Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Landverðir lögðu sig í lífshættu við björgunarstörf í Jökulsá á Fjöllum Eiga hvort öðru lífíð að launa Landverðirnir Kárí Kristjánsson og Elísa- bet S. Kristjánsdóttir komust í hann krapp- an með austurríska ferðafólkinu sem beið björgunar á þaki rútunnar sem festist í Jök- ulsá á Fjöllum í fyrradag og sýndu þeim ómældan stuðning. „ÉG VAR orðinn kaldur og um það bil að sigla minn sjó,“ segir Kári Kristjánsson, en hann og Elísabet S. Kristjánsdóttir reyndu að koma ferðafólkinu til bjargar á litlum gúmmíbát sem Kári var með í bíl sín- um. Kári og Elísabet voru á fundi með öðrum landvörðum þegar óhappið varð og fóru þau strax á slysstað eftir að hafa verið gert við- vart af hjólreiðamönnum sem voru á ferð á svæðinu. „Við sáum stax að ástandið var mjög alvarlegt," segir Kári. „Bílar sem lenda í staumhörð- um jökulám verða sjaldnast kyrrir Iengi, það grefur skjótt undan þeim og frá þeim, og þess vegna ákváðum við Elísabet að reyna að ná til fólks- ins á gúmmíbátnum, sigla niður eftir ánni að rútunni og koma þannig boð- um til fólksins. Við töldum að verið gæti að fólk héngi utan á rútunni og vildum koma þeim í bátinn ef svo væri ástatt," segir hann og bætir við: „Við sigldum niður álana og kom- umst að rútunni. Straumurinn var mjög mikill og hann sogaði bátinn undan okkur, hrifsaði hann framfyrir homið á rútunni. í þann mund komst Elísabet upp á þak rútunnar með kaðal sem við tókum með í bátinn. Ég náði taki á sólskyggni sem stóð út af rútunni, en komst ekki upp. Elísabet sýndi þá mikið snarræði og henti til mín kaðlinum," segir Kári sem barð- ist í tíu mínútur við að komast upp á þakið, kaldur, blautur og þreyttur. „Ég náði svo kaðlinum utan um mig og Elísabetu, af miklu harðfylgi, dró mig upp úr fljótinu með hjálp ferða- mannanna og bjargaði lífi mínu,“ segir Kári, en hann var að vonum uppgefinn eftir stríðið við Jöklu. Spennufall þegar Kári var hólpinn Elísabet segir það hafa verið ólýs- anlega tilfinningu þegar Kári var hliðina á mér spurði mig hvort mér þætti hann ekki duglegur, þar sem hann sat fremst á rútunni, blautur upp að hnjám, og kunni ekki að synda,“ segir Elísabet, en hún talar þýsku og kom það sér vel. „Við sungum „Bræðralagssönginn" saman á þýsku og Kári tók undir á íslensku. Það var mjög falleg stund.“ Elísabet S. Kristjánsdóttir Kári Kristjánsson landvörður kominn upp á þakið. Þau tóku strax til við að hughreysta fólkið og létu það vita að búið væri að kalla á hjálp. Róaðist fólkið við það. „Við vorum þó aldrei viss um hvenær hjálp myndi berast," sagði Elísabet," en reyndum bara að vera jákvæð og létta lund ferðfólksins. Þegar Kári var kominn upp á þakið leit þetta allt betur út, en ég á honum alveg eins líf mitt að launa. Hann sagði mér að fara fyrst upp á þakið og ýtti undir mig svo að ég kæmist upp,“ segir Elísabet. Að hennar sögn varð ákveðið spennufall eftir að Kári var hólpinn og eftir það var hópurinn vonbetri. „Fólkið stóð sig vel og mér er það sérstaklega minnistætt þegar maður sem sat við Feðgar 1 hópi ferðamanna sem lentu í Jökulsá á Fjöllum Biðin löng á þaki rút- unnar FEÐGARNIR AIois og Leonhard Vutkis voru meðal þeirra ferða- manna sem lentu í slysinu við Jökulsá á fjöllum. Þeir segja að í dag sé þeim efst í huga þakklæti til allra sem stóðu að björguninni og fólkinu sem tók á móti þeim á Húsavík. Þeir segja að biðin uppi á þaki rútunnar þar til að björgunarlið kom vettvang hafi verið löng og á stundum hafi þeir orðið vonlitlir. Gerðist hratt Alois segir að fólk í ferðinni sé allt mikið áhugafólk um ljós- myndun og ætlunin hafi verið að ferðast, vítt og breitt um landið á þremur vikum. „Þegar við kom- um að veginum f Herðubreiðar- lindir sagði leiðsögumaðurinn