Morgunblaðið - 14.07.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 27
LISTIR
CAPUT-hópurinn. Morgunblaðið/Kristinn Kammersveit Reykjavíkur.
Samningar um stuðning
við C APUT og Kamm-
ersveit Reykjavíkur
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og starfandi menntamálaráðherra,
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari fyrir
hönd Kammersveitar Reykjavíkur
og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari
fyrir hönd CAPUT undirrituðu á
miðvikudag samninga um stuðning
við starfsemi þessara tveggja tón-
listarhópa.
Samningarnir sem undirritaðir
voru gilda til 31. desember 2002. í
tilkynningu segir, að þetta sé í fyrsta
skipti sem gerðir eru samningar með
þessum hætti við tónlistarhópa, en
hingað til hafa þessh' hópar fengið
styrki til ákveðinna verkefna. Til-
gangurinn með samningunum er að
skjóta styrkari stoðum undir starf-
semi þessara tónlistarhópa, sem
hafa skapað sér sérstakan sess í ís-
lensku tónlistarlífi, og gera þeim bet-
ur kleift að skipuleggja starf sitt til
lengri tíma. Samkvæmt samningun-
um eiga hóparnir að halda árlega
ákveðinn fjölda tónleika á íslandi,
starfa með öðrum aðilum að flutningi
á íslenskum og erlendum tónverkum
hér heima eða erlendis og taka þátt í
útgáfu á hljómdiskum. A samnings-
tímanum leggur menntamálaráðu-
neytið CAPUT til 2 m.kr. og Kamm-
ersveit Reykjavíkur 3,5 m.kr. á ári í
beinum fjárframlögum.
Kammersveit Reykjavíkur hefur í
aldarfjórðung starfað ötullega að því
að flytja kammertónlist frá ýmsum
tímaskeiðum, bæði barokktónlist og
nútímatónlist. Sveitin hefur frum-
flutt fjölda kammerverka á íslandi
og mörg tónskáld, bæði íslensk og
erlend, hafa samið verk fyrir hana.
Sveitin heldur árlega nokkra tón-
leika á Islandi og hefur oft komið
fram á Listahátíð í Reykjavík.
Kammersveitin hefur haldið fjölda
tónleika erlendis á starfsferli sínum
og kynnt erlendum áheyrendum ís-
lensk tónverk. I ár lék Kammer-
sveitin m.a. við upphaf menningar-
borgarársins, tók jjátt í tónleikaröð
Tónskáldafélags Islands auk fleiri
tónleika sem hún hefur haldið eða
mun halda í ár. Einnig vinnur sveitin
að ýmsum hljóðritunarverkefnum. Á
næstunni mun sveitin leika á tónlist-
arhátíðinni „Euromusicale“ í Mún-
chen og halda tónleika á þjóðardegi
Islands á heimssýningunni EXPO
2000 í Hannover.
Tónlistarhópurinn CAPUT hefúr
starfað í rúm 10 ár. Hann hefur ein-
beitt sér að flutningi og upptökum á
samtímatónlist. Mörg tónskáld hafa
samið tónverk fyrir CAPUT og hóp-
urinn hefur sjálfur pantað fjölda
verka eftir íslensk og erlend tón-
skáld til frumflutnings hér á landi og
erlendis. Á þessu ári frumflytur
CAPUT um 12 ný tónverk sem eru
sérstaklega samin fyrir hópinn. Ár-
lega heldur CAPUT nokkra tónleika
á Islandi og erlendis og vinnur að
hljóðritunum. Frá árinu 1997 hefur
CAPUT verið í samstarfi við BIS-
útgáfuna í Svíþjóð um útgáfu geisla-
diska sem margir hafa hlotið mikið
lof gagnrýnenda. Einnig er hópurinn
í samstarfi við aðra útgefendur. I ár
hefur CAPUT þegar haldið nokkra
tónleika m.a. í tónleikaröð Tón-
skáldafélags íslands og fleiri tónleik-
ar eru á dagskrá hópsins hér heima í
ár. I haust fer hópurinn í tónleika-
ferð til Vesturheims á vegum landa-
fundanefndar og heldur tónleika, í
samvinnu við Reykjavík - menning-
arborg Evrópu, í Prag og Bologna.
Samningana er að finna á heima-
síðu menntamálaráðuneytis. Slóðin
er www.mrn.stjr.is, nánar tiltekið
undir lögum og reglugerðum.
Islendingur og Eistar
sýna Nýlistasafninu
TVÆR sýningar verða opnaðar í
Nýlistasafninu í kvöld. Ónnur er
sýning Gústavs Geirs Bollasonar
sem sýnir teikningar/tjósmyndir,
teikningar og málverk.
Verkin sem hann velur saman
(og eiga reyndar saman) eiga það
helst sameiginlegt að leitast við
að koma til skila tilfinningu um
tímarás skoðunar og eins eru þau
tilraunir til að sýna gangvirki
myndar. Verkin eru frá árunum
1996-2000. Hin er sýning eist-
nesku ljósmyndaranna Herkki
Erich Merila (f. 1964) og Peeter
Maria Laurits (f. 1962) en þeir
hafa unnið saman í meira en tíu
ár.
Árið 1992 hófu þeir starfrækslu
á myndveri sem þeir kalla „De-
Studio“. „De“ er öfugt forskeyti úr
latínu og táknar til dæmis „Af“
eins og í „afbyggingu" eða „af-
vopnun“. Það sem „DeStudio"
leggur áherslu á er að vinna með
ímyndir úr auglýsinga- og afþrey-
ingariðnaði samtímans, túlka þær
og setja í óvenjulegt samhengi.
Á sýningunni í Nýlistasafninu
eru einnig sjálfstæð verk þeirra
tveggja sem ekki eru gerð í nafni
myndversins þannig að um er að
ræða sýningu þriggja mismunandi
aðila þeirra Peeter, Herkki og
DeStudio. Sýningin er úrval síð-
astliðinna tíu ára.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Listamennirnir þrír sem opna sýningar í Nýlistasafninu í kvöld.
Föt og skór - a 111 að 90% afsláttur
F
Utsölumarkaðurinn
að Skú lagötu 63
heldur áfram
0pið Mán. - Lau. 12:00 - 18:00