Morgunblaðið - 18.08.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUD AGUR 18. ÁGÚST 2000 31
_________________LISTIR
Osköp hjartnæmt
VsM-2000
Föstudagur 18. ágúst
KVIKMYNDIR
L a u g a r á s b í ó
RETURN TO ME ★★
Leikstjóri: Bonnie Hunt. Handrit:
Hunt og Don Lake. Aðalhlutverk:
Minnic Driver, Davis Duchovny,
Carroll O’ Connor, Robert Loggia,
Bonnie Hunt og James Belushi.
MGM 2000.
í ÞESSARI rómantísku gaman-
mynd segir frá Bob, sem er yfir sig
ástfanginn af eiginkonu sinni sem
lætur lífið í slysi. Ári seinna kynnist
hann ungri stúlku, Grace, sem er
hjartaþegi og af einskærri tilviljun
ber nú hjarta eiginkonunnar heitinn-
ar í brjósti sér.
Þessi mynd er svo sannarlega ekk-
ert meistaraverk, þótt ýmislegt sé
ágætt í henni. Bæði finnst mér til-
hugsunin um það að með líffæra-
flutningum verður eins dauði annars
brauð mjög áhugaverð, og svo er
hugmyndin að sama hjartað heilli
sama manninn tvisvar afai- róman-
Sónötur
Beethovens á
Skriðuklaustri
SIGURÐUR Halldórsson og Daníel
Þorsteinsson leika tvær af sónötum
Beethovens fyrir selló og píanó á
Skriðuklaustri í Fljótsdal á sunnu-
daginn, kl. 17.30. Það er Gunnars-
stofnun sem stendur fyrir tónleik-
unum sem gefa forsmekkinn af
fyrirhuguðu tónleikahaldi Sigurðar
og Daníels þar sem þeir munu leika
sónötur Beethovens fyrir selló og
píanó í heild sinni. Á Skriðuklaustri
munu þeir leika sónötu í A-dúr opus
69 og sónötu í D-dúr opus 102 nr. 2.
Aðgangseyrir er kr. 500. Veiting-
astofan Klausturkaffi verður opin í
tengslum við tónleikana.
tísk og falleg. Þetta tvennt gefur
þessari sögu sterkan örlagabrag.
En það er lítið sem ekkert unnið
með það í þessari mynd, því hún er of
saklaus, einföld, bandarísk, átaka-
laus, tilviljanakennd, venjuleg og of-
ur væmin til að geta sinnt einhverj-
um siðferðisátökum eða umvafið
efnið suður-amerískum töfraraunsæi
sem þessi hjartasaga býður upp á.
Handritið eru ekki nógu hnitmið-
að, framan af eru engin átök, þar
með engin spenna, og þá gerist ekk-
ert í rauninni. Eg held að átökin eigi
að vera innra með Grace út af örinu
sem hún hefur eftir uppskurðinn, en
það virkar bara sem pjatt í stelpunni.
Myndin verður því heldur til langd-
regin, hana mætti þétta alla og til að
mynda klippa út helminginn af atrið-
unum með gömlu körlunum sem eru
hvorki skemmtileg né gera nokkurt
gagn.
Leikaramir Driver og Duchovny
eru furðulegt par og ekki mikið að
gerast á milli þeirra. Eg hafði það á
tilfinningunni allan tímann að Driver
fyndist hún of góð fyrir þetta sak-
lausa stelpuhlutverk. Mér fannst
James Belushi eiginlega bestur, og
finnst að hún hefði frekar átt að ná
sér í hann.
Þetta er sem sagt ofur venjuleg og
saklaus bandarísk ástarmynd, og í
rauninni ósköp mikill leikmanna- og
sjónvarpsbragur yfir henni. Hún
ætti þó að duga fyrir harðkjama of-
urrómantíkera.
Hildur Loftsdóttir
----------------
*
Tríó Oskars
Guðjónssonar
á Jómfrúnni
TÓLFTU sumartónleikar veitinga-
hússins Jómfrúrinnar við Lækjar-
götu fara fram laugardaginn 19. júlí,
kl. 16-18. Að þessu sinni kemur fram
tríó saxófónleikarans Óskars Guð-
jónssonar. Með Óskari leika Eðvarð
Lárusson á gítar og Matthías Hem-
stock á trommur. Tónleikarnir fara
fram utandyra á Jómfrúrtorginu ef
veður leyfir, en annars inni á Jóm-
frúnni. Aðgangur er ókeypis.
