Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Anand sigrar
Adams í Dortmund
skák
II o r t m u n il
DORTMUND SPARKASSEN
7.-16. júlí 2000
EFTIR óvæntan sigur enska
stórmeistarans Michaels Adams
gegn Vladimir Kramnik í fjórðu um-
ferð Dortmund Sparkassen-ofur-
mótsins þurfti Adams að eiga við
indverska stórmeistarann Anand í
fimmtu umferð. Ekki beint auðveld
dagskrá það. Þar áttust við stálin
stinn, efstu menn mótsins. Adams
beitti Marshall-árásinni í spænskum
leik, en Anand kom vel undirbúinn
til leiks og hafði betur eftir 45 leiki.
Þar með var ljóst, að Anand var
kominn einn með forystu á mótinu.
Hann hefur hlotið fjóra vinninga í
fyrstu fimm umferðunum. Peter
Leko íylgir hins vegar í humátt á
eftir Anand eftir sigur gegn Bareev í
fimmtu umferð. Afar athyglisvert
var að fylgjast með viðureign
Kramniks við Junior-skákforritið,
sem hafði náð ótrúlega góðum
árangri í fyrstu fjórum umferðun-
um. Kramnik var greinilega búinn
að jafna sig eftir tapið gegn Adams
og tefldi fullur
sjálfstrausts
gegn þessu öfl-
uga forriti. Hann
beitti grjótgarð-
inum svokallaða,
sem er skynsam-
leg leið gegn
skákforritum.
Taflið fór inn á
brautir sem
henta skákforrit-
um afai' illa, enda tefldi forritið
ómarkvisst meðan Kramnik byggði
upp kóngssókn eftir öllum kúnstar-
innar reglum. Það má eiginlega
segja að Junior hafi lent undir gi'jót-
garðinum án þess að vita nokkurn
tíma hvað var að gerast. Kramnik
tefldi hins vegar meistaralega. Úr-
slit fimmtu umferðar urðu annars
þessi:
Kramnik - Junior 6 1-0
Anand - Adams 1-0
Leko - Bareev 1-0
Húbner - Piket 14-Í4
Khalifman - Akopian V2-V2
í sjöttu umferð mætast m.a.
Kramnik og Anand og Akopian fær
að glíma við skákforritið með svörtu.
Daði Örn Jónsson
Viswanathan
Anand
Dortmund Sparkassen
Dortmund 7.-16. júlí 2000
Nr1 Nafn l 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn Röð
1 Evqenv Bareev Rússl. 2702HB % % ’/2 0 2 6.-9.
2 Michael Adams Enql. 2755 % 0 1 0 1 '/2 3 3—4.
3 Vladimir Kramnik Rússl. 2770 '/2 1 % 1 3 3.-4.
4 Viswanathan Anand Indl. 2762 % 1 1 'a 1 4 1.
5 Peter Leko Unqv. 2743 1 1 ’/2 '/2 '/2 3V, 2.
6 Dr. Robert Hiibner Þýsk. 2615 cu % 'a '/2 0 V/, 9.-10
7 Alexander Khalifman Rússl. 2667 0 % 1? ’/2 ’/2 2 6.-8.
8 Vladimir Akopian Arm.2660 0 % 14 'A 2 6.-8.
9 Jereon Piket Holl. 2649 0 'A 0 % 'A V/, 9.-10
10 Junior 6 % '/2 0 1 '/2 F53 2'A 5.
BRIDS
11 m s j ó n A r n ó r G.
Ragnarssun
Bridsdeild félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í As-
garði, Glæsibæ, fimmtudaginn 29.
júní. 25 pör, meðalskor 216.
N/S
Baldur Ásgeirss. - Magnús Halldórss. 267
Ólafur Ingvarss. - Eh'n Jónsd. 244
Júlíus Guðm.s. - Oliver Kristóferss. 231
A/V
JónBondó-SigrúnSigurðard. 257
Helga Helgad. - Þórhildur Magnúsd. 243
Sigtryggur Ellertss. - Magnús Jósefss. 234
Mánudaginn 3. júlí. 18 pör, meðal-
skor 216 stig.
