Morgunblaðið - 18.08.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 27
ERLENT
Lieberman
lofar ameríska
drauminn
AP
Varaforsetaefni demokrata, Joseph Lieberman, ávarpar landsþingið, er haldið var í Los Angeles.
Los Angeles. AP.
JOSEPH Lieberman, varaforseta-
efni bandaríska Demókrataflokksins,
sagði í ávarpi sínu á landsþingi
flokksins á miðvikudagskvöld, að ein-
ungis hann og forsetaefnið A1 Gore
gætu „veitt öllum aðgang" að
gnægtaborði efnahagsuppgangsins.
Hann vottaði ameríska draumnum
virðingu sína og sagði:
„Nú þegar ég stend hér frammi
fyrir ykkur og nýt þeirrar blessunar
að hafa fengið það tækifæri sem mér
hefur hlotnast, þá veit ég að við erum
orðin að þeim Bandaríkjum sem svo
marga af kynslóð foreldra okkar
dreymdi um að veita okkm-.“
Lieberman er fyrsti gyðingurinn sem
er í framboði fyrir annan stóru flokk-
anna í Bandaríkjunum.
Hann lofaði því að Gore og
Lieberman myndu láta alla njóta góð-
ærisins. „Við sem erum hér saman
komin í kvöld vitum, líkt og A1 Gore
hefur sagt, að það er ekki bara um-
fang þjóðarveislunnar sem skiptir
máli, nei, heldur er það sá fjöldi fólks
sem kemst að borðinu. Það verður að
vera pláss iyrir alla,“ sagði Lieber-
man.
Hann fór ennfremur mörgum orð-
um um 15 ára samband sitt við Gore
og lýsti forsetaefninu sem manni er
gæti „endumýjað siðferðisgrundvöll
þessarar þjóðar" í kjölfar umdeildra
atburða í varaforsetatíð Gores og for-
setatíð Bills Clintons, sem Lieber-
man hefur gagnrýnt. „Vegna hrein-
skilni sinnar, vegna styrks síns,
vegna heiðarleika síns og vegna pers-
ónu sinnar verður A1 Gore að verða
næsti forseti Bandaríkjanna.“
Um keppinautana, George W.
Bush og Dick Cheney, forseta- og
varaforsetaefni repúblíkana, sagði
Lieberman: „Þeir eru heiðarlegir og
viðkunnanlegir menn,“ en hann gagn-
rýndi stefnu þeirra í menntamálum,
heilbrigðismálum, velferðarmálum,
sjúkratiyggingamálum og skatta-
málum. „Málið er einfalt. Við demó-
kratar munum breiða út góðærið -
þeir munu eyða því.“ Þingfulltrúar
fögnuðu varaforsetaefninu gífurlega
og hrópuðu: ,Áfram Joe! Áfram Joe!“
Fulltrúi framboðs Bush brást þeg-
ar við orðum Liebermans. „Því leng-
ur sem Joe Liberman er með A1 Gore
því flokkshollari verður hann og því
meira breytist sannfæring hans,“
sagði Ari Fleischer, talsmaður Bush.
Fréttaskýrandi AP segir að
Lieberman sé enn að reyna að sann-
færa svarta, kennara, launþegasam-
tök og fleiri, um að miðjuviðhorf hans
séu í takt við þeirra viðhorf.
Eiginkona Liebermans, Hadassah,
kynnti hann. Foreldrar hennar lifðu
af vist í útrýmingarbúðum Þjóðverja í
seinni heimsstyrjöld og voru frelsaðir
af bandarískum hermönnum. „Sú
staðreynd, að hállri öld síðar stendur
dóttir þeirra hér á þessu sviði, er til
vitnis um sífelldan kraft ameríska
draumsins," sagði Lieberman.
Hann minntist ennfremur föður
síns, sem var alinn upp á munaðar-
leysingjahæli og átti síðar umbúða-
verslun í Connecticut-ríki. Móðir
Liebermans var meðal áheyrenda á
miðvikudagskvöldið.
