Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Kuldakast í S-Ameríku
ÓVANALEG kuldatíð er nú í norðanverðri Arg-
entínu, Úrúgvæ og Bólivíu og hafa þessar hörkur
kostað 15 manns lífíð. Hefur hitinn farið niður fyrir
frostmark víða til fjalla og annars staðar hafa
stormar og mikið úrfelli valdið vandræðum. Stefndi
kalda loftið í gær á Brasilíu. Myndin er frá bænum
Tucuman í Norður-Argentínu en þar hafði ekki fall-
ið snjókorn í 30 ár.
Risarottur ógna
New York-búum
New York. AFP.
RUDOLPH Giuliani, borgarstjóri í
New York, hefur lýst yfír stríði gegn
rottum borgarinnar en þær eru tald-
ar vera um 70 milljónir og sumar á
stærð við ketti. Giuliani hefur áður
skorið upp herör gegn fólki sem
ekki fer yfir á gangbrautum og þeim
sem hrækja á gangstéttir.
Rotturnar sem halda til í New
York eru nífalt fleiri en íbúar borg-
arinnar og er nú nóg komið að sögn
borgarstjórans sem tilkynnti um
stofnun sérsveitar sem á að berjast
við ófógnuðinn. í fyrra herjuðu
moskítóflugur á borgina og báru
þangað smit er varð sjö manns að
bana. Þá lét Giuliani nota þyrlur til
að úða eitri yfir borgina en rottur
eru sterkari en moskítóflugur og
bardaginn við þær verður því erfið-
ari.
Þesjs vegna hafa borgarstarfs-
menn lagt á ráðin um víðtækar að-
gerðir gegn kvikindunum og verður
meðal annars ráðist í getnaðarvarn-
ir.
Lisa Woodrow, sem býr ásamt
fjölskyldu sinni í New York, sagði að
borgin væri vel til þess fallin að ala
upp börn, „en ekki innan um rottur
sem eru sumar á stærð við ketti“.
Sagði hún rotturnar fara um alit,
þær væru í stigagöngum hússins
sem hún býr í og einn sunnudaginn
hefði ein meira að segja komið alla
leið inn í íbúð.
I sumar hefur verið mikill raki í
lofti og heitt í veðri og auk þess
standa byggingaframkvæmdir yfir
víða í borginni og hefur þetta allt ýtt
undir að kvikindin komi úr felustöð-
um sínum og verði meira áberandi.
Rotturnar eru rétt eins hamingju-
samar í jarðlestagöngunum og í
ruslapokunum á gangstéttum. Þær
éta allt sem að kjafti kemur og
kunna einkar vel við sig í borg sem í
er fjöldi veitingastaða.
Giuliani sagðist sjálfur hafa komið
auga á nokkrar rottur þegár hann
hafi verið í gönguferð skammt frá
bústað borgarstjórans á austur-
strönd Manhattan. „Þær eru ógn-
vekjandi,“ sagði hann. „Það skiptir
engu máli hvað maður er ónæmur
og hugaður, rottur hræða mann ...
vegna þess að þær geta bitið mann
og þær geta breitt út sjúkdóma."
Lögreglu-
ofbeldi í
Ffladelfíu
Ffladclfíu. Reuters.
LÖGREGLUMENN í Fíladelfíu í
Bandaríkjunum réðust í gær á
ökuþór sem þeir voru að elta og
beittu hann grófu -ofbeldi. Náðist
atburðurinn á myndband og þykir
málið minna afar mikið á mál
Rodneys Kings árið 1991 sem olli
miklum kynþáttaóeirðum í Los
Angeles.
Thomas Jones er svartur á hör-
und og var honum gefið að sök að
stela lögreglubifreið eftir að hafa
skotið á lögreglumann og sært
hann. A myndunum sem WPVI-TV
sjónvarpsstöðin náði af árásinni á
Jones sjást nærri tuttugu lög-
reglumenn berja og sparka í Jones
í um fjörutíu sekúndur. Var Jones
færður á sjúkrahús með skotsár á
brjósti og handlegg.
John F. Street, borgarstjóri
Ffladelfíu, hét því að sanngjörn
rannsókn myndi fara fram á mál-
inu og sagði að myndirnar, sem
birtar voru á bandarískum sjón-
varpsstöðvum í gær, vektu upp
„ákveðnar spurningar".
