Morgunblaðið - 18.08.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 63
• •
Djass- og blúshátíð á Selfossi
Hljómsveit
Geirmundar
Valtýssonar
í kvöld og
menningarnóttina annað kvöld
Veitingahúsió
Naustið
MYNDBOND
Grábjörn-
inn góði
Grábjarnarfoss
(Grizzly Falls)
Sumar-
smellurinn
Samanbrjótanleg.
Fyrir börn og fullorðna
Stillanleg hæð á stýri.
Mjúk hjól, góðar legur.
rerslursin W
/mmdÐ
Armúla 40» Sími: 553 5320
Æ v i n týr a my n tl
★ ★‘/2
Leikstjóri: Steward Raffill. Hand-
rit: Richard Beattie. Aðalhlutverk:
Bryan Brown, Daniel Clark og
Richard Harris. (94 mín.) Banda-
ríkin 1999. Bönnuð innan 12 ára.
GÓÐAR bama- og fjölskyldum-
yndir eru alltof fátíðar og því ætíð
kærkomnar. Þegar á allt er litið flokk-
ast Grábjamarfoss
sem slík. Hún segir
hjartnæma sögu af
sambandi milli
ungs drengs og
grábjarnar í heill-
andi en í senn
hættulegum
óbyggðunum.
Drengurinn leggur
í svaðilför með föð-
ur sínum ævintýra-
manninum í því skyni að fanga hinn
ógnarlega og umtalaða grábjöm.
Þegar húnai- grábjarnarins era teknir
frá honum svarar hann í sömu mynt
og nemur drenginn á brott með sér.
Drengurinn er hugi'akkur mjög og
hræðist björninn ekki. Hægt og bít-
andi verður samband drengs og
bjamar nánara og saman lenda þeir í
ýmsum hremmingum á meðan faðir-
inn leitar sonar síns logandi ljósi.
Þetta er hugljúf og spennandi æv-
intýramynd fyiir alla fjölskylduna
með hollum og heilbrigðum boðskap
og fallegum myndbrotum af dýram
og náttúra. Þ\d er illskiljanlegt að
myndin skuli bönnuð bömum - í það
minnsta væri hægt væri að halda
mörgu vitlausara og óhollara að börn-
unum en þessu saklausa náttúraævin-
týri.
Skarphéðinn Guðmundsson
Góðir gestir
víða að
Morgunblaðið/Kristinn
KK mætir á Selfoss með Magn-
úsi, Ellen og nýju blúsbandi: KK
kvintettnum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristjana Stefánsddttir mætir
með kvartettinn sinn skipaðan
heimamönnum.
ÞAÐ ætti ekki að væsa um tónelska
Selfyssinga um helgina þegar hin ár-
lega djass- og blúshátíð verður haldin
í fimmta sinn á Hótel Selfossi. Hátíð-
in er haldin að framkvæði Hóps
áhugamanna um djass- og blústónlist
og nýtur hún sívaxandi vinsælda.
Ólíkt og verið hefur á undanförn-
um árum verður föstudagskvöldið
helgað djassinum og verða þá heima-
menn í meiri hluta flytjenda. Kvar-
tett Kristjönu Stefánsdóttur skipað-
ur söngkonunni sjálfri, Gunnari
Jónssyni trommuleikara, Smára Kri-
stjánssyni bassaleikara og Vigni Þór
Stefánssyni píanóleikara, flytja þægi-
legan og aðgengilegan djass og sækja
þá í þekktar djassperlur. Söngkon-
urnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og
Helena Káradóttir munu taka undir
með Kristjönu og strákunum og taka
nokkra vel valda Andrews slagara.
Guðlaug Dröfn verður einnig með
eigin söngdagskrá og munu hinir er-
lendu gestir kvöldsins, Zenker-
Kappe 4tet leika undir með henni.
Kvartettinn leikur síðan dagskrá
með framsamdri djasstónlist. Þjóð-
verjamir Florian Zenker og Christ-
ian Kappe leiða bandið, og með þeim
leika hollenski trommuleikarinn
Eddy Lammerding og Gunnlaugur
Guðmundsson bassaleikari.
Á laugardagskvöldinu tekur síðan
blúsinn völdin og verður þá KK í að-
alhlutverki. Fyrst kemur hann fram
ásamt félaga sínum Magnúsi Eiríks-
syni og söngkonunni Ellen Kristjáns-
dóttur. Þau flytja eigin tónsmíðar ás-
amt blúsuðum melódíum héðan og
þaðan.
Hið nýstofnaða blúsband, KK
kvintettinn, er skipað Jóni Ólafssyni
hammond-leikara, Guðmundi Pét-
urssyni gítarleikara, Haraldi Þor-
steinssyni á bassa, Ásgeiri Óskar-
ssyni á trommur og auðvitað KK
sjálfum sem mundar munnhörpuna
og syngui-. Þessir landsþekktu og
ástsælu tónlistarmenn ætla að leika
og syngja hreinræktaðan blús af
sinni alkunnu snilld, og ætti stemmn-
ingin ekki að svíkja gesti Hótel Sel-
foss þessa helgina.
Morgunblaðið/Golli
Gunnlaugur Guðmundsson kontrabassaleikari leikur ásamt hinum
þýsk-hollenska Zenker-Kappe 4tet.
Nœturgalinn
simi 587 6080
I kvöld stórsöngvarinn Ari Jónsson
ásamt Úlfari Sigmarssyni.
Frítt inn til kl. 23.30.
& mbl.is
_ALLTAf= eiTTH\SA£> NÝTT