Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 41
ELVAR
GEIRDAL
+ Elvar Geirdal
fæddist á Akra-
nesi 25. desember
1939. Hann lést af
slysförum 5. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voi-u Þórður S.
Ásgeirsson, f. 2.10.
1912, d. 25.4.1963, og
Iðunn Geirdal, f.
18.12. 1916, d. 22.3.
1999. Systkini Elvars
eru: Steinar Geirdal,
f. 4.1.
feðra: Karl S. Þórðar-
son, f. 23.1. 1934.
Sæunn Þórðardóttir,
f. 29.1. 1936, d. 10.12. 1983. Sam-
mæðra: Marella Geirdal Sverris-
dóttir, f. 21.6. 1946. Margrét Geir-
dal Sverrisdóttir, f. 30.7.1959.
Elvar ólst upp hjá fósturforeldr-
um síhum, Geirlaugu Gróu Geirs-
dóttur, f. 8.5. 1922, og eiginmanni
hennar Jóhannesi R.Þ. Jónssyni, f.
1.9. 1919, d. 31.10. 1971. Fóstur-
systkini Elvars eru: Alda Jóhann-
esdóttir, f. 4.1. 1943. Unnur Fann-
ey Jóhannesdóttir, f. 20.1. 1945.
Guðrún Jóhanna Jóhannesdóttir, f.
20.5.1952. Jóhannes Jóhannesson,
f. 28.8. 1956. Margeir Jóhannes-
son, f. 24.7. 1959. Aðalheiður Jó-
hannesdóttir, f. 12.5.1966.
Hinn 1. febrúar 1964 kvæntist
Elvar eftirlifandi eig-
inkonu sinni Eddu
Pálsdóttur, f. 13.3.
1940 á ísafirði. For-
eldrar hennar voru
hjónin Jón Páll Guð-
jónsson, f. 22.1. 1914,
d. 24.4. 1984, og Gest-
ína Þorbjörg Sumar-
liðadóttir, f. 11.6.1914,
d. 5.11. 1993. Böm
Elvars og Eddu em:
Geirlaug Geirdal, f.
16.8. 1964, maki Kjart-
an Friðrik Adolfsson, f.
6.11. 1964, búsett í
Grindavík. Páll Geir-
dal, f. 1.3. 1970, maki Kolbrún Rut
Pálmadóttir, f. 10.11. 1973, búsett í
Reykjavík. Ása Geirdal, f. 1.3. 1970,
búsett í Reykjavík, dóttir Ásu er
Guðrún Ansnes, f. 6. apríl 1987. Þóra
Geirdal, f. 1.3.1970, búsett í Reykja-
vík, dóttir Þóru er Elva Geirdal, f.
12.10. 1998. Fyrir átti Elvar soninn
Ævar Geirdal, f. 26.5. 1962, maki
Súsanna Antonsdóttir, f. 21.7. 1963.
Synir Ævars em Páll Geirdal, f.
10.4. 1983, og Egill Geirdal, f. 5.12.
1985.
Lengst af starfaði Elvar við sjáv-
arútveg en síðastliðin þijú ár sein
ki'anastjóri hjá Fosskrönum.
Útför Elvars fer fram frá Áskirkju
í dag og hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku pabbi. Þetta kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti þegar okk-
ur var sagt að þú værir dáinn.
I sorginni minnumst við þess
hvað þú varst alltaf glaðlegur og
stutt í hláturinn hjá þér.
Við sitjum í eldhúsinu hjá
mömmu og erum að segja sögur af
þér.
Á okkar yngri árum fórum við
oft á rúntinn en flugáhugi þinn hef-
ur alltaf verið mikill þannig að við
fórum í ísbúðina við Laugalæk og
fengum okkur ís. Síðan renndum
við í Öskjuhlíðina og horfðum á
flugvélarnar lenda eða stoppuðum
niðri á bryggju og horfðum á bát-
ana sigla inn og út.
Einnig þegar við vorum í hring-
torginu v/ Hringbrautina og Palli
sagði allt í einu: „Sjáiði, það rignir í
Keflavík." Þú hlóst svo mikið að við
héldum að bíllinn væri að fara út
af. En þér fannst alltaf gaman að
keyra og spottinn milli Þorláks-
hafnar og Reykjavíkur var í þínum
augum það sama og skjótast út í
kaupfélag.
Eins og þegar Ása og Þóra
gleymdu húfunni hennar Elvu
heima hjá ykkur, þú sást húfuna og
ákvaðst að skutlast með hana í
bæinn til þeirra í vinnuna. Þú hefur
örugglega skemmt þér vel þegar
þú sást undrunarsvipinn á þeim.
