Morgunblaðið - 18.08.2000, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Mun minni
hagnaður
hjá Marel
HAGNAÐUR Marels hf. og dóttur-
félaga eftir skatta var 98 miUjónir
króna eftir fyrstu sex mánuði ársins
2000 samanborið við 225 milljónir
fynr sama tímabil árið áður.
í tilkynningu frá Marel hf. segir að
afkoman á fyrri helmingi ársins 2000
sé óviðunandi. Rekstrartekjur móð-
urfélagsins hafi dregist saman og
rekstrarkostnaður verið hærri en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá segir að
rekstrarskilyrði á Islandi fyrir út-
flutningsfyrirtæki hafi verið erfið
fyrri hluta ársins 2000 vegna hás
gengis íslensku krónunnar og inn-
lendra kostnaðarhækkana. Hátt
raungengi krónunnar á tímabilinu
hafi leitt til skerðingar á rekstrar-
tekjum og lakari afkomu. Þá hafi
þessi skilyrði skekkt samkeppnis-
stöðu starfsemi á íslandi samanborið
við Evrópu. Þessi ytri skilyrði hafi
hins vegar almennt farið batnandi að
undanfbrnu. Þá segir í tilkynningu
frá Marel hf. að hagnaður samstæð-
unnar sé nokkru minni en áætlanir
hafi gert ráð. fyrir, en góð verkefna-
staða gefi væntingar um betri horfur
á seinni hluta ársins. Vörusala Mar-
els fyrri hluta ársins hafi þó gengið
vel og verið í samræmi við áætlanir.
Salan á öðrum ársfjórðungi hafi verið
mun betri en á þeim fyrsta og muni
það hafa jákvæð áhrif á rekstrartekj-
ur seinni hluta ársins.
Fram kemur í tilkynningu frá Mar-
el að sölumönnum hafi verið fjölgað
og að unnið sé að undirbúningi stofn-
unar sölufyrirtækis í Þýskalandi og
muni það verða hið sjöunda í Marel-
samstæðunni. Ráðgert sé að það fyr-
irtæki taki til starfa í október næst-
komandi. Mikil aukning varð í sölu á
framleiðsluvörum Marels hf. í kjúkl-
inga- og kjötiðnaði á fyrri hluta ársins
2000. Heildarsala félagsins til þess-
ara greina var 63% en til fiskiðnaðar
37%. Á síðasta ári voru þessi hlutföll
nokkum veginn jöfn. Um 91% af sölu
Marels var til markaða utan Islands.
Samkvæmt tilkynningu frá Marel
segir að ný skurðarvél fyrirtækisins,
sem byggist á þrívíðri tölvusjón og
kynnt hafi verið í byrjun þessa árs,
hafi fengið góðar móttökur. Sölu-
samningur hafi verið gerður um 20
skurðarvélar til tveggja kjötvinnslu-
fyrirtækja í Bandaríkjunum í júní
síðastliðnum, flestar af hinni nýju
gerð. Söluverð hinna nýju véla er um
300 milljónir króna.
Marel hefur keypt 50% hlut í
franska fyrirtækinu Arbor Technol-
ogies S.A. og tók samningurinn gildi í
lok júm' síðastliðnum og gætir því
áhrifa af rekstri fyrirtækisinsekki í
sex mánaða uppgjöri Marels. Áætlað
er að velta félagsins á þessu ári verði
um 270 milljónir króna.
I tilkynningu frá Marel segir að
rekstur danska fyrirtækisins Carni-
tech, sem Marel keypti á árinu 1997,
hafi gengið vel. Fyrirtækið flutti í
nýtt verksmiðju- og skrifstofuhús-
næði í lok júlí sl. Kostnaðarverð
nýbyggingarinnar var 600 milljónir
króna og verður kostnaður vegna
flutnings fyrirtækisins allur gjald-
færður á seinni hluta ársins.
Hörður Arnarson, forstjóri Marels
hf., segir að horfur í rekstri Marel-
samstæðunnar séu betri á síðari
hluta ársins 2000 en þær voru á fyrri
hlutanum, að því gefnu að rekstrar-
Marel hf.