N/S
Ólína Kjartansd. - Halla Ólafsd. 238
BergljótRafnar-SoffiaTheódórsd. 228
Júh'us Guðm.s. - Ohver Kristóferss. 227
HalldórMagnúss.-ÞórðurBjömss. 227
A/V
BaldurÁsgeirss.-MagnúsHalldórss. 227
AuðunnGuðm.s.-AlbertÞorsteinss. 255
Ólafur Ingvarss. - Birgir Sigurðss. 230
ÞórarinnÁmas.-FróðiB.Pálss. 230
Þungnr róður hjá íslenzka lið-
inu á EM yngri spilara
íslendingar eru meðal þátttak-
enda á 17. Evrópumóti yngri spil-
ara sem fram fer í borginni Antalya
í Tyrklandi þessa dagana.
Lokið er 17 umferðum af 25 og
hefir róður okkar manna verið
þungur og eru þeir í 18 sæti af 25
þátttökuþjóðum með 238 stig. ísra-
elsmenn eru efstir með 336,5 stig,
Norðmenn í öðru sæti með 313,
Danir í því þríðja með 310 og Hol-
lendingar í fjórða sæti með 294 stig.
Einn leikur var spilaður í gær-
kveldi við Hollendinga og var ekki
lokið þegar þetta var skrifað.
Mótinu lýkur nk. sunnudag.
Ný verðlaun í Sumarbrids
I stað þess að spila um að fá frítt
næst í sumarbrids, hefurverið settur
í gang nokkurs konar „lukkustokk-
ur“. Sigurvegarar hvers kvölds
(tveir spilarar ef Howell en fjórir ef
Mitchell - „highcard" ef jöfn pör)
draga spil úr spilastokki og fá þar
tækifæri til að vinna margskonar
verðlaun: Bókaverðlaun, matarverð-
laun, bílaþvott, fría klippingu, auk
inneignarverðlauna af ýmsum toga.
Þá er mögulegt að vinna farseðil til
Kaupmannahafnar en líka gjafabréf
á fínustu veitingahúsin í Reykjavík.
Sandgerðisleikur
Hæsta prósentuskor í sumarbrids
frá 12. júlí til 8. september gefur við-
komandi pari frítt keppnisgjald í hið
geysivinsæla tvímenningsmót sem
Bridsfélagið Muninn í Sandgerði
stendur fyrir á hverju hausti.
Isak Öm Sigurðsson vann síðustu
viku og fær gjafabréf á Þrjá Frakka.
Vilhjálmur Sigurðsson jr. þjarmaði
verulega að honum á lokasprettin-
um, en ísak hélt velli með góðum
árangri í sunnudagstvímenningnum
þar sem hann spilaði við Baldur Ósk-
arsson.
Úrslit síðustu spilakvöld:
Sunnudagur, 9.7.
Baldur Óskarsson - ísak Öm SigurðssonlOl
Óli Bjöm Gunnarss. - Valdimar Sveinsson
101
Þorleifur Þórarinsson - Þórður Sigfússon 94
PéturSteinþórsson-ÚlfarKristinsson 88
Mánudagur, 10.7.
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson
188
HjördísSigurjónsd.-KristjánBlöndal 186
Birkir Jónsson - Guðmundur Baldurssonl78
Erlingur Þorsteinss. - Baldur Óskarss. 170
Þriðjudagur, 11.7.
Norður - Suður
Hróðmar Sigurbjss. - Stefán Stefánsson 265
Óli Bj.Gunnarss. - Sturla Snæbjömss. 255
Guðlaugur Sveinss - Júlíus Snorrason 246
Austur - Vestur
HrólfurHjaltason-JónÞorvarðarson 256
MagnúsAspelund-Steingr. Jónass. 232
Gísh Sveinsson - Guðm. Guðmundsson 230
Miðvikudagur, 12.7.
Jón St. Gunnlaugss. - Magnús Torfason 185
HelgiBogason-KristinnKarlsson 185
Halla Ólafsdóttir - Magnús Halldórsson 181
AronÞorfmnsson-SnorriKarlsson 181
Spilað er í sumarbrids öll kvöld
nema laugardagskvöld og hefst
spilamennskan alltaf klukkan 19.