Breska stjórnin birt-
ir afrekaskrá sína
Lundúnum. Morgunblaðið.
ÞAÐ mynduðust engar biðraðir við
bókabúðir og kjörbúðir klukkan 9.30 í
gær, eins og þegar nýjasta bókin um
Harry Potter kom nýlega í búðir.
Sextíu síðna bæklingur með yfirliti
yfir hvað bresku stjóminni hefði orðið
ágengt á undanfömu ári vakti öllu
minni athygli. Þetta er í þriðja skipti
sem stjórain birti slíka skýrslu en hún
er hluti af kosningaloforðum flokks-
ins og liður í að standa við loforðin.
Er Tony Blair forsætisráðherra
kynnti skýrsluna í þinginu undirstrik-
aði hann, að efnahagsmálin stæðu í
blóma en viðurkenndi að ekki hefði
náðst nægur árangur í heilbrigðis-
málum og baráttunni við glæpi. „Bara
glans og gabbj“ kallaði William Hag-
ue, formaður íhaldsflokksins, skýrsl-
una í þingumræðum
en einn af ráðherrum í stjóm Blair,
Peter Hain, aðstoðarráðherra Robin
Cooks utanríkisráðherra, notaði einn-
ig gærdaginn til að birta grein í The
Independent til að gagnrýna samráð-
herra sína fyrir að vera eins og „vél-
menni“, sem ættu á hættu að missa
samband við almenning.
Glansmynd eða raunveruleiki
„Þetta er ekki skáldsaga," sagði
Mo Mowlam í viðtali við BBC, þegar
skýrslan var borin undir hana og það
áhugaleysi sem henni er sýnd.
Hún stóð á því fastar en fótunum að
skýrslan sýndi góðan árangur þótt
vissulega væri hægt að gera betur.
Bæði Mowlam og aðrir ráðherrar
er ræddu skýrsluna í fjölmiðlum í gær
bentu á að mikið hefði áunnist, ekki
síst á kjamasviðum eins og menntun,
heilbrigðismálum og samgöngum.
Gagnrýnendur benda hins vegar á að
stjómin sé heltekin af tölum, til dæm-
is því að stytta biðlista og fækka böm-
um í bekkjum. Um leið hefði heil-
brigðisþjónusta og menntun versnað.
Fyrsta skýrslan var gagnrýnd fyrir
að vera ein allsherjarglansmynd af
stjóminni, auk þess sem glansmyndir
af stjómarliðum prýddu hana. Nú era
hins vegar ekki slíkar myndir í henni,
heldur myndir af vinnandi fólki, lækn-
um og kennuram, þeim sem í raun
vinna verkin og sagt frá fólki, sem lifir
nú betra lffi en áður þökk sé stjóm-
inni. Skýrslan kostar 2,99 pund, um
350 íslenskar krónur. Aðspurður
sagði vegfarandi í viðtali við morgun-
útvarp BBC að það hvarflaði ekki að
sér að borga fyrir skýrslu, sem að
sjálfsögðu ætti að vera ókeypis. Kjós-
endur ættu ekki að þurfa að kaupa
slíkar upplýsingar.
Kosningabarátta Verkmanna-
flokksins 1997 gekk meðal annars út á
að sannfæra kjósendur um að nú ætti
ekki aðeins að lofa, heldur líka að
efna. I því skyni yrði reglulega birt yf-
irlit yfir hverju hefði verið lofað og
hvað hefði verið efnt. í fyrra var
skýrslan gefin út í um 300 þúsund ein-
tökum, en stjómin fékk um 40 pró-
sent þeirra aftur. í ár var skýrslan því
aðeins prentuð í 150.000 eintökum.
Peter Hain er einn í vaxandi hópi
gagnrýninna flokksmanna en Blair
sjálfur er heldur ekki glaður yfir
frammistöðu ráðherra sinna. Á sér-
stökum fundi nýlega um störf stjóm-
arinnar sagði hann ráðherram sínum
að þeir yrðu að líta í kringum sig en
ekki vera fastir með nefið í möppun-
um.
Kínverjar
bregðast
ókvæða við
Peking. Reuters.
KÍNVERJAR brugðust 1 gær
ókvæða við þeirri ákvörðun Israela
að hætta við sölu á AWACS-rat-
sjárbúnaði til þeirra í kjölfar þrýst-
ings frá Bandaríkjamönnum. Sagði
talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins að ekkert ríki hefði rétt
til afskipta af tvíhliða samskiptum
ICínverja við önnur ríki.
