Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Lopapeysurokk!
HIN LANGÞRÁÐA safnplata Þursaflokksins
„Nútíminn" er loksins skriðm út úr hellinum og
eyðir sinni fyrstu viku í 14. sæti listans. Hljóm-
sveitin er án efa ein af áhrifameiri hijómsveit-
um íslenskrartónlistarsögu og hér má finna
samansafn af bestu lögum hennar. Það er
nokkuð Ijóst að tónlist þeirra er jafníslensk og
lopapeysur og brennivín.
Hljómsveitin. sem lagði upp laupana 1982,
óf rammíslenska þjóðlagatóna saman við
popp- og rokktónlist síns tíma og útkoman
varö sígild. Á plötunni má meðal annars finna
lögeinsog „Brúðkaupsvísur". „Pínulítill kall“,
„Vill einhverelska?" og „Æri-Tobbi".
íslandslögin
á toppnum!
ÞAÐ ER fimmta ís-
landslagaplatan
sem siturátoppi
listans pessa vik-
una. Platan ber
nafnið „í kirkjum
landsins“ og
einsognafnið
gefurtil kynna
inniheldur platan nokkur af þeim
þekktari trúariegu dægurlögum sem ís-
lendingar hafa raulað í gegnum tíðina.
Það er sem fyrr Björgvin Halldórsson
sem hefur smalað saman vinum og kunn-
ingjum sem hann treystir að fari vel með
lögin.
Meðal flytjenda ásamt Björgvini eru
Diddú, Bubbi, Sigga Beinteins, Páll Rósin-
krans og Egill Ólafsson.
h^OOO
Nr. var vikur Diskur Flytjundi Otgefandi Nr.
. 1. 8. 2 íslandslög 5-í kirkjum landsins Ýmsir Skífan 1.
2. 1. 4 Pottþétt 20 Ýmsir Pottþétt 2.
3. 1 N Svona er sumarið 2000 Ýmsir SPOR 3.*
4. 3. 7 Marshall Mathers LP Eminem Universal 4.
5. 6. 17 Hoorey For Boobies Bloodhound Gnng Universal 5.
6. 2. 3 White Pony Deftones Worner 6.
7. 5. 13 Play Moby Mute 7.
8. 7. 8 Oops 1 Did It Again Britney Speors EMI 8.
9. 9. 7 Mission Impossible 2 Ýmsir Hollyw. Rec 9.
10. 4. 6 Ultimote Collection Borry White Universal 10.
11. - 1 Fuglinn er floginn Utongarðsmenn ísl. tónor 11..
12. 15. 7 Greatest Hits Whitney Houston BMG 12.
13. 10. 6 Bellman Bubbi Skifan 13.
■ 14. 1 Nútiminn Þursaflokkurinn (sl. tónar 14.
15. 11, 5 Eurovision Song Contest Ýmsir BMG 15.
16. 12. 58 Ö Ágætis byrjun Sigur Rós Smekkleysa 16.
17. 19. 4 Don't Give Me Names Guano Apes BMG 17.
18. 30. 8 Binaural Peorl Jam Sony 18.
19. 13. 11 Skull & Bones Cypress Hill Sony 19.
20. 20. 7 Hagnesta Hill Kent BMG 20.
21. 16. 47 Significont Other Limp Bizkit Universol 21.
22. 26. 2 Alone With Everybody Richord Ashcroft EMI 22.
23. 21. 38 12 ógúst 1999 Sólin Hans Jóns Míns Spor 23.
24. 24. 34 S&M Metollico Universal 24.
25. 18. 8 Era 2 Ero Universal 25.
26. 25. 2 Trans Nation Ministry of Sound Min. of Soum 26.
27. 33. 8 Trilenium Sosh Edel 27.
28. 57. 13 Vonda Shepard Ally McBeal II Sony 28.
29. 65. 33 H Human Clay Creed Sony 29.
30. 14. 25 BestOf Cesario Evoro BMG 30.
Á Tónlistanum eiu plötui yngii en tveggjo óio og eiu i veiófloitknum „fullt veiö”.
Tónfetinn ei unninn af PiicewateihouseCoopers fyiii Somband bljómplötufiomleióondo og Morgunblaðið i somvinnu
við eftirtoldoiveislonii: Bókvol Akuieyii, Bónus, Hogkoup, Jopis Bioutoiholti, fopis Kiinglunni.iopís Lougotvegi, Músík
og Myndii Austuistiæti, ttúsik og Myndii Mjódd.Somtónlist Kiinglunni, Skífon Kringlunni, Skífon Lougoivegi 26.
Þið munuð öll deyja!