okkur að vatn hefði flætt yfir veginn þar upp frá og hættulegt gæti reynst að fara þar yfir. Hann sagði hins vegar að bflstjóri okkar væri afar reyndur og kæmi okkur klakkalaust yfir ef á reyndi,“ sagði AIois. Hann segir að eftir að ákvörð- un hafi verið tekin um að leggja yfir ána hafi hlutirair gerst mjög hratt. „Rútuna rak niður ána og nokkrum mínútum síðar vorum við öll komin upp á þak rútunnar. Þar biðum við í um þrjár klukku- stundir og þær voru mjög lang- ar,“ sagði Alois. Morgunblaðið/Rúnar Pór Feðgarnir Leonhard Vukits og Alois Vukits á Húsavík, ánægðir með að vera hólpnir eftir rútuslysið í Jökulsá á Fjöllum. Leonhard segist hafa verið orðinn skelkaður þegar hann klifraði upp á þak rútunnar. „Vatnið var kalt og áin straum- þung. Það virtist ótrúlega langt yfir á bakkann og mér fannst bið- in löng. Oft var ég kominn á fremsta hlunn með að missa von- ina, en sem betur fer fór allt vel.“ Þaulskipað björgunarlið Alois starfar sem læknir í Vín- arborg og segist oft hafa unnið með björgunarsveitum. „Ég hef reyndar ekki starfað við björgun úr vatni en vegna reynslu minnar get ég samt sem áður fullyrt að mjög vel var staðið að björgun- inni. Allt var greinilega þaul- skipulagt og allar aðgerðir fum- lausar," sagði Alois. Hann sagði móttökurnar sem þau fengu hjá hjálparsveitunum, læknum, hjúkrunarfólki og íbú- um Húsavíkur vera ólýsanlegar. „Þegar við komum í land fengum við heita súpu, brauð og te. A Húsavík var tekið á móti okkur með þurrum fötum, en fötin sem við vorum í voru þvegin og þurrkuð fyrir okkur. Ég á vart orð yfir þessari hjartahlýju og vil koma á framfæri þakklæti til allra sem hjálpuðu okkur,“ sagði Alois. Ferðamennirnir héldu fund með fararstjóra sínum, Roland Dunzendorfer, í gærmorgun og eftir þann fund ákváðu flestir þeirra að halda ferð sinni áfram um ísland. Tveir farþegar halda hins vegar heim á leið, 84 ára gömul kona og Leonhard. Hann segist hafa orðið fyrir töluverðu áfalli og finnst réttast að Ijúka ekki ferðinni. „Ég er vanur að ferðast en þegar maður lendir f svona að- stæðum verður maður mjög skelkaður og það dregur úr manni kjarkinn. Mig langar a.m.k. ekki að koma nálægt vatnsfijótum næsta árið,“ sagði Leonhard. Stórkostleg stund Bæði Kári og Elísa- bet segja það mikla gleðistund þegar björgunarsveitarmenn bar að garði og eftir það tókst fljótlega að koma fólkinu í land. „Við viijum þakka öll- um sem stóðu að björgunaraðgerð- um fyrir vel unnið starf, en allir sem komu að eiga hrós skilið,“ segja þau bæði, en nokkrir af ferðalöngunum féllu saman og grétu þegar þeir sáu til björgunarsveitarmannanna. „Þetta var stórkostleg stund,“ segir Kári að lokum, en bæði vilja þau koma á framfæri þökkum til björg- unarsveitarmanna, lögreglunnar á Húsavík, Landhelgisgæslunnar, Neyðarlínunnar og starfsfólks sjúkrahússins á Húsavík sem veitti fólkinu áfallahjálp. Ákvörðun um að fara í ána virðist hafa verið sameiginleg LÖGREGLAN á Húsavík yfir- heyrði í gær bílstjóra rútunnar, sem hafnaði í Jökulsá á Fjöllum, leið- sögumanninn, sem var með í för og hópstjóra á vegum hinnar erlendu ferðaskrifstofu sem austurrísku ferðamennirnir keyptu ferðina í gegnum. Að sögn lögreglunnar á Húsavík virðist ákvörðunin um að leggja í ána hafa verið sameiginleg. Hjá lögreglunni fengust þær upp- lýsingar að rannsóknin snerist um að fara ofan í það sem gerðist á mið- vikudag frá því lagt var af stað um morguninn þar til ökuferðinni lauk í Jökulsá. Spuming væri hvernig ákvarðanir voru teknar, meðal ann- ars að fara veg sem auglýstur var lokaður. Svo virtist sem þetta hefði gerst þar sem fjallvegur 88 kæmi niður af svokölluðu Lindaárhrauni, talsvert áður en komið væri að vað- inu yfir Lindaá. Jökulsá rynni þarna meðfram veginum og