Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 4%.
FRETTIR
Um 170 hundar á hundasýningu Hundaræktarfélags fslands á Akureyri
Hundurinn
Gæða-Jökull
þótti fallegastur
Um 170 hundar af öllum stærðum og gerð-
um voru sýndir á hundasýningu Hunda-
— _
ræktarfélags Islands á Akureyri fyrir
skömmu. Þegar úrslit voru kunngjörð hélt
Brynja Tomer að þakið myndi rifna af
— - ——
Iþróttahöll Akureyringa, svo mögnuð voru
fagnaðarlætin þegar ljóst var að dómara
þætti cavalier-hundurinn Gæða-Jökull
fríðastur allra.
LJÚFUR og skapgóður
smáhundur af kyninu ca-
valier king charles spaniel
var valinn besti hundur
sýningar á hundasýningu Hunda-
ræktai'félags íslands á Akureyri
helgina 24. og 25. júní síðastliðinn.
Sigurvegarinn, Gæða-Jökull, er í
eigu Asdísar Gissurardóttur, sem er
jafnframt ræktandi hans. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem hundur af
þessu kyni er valinn besti hundur
sýningar hér á landi, en sænski
dómarinn, Kenneth Edh, sagði að
þarna væri á ferðinni hundur sem
sigrað gæti á hvaða hundasýningu
sem er, hvar sem er í heiminum.
Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir
sýningarstjóri kvaðst afar ánægð
með sýninguna, hún hefði verið
skemmtileg í alla staði, hundar og
eigendur hefðu verið til fyrirmyndar
og andrúmsloftið mjög gott.
„Á sýningum Hundaræktarfélags
Islands er leitast við að fá til lands-
ins virta og þekkta dómara og er
Kenneth Edh í hópi þeirra, enda
bókaður meira en tvö ár fram í tím-
ann. Sem dæmi um vinsældir hans
má nefna að hann var beðinn um að
dæma á heimssýningu í Mílanó, en
þurfti að afþakka þar sem heimssýn-
inguna bar upp á sömu helgi og sýn-
inguna okkar.“
íslensk ræktun á réttri braut
Ein af merkustu tíðindum þessar-
ar hundasýningar teljast þau að
verðlaunahundar eru allir, nema
besti öldungurinn, ræktaðir hér á
landi. Þykir áhugafólki um hunda-
rækt það vera vísbending um að ís-
lensk hundarækt sé á réttri leið, í
það minnsta hjá þeim sem verma
verðlaunasæti á sýningum Hunda-
ræktarfélagsins. Dómarinn var sér-
lega hrifinn af árangri í ræktun ca-
valier king charles spaniel-hunda.
Auk þess að velja Gæða-Jökul besta
hund sýningarinnar fannst honum
besti ræktunarhópur sýningarinnar
vera cavalier-ræktun Halldóni Frið-
riksdóttur, Nettu-Rósar. Besti
hvolpur sýningarinnar var tíbet-
spaniel-tíkin Silfurs Esmeralda,
sem ræktuð er hér á landi og er í
eigu ræktanda síns Kristjönu J. Ól-
afsdóttur.
Annar besti hundur sýningarinn-
ar var cocker spaniel-tíkin Bjarkeyj-
ar-Eir, sem er íslenskur meistari, og
þriðji besti hundur sýningarinnar
boxer-tíkin Bjarkeyjar-Snilld. Báð-
ar eru þær frá sama ræktanda, Ingu
Björk Gunnarsdóttur. í fjórða sæti
var írski setinn Eðal-Dís, í eigu
ræktenda sinna, Hreiðars Karlsson-
ar og Elínar Gestsdóttur. Besti öld-
ungur sýningarinnar var border
collie-hundurinn Fenacre Blue Azil,
tæplega átta ára gamall hundur sem
bæði er íslenskur og alþjóðlegur
meistari. Hann er í eigu Björns Ól-
afssonar og Láru Birgisdóttur.
Liður í unglingastarfi Hunda-
ræktarfélags íslands er leiðsögn í
því hvernig sýna á hunda, en víða er-
lendis hafa menn atvinnu af því að
sýna annarra manna hunda. Um
nokkurra ára skeið hefur keppni
ungra sýnenda verið hluti af al-
mennum hundasýningum félagsins
og er þá lögð áhersla á náið samband
sýnanda og hunds, auk þess sem
miklu skiptir að dómara sé gert auð-
velt um vik að skoða og dæma hund-
inn. Steinunn Þóra Sigurðardóttir
var valinn besti ungi sýnandinn í
keppnisflokki 14-16 ára og Anna
Kristín Guðnadóttir í flokki 10-13
ára.
Ásdís Gissurardóttir, eigandi og
ræktandi Gæða-Jökuls, sagði að úr-
slitin hefðu komið sér skemmtilega á
óvart. „Jökull er rúmlega tveggja
ára og hefur alltaf fengið jákvæða
dóma, mig dreymdi samt ekki um að
hann yrði valinn besti hundur sýn-
ingarinnar."
