bana frá því að hreyfingin batt enda á fjórtán mánaða vopnahlé sitt í desember. Hreyfingin er grunuð um sjö sprengjutilræði á þessum tíma og herforingi beið bana í einu þeirra á öðmm stað í Madrid fyrr á árinu. Talið er að 32 ára barátta ETA fyrir sjálfstæðu ríki Baska á Norð- ur-Spáni og í suðvesturhluta Frakklands hafi kostað 800 manns lífið. Olíufram- leiðslan aukin? FULLTRÚAR Kúveits, eins OPEC-ríkjanna, sögðu í gær að líkur væru á því að samtök- in myndu auka við framleiðslu sína í lok mánaðarins ef verð á olíu lækkar ekki. „Við verðum að bíða þar til í lok mánaðarins og sjá hvað markaðirnir gera. Ef við telj- um að verðið hækki umfram það sem réttlætanlegt má teljast, munum við grípa til aðgerða," sagði Sheikh Saud Nasser al-Sabah, olíumálaráð- herra Kúveits í gær. Ali Rodr- iguez, forseti OPEC og orku- málaráðherra Venesúela, sem staddur var í Kúveit í gær, sagðist þó ekki telja að nokk- urt OPÉC-ríki muni auka við framleiðslu sína einhliða. Yfir 250 fdr- ust í Nígeríu FULLTRÚAR hers og lög- regluyfirvalda í Nígeríu sögðu í gær að yfir 250 manns hefði farist í sprengingunni við olíu- leiðslu í suðurhluta landsins á mánudag og að tugir væru slasaðir eftir slysið. „Ólíklegt er að réttur fjöldi fórnar- lamba muni koma fram á næstunni en við vitum að meira en 250 manns fómst í sprengingunni á mánudag,“ sagði háttsettur embættis- maður í gær. „Við höfum náð í líkamsleifar fjölmargra en mikill fjöldi líka hefur hrein- lega brunnið til ösku,“ sagði embættismaðurinn sem ekki vildi láta nafns síns getið. > „Astarveiru- hönnuður“ til metorða UNGI maðurinn sem talinn er hafa staðið að baki „ástarveir- unni“, tölvuveirunni svoköll- uðu sem fór um heimsbyggð- ina eins og eldur í sinu fyrir skömmu, hefur verið ráðinn í starf ráðgjafa hjá bresku tölvufyrirtæki, að sögn starfs- manns háskóla sem maðurinn gekk í. Onel de Guzman er 23 ára gamall og er „ástarveiran" rakin til hans en ekki hefur verið hægt að sanna brotið á hann. Samkvæmt Johnny Ramos, starfsmanns AMÁ tölvuháskólans, hefur Guzman þegar hafið störf við útibú ónefnds bresks fyrirtækis á Filippseyjum. Vítamín gegn Alzheimer GRÆNMETISÁT og inntaka C- og E- vítamína minnkar líkurnar á Alzheimer-sjúk- dómnum að sögn fræðimanna er sitja nú alþjóðlega ráð- stefnu Alzheimer-lækna í Washington. Samkvæmt nið- urstöðum rannsóknar hol- lenskra vísindamanna dregur E-vítamín úr líkum á andlegri hrörnun um 17% og 19% ef horft er til Alzheimers. Að sama skapi dregur C-vítamín um 18% úr líkum á að fá Alz- heimer. Um sama hlutfall er að ræða ef fólk borðar stóra skammta af grænmeti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.