Morgunblaðið - 18.08.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.08.2000, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipulagsstofnun fellst á tillögu að áætlun um mat á umhverfísáhrifum Kárahnjúkavirkjunar Fícmri Kárshnjúkur Snasfoli TölvumyntVVST Tölvumynd, eftir Ijósmynd Hreins Magnússonar, sem sýnir hvernig verður umhverfis Hálslón. Horft af vesturbakka Jökulsár á Brú og yfir að Snæfelli. íí-h. Ekki gerð krafa um samanburð á virkj- un og þjóðgarði SKIPULAGSSTOFNUN hefur fallist á tillögu að áætlun um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúka- virkjunar, en gerir jafnframt grein fyrir ýmsum athugasemdum og fyrirvörum í bréfi til Landsvirkjun- ar. Segir í niðurstöðum stofnunar- innar, að í heild virðist hin almenna lýsing sem kemur fram í tillögu framkvæmdaaðila ná til allra helstu þátta sem taka þarf á í mati á umhverfisáhrifum. Landsvirkjun sendi Skipulags- stofnun tillögu fyrirtækisins að matsáætlun um Kárahnjúkavirkj- un um miðjan síðasta mánuð og í kjölfar þess kynnti stofnunin til- lögu framkvæmdaaðila ýmsum hagsmunaaðilum, auk þess sem til- lagan var einnig kynnt með frétta- tilkynningu og á heimasíðu stofn- unarinnar á Netinu. Bárust umsagnir og athuga- semdir frá fjölmörgum aðilum og eftir að hafa farið yfir þær hefur Skipulagsstofnun nú fallist á til- lögu að matsáætlun vegna virkjunarframkvæmdanna. Fram kemur í niðurstöðum Skipulagsstofnunar að Náttúru- vernd ríkisins hafi í umsögn sinni talið að meta eigi sameiginlega um- hverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar og álvers á Reyðarfirði. Þá telur Landgræðsla ríkisins að meta skuli umhverfisáhrif NORAL-verkefnis- ins í heild. Ekki framkvæmdir á sama svæði Skipulagsstofnun fellst ekki á þessi sjónarmið og segir að þótt bygging Kárahnjúkavirkjunar sé nátengd byggingu álversins sé ekki hægt að líta svo á að um fram- kvæmdir á sama svæði sé að ræða og því ekki rök fyrir því að meta framkvæmdirnar saman. Hins veg- ar mun Skipulagsstofnun beina þeim tilmælum til framkvæmdaað- ila að mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna verði auglýst um svipað leyti. Samkvæmt matsáætlun fyrir ál- ver í Reyðarfirði er áætlað að auglýsa matsskýrslu í janúar 2001 og matsskýrslu fyrir Kárahnjúka- virkjun er fyrirhugað að auglýsa í mars 2001 samkvæmt tillögu að matsáætlun. Áætlað er að fram- kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun hefjist sumarið 2002. I niðurstöðum Skipulagsstofnun- ar er vikið að ábendingum sem komið hafi fram, þess efnis að í matsskýrslu þurfi að fjalla um þann kost að virkja ekki og í þess stað að stofna þjóðgarð á svæðinu. Telur stofnunin að við mat á sk. núll-kosti þurfi að gera grein fyrir samanburði umhverfisáhrifa við aðra kosti á þá umhverfisþætti sem helst hafa gildi í umræðu um þjóð- garð á svæðinu, s.s. á landslags- heildir, ósnortin svæði, einstök búsvæði og útivist og ferða- mennsku. Ekki sé hins vegar eðli- legt að gera þá kröfu til fram- kvæmdaaðila að hann geri beinan samanburð á virkjun og þjóðgarði á svæðinu. Hins vegar þurfi í mat- skýrslu að gera grein fyrir hug- myndum um stofnun Snæ- fellsþjóðgarðs og stöðu þeirra nú. Stofnunin telur ekki ástæðu til að fresta mati á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar þar til liggur fyrir rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, sem unnið er að á vegum ríkisstjórnarinnar og áætlað er að ljúki árið 2002. Á hinn bóginn leggur stofnunin áherslu á mikilvægi samanburðar á umhverfisáhrifum mismunandi nýtingar á svæðinu í komandi væntanlegri matsskýrslu. Þá telur stofnunin ekki efni til þess að gera kröfu um að í mats- skýrslu sé sérstaklega sett fram fjárhagslegt mat á verðmæti svæða og áhrifum á þau. Hins vegar sé eðlilegt að slíkt mat sé lagt til