Morgunblaðið - 14.07.2000, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Reiðmennska unga
fólksins alltaf glæsileg
Rosemarie Þorleifsdóttir er einn þeirra
tryggu áhorfenda sem ganga má að vísum í
brekkunni þar sem keppni í yngstu flokkun-
•■sí.
um fer fram á stórmótum hestamanna.
Ásdís Haraldsdóttir hitti hana að máli á
nýafstöðnu landsmóti og spurði hana
hvernig henni litist á þróunina.
SEGJA má að Rosemarie hafi
fylgst með keppni barna og ungl-
inga frá upphafi. Hún hefur verið
reiðkennari í áratugi og rekur
reiðskóla fyrir börn heima hjá sér
í Vestra-Geldingaholti.
„Mér finnst langskemmtilegast
að horfa á börn, unglinga og ung-
menni í forkeppni á stórmótum og
geri það alltaf. Ég skrepp yfir í
jkhina brekkuna þegar eitthvað sem
tilheyrir mér kemur fram þar, en
annars höfðar keppni unga fólks-
ins mest til mín, enda knaparnir
glæsilegir," segir hún.
Rosemarie var hvatamanneskja
að því að tekin var upp keppni
barna og unglinga á landsmótum.
Hvernig hefur þróunin verið að
hennar mati? „Það hefur orðið gíf-
urleg þróun, þó finnst mér reið-
mennskan hjá unga fólkinu alltaf
hafa verið glæsileg. Þegar farið
var af stað var lögð mikil áhersla á
að kenna unga fólkinu góða ásetu
og gefin sérstök einkunn fyrir
hana og það hefur skilað sér. Mað-
ur sér það núna í fullorðinsflokk-
unum hvað knaparnir sitja mun
betur en í gamla daga.
Hestakosturinn hjá unga fólkinu
er orðinn stórkostlegur. Maður sér
varla nema falleg og góð hross,
auðvitað mismunandi góð, en allt
Fjórir ung'lingar á
FEIF-móti
FJÓRIR unglingar fóru utan á
mánudaginn í æfingabúðir og á
unglingamót FEIF í Saarwelling-
en í Þýskalandi.
Æfingabúðirnar störfuðu þar til
í dag, föstudag, en þá hefst keppni
sem stendur yfir helgina. Að sögn
Sigrúnar Ögmundsdóttur hjá
Landssambandi hestamannafé-
laga er margt gert til að ungling-
amir kynnist og því er dregið í al-
þjóðleg lið sem keppa sín á milli
auk þess sem liðsmenn þeirra
koma fram saman á ýmsum uppá-
komum.
Þau sem fóru á FEIF-mótið
fyrir Islands hönd eru Elva Björk
Margeirsdóttir frá hestamannafé-
iaginu Mána, Ragnhiidur Har-
aldsdóttir frá Létti, Eldur Ólafs-
son frá Loga og Kristinn Elís
Loftsson frá Sleipni.
nsTuno
Milli manns og hests...
... er
#
nsTuno arhnakkur
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
FERSKAR NýjUNGAR í ClARINS
Multi-Matte húðlínan er byltingarkennd
nýjung, sérstaklega þróuð fyrir biandaða,
feita eða olíukennda húð. Mattar giansandi
húð og kemur jafnvægi á starfsemi fitukirtla.
Aðrar nýjungar:
• Eau Dynamisante, líkamsolía og sjampó
• Sumartöskur á frábæru verði, mismunandi
áherslur
KYNNING í dag föstudag, kl. 13-18 og á morgun, iaugardag, kl. 13-16
í snyrtivöruversluninni Hygeu, Laugavegi 23.
Komdu og láttu okkur gefa þér góð ráð varðandi umhirðu húðar þinnar.
Glæsilegir kaupaukar
Snyrtifræðingur frá Clarins, verður með fagiega ráðgjöf
Verið velkomin!
CLARINS
H Y G E A
jnyrtivBruvertlun
Laugavegi 23, sími 511 4533
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Rosemarie Þorleifsdöttir. Keppni unga fólksins höfðar mest til hennar.
upp í mjög góð. Þetta finnst mér
líka um hestamennskuna aimennt.
Flestir ríða núna góðum hrossum,
hitt er undantekning.
Rosemarie sagðist vera mjög
ánægð með þróunina. „Mér finnst
reiðmennskan núna einkennast af
prúðmennsku. Það er orðið sjald-
gæft að maður sjái fólk í átökum
við hesta, sem betur fer.“
Sakna fleira fólks
„Keppnin hér á mótinu finnst
mér fara mjög vel fram. Að vísu
hefur mér fundist dómarnir í ungl-
ingaflokki svolítið skrítnir og gæt-
ir nokkurs misræmis. Góðar sýn-
ingar hafa fengið lágar einkunnir
og spennusýningar of hátt að mínu
mati. Þetta er ekki alveg eftir
mínu höfði. Þá sakna ég fleiri
áhorfenda í brekkunni. Allt of fáir
koma og horfa á unga fólkið og
það stafar auðvitað af því að á
sama tíma fer fram keppni í mjög
spennandi greinum annars staðar
á svæðinu."
