Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 78

Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 78
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 78 FÓLK í FRÉTTUM Kjóll frá MarclÓ'Polo kr. 10.900 Svit frá Byggt og búið kr. 125 sem þurrhreinsar alla bletti Gratineraðir ávextir kr. 790 Svit er nýtt og byltingarkennt hreinsiefni sem gerir þér kleift að hreinsa fatnað og annað óhreint tau í þurrkaranum þínum heima. Það sem áður þurfti að setja í hreinsun með ómældri fyrirhöfn fer nú í þurrkarann með Svit, og kostnaðurinn er aðeins brot af því sem gamla hreinsunin kostaði. Komdu í Byggt og búið í Kringlunni og sjáðu hversu ótrúlega auðvelt er að þurrhreinsa heima með Svit. Notfærðu þér lika sérstakt kynningarverð á Svit, kr. 1.995 pakkinn, sem jafngildir kr. 125 fyrir hverja hreinsun. Tæknókvöld á 22 í kvöld Pumpað í heilan hring UNDANFARIÐ hafa verið haldin tæknó- kvöld einn miðvikudag í mánuði á skemmti- staðnum 22 við góðar undirtektir. Nú hefur þessi reglulegi dans- viðburður verið færð- ur yfir á fimmtudags- kvöldin en verður eftir sem áður mánaðarlega á 22. Það eru plötusnúð- arnir góðkunnu EXOS, Bjössi og Tom- my Hellfire sem veg og vanda hafa af þess- um 360° kvöldum og ætla þeir allir að bregða sér í búrið í kvöld. Þeir hyggjast bjóða upp á það allra nýjasta í tæknóinu í bland við eldra og þeg- ar sígilt efni. Að sögn þeirra EX- OS og Bjössa verður byrjað á yfir- veguðum nótum þar sem EXOS ætlar að sjóða saman þægilega blöndu af djúphúsi, mínimalísku og umhverfisvænu tæknói þannig að úr skapist þægileg og draum- kennd leiðsla. Þegar líða tekur á kvöldið munu félagar hans síðan reka nefið inn í búrið, snúa nokkr- um skífum með honum og leysa hann af hólmi með sífellt meiri keyrslu og tilheyrandi stuði. Bjössi hefur verið á kafi í tæknó- húspælingum og mun eflaust gefa sýnishorn af þeim mjög svo Morgunblaðið/Golli Bjöm Kristinsson (Bjössi) og Amviður Snorrason (EXOS). spennandi og dansvæna bræðingi. Síðast en ekki síst munu þeir fé- lagar allir dæla út hreinræktuðu tæknói eins og það pumpar best. Þeir EXOS og Bjössi segjast mjög spenntir fyrir kvöldinu því 22 hefur tekið stakkaskiptum, inn- réttingarnar hafa verið endurnýj- aðar og það sem meira máli skipt- ir, hljóðkerfið hefur verið græjað upp. Þeir félagar segja kraftinn hafa magnast til mikilla muna við þessa andlitslyftingu en árétta þó að gamla góða 22-stemmningin lifi enn góðu lífi, klúbbastemmning sem þeir segja að eigi engan sinn líka hér á landi. Drengirnir ættu líka að vita hvað þeir syngja því þeir hafa verið æði iðnir við kol- ann síðustu þrjú árin eða svo og snúið skífum við vænar undirtekt- ir nánast á hverjum þeim stað er dilla vill lendum gesta sinna. Sem fyrr verður fyrstu skífun- um brugðið á fóninn upp úr klukk- an níu og mun látum ei linna fyrr en klukkan slær eitt eftir mið- nætti. Aðgangseyrir er 300 kr. en 500 kr. eftir ellefu. Það er því ærin ástæða fyrir alla tæknóþyrsta sem náð hafa átján ára aldrinum að mæta ária á 22 í kvöld. framdS sjáifsvig: satnban** Sérstak* Helga Biörns BergÞórsP^ Toppþjálfarinn Bjarni Jóhannesson opnar dyrnar: Hk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.