Við munum öll líka eftir því þeg-
ar þú og Ævar bróðir fóruð í flug
með Palla í flugvél gæslunnar,
hvað þú hafðir gaman af þvi.
Eftir flugið fóruð þið beint til
Ásu og Þóru og töluðuð mikið um
hvað þetta hefði verið skemmtilegt
og að þið ætluðuð að reyna að kom-
ast með sem fyrst aftur.
í september ’99 ákváðum við öll
að fara til Kanaríeyja til að halda
upp á sextugsafmæli þitt og
mömmu og þrítugsafmæli þríbur-
anna í mars '00.
Gógó dreif okkur áfram og pant-
aði alla miðana svo öruggt yrði að
ferðin yrði að veruleika og enginn
kæmist hjá því að fara.
Þar áttum við frábæran tíma
saman, við fengum okkur bílaleigu-
bíla og fórum í verslunarleiðangur
til Las Palmas. Okkur gekk vel að
komast til borgarinnar en eftir að
við lentum í umferðinni skildi leiðir
og eftir mikla ranghala og leit að
ykkur hringdi Gógó og spurði hvar
við værum, en þið voruð komin til
Las Arenas en þar átti að enda
verslunarleiðangurinn.
Við munum vel hvað þú, tækja-
karlinn sjálfur, varst skömmustu-
legur þegar við hittumst því þú
hafðir keypt gsm-síma í Leifsstöð
fyrir þessa ferð en gleymt honum
uppi á hóteli.
Enn tókum við bíl á leigu og fór-
um núna á útimarkað í Mogan.
Mikið var fallegt að keyra þar um,
og stoppað á ólíklegustu stöðum til
að taka myndir en í afmælisgjöf
gáfum við þér vídeóvél sem þú
varst mjög mikið með aðtaka
myndir af barnabörnunum og leik-
stjórataktarnir komu vel í ljós þeg-
ar þú beindir vélinni að mömmu og
sagðir henni að segja eitthvað sem
endaði þannig að þú spólaðir til
baka, því þú vissir að leikhæfileik-
ar hennar voru ekki miklir.
Þessi ferð var einstaklega vel
heppnuð og munum við minnast
hennar lengi.
Vertu yfir og allt í kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfír minni.
(Sig. Jónsson.)
Minningar um þig munum við
geyma í hjarta okkar um ókomna
tíð.
Geirlaug og Kjartan,
Ása, Þóra, Páll
og Kolbrún Rut.
Það var eins og mér hefði verið
kippt út úr þessari jarðnesku ver-
öld þegar presturinn hringdi í mig
og tilkynnti mér að hann pabbi
minn væri dáinn, að hann hefði lát-
ist af slysförum. Ég týndi stað og
stupd.
Ég var mjög ungur þegar leiðir
okkar skildu en fyrir nokkrum ár-
um lágu leiðir okkar aftur saman
og kom þá ýmislegt í ljós eins og
allt það sem við höfðum farið á mis
við hjá hvor öðrum. T.d. áttum við
sameiginlegt áhugamál og áttum
eftir að gera svo margt í því eins
og svo mörgu öðru. Ég er þakklát-
ur fyrir þær stundir sem við áttum
saman.
Megi guð gefa fjölskyldunni
styrk í þessari miklu sorg.
Ég sakna þín sárt, pabbi.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir,
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Ævar Geirdal.
Elsku afi. Það eru svo margar
minningar sem koma upp í hugann.
Þú varst alltaf svo hress og kát-
ur og svo alveg frábær afi. Þú vild-
ir allt fyrir mann gera og þig mun-
aði ekki um að sækja okkur ef
okkur langaði að kíkja í heimsókn
til ykkar. Það eru líka mjög góðar
minningar sem við eigum frá því í
vetur þegar við fórum öll saman til
útlanda. Það var mjög góður tími
sem við áttum með þér.
Þú vissir alveg upp á hár hvað
allar flugvélarnar hétu og af hvaða
gerð þær voru.
Það var líka gaman að keyra
með þér því þú vissir hvað öll fjöll
og allir hólar hétu og vissir yfirleitt
einhverja sögu á bak við.
Til dæmis einu sinni þegar við
ætluðum að fara í smá „ömmu og
afa bíltúr". Þá keyrðum við bara
svona um og stoppuðum á
nokkrum stöðum. Meðal þessara
staða var sjoppa sem við stoppuð-
um í og þar keyptum við stílabók
og svo teiknaði ég í hana á leiðinni.