grundvallar við þjóðfélagslegt mat á áhrifum framkvæmdanna í mat- skýrslu. Skipulagsstofnun segir í bréfi sínu að Kárahnjúkavirkjun sé um- fangsmikil framkvæmd sem feli í sér marga framkvæmdaþætti sem hver um sig séu matsskyldir, og taldir geta haft í för með sér um- talsverð umhverfisáhrif, sam- kvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum. Það gildir m.a. um öll lón sem eru stærri en þrír ferkílómetr- ar, alla efnistökustaði sem eru stærri en 50 þús. rúmmetrar og 150 þús. rúmmetrar, alla vegi sem eru 10 km eða lengri. Aðrir ein- stakir framkvæmdaþættir Kára- hnjúkavirkjunar falli eftir atvikum undir ákvæði 6. gr. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum um tilkynningaskýldar fram- kvæmdir og kunni þannig hver og einn einnig að geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Það sé því ljóst að mat á um- hverfisáhrifum Kárahnjúkavirkj- unar hljóti að verða mjög umfangs- mikið. REYKJA VÍKURMARAÞON 2000 Breytt dagsetning gæti fjölgað þátttakendum BM’VAIIÁ Söludeild { Fornalundi Breiðhöfða 3 • Sfmi 585 5050 Oxfordsteinn Breskur stíll í steinlögnum. Kynntu þér spennandi hugmyndir fyrir garðinn þinn á www.bmvalla.is www.bmvalla.is REYKJAVÍKURMARAÞON fer fram á laugardaginn og verða fyrstu keppendur ræstir af stað frá Lækjargötu klukkan 12 á hádegi. Maraþonið fer nú fram í sautjánda skipti en það hefur alla tíð verið haldið næstsíðasta sunnudag í ágúst í tengslum við afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst. í ár ákváðu skipuleggjendur maraþons- ins hins vegar að breyta til og halda hlaupið á laugardegi. Ágúst Þorstcinsson, starfsmaður hjá Reykjavíkurmaraþoni, segir Árétting VEGNA frétta um bilanir í GSM-símkerfi Landssímans skal áréttað að GSM-kerfi Tals hefur verið í gangi og í fullri þjónustu allan tímann. Sam- kvæmt upplýsingum frá Tali hefur kerfið gengið snurðulaust þau rúm tvö ár sem fyrirtækið hefur starfað. það gert til að gefa hlaupurum kost á að njóta dagskrár menningarnæt- ur Reykjavíkur en hún hefst á laug- ardag og stendur fram eftir nóttu. Ágúst segir einnig gott fyrir fólk að hafa sunnudaginn til þess að hvfla sig eftir hlaupið. í ár verður hlaupið maraþon, sem er 42 kflómetrar, hálfmaraþon, sem er 21 kflómetri, 10 kflómetra hlaup, 7 kflómetra skemmtiskokk og þriggja kflómetra skemmtis- kokk. Einnig verður hlaupið 10 kflómetra línuskautahlaup en það mæltist mjög vel fyrir í fyrra þegar boðið var upp á það í fyrsta skipti. Þátttakendur í maraþonhlaupi þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hálfmaraþonið er opið öllum 16 ára og eldri en 10 kílómetra hlaup og línuskautahlaup og skemmtiskokk er opið öllum 12 ára og eldri. Sæbraut lokuð um tíma Hlaupaleiðin í ár verður sú sama og í fyrra en meðal annars er hlaupið út á Seltjarnarnes og aust- ur í Voga. Þeir sem hlaupa 10 kfló- metra og þaðan af styttra munu þó ekki hlaupa um austurhluta borg- arinnar. Lögregla og björgunarsveitir sjá um gæslu og félagar úr hjólreiðafé- lagi íslands munu aðstoða hlaupara auk þess sem læknar og hjúkrunar- fræðingar verða til taks. Hlaupaleiðin liggur að nokkru Ieyti um Sæbraut og verður henni af þeim sökum lokað frá klukkan 12 til klukkan 5 á laugardaginn. Bflar sem þurfa að komast yfir Sæbrautina af þvergötum munu þó hafa tækifæri til þess en lögregla mun sjá um umferðarstjórn við göt- urnar. Lækjargata verður einnig lokuð á meðan á hlaupinu stendur svo og svæðið í kringum hana. Skráning í Skauta- höllinni í kvöld Ágúst segir að undanfarin ár hafi keppendur í hlaupinu verið í kringum 3.000 og býst hann við svipuðum fjölda í ár. Hann segir að skráning hafi gengið vel en gera megi ráð fyrir að hún fari á fullt skrið í kvöld, en skráð er í Skauta- höliinni í Laugardal.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.