hefði étið sig inn í hann. Að sögn lögreglu virðist ákvörð- unin um að fara út í ána hafa að ein- hverju leyti verið tekin í sameiningu af bílstjóra og þeim skipuleggj- endum sem voru með í för. Sagði leiðsögumaðurinn í skýrslu- töku að fengin hefði verið staðfest- ing á því að vegurinn væri lokaður en væntanlega hefðu þeir talið að þeir væru á það öflugum bíl að í það minnsta yrði hægt að aka að vaðinu og taka myndir ef veður leyfði og snúa síðan aftur til baka ef aðstæður væru þannig. En allan tímann hefði að því er virtist verið gert ráð fyrir að svo gæti farið að snúa þyrfti við. Alvarlegt mál að hunsa merking- ar um lokanir FJALLVEGI 88 frá hringveginum að Herðubreiðarlindum, þar sem rúta festist á miðvikudag og 14 manns voru hætt komnir, vai' lokað fyrir allri umferð bíla á þriðjudag og sagði Hjörleifur Ólafsson, deildar- stjóri í þjónustudeild Vegagerðar- innar, í gær að það væri alvarlegt mál að hunsa merkingar um lokanir vega. Skilti um að vegurinn væri lokaður var sett upp á þriðjudag, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. „Úm helgina var farið að verða þarna ansi mikið vatn og þegar vega- gerðarmenn skoðuðu þetta nánar leist þeim þannig á ástandið á þriðju- dag að það væri ekkert vit í að fara veginn og ákváðu að loka honum,“ sagði Hjörleifur. „Það var gert með skiltum báðum megin, bæði við þjóð- veg númmer 1 hjá Hrossaborgum og eins þar sem leiðin liggur til norðurs frá Öskjuveginum. Þessu var komið til fjölmiðla og í útvarpsfréttir í há- deginu á þriðjudag.“ Hann sagði að þar hefði verið talað um alla umferð. í frétt Morgunblaðs- ins í gær kom fram að bílstjórinn, sem ók rútunni, hefði verið nýlega á ferð á þessum slóðum og vegurinn þá verið fær þrátt fyrir lokunarskiltið. Hjörleifúr sagði að vatnavextir hefðu verið í ánni í sumar og þá hefði vegin- um verið lokað nokkuð oft í sumar, einn til þrjá daga í senn. Hann sagði að ástæðan fyrir því að veginum var lokað hefði verið ástand vegarins á þeim kafla við Lindaána, sem slysið varð á. „Lindaá, sem er mjög sakleysisleg og rennur um Herðubreiðarlindir, rennur út í Jökulsá aðeins fyrir neð- an Herðubreiðarlindir," sagði hann. „Þar er mjög gott vað og lítill straumur. En það eru svo miklir vatnavextir í Jökulsá að hún hefur verið að flæða inn í Lindaána. í þessu tilfelli gerist það hins vegar að bíllinn lendir út af veginum þar sem Jökulsá hafði brotið inn í kantinn áður en hann kemst raunverulega að vaðinu á Lindaá. Þar er vegurinn undir vatni og hættan hefur ekki sést.“ Hjörleifur kvaðst ekki þora að full- yrða hvort algengt væri að vegir væru farnir þótt þeir væru lokaðir. „Eitt er að Vegagerðin í samráði við Náttúniverndarráð lokar öllu há- lendinu á vorin,“ sagði hann. „Að mestu leyti virðir fólk þessar lokanir, sem gripið er til í því skyni að koma í veg fyrir skemmdir. En menn brjóta þetta eitthvað og ég tel að það sé al- varlegt mál þegar menn fara fram hjá skilti, sem stendur á lokað. Þetta er bara umferðarskilti." Hjörleifur sagði að hringt hefði verið úr rútunni í upplýsingaþjón- ustu Vegagerðarinnar þegar komið var að þjóðvegi 88 og fengin staðfest- ing á því að hann væri lokaður. Að sögn Hjörleifs er eftirlit með hálendisvegum í lágmarki. Treyst væri á að þeir, sem ættu leið um, létu vita væri eitthvað á seyði. Þá færi Vegagerðin á vettvang til að athuga málið. Vegir væru ekki vaktaðir þótt þeim hefði verið lokað. „Við verðum bara að treysta því að menn fari eftir merkjum og fari sér ekki að voða,“ sagði hann. „Þetta gildir eins og með merkingar á vinnusvæðum. Við erum alltaf að reyna að brýna fyrir fólki að fara eft- ir merkjum um ökuhraða og annað. Við skulum segja að 90% manna fari eftir því.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.