Gore var formlega útnefndur for-
setaefni flokksins á miðvikudags-
kvöldið, en forsetakosningamar fara
fram 7. nóvember nk. Meðal ræðu-
manna var 27 ára dóttir Gores, Kar-
enna Gore Schiff, sem reyndi að
mýkja ímynd fóður síns, hældi honum
fyrir „gamaldags kurteisi" sem væri
„hressandi nú á tímum“. Gore kom
þingfulltrúum og dóttur sinni á óvart
með því að birtast á sviðinu og faðma
Karennu að sér.
Landsþinginu átti samkvæmt
áætlun að ljúka í gærkvöldi með
ávarpi Gores, þar sem hann myndi
formlega taka við útnefningu sem
forsetaframbjóðandi flokksins. Hann
sagði við fréttamenn, áður en hann
flutti ræðuna, að þetta væri „ræða
sem ég hef skrifað sjálfur. Ég á skilið
hrósið eða skömmina. Ég hef verið að
endurskrifa hana, fara yfir hana og
finpússa hana.“
Hann sagði að þingfulltrúar mættu
búast við mörgum orðum um og út-
skýringum á áætlunum sínum um
endurbætur á skólakerfinu, laga-
frumvarp um réttindi sjúklinga, laga-
frumvarp um hatursglæpi, bætur
vegna lyfseðilsskyldra lyfja, hertari
skotvopnalöggjöf, umhverfisvemd og
íleira. Þungamiðjan í ræðunni yrðu
hugmyndir hans um endurbætur á
velferðarkerfinu og 500 milljarða
dollara skattaívilnanir vegna mennta-
mála, langtímaheilsugæslu, ellilífeyr-
is, auk vísindarannsókna og þróunar-
mála.
Gore hefur unnið að ræðunni í
nokkrar vikur og borið hluta hennar
undir eiginkonu sína, Tipper, dóttur
sína, Karennu, og mann hennar, og
gert breytingar samkvæmt tillögum
þeirra. Talsmaður Gores, Chris
Lehane, sagði að atvinnuræðuritarar
hefðu átt lítinn þátt í að semja ávarp-
ið, og hefðu í raun bara verið í hlut-
verki álitsgjafa.
Meðal þeirra var Eli Attie, fyrrver-
andi ræðuritari forsetaembættisins,
en hann aðstoðaði við ritun ræðu
Karennu, dóttur Gores. Tveir ráð-
gjafar Gores voru einnig í hópnum,
þeir Bob Shrum, sem er sérfræðing-
ur í skrúðmælgi, og Carter Eskew,
sem þykir lunkinn við að sykurhúða
eitraðar athugsemdir.
Eskew, sem hefur átt hvað stærst-
an þátt í að móta kosningabaráttu
Gores, var ómyrkur í máli um mikil-
vægi ræðunnar. Varamaður Clintons
í sjö og hálft ár var að reyna að kynna
sig fyrir þjóðinni sem leiðtogi og sinn
eigin herra. „Þetta er aðaltækifærið
sem hann fær til að vera aðalmaður-
inn,“ sagði Eskew.
Ótrúlegt verð á íslensku
SAMKAUPSVERSLflNtB:
Krossmóa 4, Njarðvík
Miðvangi 41, Hafnarfirði
Austurvegi 2, (safirði
Vesturbergí 76, Reykjavík
Vfkurbraut 60, Grindavik
Kaupvangi 1, Egiisstaðir
Hringbraut 55. Keflavík
Gerðavegi 1, Garði
Víkurbraut 11, Sandgerðí
Stigahlíð 41-45, Reykjavík
Vitastíg 3, Bolungarvík
Vesturvegi 1, Seyðisfirði
Hafnarbraut 2, Neskaupstað
Strandgötu 50, Eskifirði
Búðargötu 3, Reyðarfirði
Skólavegi 59, Fáskruðsfirði
w w w . s a m k a