MIÐBAKKI REYKJAVÍKURHAFNAR
KL. 16-24
Eldur í afli
Sem hluti af hátíð eldsins verða
eldsmiðir að störfum á miöbakka
Reykjavíkurhafnar dagana 18.-19.
ágúst. Eldsmíðin er ein elsta iðn-
greinin og hún hefur séð öðrum
greinum fyrir verkfærum auk verk-
færa fyrir landbúnað og hernað. En
þrátt fyrir miklar framfarir á öllum
sviðum síðustu þrjár aldir hefur
eldsmíðin lítiö breyst frá upphafi
járnaldar fyrir 2500 árum, enn eru
sömu verkfæri undirstaða smiðs-
ins, þ.e. hamar, steðji, físibelgur,
kol og afl.
REYKJAVÍKURHÖFN KL. 14-24
Logandi list
Á afmælisdegi borgarinnar stendur
Leirlistarfélagiö fyrir sýningu á
brennslu listmuna við Reykjavíkur-
höfn, en viðburðurinn er hluti af há-
tíð eldsins.
www.reykjavik2000.is - wap.olis.is.
LAUGARDALSHOLL KL. 17 OG 21
Baldur
Tónlistin er eftir Jón Leifs en einn
fremsti danshöfundur Evrópu, Finn-
inn Jorma Uotinen sér um svið-
setningu og hefur stillt saman
strengi íslenska dansflokksins og
Finnska þjóöarballettsins. Sinfón-
íuhljómsveit íslands leikur undir
stjórn Leif Segerstam og Schola
Cantorum syngur undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar. Einsöngvari er
Loftur Erlingsson.
PERLAN KL. 15
Vatnspósturinn: Vatnsstrókur
Stjórn Vatnsveitu Reykjavíkur efndi
til hugmyndasamkeppni um gerð
vatnspósta í Reykjavík í tilefni af
90 ára afmæli Vatnsveitu Reykja-
víkur 1999. Alls bárust í sam-
keppnina 138 tillögur. Úr þessum
hópi valdi dómnefndin 4 tillögur til
Eldsmiður hamrar járnið.
frekari útfærslu. Þremur af þeim
hefur nú þegar verið komið upp, en
síðasta tillagan Vatnsstrókurinn
eftir Önnu Lísu Sigmarsdóttur og
Matthew Rohrbach verður sett upp
á afmælisdegi borgarinnar.
LISTASAFN REYKJVÍKUR - HAFNAR-
HÚS
KL. 15
Vígsla Grófarhússins
Formleg opnun Grófarhússins við
Tryggvagötu 15, sem hýsir aðal-
safn Borgarbókasafnsins, Borgar-
skjalasafn og Ljósmyndasafn
Reykjavíkur verður á afmælisdegi
Reykjavíkur. Við sama tækifæri
verða bókmenntaverölaun Tómasar
Guömundssonar árið 2000 afhent
og starfslaun til listamanna og
tónlistarhóps úthlutað. Athöfnin fer
fram í fjölnotasal Listasafns
Reykjavíkur - Hafnarhúsi en að
henni lokinni verður gengið yfir í
hin nýju heimkynni.
www.reykjavik2000.is - wap.olis.is.
Sigurður Halldórsson og Daníel Þorsteinsson.
Vestfirskir sveiflukapp-
ar og sígaunadjass
TðNLIST
Geislaplötur
DJASS
Villi Valli og félagar
Villi Valli tenórsaxófón, harmon-
ikku og píanó, Eyþór Gunnarsson
pianó, harmónikku, kongótromm-
ur, tambúrínu og marimba, Ámi
Scheving víbrafón, Edvard Lárus-
son gítar og mandólín, Þórður
Högnason bassa, Birgir Baldursson
og Einar Valur Scheving trommur,
Veigar Margeirsson trompet, Her-
dís Jónsdóttir víólu, Egill Ólafsson
og Ylfa Mist Helgadóttir söngur.
Hljóðritað í Reykjavík og gefið út
afVVV 2000.
ÉG man fyrst eftir Villa Valla
ungur drengur í Bolungarvík. Sax-
inn hans var gullinn og hljómsveitin
í glæsilegum búningum, en því mið-
ur var ég of ungur til að fara á ballið
og heyra tónlistina. Skömmu síðar
fluttist ég suður en allar götur síðan
vissi ég af Villa Valla - djasskóngin-
um á Vestfjörðum.
