Morgunblaðið - 14.07.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 19
VIÐSKIPTI
Tuttugu
þúsund
bokanir
í Flug-
frelsi
„FLUGFRELSI er byltingarkennd-
ur, nýr ferðamáti," sagði Helgi Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar hf., í samtali
við Morg-
unblaðið í
gær en
hann gerir
ráð fyrir að
í lok mán-
aðarins
verði bókanimar komnar í um
tuttugu þúsund. Hann sagði flug-
frelsi vera ólíkt hefðbundnum ferða-
máta að því leyti að þegar menn
ferðuðust undir reglum flugfrelsis
væru í raun engar reglur. Breyting-
ar á miðum væru eðlilegur hlutur, en
annars kostuðu þær oft mikið eða
væru ómögulegar.
Helgi sagði að Samvinnuferðir-
Landsýn hefði rennt blint í sjóinn
þegar flugfrelsið hófst á þessu ári, en
margir hefðu viljað nýta sér þennan
kost og nú væri svo komið að um tíu
þúsund bókanir hefðu verið til Kaup-
mannahafnar og um sjö þúsund til
annarra áfangastaða. Hann gerir ráð
fyrir að í lok júlí verði bókanirnar
komnar upp í um það bil tuttugu þús-
und samanlagt og að flugfrelsið sé
þegar orðið stærsti hluti starfsemi
félagsins. Til samanburðar má nefna
að bókanir í sólarferðir á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar eru átján
til nítján þúsund.
Einnig með viðskiptafargjöld
Helgi lýsti þeirri skoðun sinni að
hefðbundinn ferðamáti með flugi
væri of flókinn og að Samvinnuferð-
ir-Landsýn hefðu farið að skoða
hvers vegna þetta þyrfti að vera svo.
Niðurstaðan hefði verið sú að fyrir
þessu væri engin ástæða og að það
þyrfti ekki að vera flóknara að kaupa
flugmiða en rútumiða, ef menn vildu
aðeins bóka aðra leiðina í einu eða
breyta um áfangastað ætti það ekki
að þurfa að vera erfiðleikum bundið.
I flugfrelsi er boðið upp á við-
skiptafargjöld eins og í hefðbundnu
flugi, en Helgi sagði þau miklu ódýr-
ari í flugfrelsinu, eða sautján til
tuttugu þúsund krónur.
Mætir óskum neytenda
Hann sagði jafnframt að útkoman
hefði verið sú að nýting væri með
ágætum, því þótt einn keypti aðeins
miða aðra leiðina væri einhver annar
að fara í hina áttina.
Helgi sagði þær viðtökur sem
flugfrelsið hefði fengið vera hvatn-
ingu til að halda áfram og sagði hann
að svo yrði örugglega gert. Hann
sagðist einnig sannfærður um að
innan fárra ára yrði þetta fyrirkomu-
lag orðið ofan á í flugi í heiminum,
enda væri með þessu verið að koma
til móts við óskir neytenda.
Strengur semur við
NorwegianPX
STRENGUR hf. Integra Group hef-
ur gert samning við norska fyrir-
tækið Norwegian PX um innleið-
ingu, rekstur og hýsingu á versl-
unar- og upplýsingakerfi.
Norwegian PX er einkarekið fyr-
irtæki með höfuðstöðvar í Noregi
en selur í samstarfi við norska her-
inn og Sameinuðu þjóðirnar toll-
frjálsar vörur til friðargæsluliða.
Starfsemi fyrirtækisins er nú í
Pristina og Kosovo.
Að sögn Jóns Heiðars Pálssonar,
sölustjóra Strengs, er um talsverð-
ar fjárhæðir að tefla í samningnum.
Lausn sú sem Strengur býður bygg-
ist á Navision Financials-viðskipta-
kerfinu ásamt InfoStore-versIunar-
kerfinu og InfoServer-samskipta-
lausnum. Notendur kerfisins munu
tengjast því í gegnum Netið og
verður miðlægur búnaður kerfisins
í umsjón Strengs hérlendis. Allar
sölu- og lykilupplýsingar í verslun-
arrekstri Norwegian PX verða því
uppfærðar á einum stáð.
Morgunblaðiö/Jim Smart
Þórður Örlygsson og Jón Heiðar Pálsson, hjá Streng hf., við tölvubúnað
þann sem hýsir verslunar- og upplýsingakerfi Norwegian PX.
® TOYOTA
www.toyota.is
Sími S70 5070
Umboösmenn um allt land: Akranes: Bilaröit ehf, slml 4 J1 2218 • Akureyd: Toyota Akureyti, síml 460 4300 • Borgames: Toyotasalurinn, síml 437 1055
fgllsstaðlr: Blfrelöaverkstjeðl Borgþórs, símt 471 2660 • Húsavflc Bflalelga Húsavlkur, sfml 464 1888 • Höfn: Hraun sf, sfml 478 1991 • Isafjöröur. BflaUngl, sfml 4S6 3800
Keflavflc Toyotasalurínn, sfml 421 4888 • Klrkjutuejaridaustur Bflaverkstaeöið, sfmi 487 4630 • Patreksfjöröur BflaverksUeðl Cuðjóns, sfml 4S6 1124
Sauöírkrókur Bókabúð Brynjars, sfml 453 59S0 • Setfoss: Toyotasalurínn, 480 8000 • Vestmannaeyjar. Krtstjín Ólafsson, slml 481 2323
Sýndu tilþrif á leiðinni.
Taktu af skarið, sýndu hinum að það ert þú sem ræður ferðinni.
Sýndu þeim að þú ert sá sem fylgst er með, sýndu þeim hver
fer fyrstur.
Kynntu þér einn glæsilegasta sportbíl landsins, nú með sérstökum
sumarauka: 17" álfelgum og vindskeið að verðmæti 197.000 kr.
Ekki
reka lestina
Þú ræður ferðinni