Hún eignaðist fyrsta cavalier-
hundinn sinn fyrir fimm árum,
Nettu-Rósar-Tinnu, móður Jökuls.
Tinna hefur gotið einu sinni og
ákvað Ásdís að halda Jökli eftir,
þrátt fyrir að mikil ásókn væri í
hvolpana. „Mér fannst mjög erfitt að
láta hvolpana frá mér, en sem betur
fer fengu þeir allir góð heimili."
Traustir hundar og blíðir
Um upphaf hundadellunnar segir
Ásdís: „Bömin mín höfðu þrálátlega
Ljósmynd/Ragnar Th
Gæða-Jökull, Cavalier King Charles spaniel-hundurinn sem valinn var
besti hundur sýningarinnar.
beðið um hund og þegar við sáum
cavalier á sýningu voru örlögin ráð-
in. Við spurðumst fyrir og skráðum
okkur á biðlista hjá ræktanda. Þeg-
ar Tinna kom á heimilið var ljóst að
ég væri komin í hundana."
Ásdís segist hafa gaman af að
sýna hundana sína, sérstaklega Jök-
ul, enda hafi hann gaman af því að
sýna sig. Kenneth Edh dómari sagði
meðal annars um hann að hann sam-
svaraði sér vel, hlutföll í líkams-
byggingu væm mjög góð og hreyf-
ingar væru fallegar. Þá væri
djúprauður litur í feldi mjög fallegur
og vökul, dökk augun sömuleiðis.
Augnaráð sem bræðir
Cocker spaniel-tíkin Bjarkeyjar-
Eir var í öðm sæti á sýningunni á
Akureyri. Eigandi hennar og rækt-
andi er Inga Björk Gunnarsdóttir.
Hún segist á sínum tíma hafa fallið
fyrir augnaráði cocker spaniel-
hunda. Að auki séu þetta síglaðir,
litlir og skemmtilegir heimilishund-
ar, sem einnig séu notaðir í ýmis-
konai- vinnu, meðal annars veiði og
fíkniefnaleit, auk þess að njóta vax-
andi vinsælda sem leitarhundar í
rústum eftir jarðskjálfta. Þá geti
komið sér vel að vera smár og kom-
ast inn um þröngar rifur, auk þess
sem næmt lyktarskyn og vinnugleði
nýtist vel.
Fyrstu cocker spaniel-tíkina sína
flutti Inga inn frá Bretlandi fyrir 7
árum. Tveimur árum síðar var box-
er-hundur fluttur inn og nú em
heimilishundarnir níu talsins. Dóttir
innflutta boxer-hundsins, Bjarkeyjfc-
ar-Snilld, var þriðji besti hundur
sýningarinnai' á Akureyri. Um box-
er-hunda segir Inga að þeir séu
glaðir og fjöragir, en jafnframt
kröftugir og traustir. Þeir hafi gam-
an af leik fram á gamals aldur og séu
hálfgerðir trúðar meðal hunda, enda
sé ekki verra að eigendur þeirra hafi
kímnigáfuna í lagi.
Hundar Ingu hafa verið sigursæl-
ir á sýningum á síðustu ámm og
hæversk segist hún hafa verið mjög
heppin. „Ég var svo lánsöm að finr^vv
ábyrga og heiðarlega ræktendur í
Bretlandi, sem vora reiðubúnir að
senda góða hunda til mín. Ég hef
ræktunarmarkmið tegundarinnar
vitaskuld að leiðarljósi, auk þess
sem ég legg mikla áherslu á heil-
brigði og geðslag hundanna minna.
Þegar afkvæmi fær betri dóma en
foreldrar er það vísbending um að
ræktunin sé á réttri leið.“
Hreiðar Karlsson og Elín Gests-
dóttir hafa einnig átt sigursæla
hunda á sýningum síðustu ár. Um 11
ára skeið hafa þau ræktað írskan
seta og hafa margir af hundum
þeirra verið í verðlaunasætum gegn-
um tíðina. Að þessu sinni var tíkin
þeirra, Eðal-Dís, fjórði besti hundur
sýningarinnar. ••
Þau fengu fyrsta írska setann
sinn fyrir 18 árum, en segja að á
þeim tíma hafi innflutningsbann gilt
um hunda og því hafi hundarækt-
endur átt erfitt um vik. „Hér var
mikil skyldleikaræktun, sem olli því
meðal annars að margir fallegir og
vel gerðir hundar voru ófrjóir. Einn-
ig var skapgerð hundanna ekki nógu
góð, þeir vora taugaveiklaðir, en
eiga að vera mjög yfirvegaðir."
Tíguleiki írska setans heillar
Hreiðar og Elínu. „Auk þess að vera
fallegir era allir hundarnir mínir
mjög góðir veiðihundar." Til að ná
góðum árangri segja þau nauðsyn-
legt að ræktendur þekki ræktunar-
markmið viðkomandi hundakynS*
mjög vel og vandi val á undaneldis-
hundum.