Ég held ég hafi fyrst heyrt Villa
Valla leika á Norrænum útvarps-
djassdögum í Reykjavík árið 1990.
Þá stóð Guðmundur heitinn Ingólfs-
son fyrir miklu píanókvöldi í Duus-
húsi og var leikið á Steinway flygil
Heita pottsins og Roland rafpíanó.
Ymsir komu og léku með Guðmundi
en einn var tregur í taumi. Hann var
bara að hlusta. Guðmundur gaf sig
þó ekki og að lokum lét Villi Valli
undan og lék Lady Be Good með
Ingólfssyni. Seinna heyrði ég hann
leika á tenórsaxófón, nikku og píanó
í Bolungarvík með félögum sínum,
ma. Ólafi Kristjánssyni, píanista og
bæjarstjóra.
Loksins er kominn út hljómdiskur
með Vila Valla, gefinn út í tilefni
sjötugsafmælis hans, og geymir
hann þrettán lög eftir Villa, þar af
eitt í tveimur útgáfum. Rúmur
helmingur er af djassættinni, hitt
glansfín dansmúsík. Villi Valli var
alltaf fyrst og fremst djassleikari í
hjarta sínu, en hann lék fyrir dansi
alla tíð með hljómsveit sinni og það
þýddi ekkert að bjóða upp á djass-
inn nema í bland.
Með Villa Valla leika á þessum
diski margir af betri djassleikurum
okkar og í fyrsta laginu, 3. des, blæs
Veigar Margeirsson trompetsóló og
Árni Scheving slær víbrafónsóló.
Sjálfur blæs Villi í tenórsaxafóninn á
sinn persónulega hátt, en heyra má
að hann snertir saxófóninn ekki
löngum,enda fá tækifæri að djassa
vestra og haldið á nikku þá leikið er
fyrir dansi. 3. des er ekta Vestur-
strandarópus með Mulligönsku
ívafi. Villi blæs í saxinn í tveimur
öðrum lögum: Septembersömbu,
bossa nova a la Getz og Tilraun, sem
er sveifluópus. Þar eru Árni og Ein-
ar Valur Scheving einnnig einleikar-
ar og Þórður Högnason eflir sveifl-
una að vanda.
Villi Valli er glettilega góður
harmonikkuleikari og tekst einstak-
lega vel að ná ljúfsárum ballöðutóni
einsog í lokalaginu, dúói með Ed-
vardi Lárussyni: Þegar fuglarnir
eru sofnaðir. Það er létt djasssveifla
í 9. febrúar og Við uppvaskið og
rýþmablúsinn stingur upp kollinum
í Sveitaballi. Önnur nikkulög eru öll
í heimi dansins og ættu þeir sem
hafa gaman af fyrsta flokks dans-
tónlist að lifna við að heyra þau.
Villi Valli hefur leikið mikið á
píanó undh' borðum hin síðari ár og
á disknum er eitt píanólag: Sendl-
ingarnir. Er það í barrokstíl, en
minnir þó í mörgu meira á Jan
Johansson en Jacques Louisser.
Þesi diskur gefur góða mynd af
djassskotinni danstónlist liðinna
ára, lögin og hljóðfæraleikur allur á
hinum Ijúfu nótum og upptökustjór-
inn, Eyþór Gunnarsson, heldur utan
um tónlistina af alþekktri smekkvísi.
Tríó Ólafs
Kristjánssonar
Ólafur Kristjánsson píanó, Bjarni
Sveinbjörnsson bassa og Pétur
Grétarsson trommur. Edda Borg
syngur tvö lög. Tekið upp í
Bolungarvík 1999.
Útgefið af Cordana árið 2000.
Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík, er slyngur djasspían-
isti og lék um árabil með hljómsveit
Villa Valla. Hann hefur nú sent frá
sér disk þar sem hann leikur gamla
og góða standarda, þjóðlagið vin-
sæla frá Álandseyjum, Hvem kan
segla forutan vind, svo og Misty eft-
ir Erroll Garner og Hymn To
Freedom eftir Oscar Peterson, en
áhrifa þessara píanista gætir mjög í
leik Ólafs auk blokkhljómameistar-
ans George Shearings.