Afi bað mig að gefa sér þessa bók
þegar ég kláraði hana og ég var til
í það. En svo þegar við komum
heim var ég ekki búin að klára
hana því þetta var frekar þykk
bók. En mikið var að gera og skól-
inn var að byrja þannig að bókin
einhvern veginn gleymdist. Svo ég
var að hugsa um að gefa þér hana
þá í sextugsafmælisgjöf en jólin
voru komin áður en maður vissi af
og ekki nógur tími til að klára bók-
ina.
Svo allt í einu ertu tekinn frá
okkur svona snögglega en við
gleymum þér aldrei.
Þínar afastelpur,
Guðrún og Elva.
Elsku Elvar, þess er sárt að
minnast hversu brottför þína bar
snögglega að. Þó að árin hafi verið
60 gat andinn ekki verið yngri, það
var alltaf stutt í kímnina og frá-
bært í kringum þig að vera. Minn-
ingar um þig eru okkur ljúfar og
munu verða eilífar. Við vitum að þú
ert að fylgjast með fjölskyldu þinni
og það er gott að vita af því að
amma og afi passa þig.
Við Gestur Þorbjörn gleymum
aldrei stundunum þegar þið Edda
bjugguð f Stífluselinu, Grétar Ingi
og Omar Páll bera þann aldur að
muna þær síður. Okkur er það öll-
um ógleymanlegt eftir að þið flutt-
ust hingað til Þorlákshafnar og við
unnum hjá ykkur Eddu í Bjargveri
eftir skóla og um helgar. En hand-
tak þitt er eitthvað sem enginn
gleymir. Þetta máttuga handtak og
krafturinn sem í því bjó virtist
mala öll bein í hendinni mélinu
smærra en var svo hlýtt, svo kær-
leiksríkt. Fyrst og fremst er það þó
persónuleikinn sem við munum
sterkast eftir og fróðleikurinn sem
í þér bjó. Það var alveg sama um
hvað við töluðum, hvort sem var
tækni og vísindi eða stjórnmál, við
gátum alltaf spurt þig spjörunum
úr og rabbað við þig drykklanga
stund um hugðarefni okkar. Þú
varst okkar fyrirmynd.
Elsku Elvar, þegar við berum
þér þessa síðustu kveðju okkar er-
um við ekki aðeins að kveðja kær-
an vin og guðföður, þú gekkst okk-
ur í afa stað og því kveðjum við þig
sem elskulegan afa okkar. Guð
blessi þig og geymi þig, þú ert á
góðum stað en fylgir okkur ávallt.
Gestur Þorbjörn,
Grétar Ingi, Ómar Páll,
Jón Óskar og Helena.
Fallinn er frá góður drengur,
Elvar Geirdal. Langar mig að
minnast hans í nokkrum fátækleg-
um orðum.
Haustið 1990 settist ég á skóla-
bekk í Stýrimannskólanum í
Reykjavík. Kynntist ég fljótlega
Páli Geirdal, bekkjafélaga mínum
og síðar mínum besta vini. Bauð
Palli mér fljótlega með sér til Þor-
lákshafnar og var ástæðan sú, að
þar bjuggu Elvar og Edda, for-
eldrar Palla. Auk þess bjuggu þá í
Þorlákshöfn þrjár föngulegar syst-
ur hans, þær Geirlaug (Gógó), Ása
og Þóra, auk Guðrúnar dóttur Ásu
(síðar bættist við Elva dóttir
Þóru). Var maður alltaf velkominn
inn ó heimili þeirra hjóna, skipti þá
engu hvort litið var inn í kaffi (eða
kók) eða í sunnudagssteikina eftir
skrall með yngri meðlimum fjöl-
skyldunnar. í stuttu máli var
manni tekið sem gömlum fjöl-
skyldumeðlim, átti það jafnt við hjá
þeim hjónum, stelpunum eða hjá
systur Eddu og hennar fjölskyldu.
Frá upphafi höfðum við Elvar mik-
ið gaman af því að ræða saman.
Var þar ekkert heilagt, hreppa- og
landsmálapólitík, fiskveiðar og
kvótakerfið, bíiar, veðrið eða bara
um daginn og veginn. Vorum við
furðu oft sammála, sérstaklega ef
Palli var á öðru máli, þá komumst
við á skrið. Verða þessar stundir
mér alltaf ofarlega í huga. En síð-
asta minning mín af Elvari var
þegar ég fór á jeppanum upp á
flugstöð til að taka á móti vinaskar-
anum. Veitti ekki af aðstoð við
flutning á farangri og fólki. Fjöl-
skyldan hafði verið í Spánarferð og
kom brosandi og yfirhlaðin pökk-
um og pinklum. Þegar í Grafarvog-
inn var komið, til þeirra Ásu og
Þóru, skoðaði ég myndir og fékk
ferðasöguna beint í æð. Veit ég að
þessi ferð á eftir að verða yndisleg
minning og huggun þegar fram líða
stundir. Man ég eins og gerst hefði
í gærþegar ég kvaddi þau hjón fyr-
ir utan í snjófjúkinu og við grínuð-
umst einu sinni enn með farang-
ursmagnið og innihaldið. Það er
góð lokaminning.