Úr milliuppgjöri samstæðu 2000
Rekstrarreikningur jan. -júní 2000 1999 Breyling
Rekstrartekjur Milljónir króna 2.841 2.764 +3,0%
Rekstrargjöld 2.660 2.458 +8,0%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -19 17
Haqnaður (tap) fyrir skatta 162 323 -49.8%
Reiknaðir skattar -64 -99
Aðrar tekjur og (gjöld) - 1
Hagnaður tímabilsins 98 225 -56,4%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 30.06.99 Breyling
Eignir samtals Milljónir króna 3.749 3.000 +25,0%
Eigið fé 930 817 +13,8%
Skuldir 2.819 2.183 +29,1%
Skuldir og eigið fé samtals 3.749 3.000 +25,0%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Ávöxtun eigin fjár 23,6% 65,6%
Eiginfjárhlutfall 24,8% 27,2%
Veltufjárhlutfall 1,5 1,8
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 184 299 -38,5%
skilyrði verði svipuð og nú er, meðal
annars með tiUiti til gengismála.
Verkefnastaðan sé góð. Salan hafi
gengið samkvæmt áætlun þrátt fyrir
að hún komi meira til afhendingar á
seinni hluta ársins. „Við höfum meðal
annarra bent á það á undanfömum
mánuðum að rekstrarskilyrði út-
flutningsgreinanna hafa verið erfið.
Þótt þau hafi batnað aðeins vantar
þar enn töluvert upp á, sérstaklega
gagnvart evrunni, því ljóst er að veik
evra er erfið fyrir fyrirtæki sem eru í
samkeppni við fyrirtæki innan
Evrópusambandsins. Menn hafa þó
trú á að gengismálin muni halda
áfram að batna,“ segir Hörður.
Afkoman mjög mikil vonbrigði
Þórður Pálsson, deildarstjóri
greiningardeilar Kaupþings, segir að
afkoma Marels hf. sé mjög mikil von-
brigði. Samdráttur sé í tekjum móð-
urfélagsins og lítill vöxtur í tekjum
samstæðunnar. Það þýði að sá gróði
sem félaginu takist að ná fram sé
vegna sölu á skurðarvélum, en ekki á
Hagnaður Þormóðs ramma - Sæbergs dregst saman um 89%
Mjög léleg
afkoma
rækju-
vinnslu
ÞORMÓÐUR rammi-Sæberg hf. var
rekinn með rúmlega 20 milljóna
króna hagnaði fyrstu sex mánuði yfir-
standandi árs. Hagnaður sama tíma-
bils í fyrra nam tæplega 183 milljón-
um króna. Rekstrartekjur félagsins á
fyrri helmingi yfirstandandi árs
námu 2.277 milljónum króna og höfðu
aukist um 364 milljónir króna milli
ára. Munar þar mestu um samein-
ingu Þormóðs ramma-Sæbergs hf. og
Árness hf. í Þorlákshöfn.
Að sögn Ólafs Helga Marteinsson-
ar, framkvæmdastjóra Þormóðs
ramma-Sæbergs, er helsta skýringin
á auknum afskriftum kaup félagsins á
veiðiheimildum.
Bókfærðar veiðiheimildir 30. júní
sl. voru 1.650 milljónir króna saman-
borið við 719 milljónir á sama tíma í
fyrra. Áhrif hlutdeildarfélaga eru
neikvæð sem nemur 31 milljón e þar
er um að ræða Nautico og Pesquera
Siglo í Mexíkó og Genís hf.
Ólafur Helgi segir að aíkoman sé
mun lakari en áætlanir gerðu ráð fyr-
ir. Þar er einkum þrennt sem veldur:
mjög léleg afkoma rækjuveiða og
-vinnslu, hátt olíuverð og fjármagns;
gjöld umfram það sem áætláð var. „í
stórum dráttum eru flestar rekstrar-
einingar að skila því sem áætlanir
gerðu ráð fyrir, ef frá er talinn rekst-
ur rækjutogara og rækjuvinnslu.
