Morgunblaðið - 14.07.2000, Síða 25
MORGÚNBLAÐÍÐ FÖSTTJDAGUR 14. JÚLÍ 2000 25
ERLENT
Finnar
andvígir
NATO
RÍFLEGA helmingur Finna er
andsnúinn aðild landsins að
Atlantshafsbandalaginu (NATO)
jafnvel þótt tæplega helmingur
svarenda í könmm dagblaðsins
Ilat-Sanomat segist telja að ríkið
muni gerast aðili að bandalaginu
áður en langt um Mður.
Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar eru 64% Finna á
móti aðild, 23% eru hlynnth- og
12% hafa enn ekki gert upp hug
sinn. Nýverið var gerð önnur
könnun á sama máli og voru nið-
urstöður afar áþekkar og undir-
strikar þetta hefðbundna and-
stöðu Finna við aðild að
bandalögum. Stuðningur við að-
ild hefur verið um 20% undan-
farið en var um 30% er NATO
hóf loftárásir sínar á Júgóslavíu.
Rigningin
skattlögð
BELGAR munu áður en langt
um líður þurfa að greiða sér-
stakan regnskatt fyrir að veita
rigningarvatni í frárennsli húsa
ef áætlanir yíirvalda í Flanders
ná fram að ganga.
Samkvæmt tillögunni munu
þeir húseigendur sem aðskilja
ekki regnvatn frá frárennslis-
kerfúm húsa sinna þurfa að
greiða gjöld og mun þetta
minnka hættuna af því að niður-
fóll yfirfyllist eins og títt er í
Belgíu.
136 fórnar-
lömb í Manila
ÍBÚAR á öskuhaugum Maniia á
Filippseyjum kenndu í gær
embættismönnum um að ekkert
hefði verið gert til að afstýra
slysinu hörmulega íyrr í vikunni
sem varð a.m.k. 136 manns að
bana. Enn er verið að leita að
fórnarlömbum slyssins í haug-
unum og sögðu talsmenn hers-
ins að líklegt væri að ef fólk
hefði lifað sjálfa skriðuna af
hefði það kafnað síðar vegna
metangass sem myndast í rusl-
inu. Enn er a.m.k. 155 manna
saknað og telja björgunarmenn
að engar líkur séu á að finna fólk
á lífi. Annað væri kraftaverk.
Tilhæfulaus
frétt
TÖLVUPR.JÓTAR brutust íyr-
ir nokkrum dögum inn á heima-
síðu Politika, útbreiddasta dag-
blaðs Júgóslavíu, sem jafnframt
styður stjórn Slobodans Milos-
evics, og komu þai- fyrir frétt um
að Júgóslavíuforseti hafi farist í
sprengjuárás.
Talsmaður dagblaðsins sagði
í gær að fréttin hefði verið með
fyrirsögn og texta sem skýrt
hefði hvemig atvikið átti sér
stað.
Utrýmingar-
hætta
EINN af hveijum fimm fuglum í
Astralíu er í útrýmingarhættu
vegna gríðarmildls skógarhöggs
sem á sér stað í landinu, að sögn
ástralskra vísindamanna. Aætla
þeir að um sjö og hálf milljón
íúgla drepist árlega en talið er að
25 fuglategundir hafi dáið út
vegna skógarhöggsins og er þessi
gríðarmikli vandi eignaður timb-
ui'íyrirtælqum sem rýma um
60.000 hektara skóglendis árlega.
Talebanastjórnin í Afganistan vegur að starfí alþjóðlegra hjálparsamtaka
íslamabad. Reuters.
Bandarískri
konu gert að
yfirgefa landið
BANDARISKUR hjálparstarfs-
maður sem hafði verið gert að
hverfa á brott frá Afganistan
vegna ásakana um njósnir yfirgaf
landið í gær og fór til Pakistan.
Hin 71 árs gamla Mary
MacMakin var hneppt í varðhald
sl. sunnudag ásamt sjö konum sem
störfuðu fyrir hana eftir að hafa
verið gefið að sök að njósna í land-
inu. Var henni sleppt úr haldi á
miðvikudag og gefnar 24 klukku-
stundir til að yfirgefa landið. Síð-
degis í gær sögðust sjónarvottar
hafa séð hana fara um borð í flug-
vél Alþjóðaráðs Rauða krossins
sem haldið hefði til Pakistan.
MacMakin sagðist ekki hafa ver-
ið beitt ofbeldi á meðan á varð-
haldinu stóð en gagnrýndi stjórn
Talebana harðlega fyrir stefnu
þeirra í málefnum kvenna sem hún
sagði vera á góðri leið með að
eyðileggja líf kvenna. „Peir vilja
ekki að konur starfi utan veggja
heimilisins, þeir vilja ekki að þær
mennti sig eða fái smjörþefinn af
frelsi eða frumkvæði. Þeir vilja
halda þeim heima þar sem þær
eiga að ala upp börn,“ sagði
MacMakin við fréttamenn áður en
hún hélt frá landinu. MacMakin
hefur verið viðloðandi hjálparstarf
í Afganistan síðustu 24 ár og starf-
rækir stofnun þar sem afgönskum
konum, aðallega ekkjum, er kennt
að veita sér lífsbjörg.
í kjölfar handtöku MacMakin
bönnuðu Talebanar erlendum
hjálparstofnunum að ráða afgansk-
ar konur í störf og hefur það vald-
ið miklu uppnámi í öllu hjálpar-
starfi í hinu stríðshrjáða landi.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna í New York bjuggust þó við
því að banni þessu verði hnekkt
eftir vel heppnaðar samningavið-
ræður fulltrúa SP í Afganistan og
leiðtoga Talebana í borginni
Kandahar á miðvikudag.
... í tiiefni eíns árs afmæiís ba&sta&arins víS Bláa lóniS
Nú er ár liðið síSan nýr og glæsilegur baSstaSur opnaSi viS Bláa lóniS. I tilefni þess mun selló-
og hörpudúó þeirra Stefáns Arnar Arnarsonar og Marion Herrera leika fyrir baSgesti. Ljúfir tónar munu hljóma
yfir Bláa lóniS frá kl. 20:30 - 22:30 í kvöld.
* Allir baSgestir fá gjöf
® Sérstakur sumarmatseSill á veitingastaSnum í Bláa lóninu
Komdu i Bláa lóniS i kvöld og njóttu þess aS eiga meS okkur góSa og rólega kvöldstund.
OpiS frá kl. 9:00 til kl. 22:00 alla daga vikunnar. Gestir geta dvalist i Bláa lóninu til kl. 22:45.
0 p i ð □ I I □ daga vikunnar 420 8800 • logoon@bluelagoon.is » www.bluelagoon.is
1CEIAN0