Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 23 sama tímabili í fyrra nam tapið 776 milljónum króna. I reikningum fé- lagsins er færð til baka skatt- skuldbinding sem hlaust af sölu- hagnaði eigna en við það lækkar tapið um 537 milljónir króna. Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, er oft um bak- færslu á tekjuskatti að ræða hjá Flugleiðum í sex mánaða uppgjöri þar sem tapið er yfirleitt mjög mik- ið á því tímabili. Aftur á móti geng- ur færslan mjög oft til baka í árs- uppgjöri þar sem afkoman er mun betri á síðari hluta ársins. I fyrra var ekki um bakfærslu á tekju- skatti að ræða þar sem um mikinn hagnað af sölu eigna var að ræða á tímabilinu og um hagnað að ræða í heildarniðurstöðu rekstrarreikn- ings. Afkoma Flugleiða er jafnan neikvæð á fyrri hluta ársins þar sem einungis einn sumarmánuður kemur inn í það uppgjör, þe. júní- mánuður. Aftur á móti er afkoma félagsins jafnan mjög góð næstu tvo mánuði að sögn Sigurðar og gera áætlanir félagsins ráð fyrir að hagnaður þess í júlímánuði verði hátt í milljarð króna í júlí og áætl- anir geri ráð fyrir að svipað verði upp á teningnum fyrir ágústmánuð. Kaupþing mælír með sölu á Flugleiðabréfum Greiningardeild Kaupþings mæl- ir með sölu á bréfum Flugleiða í greiningu sinni á félaginu í gær. Þar kemur fram að þrátt fyrir að afkoma Flugleiða sé alltaf verri á fyrri hluta ársins en þeim seinni er tapið á tímabilinu nú mun meira en Landsbank inn selur í Básafelli Kamínur Tekkhúsgögn Vönduð gæða garðhúsgögn KRISTJÁN Guðmundsson hf. hefur keypt öll hlutabréf Landsbankans- Fjárfestingar hf. í Básafelli hf. að nafnverði 173.735.971 krónur. Hinir seldu hlutir nema 22,90% af heildar- hlutafé Básafells hf. Eignarhlutur Krisjáns Guðmundssonar hf. var fyrir samkomulagið 0,65% og er því nú 23,55%. Landsbankinn-Frjáfest- ing hf. tilkynnti til Verðbréfaþings Islands þann 2. júní síðastliðinn um kaup félagsins á 9,8% hlut í Básafelli hf. og aftur þann 8. júní. Þann 3. júlí síðastliðinn var svo greint frá því að Landsbankinn-Fjárfesting hf. hefði sent bréf til hluthafa Básafells hf. þar sem félagið gerir hluthöfum ákveðið tilboð í hlutabréfaeign þeirra í Básafelli á genginu 1,34. Guðmundur Kristjánsson tók við stjórnartaumunum í Básafelli hf. í lok júlí á síðasta ári þegar hann keypti 28,53% hlut í Básafelli hf. Fyrir átti hann þá 7,6% hlutafjár og varð hann þar með stærsti hluthafi í félaginu með 36,13% hlut. Guð- mundur er sonur Kristjáns Guð- mundssonar en Kristján Guð- mundsson hf. er nú eftir kaupin af Landsbankanum-Fjárfestingu hf. orðinn næststærsti hluthafinn í Básafelli hf. á eftir Guðmundi Krist- jánssyni. Björn Sigtryggsson hjá Lands- bankanum-Fjárfestingu hf. segir að viðunandi hagnaður hafi orðið af kaupum og sölu félagsins á hluta- bréfunum í Básafelli hf. Kaupverð fékkst ekki gefið upp. Gömlu góðu lurka húsgögnin . AÐEINS 3 DAGAR i 1 « f I ^ m fl'M ifijtj mroi filHl \ \ ^^ öp t"' '* % ,u jnm imTiíi ^ , M ti' j>m ]i\ : S / / L - Lft L te • J V,, v. 5 1 ; w ff % jfll f v; i ? rk l«*. j j i ' / 1 Tap Flugleiða 1.788 milljónir fyrir skatta 537 milljóna króna bakfærsla tekjuskatts TAP Flugleiða fyrstu sex mánuði ársins nam 1.197 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra var hagn- aður félagsins 595 milljónir króna, líkt og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Tap félagsins fyrir skatta nemur 1.788 milljónum króna en á verið hefur undanfarin ár. „Því er ljóst að félagið verður að grípa til róttækra aðgera til þess að rétta reksturinn við. Greiningardeild Kaupþings telur horfurnar ekki bjartar á seinni hluta ársins, það er fátt sem bendir til að þeir liðir, gengisþróun og eldsneyti, sem voru félaginu erfiðastir á fyrri hluta ársins, verði því hagfelldari á þeim seinni. Auk þess er sam- keppni að aukast og því minna svigrúm til fargjaldahækkana þótt tilkynnt hafi verið um slíkt. Jafn- framt verður að hafa í huga að því lengra sem líður frá því gengisþró- unin snerist gegn félaginu því minni verða áhrif gengisvarna," að því er fram kemur í greiningu Kaupings á Flugleiðum í gær. Samþykkt að afskrá Fóðurblönduna EIGNARHALDSFÉLAGIÐ GB fóður hefur tryggt sér yfirráð yfir um 96,7% af heildarhlutafé Fóðurblöndunnar hf. Tilboðs- frestur yfirtökutilboðs til hlut- hafa Fóðurblöndunnar rann út 14. ágúst sl. og samþykktu alls um 13,3% hluthafa tilboðið. 69 hluthafar hafa ekki svarað til- boðinu. Stjórn VÞÍ hefur í kjölfarið ákveðið að verða við þeirri ósk stjórnar Fóðurblönd- unnar að taka bréf félagsins af skrá, enda uppfyllir félagið ekki lengur skilyrði fyrir skráningu á VÞI. í tilkynningu sem send hef- ur verið til Verðbréfaþings ís- lands kemur fram að langstærsti einstaki útistandandi hlutinn sé að nafnvirði 6 milljónir, en aðrir hlutir séu undir milljón að nafn- verði og raunar aðeins 7 sem eru stærri en kr. 200.000 að nafn- virði. Reiknað er með því að krafist verið innlausnar á úti- standandi hlutum í félaginu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.