Rækjuveiðar hafa gengið illa það sem
af er árinu og þótt aflabrögð hafi farið
skánandi þá er ekki við því að búast
að afkoma rækjutogara verði viðun-
andi á meðan olíuverð helst áfram
Þormóður rammi - Sæbe Úr milliuppgjöri 2000 JhJlfar fi rg hf.( ■J
Rekstrarreikningur jan. - júni 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Afskriftir Fjármagnstekjur (gjöld) 2.277 1.829 282 -115 1.912 1.489 179 -25 +19,1% +22,8% +57,6% +360%
Hagn. af reglul. starfs. fyrir skatta Reiknaður tekju- og eignarskattur 20 0 257 74 ■92,2%
Hagnaður tímabilsíns 20 183 -89,1%
Efnahagsreikningur 30.06’OO 30.06’99 Breytlng
Eignir samtals Milljónir króna 9.071 5.686 +59,5%
Eigið fé 2.924 2.665 +9,7%
Skuldir 6.148 3.021 +103,5%
Skuldir og eigið fé samtais 9.071 5.686 +59.5%
Sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 362 365 -0,8%
hátt. Verð rækjuafurða hefur farið
lækkandi allt árið en nú eru teikn um
að botninum hafi verið náð.“
Horfur eru á að afkoma seinni
hluta ársins verði betri en fyrstu sex
mánuðina. Að sögn Ólafs er það yfir-
leitt þannig hjá félaginu. „Við höfum
keypt mikið af veiðiheimildum á árinu
og hefur kvótastaða félagsins aldrei
verið sterkari. Því getum við beitt
okkar flota af eins miklum krafti og
mögulegt er. Eins er útlit fyrir að eft-
irspum eftir afurðum félagsins verði
góð.“ Almar Guðmundsson, forstöðu-
maður Greiningar og útgáfu FBA, að
það sé þóst að afkoma Þormóðs
ramma - Sæbergs er mun lakari en
Greiningar og útgáfa FBA reiknaði
með. „Forsendur okkar um fjár-
magnsliði standast en mismunur á
okkar spá og afkomunni felst í lakari
framlegð og lakari afkomu dótturfé-
laga. Framlegð félagsins var 19,6%
og er ljóst að slæm afkoma í rækju-
veiðum og - vinnslu hefur dregið
hana niður. Veltufé frá rekstri var
svipað og á sama tíma í fyrra en fjár-
binding í rekstrinum hefur aukist um
60% á sama tíma, m.a. vegna samein-
ingar Þormóðs ramma - Sæbergs við
Ámes og því mikilvægt að sjóðs-
streymi félagsins aukist í takt við það.
Búast má við að rekstur félagsins
verði betri á seinni hluta ársins, en
ljóst er að allt þarf að ganga upp til að
félagið nái að skila þeim 305 m.kr.
hagnaði sem áætlun félagsins gerir
ráð fyrir. Afkoma félagsins gerir það
að verkum að Greining og útgáfa
FBA mun lækka verðmat sitt á félag-
inu, en þrátt fyrir það teljum við að
Þormóður rammi - Sæberg sé einn af
betri fjárfestingarkostunum í sjávar-
útvegi í dag,“ segir Almar.
þeim hátæknilausnum sem hafi verið
aðall félagsins hingað til. „Hagnaður
fyrir afskriftir hjá móðurfélaginu er
lítill, um 48 milljónir, tekjur móðurfé-
lagsins dragast saman um 14% og
tekjur samstæðunnar aukast um
2,8%. Þetta er að miklu leyti óvænt
því eðlilegt hefði verið að félagið
sendi frá sér afkomuviðvörun þegar
staðan er þessi. Félagið hefur sent
frá sér fréttir á tímabilinu en þær
hafa ekki verið annað en jákvæðar,
eins og um stefnumarkandi sölu-
samning og um flæðilínu fyrir kjúkl-
inga. Þetta eru því töluverð von-
brigði," segir Þórður.
Jónas Gauti Friðþjófsson, við-
skiptastofu Landsbanka Islands,
segir að hagnaður Marels hf. upp á 98
milljónir króna sé talsvert undir
væntingum og að hann sé borinn uppi
af dótturfélögum þess, en afkoma
móðurfélagsins versni til muna milli
ára og að þar komi einkum þrennt til:
Rekstrartekjur móðurfélagsins
dragist saman um 14% enda ytri skil-
yrði erfið fyrir útflutningsfyrirtæki
þar sem krónan hafi verið sterk á
tímabilinu, en þó sé erfitt að meta út
frá frétt félagsins hver þróun rekstr-
artekna sé ef áhrifum gengisbreyt-
inga gjaldmiðla sé sleppt. Þá hækki
launaliðir úr 29% í 41% af rekstrar-
tekjum og fjármagnsliðir versni um
30 milljónir króna, en félagið hafi ver-
ið með umtalsverðan gengishagnað
svo og vaxtatekjur í fyrra en ekki nú.