FUGLINN erfloginn en eins og allt annaö
sem stígur til himna veröur hann að lenda
og því tyllir hann sér þægilega í ellefta
sæti tónlistans á sinni fyrstu viku og undir-
býrnæsta flug. Safnplata Utangarðs-
manna er tvíréttuð slagaramáltíð þar sem
báðir diskarnir eru stútfullir af lögum sveit-
arinnar. Á henni er aö finna allt þaö efni
sem hefur áður verið ófáanlegt á geisla-
diski með sveitinni, nokkuráðuróútgefin
lög er einnig að finna auk örfárra laga af
plötunni „Geislavirkir“, þeirra á meðal er
kjarnorkurokkarinn „Hiroshima".
Það ætti að vera áhugavert að fylgjast
með tónleikaferð þeirra félaga því eins og
Bubbi orðaði þaö eru Utangarðsmenn „ein-
faldlega besta og kraftmesta rokkhljóm-
sveit sem ísland hefur átt!“.
Sumarið kortlagt!
ÞAÐ ER NÁNAST hægt að finna
samantekt af íslensku tón-
iistarffóru sumarsins eins
og hún leggur síg á safn-
skífunni „Svona er sum-
arið 2000". En á píöt-
unni má m.a. finna sum-
arsmellina „Sóf. ég hef sögu
að segja þér“ meó Sálinni,
„Ennþá“ með Skítamóral, „Hvar er ég?“
með írafári, „Endalausar nætur" meó Butt-
ercup og „Hvort sem er“ meö Sótdögg.
Einnig eru þarna ný iög með Greifunum,
200 þúsund naglbítum, Á móti sóf, Jargon-
buster, Milljónamæringunum, Sixties, MlR.
Port og poppprinsunum í Landi & sonum.
Á plötunni eru Hreimur og félagar meó
lag sem á eflaust eftir að hljóma mikið á
útvarpsstöðvunum í sumar en það er lagið
„Ástfangi", titill sem að öllum líkindum er
fenginn að iáni úr smiðju dr. Gunna og
hljómsveitarinnar sálugu Bless.
ERLENDAR
ooooo
Ómar Örn Hauksson Quar-
ashi-maður hlustaði á The
Marshall Mathers, nýjustu
plötu Eminem.
Góðlátlegt grín
eða geðveiki?
Eftir vandlega hlustun á The Marshall Mathers
komst Ómar Örn Ilauksson að þeirri niðurstöðu
að hún svíki vart þá er kunna að meta Eminem.
„Já, en strákar ég hélt að við
værum að fara á grímuball."
Tjallinn nýj-
ungagjarn
I’AÐ ERU dæmalaust miklar svipt-
ingar á topp tíu listanum breska yfír
söluhæstu smáskífumar því þar er
að finna hvorki fleiri né færri en sex
nýliða. „Breathless" með hinum íðil-
fögru írsku systkinum í The Corrs er
nýtt topplag, áhyggjufullum foreldr-
um til mikils léttis vafalaust því sætið
eftirsótta hefur verið í höndum vand-
ræðagemsans Eminem sem seint
verður talin góð fyrirmynd áhrifa-
gjamri æsku. Meðan annarra nýrra
, laga er tilbrigði Limp Bizkit við stef-
ið úr Mission Impossible „Take A
Look Around“ í þriðja sæti, þriðja
smáskífa Oasis af Standing On The
Shoulder Of Giants „Sunday Mom-
ing Call“, ljúfsár ballaða sem Noel
syngur og sver sig nokkuð í ætt við
lögin á (What’s The Story) Morning
Glory. Á breiðskífulistanum heldur
Eminem velli með sjálfsævisögulegu
plötu sinni The Marshall Mathers
LP en írski sálarsöngvarinn rámi
David Gray er farinn að narta fast í
hæla hans og virðist loksins vera að
ná þeirri hylli sem spekúlantar hafa
spáð honum.
Vestanhafs er Eminem sem fyrr
kóngur í ríki sínu og hefur sópað út
að minnsta kosti fimm milljónum ein-
taka. Lag Vertical Horizon „Every-
thing You Want“ gerir sér hinsvegar
lítið fyrir og rýkur úr sjötta sæti
beina leið á topp lagalistans, en tekið
„skal íram að þar er ekki um tökuút-
]gáfu á gamla Wham! laginu að ræða.
EMINEM er fyrsti hvíti
rapparinn sem verður vin-
sæll og tekið er mark á síð-
an væskillinn Vanilla Ice greip
míkrófóninn og lét gamminn geisa.
Reyndar er munurinn á þeim sá að
Vanilla Ice var „commercial" og
poppaður rappari og hvarf fljótlega
af sjónarsviðinu en Eminem reynir
hvað mest hann má að vera „white
trash“ gangster-rappari sem gefur
skít í allt og alla. Hann kom fram á
sjónarsviðið með Slim Shady LP á
síðasta ári þar sem rappkóngurinn
Dr. Dre var við stjómvölinn og end-
urtekur leikinn að hluta til í þetta
skiptið. Reyndar hafði MM reynt
fyrir sér sem rappari í nokkur ár áð-
ur en hann varð almennilega upp-
götvaður og hafði gefið út efni undir
öðru merki.
