Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 21 VIÐSKIPTI ALLTA EINUMSTAÐ UCRETE* Samkomulag um úr- skurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki UNDIRRITAÐAR hafa verið sam- þykktir og samkomulag um úrskurð- arnefnd um viðskipti við fjármála- fyrirtæki. Að samkomulaginu koma viðskiptaráðuneytið, Samband ís- lenskra viðskiptabanka, Samband ís- lenskra sparisjóða, Samtök verð- bréfafyrirtækja, Samband lána- stofnana og Neytendasamtökin. í fréttatilkynningu frá viðskipta- ráðuneytinu kemur fram að nefndin hafí upphaflega verið sett á laggirn- ar árið 1995 en nú hafi Samtök verð- bréfafyrirtækja og Samband lána- stofnana bæst í hópinn, auk þess sem að töluverðar breytingar hafa verið gerðar á samþykktunum. Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjái-málafyrirtæki tekur til meðferð- ar kvartanir viðskiptamanna þeirra fjármálafyrirtækja sem að nefndinni standa. Skilyrði fyiir meðferð nefnd- arinnar á málum er að fjármálafyrir- tæki hafi hafnað kröfu viðskipta- manns og ekki tekist að leysa ágreiningsefni með sátt innan fjög- urra vikna. Nefndin er vistuð hjá Fjármálaeftirlitinu sem tekur jafn- framt við kvörtunum. Sérstakt mál- skotsgjald þarf að greiða en það fæst endurgreitt við afhendingu úrskurð- ar hafi krafa viðskiptamanns að hluta til eða að öllu leyti verið tekin til greina. Helstu breytingar sem gerðar eru með hinum nýju samþykktum er að nú eiga lögaðilar einnig málskots- rétt, en áður höfðu einstaklingar ein- ir þann rétt. Jafnframt eiga nú öll fyrirtæki á fjármálamarkaði aðild að úrskurðarnefndinni. Breytingar hjá Sam- skipum í Evrópu FRÁ lokum ágústmánaðar verður þýska höfnin Cuxhaven áfangastað- ur gámaílutninga Samskipa til og frá Evrópu. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar samnings sem Samskip gerðu við þýska fyrirtækið Cuxport Seehaven-Dienstleistung um lang- tíma þjónustu fyrir Eyrópuflutninga Samskipa til og frá Islandi. Breyt- ingin hefur í för með sér styttri sigl- ingatíma auk þess sem aðstaðan í Cuxhaven býður upp á hraðari vöru- afgreiðslu og betri þjónustu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Hafnarborgin Cuxhaven er við mynni fljótanna Elbu og Weser. Cuxhaven er ein af höfuðstöðvum fiskiðnaðar í Þýskalandi og þangað hafa íslenskir fiskútflytjendur flutt afurðir sínar um árabil. Skip á veg- um félagsins sigla nú vikulega til Is- lands frá flestum helstu flutninga- höfnum Norður-Evrópu, þar á meðal Immingham í Bretlandi, Rotterdam, Árósum og Moss í Noregi. Auk þess bjóða Samskip upp á flutninga milli fjölmargi-a hafna innan Norður- Evrópu. VERÐDÆM 3 Petumur að eigin vali 499 Hjarta- Blátoppur klukka Yllir og 299 20 Fjólur 20 Stjúpur 999 kr. Ta bakkinn fím 3 Fjölærar plöntur að eigin vali ZQQ o nn q u q Pillll Hluthafar Vodafone segja stjórninni til syndanna 1,2 milljarða kaupauka forstjóra mótmælt STJÓRN farsímarisans Vodafone Air Touch mun líklega láta undan þrýstingi hluthafa og hætta við að greiða aðalframkvæmdastjóra fyr- irtækisins, Chris Gent, tíu milljónir punda eða 1,2 milljarða íslenskra króna fyrir að hafa tekist að ná samningum við þýska fyrirtækið Mannesmann. Stjórn Vodafone hefur raunar tilkynnt að einungis helmingur upphæðinnar hafi verið hugsaður sem kaupauki fyrir samninginn við Mannesmann en hinn helmingur hafi verið hugsaður sem uppbót til framkvæmdastjór- ans enda hafi laun hans verið nokkru lægri en gerist á alþjóða- vísu en Vodafone er fimmta stærsta fyrirtækið í heiminum. Talið er að ákvörðun stjórnar Vodafone um að láta undan þrýst- ingi frá hluthöfum kunni að hafa áhrif á eingreiðslur til forstjóra annarra stórfyrirtækja sem gera tímamótasamninga. Þannig má nefna að Lord Marshall, stjórn- arformaður British Airways, sagði á aðalfundi félagsins fyrir skömmu að eingreiðsla upp á um 233 milljónir íslenskra la-óna til fyrrum forstjóra British Airways, Lord Ayling, yrði tekin til endurskoð- unar. Hita-og efnaþolnu golfefmn Nu faanleg Gólflafflnir IÐNAÐAROÓLF IROÓLF' S*tóðitfv«gur 72,200 Kófwvogtff Sícm: 564 1740, F*x: 5541TB9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.