Adlir eru hjartanlega velkomnir,
skráð á staðnum og hjálpað er til við
myndun para. Nýjustu úrslit má
jafnan finna á síðu 326 í textavarpinu
og öll úrslit eru auk þess skráð á
íþróttasíðu mbl.is., slóðin þangað er
http://www.mbl.is/sport/sumarbrids/
ÍDAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Óréttlæti trygg-
ingafélaganna
HÖFUNDUR þessarar
greinar vill fá að tjá sig ör-
lítið um þær hækkanir sem
tryggingafélögin hafa látið
falla yfir okkur núna und-
anfarið.
„Félögin hækkuðu ið-
gjöldin um 30% í fyrra og
ætla að láta annað eins yfir
okkur dynja núna. Ástæð-
an. Aukin greiðsla á tjónum
bifreiða og bótum vegna
slysa og þá helst um kennt
17 ára ökumönnum.
Ég heyrði svo í fréttum í
gær að a.m.k. eitt félag-
anna ætli að hækka kaskA
tryggingar um 17,9%. í
hverju liggur sú hækkun?
Eru það 17 ára ökumenn
sem valda mesta tjóninu
sem aka um á kaskótryggð-
um ökutækjum?
Sjóvá-Almennar reið á
vaðið með að tilkynna
hækkanir á sínum iðgjöld-
um og hin tryggingafélögin
fylgja á eftir eins og þæg
lítil börn sem sagt hefur
verið að koma inn að borða.
Svo leyfa þessir menn
sér sem standa fyrir svör-
um fyrir félögin að halda
því fram að hér ríki sam-
keppnin á markaðnum. Því-
líkt og annað eins. Halda
þessir menn að viðskipta-
vinirnir séu upp til hópa
heilalausir? Það heitir ekki
samkeppni að allir hækki í
kór og í samræmi við hina.
Þetta er það sem bændurn-
ir kalla „þegar ein beljan
mígur þá míga þær allar“.
Önnur fyrirspurn sem ég
myndi vilja koma á fram-
færi til tryggingafélag-
anna. Nú eru þeir famir að
skipta landinu upp í
áhættuflokka þannig að
þeir sem búa úti á landi
borga iægri iðgjöld en höf-
uðborgarbúar (a.m.k. í
flestum tilvikum).
Gerir þetta að verkum að
landsbúamir leggi bílum
sinum fyrir utan höfuð-
borgina þegar þeir keyra til
Reykjavíkur? Ekki sitja
þeir allir í sinni sveit á sín-
um bílum? Margir koma til
borgarinnar f skemmri eða
lengri tíma og jafnvel til í
dæminu að sumir eigi lög-
heimili úti á landi en stundi
vinnu eða skóla á höfuð-
borgarsvæðinu.
Valdi þetta fólk tjóni á
hærri gjaldsvæðum fyrnist
þá réttur þeirra til þess að
aka um á iægri iðgjöldum?
Hver er okkar réttur, sem
þekkjum höfuðborgar-
svæðið og erum vön þeim
hraða og þeirri miklu um-
ferð sem hér er orðin,
gagnvart fólki utan af landi
sem silast oft um á 30-40
km hraða á Miklubraut eða
Kringlumýrarbraut og
veldur stórhættu á sínum
lægri iðgjöldum?
Sólveig Kristjánsdóttir.
Farfuglaheimilin ekki
fyrir Islendinga
SÍÐAN veldi Dana hér á
landi hnignaði og leið undir
lok, hefur það verið sjálf-
sagt mál að Islendingar
sneru sér til ianda sinna á
íslensku. Nú bregður hins
vegar svo við að árleg skrá
Bandalags íslenskra far-
fugla um farfuglaheimili á
landinu er ekki til á ís-
lensku. Þegar ég uppgötv-
aði þetta fannst mér ég
ekki vera velkominn á far-
fuglaheimilin. Það er á
sama veg það Sem ég sé á
farfuglaheimilinu í Laugar-
dal, hér í nágrenni við mig,
að ekki er hirt um að hafa
almennar tilkynningar til
gesta á íslensku.
Björn S. Stefánsson,
Kleppsvegi 40, Rvk.