Rosemarie sagðist ekki vera
hlynnt því að halda sérstakt lands-
mót fyrir unga fólkið. „Aftur á
móti finnst mér sjálfsagt að halda
annað mót sérstaklega fyrir börn
og unglinga að auki. En mér finnst
að þau verði að vera inni á lands-
móti vegna þess að þau læra svo
mikið á því.“
Hún sagðist vera ánægð með
landsmótið að flestu leyti. Þó
fannst henni óþægilegt hve erfitt
var að náigast úrslit. „En svæðið
er glæsilegt og hér hefur orðið
bylting hvað alla aðstöðu varðar.
Ég er samt svo mikil sveitamann-
eskja að mér finnst aðeins vanta
upp á stemmninguna. Ég sakna
þess svolítið að hitta ekki fleira
fólk. Allir eru svo uppteknir við að
horfa á keppnina og margir fara
strax af svæðinu þegar henni lýk-
ur.“
Rétt úrslit í
stökki á
landsmóti
RANGAR upplýsingar fengust um
úrslit í stökki á Landsmóti hesta-
manna og birtust þau í umfjöllun um
landsmótið síðastliðinn þriðjudag.
Rétt úrslit eru sem hér segir:
Kappreiðar
300 m stökk
1. Leiftur frá Herjólfsstöðum,
eig.: Geir Tryggvason og Axel Geirs-
son, knapi: Axel Geirsson, 21.84 sek.
2. Kósi frá Efri-Þverá, eig.: Hall-
dór P. Sigurðsson, knapi: Sigurþór
Sigurðsson, 22.09 sek.
3. Vinur frá Stóra Fljóti, eig.:
Krisinn J. Einarsson, knapi: Stígur
Sæland, 22.14 sek.
4. Synd frá Reykjavík, knapi:
Silvía Sigurbjörnsdóttir, 22.25 sek.
5. Sproti frá Árbakka, eig.: Magn-
ús B. Magnússon, knapi: Aníta M.
Aradóttir, 22.35 sek.
800 m. stökk
1. Gáska frá Þorkelshóli, eig.:
Halldór P. Sigurðsson, knapi: Sigur-
þór Sigurðsson, 61.51 sek.
2. Lýsingur frá Brekku, eig.: Lýs-
ingsfélagið, knapi: Stígur Sæland,
62.18 sek.
3. Týr frá Þúfu, eig.: Sigurður
Ragnarsson, knapi: Sigurjón Örn
Björnsson, 63.97 sek.
4. Kjarkur frá Ferjukoti, eig.:
Heiða Dís Fjeldsted, knapi: Sigurjón
Örn Björnsson, 64.10 sek.
Öll úrslit
landsmóts-
ins á mbl.is
ÖLL úrslit frá Landsmóti
hestamanna eru á Iþróttavef
Morgunblaðsins undir Hestar.
Auk úrslitanna er að finna
fréttir sem skrifaðar voru á
landsmótinu og aðrar hesta-
fréttir.
Morgunblaðsvefurinn er á
slóðinni www.mbl.is., smellt er
á íþróttir og síðan á hestar.
Einnig er hægt að slá inn slóð-
ina www.mbl.is/sport/hestar og
komast þannig beint inn á
hestaumfj öllunina.
Minnisvarði
um Gunnar
Bjarnason
aflijúpaður
MINNISVARÐI um Gunnar Bjarnason
hrossaræktarráðunaut var afhjúpaður á
landsmótinu af barnabörnum hans.
Minnisvarðinn stendur í trjáiundi
skammt frá félagsheimili Fáks. Upphaflega
stóð til að slíkur minnisvarði yrði reistur á
Skógarhólum, en ekkert varð af því.
Að sögn Sigurbjörns Bárðarsonar, sem
ásamt þeim Ragnari Tómassyni og Anders
Hansen vann að þvi að reisa Gunnari minn-
isvarða, vildu þeir félagar ekki una því að
ekkert yrði gert í málinu. Hann sagði að
þeir hefðu því ákveðið að semja við Fáks-
menn og stjórn Landsmóts 2000 um að
finna minnisvarðanum stað á Fákssvæðinu
og að hann yrði afhjúpaður landsmótsdag-
ana. Barbara Mayer, hesta- og listakona,
var fengin til að hanna gripinn og Reynir
Vilhjálmsson landslagsarkitekt valdi hon-
um stað.
Sigurbjörn sagði að fjölskylda Gunnars
hefði tekið málinu vel og barnabörnin verið
fengin til að afhjúpa minnisvarðann.
„Gunnar Bjarnason gerði mikið fyrir ís-
lenska hrossarækt og því rétt að heiðra
minningu hans með þvi að reisa honum
minnisvarða. Eg held að staðsetning hans
sé góð því á Fákssvæðinu er mikil umferð
fólks og hesta. Gunnar vildi sjáifur einmitt
vera mitt í hringiðunni, innan um margt
fólk og marga hesta,“ sagði Sigurbjörn.
Morgunblaðið/Kristinn