Þá hækki vörubirgðir umtalsvert og
handbært fé frá rekstri samstæðunn-
ar sé því neikvætt um 227 milljónir,
sem sé 490 milljónum lakara en á
sama tímabili í fyrra.
„Þrátt fyrir að uppgjörið standist
ekki væntingar er Ijóst að félagið er
að þróast í rétta átt þar sem það eyk-
ur útrás á erlendum mörkuðum og
leggur áherslu á að breikka vöruúr-
valið, sem að öllu jöfnu ætti að draga
úr sveiflum í afkomu samstæðunnar.
Að teknu tilliti til þessa og að verk-
efnastaða félagsins er góð er of
snemmt að dæma félagið út frá þessu
milliuppgjöri en skoða frekar stöðuna
við aðaluppgjör næsta vor.“
Hagnaður Lyfjaverslunarinnar 32 milljónir
40% veltuaukn-
ingu spáð í ár
HAGNAÐUR af rekstri Lyfja-
verslunar íslands hf. nam 32 millj-
ónir króna fyrstu sex mánuði ár-
sins en var um 37 milljónir króna á
sama tímabili í fyrra. Rekstur fé-
lagsins gekk heldur betur en áætl-
anir félagsins gerðu ráð fyrir, en
neikvæð áhrif gengisbreytinga í
lok júní koma þar á móti.
Veltuaukning félagsins er 31%
miðað við sama tímabil árið áður,
en veltan var 1.070 milljónir hjá
samstæðunni á fyrri hluta ársins.
Áætlanir félagsins gera ráð fyrir
allt að 40% veltuaukningu á árinu.
Rekstrargjöld lyfjaverslunarinnar
nema rúmum 817 milljónum króna
sem er einnig 31% aukning frá
fyrra ári. Laun og launatengd
gjöld standa nánast í stað milli ára,
eru nú um 87 milljónir króna er
voru fyrir ári um 83 milljónir
króna. Fjármunatekjur félagsins
eru rúmar 13 milljónir samanborið
við tæplega fjögurra milljón króna
fjármunagjöld á fyrstu sex mánuð-
um síðasta árs, samkvæmt Morg-
unpunktum Kaupþings í gær.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi fyrir skatta eru nú rúmar 39
milljónir króna en í fyrra var hagn-
aður félagsins 13 milljónir króna. Á
sama tíma í fyrra var félagið með
28 milljónir króna í söluhagnað.
Lítil viðskipti með félagið
á Verðbréfaþingi íslands
I fréttatilkynningu frá lyfja-
versluninni kemur fram að jákvæð
þróun var á hlutabréfaeign félags-
ins á tímabilinu. Til að mynda
hækkaði gengi hlutabréfa Delta hf.
úr 16,5 í 21,5. Lyfjaverslun á 34,2
milljónir króna að nafnvirði í
Delta. Lyfjaverslun Islands hf. er
skráð félag á Verðbréfaþingi Is-
lands og eru hluthafar nú um 940.
Aðeins einn hluthafi á yfir 10%
hlut í félaginu. Lítil viðskipti hafa
verið með félagið það sem af er ári
eða fyrir rúmar 224 milljónir
króna. Fyrstu viðskipti ársins voru
á genginu 3,0 en síðustu viðskipti
voru á genginu 5,0. Hjá samstæð-
unni störfuðu að jafnaði 54 starfs-
mennn á fyrri hluta ársins.
Lyfjaverslun Úr milliuppgjöri 2000(^ íslan ‘^9 Sam ids hf. stæða
Rekstrarreikningur jan.-júni 2000 1999 Breyling
Rekstrartekjur Milljónir króna 1.070,1 817,1 +31%
Rekstrargjöld Afskriftir 1.031,1 -12,9 786,4 -14,1 +31% -9%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Tekiuskattur 13,5 -7.3 24,3 -4.0 +44% +83%
Hagnaður tímabilsins 32,2 37.0 -13%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 30.06.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 1.441,0 1.172,9 +23%
Eigið fé 551,7 502,0 +10%
Skuldir 889,3 670,9 +33%
Skuldir og eigið fé samtals 1.441,0 1.172,9 +23%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Arðsemi eigin fjár Veltufjárhlutfall 12,2% 1,5 13,2% 2,2
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 32,6 15,7 +108%