Kostnaður vegna
kattafárs
HVERNIG má það vera að
kostnaður við það að fanga
og aflífa hverja kisu hafi
kostað um það bil 100.000
krónur í kattafári Reykja-
víkurborgar í vetur? Hefði
ekki verið nær að eyða fjár-
mununum í eitthvað þarf-
ara og láta blessuð dýrin í
friði? Líklega hafa katta-
veiðarar borgarinnar
sæmileg laun.
Borgari.
Þakklæti
SIGRÍÐUR hafði samband
við Velvakanda og langaði
að koma á framfæri þakk-
læti til starfsfólks Rainbow
ryksuguþjónustunnar fyrir
frábæra þjónustu og nota-
legheit.
Tapað/fundió
Ocean-vöðlur
töpuðust
EINHVER í veiðihópnum í
Vökuholti í Laxá í Aðaldal,
dagana 6. júlí-10. júh', hefur
tekið í misgripum nýju
dökkgrænu Ocean-vöðlurn-
ar mínar. Aðrar voru skild-
ar eftir. I þeim var rauður
svissneskur hnífur. Ef ein-
hver kannast við þetta, haf-
ið vinsamlega samband i
síma 553-2543 eða 551-
1570.
Gunnar Petersen.
Game-boy Ieikjatölva
tapaðist
BLÁ Game-boy leikjatölva
tapaðist i Nauthólsvík
mánudaginn 10. júh' sl. Skil-
vis finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hafa samband
í síma 561-3125.
Barnahjálmur fannst
BARNAHJÁLMUR
fannst á víðavangi nálægt
Langhoitsvegi, miðviku-
daginn 12. júií sl. Uppiýs-
ingar i síma 553-4832.
Tveir húslyklar
fundust
TVEIR húslyklar fundust
við stoppistöðina við Eddu-
fell, miðvikudaginn 12. júlí
sl. Upplýsingar í síma 557-
5953.
Gullhringur með
safír og demöntum
tapaðist
BREIÐUR gullhringur
með safír og fimm demönt-
um hvort sínum megin, tap-
aðist fyrir um það bil sex
vikum. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Ragn-
heiði í síma 862-0083.
Dýrahald
Fress óskast
ÓSKA eftir einlitum hvit>
um geldum fress um það bil
10 mánaða til eins árs
gömlum. Upplýsingar í
síma 696-0814.
SKAK
llinsjóii llelgi Áss
Grétarsson
Á Reykjavíkurskákmótinu 1988 sem
Jón L. Ámason vann, vakti ungur grísk-
ur meistari, Vasilios Kotronias, mikla
athygli fyrir knáa frammistöðu er hann
lenti í öðru sæti. Fjórum árum síðar tók
hann aftur þátt í sama móti og var þá
orðinn stigahár stórmeistari. Hann er
enn að en hefur flust búferlum til Kýpur
Hvítur á leik.
og hefur nú um stundir 2.539 stig. Stað-
an er frá viðureign hans við Ilír Karkan-
aque (2.389) frá Albaníu á svæðamótinu
í Jerevan er lauk um miðjan júm'. 31.
f6+! Kf7? Svartur gat hugsanlega
bjargað taflinu með 31.... gxíB 32. exíB+
Kd7! þar sem núna gengur 33. He7+
Kd6 34. Re6 ekki upp fyrir hvítan sök-
um 34.... Hxffi! 32. e6+ Ke8 Eftir 32....
KxfB hefur hvítur margar vinningsleiðir
en áhrifaríkust er 33. e7! He8 34. Rd5+
Kg6 35. Hxd4 cxd4 36. HI8 33. Hxd4
cxd4 34. fxg7 Hg8 35. Rxh5 Ke7 36.
Hf7 + og Albaninn gafst upp.
Yíkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins þurfti nú
fyrir skemmstu að leggja leið
sína til Akureyrar og fara flugleiðis.