Dóttir Ólafs, Edda Borg, syngur á
disknum Cheek To Cheek og It’s
Only a Paper Moon af góðum þokka
og hrynsveitin, Bjarni Sveinbjörns-
son bassaleikari og Pétur Grétars-
son trommari, halda sveiflunni
gangandi.
Það má að sjálfsögðu heyra að Ól-
afur Kristjánsson er ekki lengur at-
vinnuhljómlistamaður og á stundum
er hann dálítið hikandi í píanóleik
sínum, en þegar honum tekst best
upp sýður á keipum.
Tvö lög þykja mér bera af hjá Ól-
afi og bæði eru þau af ballöðuætt-
inni: Don’t Blame Me eftir Jimmy
McHuge og I Fall In Lpve Too Eas-
ily eftir June Styne. Ólafur leikur
þau meðalhratt og kryddar með
Garnerisma, sér í lagi hið síðara.
Það fer vel á því. Garner nær aldrei
yfirhöndinni og hætt er við að ef Ól-
afur hefði leikið lögin hægt hefði
borðhaldspíanóið ríkt ofar sveifl-
unni, en hún er aðall Ólafs.
Kuran Swing
Kuran Swing: Szymon Kuran, Dan
Cassidy fiðlur, Björn Thoroddsen
og Ólafur Þórðarson gftara og
Bjarni Sveinbjörnsson bassa.
Hljóðritað í Reykjavík í mars 2000.
Útgefið af Kaupþingi.
Þetta er annar diskur hins vin-
sæla sígunasveiflubands Kuran
Swing. Sá fyrri kom út árið 1992 og
var þá bassaleikari Þórður Högna-
son og Magnús Einarsson lék á
mandólín.
Szymon leikur á fiðlu í flestum
laganna, en stundum hleypur Dan
Cassidy í skarðið. Þeir eru ólíkir
fiðlarar. Szymon með klassískari tón
og sterkari í rómantískum ballöðu-
leik en Dan með djassaðri tón og
sterkari sveiflu. Rýþminn er ekki
nógu sterkur hjá Kuran Swing og
þrátt fyrir stúdíótöfra hefði að
ósekju mátt bæta við sterkum hryn-
gítarista. Sólóar Bjöms bera af öðru
á disknum og þarf það ekki að koma
neinum á óvart.
Ég hefði kosið að Kuran Swing
diskurinn hefði verið tekinn upp á
klúbbi, því þar hef ég heyrt hljóm-
sveitina besta. Þegar góð stemmn-
ing er í salnum magnast þeir félagar
allir og Ólafur Þórðarson þríeflist.
Lögin eru flest gamlir kunningjar
- þó eru tvö lög eftir þá hvorn Björn
Thoroddsen og Ólaf Þórðarson. Aft-
ur á móti hafa orðið þau mistök á
plötuumslagi að Autum Leaves er
eignað Johnny Mercher, er gerði
enska textann við lagið, sem Frakk-
inn Josep Kosma samdi, og þar að
auki eru allar upplýsingar í skötulíki
ólíkt því sem er á diskum Vestfirð-
inganna.
Eins og á diski Ólafs Kristjáns-
sonar finnst mér tvö lög bera af á
Kuran Swing diskinum og bæði eru
þau í stjömumerki Bjöms Thorodd-
sens. Hið fyrra er slagarinn gamli
All Of Me, og þarf mikið til að ég
kveiki þegar hann er spilaður - svo
inngrónar em túlkanir Louis Arm-
strong frá 1932 og 1955 á söngdans-
inum í heilabúi mínu. En Bjöm
Thoroddsen er galdramaður þegar
hann er í ham og bæði túlkun laglínu
og spuninn brilljant. Eins er um lag
hans Tangó. Það er hvorki frumlegt
né merkilegt á annan máta en þann,
að maður gæti ímyndað sér að
Django hefði samið það og Hot Club
Of France hljóðritað - en svo er
ekki. Þetta er ekta Bjössi Thor. En
vel að merkja: Þarf drengurinn ekki
að fara að hljóðrita disk sem endur-
speglai' hæfileika hans að fullu. Kur-
an Swing og Guitar Islandico eru
ljúf fyrirbrigði og skemmtileg - en
Björn Thoroddsen á eftir að stökkva
- Jazz Guitar diskur hans var aðeins
gott tilhlaup.
Vernharður Linnet