Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 70

Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 70
70 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Og þegar einhver spyr hvers Nú, ef enginn spyr, vegna þið klifuð þetta fjall, þá spyr enginn. þá er svarið. „Af því að það er þarna.“ BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Færri tjón, minni kostnaður Frá Sólmundi Má Jónssyni: UM DAGINN tilkynnti Sjóvá-Al- mennar hækkanir á bifreiðatrygging- um um 29%. Miðað við að önnur tryggingafélög hækki sínar trygging- ar svipað og Sjóvá-Almennar hækka tryggingar samtals um 1.250 m.kr. (skv. visi.is). Þessi hækkun stafar af mikilli fjölgun tjóna og hækkun tjóna- bóta, m.a. vegna þess að bifreiðar eru nú nýrri og dýrari en fyrir nokkrum árum. Þessi hækkun hefur vakið mikla athygli og ýmsir hafa orðið til að mótmæla henni og m.a. bent á að hækkunin muni hafa bein áhrif til hækkunar á verðlagi í landinu og þar með á skuldir og afborganir heimU- anna. Þar að auki hefur verkalýðs- hreyfmgin sagt að þessar hækkanir séu ekki í takt við forsendur kjara- samninga um stöðugt verðlag. Vert er að skoða af hverju þessar hækkanir eiga sér stað, en skv. Sjóvá- Almennum er það vegna fleiri og meiri tjóna en áður. Er hugsanlegt að hægt sé að draga úr tjónum í umferð- inni og þar með draga úr þörf á hækk- unum bifreiðatrygginga? Ef hægt væri að fækka tjónum og lækka tjóna- kostnað um t.d. 20 % gæti það þýtt að í stað hækkana upp á 1.250 m.kr. myndi duga að hækka tryggingar um 1.000 m.kr. og þannig myndu sparast 250 m.kr. á ári. En er hægt að fækka tjónum? Það er stór spuming sem erfiðlega hefur gengið að svara síð- ustu árin. Hér skal þó bent á nokkur atriði sem fækkað gætu tjónum. Fram hefur komið að gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbraut- ar hafa kostað þjóðfélagið milljónir króna á síðustu árum. Með lagfæring- um á þessum gatnamótum drægi verulega úr tjónum og þar með tilefni til hækkunar trygginga. Það yrði fjár- veiting sem væri fljót að borga sig. Störf lögreglu felast að stórum hluta í því að íylgjast með umferð og reyna að sjá tÚ þess að umferðarreglur séu virtar. Ef umferðarlöggæsla yrði stórefld er líklegt að hægt yrði að draga verulega úr tjónum. Þannig mætti t.d. trúlega tvöfalda umferðar- löggæslu á höfuðborgarsvæðinu með því að fjölga lögreglumönnum um 20- 25 á höfuðborgarsvæðinu en árlegur kostnaður yrði á bilinu 80-100 m.kr. Síðast en ekki síst þá geta ökumenn lækkað tjónakostnað með því að virða umferðarreglur og hegða sér sóma- samlega í umferðinni. Við eigum alltaf val. Viljum við velja óbreytt ástand með tilheyrandi umferðarslysum og tjónum eða viljum við gera eitthvað í málunum? Ef ríki, sveitarfélög, tryggingafélög og ökumenn raun- verulega vilja fækka tjónum og þar með lægri bifreiðatryggingar þá þarf að bretta upp ermar og sinna umferð- armálum heildstætt, þ.e. gatnagerð, löggæslu og sýna almenna kurteisi í umferðinni. En kannski viljum við borgaramir, ökumennirnir og skatt- borgaramir óbreytt ástand. SÓLMUNDUR MÁR JÓNSSON, Hagamelur 29, Reykjavík Fræga fólkið og fjölmiðlarnir Frá Konráði R. Friðfinnssyni: í MORGUNBLAÐINU föstudaginn 7. júlí birtist grein eftir háttvirtan þingmann Ögmund Jónasson „Frægt fólk og fjölmiðlar". I grein sinni kem- ur Ögmundur inn á dvöl Paul McCartney á íslandi fyrir fáeinum dögum. Þingmaðurinn bendir meðal ann- ars á að þetta fræga og oft umsetna fólk eigi að fá frið þegar það kemur til landsins. Frá athygli fjölmiðlanna. Ég er hjartanlega sammála Ög- mundi og finnst orð hans vera í tíma töluð. Paul McCartney hefur verið afar umsetinn maður og vakið athygli hvar sem hann hefur komið, vegna starfa sinna í The Beatles. í 37 ár hef- ur hann þurft að svara spurningum pressunnar um þessa hljómsveit, verk hennar sem og um sitt eigið líf. Hver maður getur séð og viðurkennt að slíkt hlýtur að vera orðið leiði- gjamt fyrir þennan mann. Sjáið til! Bítlamir hættu nefnilega fyrir 30 ár- um. Ég get hinsvegar vel viðurkennt að heimsókn Pauls gladdi mig og vona ég sannarlega að hann hafi notið dval- arinnar í hinu fagra landi, sem Guð gaf þjóðinni. Og Islendingum ber að bjóða gesti sína velkomna, sem viija sækja landið heim. Án þess að þeir þm-fi að eiga á hættu að her manna mæti þeim, vopnaður myndavélum og suðandi upptökutækjum. Ef Paul McCartney hefði valið sjálfur að láta á sér bera, opinberlega, vom heimatökin hæg fyrir hann. Eitt símtal nægði og öll pressan er mætt á staðinn með myndavélar sínar, hljóð- tæM og annan myndbúnað. Þá hefði hún líka fengið sína frétt, eins og maðurinn ætlaðist til. Og allir sáttir við sitt. Vilji menn í annan stað fá frið, hafa þeir fulla heimild til að njóta hans. Að kjósa friðinn er öllum boðið. Líka frægu og ríku fólM. Okkar er síðan að virða þessa ákvörðun manna. Það er þrosM og viska. Að endingu vil ég fá að vitna lítil- lega í grein Ögmundar. Þar er ritað: „Hlýtur sú spuming ekki að vakna hvort það sé okkur samboðið að hund- elta alia þá sem koma til landsins og era þekktir úr heimspressunni, með hljóðnema og myndavélar á lofti? Það er óumdeilanlegt að mörgum gest- anna líkar þetta illa en hafa án efa vanist því að eiga hvergi athvarf. Spumingin er þó ekM aðeins hvað gestunum finnst heldur snýr þetta að mínum dómi að sjálfsvirðingu okkar. Færi ekM vel á því að gera Island að friðlandi fyrir fólk, einnig það fólk sem eitthvað hefur sér til frægðar unnið en vill fá að vera í friði?“ KONRÁÐ R. FRIÐFINN SSON, Hvaleyrarbraut 2, Hafnarfirði. Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.