Eins og áður sagði er eitt aðals-
merki MM það að ganga fram af
fólki með yfirlýsingar um að hann
ætli að drepa bamsmóður sína, að
mamma hans sé eiturlyfjafíkill og að
sér sé nett sama um flesta og ömmu
þeirra líka. Hann hefur víst sagt að
flest sé þó sagt í góðu gríni og hann
sé bara að „flippa“. Reyndar hamr-
ar hann á þessu í nánast öllum lög-
um plötunnar og textasmíðin er því
frekar einhæf á köflum.
Sjálfur hef ég ekki hlustað mikið
á MM í gegnum tíðina, eitt og eitt
lag sem orðið hefur vinsælt er alít
og sumt. Tók ég þó betur eftir hon-
um í vetur og hlustaði svolítið á
fyrstu skífuna hans og líkaði ágæt-
lega. Reyndar er hún eins og þessi
ekki nógu góð heild, bara nokkur
góð lög hér og þar. Bestur er hann
þegar Dr. Dre styður við bakið á
honum, þar sem finna má feitustu
taktana og „sándið“. Pegar hann
hinsvegar sest sjálfur niður við
„mixerinn" og fiktar í tökkunum fer
hann að taka æði mörg feilspor. Til
dæmis þegar hann kemur fram með
llokknum sínum „The Dirty Dozen“
eða D12, Detroit-„gangsterum“ sem
gefa skít í allt. Þessir kappar eru
frekai- slappir í flestu sem snýr að
rappinu, allir textar eins og slappt
flæði. Þeir rappa allir um sama hlut-
inn og MM, það er að segja hvað
þeir eru geðveikir og „flippaðir" vill-
ingar.
Platan byrjar annars hressilega á
lagi sem MM tileinkar móður sinni
og ber nafnið „Kill You“. Ansi
skondið og skemmtilegt lag sem fær
mann til að kinka kolli og er þetta
eitt af fáum lögum plötunnar sem
maður hlustar á aftur og aftur. Eini
almennilegi smellurinn á plötunni,
„The Real Slim Shady“, á hyllina al-
veg skilda og kemur manni í gott
skap á vondum degi - hressilegur
lagstúfur og fyndinn. Þar er komið
lagið þar sem Slim fer sem mest á
kostum í textasmíð og „dissi" á aðra
lagahöfunda. Will Smith, Britney
Spears, Puff Daddy, Jenifer Lopez
og strákasveitir eins og N’sync fá
það óþvegið og er undirritaður sam-
mála flestu að undanskilinni Britney
- hún er gella sem á allt gott skilið.
Dr. Dre, Snoop Dogg, Xzibit og
Nate Dogg koma saman í laginu
„Bitch Please 2“ og er það einskon-
ar framhald af laginu „What’s The
Difference" sem prýddi plötu Dr.
Dre í vetur. Þetta er prýðilegt lag,
vel útsett af Dre og gaman að heyra
Snoop semja texta
sinn á staðnum.
Önnur lög sem
standa upp úr á
plötunni eru „Mars-
hall Mathers", ró-
lyndiskassagítar-
ballaða að hætti
hússins, og „Crim-
inal“ þar sem hann
gerir enn eina ferð-
ina út á það hversu
„flippaður" hann nú
er. Tvö önnur lög
sem vert er að
minnast á eru
„Stan“ og „Kim“.
Textann við „Stan“
semur hann út frá
sjónarhorni aðdá-
enda Slim en ég
veit ekki hvort um
alvöru lífsreynslu
sé að ræða því hann
er ansi myrkur og
„brútal". Enn
myrkari er þó text-
inn við „Kim“, en
Kim þessi er barns-
móðir og eiginkona
MM. Ef ég væri
hún væri ég farin að efast alvarlega
um geðheilsu eiginmannsins því lag-
ið er um það hvernig hann myrðir
hana og fyn-verandi kærasta fyrir
framan dóttur þeirra. Það er ansi
óþægilegt að hlusta á lagið og erfitt
að heyra hvort um góðlátlegt grín sé
að ræða. Ekki beint „skemmtileg“
lög en áhugaverð þrátt fyrir það.
Restin er svo frekar auðgleyman-
leg - því miður. MM ætti að gefa sér
lengri tíma í að gera næstu plötu,
fínpússa takta og texta, og láta Dre
ráða ferðinni að mestu leyti því þá
er útkoman nánast alltaf góð. Eins
og áður sagði er platan æði misjöfn
og hægt er að telja bestu lögin
næstum því á helmingi fingra ann-
arrar handar. Þeir sem dýrka
manninn eiga eftir að elska þessa
plötu en hinir sem sækjast eftir að-
eins meiri heild eiga eftir að verða
fyrir vonbrigðum.