Eddu og fjölskyldunni allri votta
ég mína dýpstu samúð.
Elvar, við hittumst síðar en á^
meðan skal ég skal iíta til með
stelpnaskaranum þínum og ég lofa
að stríða Palla við og við.
Kristján Guðmundsson.
Fyrir nokkrum árum fór Elvar
Geirdal að venja komur sínar upp á
Sandskeið. Hann langaði að láta
gamlan draum sinn rætast og læra
að fljúga svifflug. Hann var einn af
þeim sem lét verða af því að koma í
flugnám um miðjan aldur. En
vegna mikillar vinnu teygðist úr
náminu.
En nú í sumar ætlaði hann að
fljúga sitt fyrsta einflug. Því miður
verður ekki af því. Við kveðjum fé-
laga okkar og sendum fjölskyldu
hans samúðarkveðjur.
Kveðja,
Svifflugfélag íslands.
rinningamirfást @IOQ
HAPPDRÆTTI
Vinningaskrá
11. útdráttur 13.JÚIÍ2000
Bif reiðavinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
1 6 9 0 2
Kr. 100.000
Fer ð a v^nningur
Kr. 200.000 (tvöfaldur)
505
648
22512
67523
Ferðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2186 7612 25690 37075 46336 72653
6711 14812 30902 43436 54541 78256
Húsbú
Kr. 10.000
n a ð a
r v a n
Kr. 20.
ningnr
693 11678 23561 35407 43287 53143 66293 73910
1045 11806 24606 35463 43606 53515 66676 74121
1248 11987 24621 35799 44201 55514 67592 74322
2930 14084 26009 37966 44234 56780 67595 75219
4043 14207 27932 39435 45282 58135 67608 75510
4588 14538 29530 39733 45498 58269 67702 77475
7837 17847 30295 40138 46892 60984 69758 77917
8069 19338 31196 40161 47646 61227 71489 79692
8715 19789 31482 41218 48326 61317 71899 79897
8915 20930 31649 41777 48840 61793 72836
9648 20972 32164 42140 49187 63297 72915
9856 21266 33472 42287 51215 63737 73637
10352 22792 34906 42594 52322 63961 73716
Húsbúnaðarvinningur
172 11180 23389 32079 41979 52053 61060 69210
1004 11575 23442 32252 42146 52452 61313 69508
1094 11703 23808 32284 42589 52551 61820 69650
1933 11804 23817 32458 42882 52562 62514 69795
2072 11897 23916 32477 42903 52790 62557 69933
2919 12556 25353 32660 43050 53197 62581 70097
3090 12672 25476 32674 43652 53352 62792 70525
3776 13881 25555 32752 43720 •53488 62841 71111
3824 13952 25558 33043 43804 54180 62983 71532
4050 14274 25807 33050 44019 54458 63291 72168
4341 14647 26225 33218 44387 54722 63319 72620
4667 14690 26351 33559 44745 54751 63521 73375
4685 14710 26473 35140 44758 55544 63657 73510
5167 14755 26510 35220 449Í0 55566 63926 73557
5324 15189 27025 35300 45300 55808 63931 74044
5807 15757 27107 35605 45714 55899 64278 74255
6425 16781 27400 36072 46128 56073 64397 74748
6475 16996 27735 37797 46196 56401 64762 74800
6565 17000 27944 38608 46387 56765 64881 75311
6834 18165 28461 38671 46646 57979 65195 75599
8363 18546 28733 38734 46708 58425 65342 76841
8706 18611 29041 39289 46899 58463 65345 76889
8789 19792 29113 39503 47003 58488 65410 77113
9093 20087 29187 39568 47061 58642 65722 79454
9314 20386 29755 39571 48516 58927 66458 79949
9346 20436 30482 40586 49049 59308 67009 79986
9463 21148 30683 40721 49782 59902 67097
9509 21594 30812 41087 50476 59919 67108
9809 21860 31265 41302 50505 60288 68005
10255 22440 31285 41585 50716 60614 68184
10838 23158 31820 41782 51837 60658 68525
11073 23243 32069 41880 52011 60962 68727
Næstu útdrættir fara fram 20. júlí, 27. júlí & 3. ágúst 2000
Heimasíða á Interneti: www.das.is