Bandaríkjastjórn óttast að rat-
sjárkerfið gæti orðið bandarískum
herafla skeinuhætt ef kæmi til
átaka við Kínverja, og fagnaði
ákvörðun Israela. Bandaríska
þingið hafði hótað að skera á að-
stoð við Israel ef salan gengi eftir.
Israelar fá árlega 2,8 milljarða dala
aðstoð frá Bandaríkjamönnum.
AWACS er hátæknibúnaður sem
gerir mönnum kleift að fylgjast
með allri flugumferð á stóru svæði,
og flugvélar með slíkan búnað era
veigamikill þáttur í vörnum Banda-
ríkjamanna.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, er nú í Bandaríkjunum til
viðræðna við Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, fyi'ir milli-
göngu Bandaríkjaforseta, og hefur
talsmaður Baraks viðurkennt að
hætt hafi verið við söluna á rat-
sjárkerfinu í þeim tilgangi að liðka
fyrir samningaviðræðunum.
William Cohen, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sem er í
tveggja daga heimsókn í Kína, varð
enn frekar fyrir barðinu á óvild
Kínverja vegna þessa máls, en
heimsókn hans miðar að því að
bæta samskipti landanna sem kóln-
uðu mjög í kjölfar árásar Atlants-
hafsbandalagsins á kínverska
sendiráðið í Belgrad í fyrra.
Kínverjar höfðu þegar látið
óánægju sína í ljós við Cohen
vegna afstöðunnar til Taívans, sem
Kínverjar líta á sem hluta af Kína,
og vegna hugmynda Bandaríkja-
manna um að koma sér upp eld-
flaugavarnarkerfi.
Reuters
Mikið var að gera í einni verslana Sogos í Tókýú í gær en þá fór fyrir-
tækið fram á greiðslustöðvun. Eru skuldir þess meira en 1.300 milljarð-
ar ísl. kr. og hugsanlegt gjaldþrot hið annað mesta í Japan.
Japanska keðjan Sogo gjaldþrota
Ótti við nýja
fj ármálakr eppu
féll gengi jensins gagnvart dollara all-
nokkuð af sömu sökum.
Bankakerfið
enn illa statt
Gjaldþrot Sogos hefur kynt undir
ótta við nýja fjármálakreppu í Japan
og það þykir sýna að enn sé fjarri að
bankakerfið sé búið að jafna sig á því
gífurlega útlánatapi sem það hefur
orðið fyrir á undanfömum árum.
Gjaldþrotið getur einnig leitt af sér
hrinu annarra gjaldþrota en Sogo var
í viðskiptum við um 10.000 heildsölur.
Þá er viðbúið að fjöldi manna verði at-
vinnulaus en Sogo var með tugi versl-
ana vítt og breitt um Asíu.
Heita má að bankavextir í Japan
séu engir en búist var við að seðla-
bankinn myndi hverfa frá þeirri
stefnu á fundi sínum nk. mánudag og
kveða þá á um ákveðna vaxtatöku. Nú
þykir eins lfldegt að ákvörðun um það
verði frestað fram í september.
GENGI hlutabréfa í japönskum
bönkum lækkaði verulega í gær en í
fyrradag var tilkynnt að Sogo, risa-
stór japönsk verslanakeðja, væri
gjaldþrota. Era útistandandi skuldir
hennar 1.326 milljarðar ísl. kr. Hefur
gjaldþrotið kynt undir ótta við nýja
fjármálakreppu í Japan.
Sogo hefur að undanfömu átt í við-
ræðum við 73 lánardrottna sína, aðal-
lega banka, og var rætt um að þeir af-
skrifuðu skuldir íyrirtækisins að
hluta eða sem svaraði til rúmlega 465
milljarða ísl. kr. Af þessu varð þó ekki
og aðallega vegna þess að í Japan er
mikil óánægja með hvernig almanna-
fé hefur verið notað til að bjarga
hveiju fyrirtækinu á fætur öðra. Sogo
hefur nú farið fram á greiðslustöðvun.
Nikkei-verðbréfavísitalan jap-
anska lækkaði í gær um 1,8% vegna
þessara tíðinda og gengi híutabréfa í
helsta lánai-drottni Sogos, Iðnaðar-
banka Japans, lækkaði um 7,9%. Þá