Eftir að hafa eytt miklum tíma í að
íhuga alla þá fjöldamörgu valkosti
sem í boði eru fyrir flugfarþega frá
Reykjavík til Akureyrar ákvað Vík-
verji að taka sér far með því forn-
fræga Flugfélagi íslands. Ekki datt
honum annað í hug en að hin mikla
saga félagsins og brautryðjenda-
orðspor sem félagið á yrði til annars
en að þar á bæ ríkti ítrasti metnað-
ur til að gera sem best við þá far-
þega sem hefðu valið að versla við
félagið. En annað kom á daginn. I
fyrsta lagi var seinkun á fluginu frá
Reykjavík, ekki mikil, um það bil 15
mínútur, en aldrei var tilkynnt um
hana né hennar getið á áætlanaskjá
í biðsal. En flugið norður var ljúft,
enda veðrið hið besta, og Víkverji
var ekki að hvekkja sig á svona smá-
munum. Það hefði samt verið kurt-
eist af hinu fornfræga félagi að til-
kynna um seinkun.
xxx
SVO þurfti Víkverji að fara til
baka til Reykjavíkur. Víkverji
mætti á flugvöllinn á Akureyri á
réttum tíma, en komst þá að því að
vélin sem hann átti að fara með var
langt á eftir áætlun, báru starfs-
menn við bilunum og reiknuðu með
að flugið yrði „sennilega" ekki fyrr
en tveimur, þremur tímum seinna.
Þetta var að kvöldi og Víkverji
ákvað að fresta för sinni þar til
morguninn eftir, klukkan 9.40.
Hann hafði vaðið fyrir neðan sig í
það skiptið og hringdi á völlinn og
viti menn, það hafði orðið „smá“
breyting, að því er afgreiðslan
sagði. Vélin færi frá Reykjavík til
Húsavíkur og þaðan til Ákureyrar,
og seinkaði þar af leiðandi um 50
mínútur. Þessi „smá“ breyting nam
því í rauninni lengri tíma en flug-
tímanum til Reykjavíkur. Víkverji
mátti sitja á sér að verða ekki
draugfúll. Hann mætti svo á flug-
völlinn, vélin átti að fara hálfellefu.
Ekki varð Víkverji vitund hissa á að
sú áætlun stóðst ekki. Var ekki farið
í loftið fyrr en rétt undir ellefu, og
Víkverji var kominn suður um há-
degi daginn eftir að hann hafði ætl-
að sér að fara. Og ekki var ferðin
sérlega þægileg í það skiptið og Vík-
verji veltir því fyrir sér hvort geti
verið að ATR-flugvélarnar séu ekki
eins stöðugar á sigiingunni, ef svo
mætti segja, og gamli góði Fokker.
xxx
ER það bara smámunasemi í Vík-
verja að ætlast til stundvísi af
Flugfélagi íslands? Og ætlast þar
að auki til þess að hann sé látinn
vita af seinkunum og þurfi ekki að
fara margsinnis út á flugvöll? Væri
réttast að Flugfélagið greiddi hon-
um bensínbætur. En þetta er auð-
vitað ekki einsdæmi, þvert á móti,
og Víkverji - sem þarf oft að fara
milli Reykjavíkur og Akureyrar og
fer þá flugleiðis vegna þess að hann
á ekki bíl - man varla til þess að
hafa ekki orðið fyrir óvæntum töf-
um, reyndar stundum vegna veðurs
og þá ekki við nokkurn mann að
sakast, en álíka oft vegna þess að
Flugfélag íslands, sem á náttúrlega
í harðri samkeppni á þessari flug-
leið, virðist ekki telja stundvísi
miklu skipta. En það er náttúrlega
landlægur ósiður á íslandi.
XXX
IRAUNINNI eru það ekki mark-
tækar viðbárur af hálfu Flugfé-
lagsins að vélar hafi bilað, því að það
er sjálfsögð krafa að þá sé til reiðu
varavél - og jafnvel varaáhöfn ef
þarf - svo unnt sé að standa við
gerða samninga. Því að hvað er
farmiði annað en samningur milli
farþegans og Flugfélagsins? Far-
þeginn stendur við sinn hlut með því
að greiða fyrir farið fullt gjald, og
þá á Flugfélagið að standa við sinn
hlut með því að flytja farþegann á
þeim tíma sem um var samið, ann-
ars ætti félagið ekki að krefjast
þess að farþeginn standi fyllilega
við sinn hlut samningsins, það er,
greiðsluna.