Morgunblaðið - 18.08.2000, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Æft af innlifun fyrir tónleikaforina.
Raddir Evrópu í Reykholti. Búningana hannaði Linda Björg Árnadóttir.
Senn líður að tónleika-
ferðalagi Radda Evrópu
til menningarborganna,
en það hefst með tón-
leikum í Hallgríms-
kirkju 26. og 27. ágúst.
Um þessar mundir er
hópurinn staddur í
Reykholti 1 Borgarfirði
þar sem standa yfír
strangar æfingar.
Eyrún Baldursdöttir
fór þangað og hitti fyrir
glaðværan hóp.
AFYRSTA æfíngadegi blés
vindurinn hressilega á
söngvarana sem hlupu
yfir í Reykholtskirkju frá
hótelinu. Öll ungmennin sem skipa
Raddir Evrópu mættu á upphitun-
aræfingu árla í gærmorgun utan
þeirra frá Santiago de Compostella
enda voru þeir nýrunnir í hlað eftir
næturlangt ferðalag og þurftu á
hvíld að halda.
Líkt og mörgum er í fersku minni
sungu Raddir Evrópu saman á gam-
lárskvöld ásamt Björk Guðmun-
dsdóttur í alþjóðlegri sjónvarpsút-
sendingu. Nú er hins vegar komið
að tónleikaför hópsins til menning-
arborga Evrópu og hefst hún með
tónleikum í Hallgrímskirkju 26. og
27. ágúst. Förinni mun ljúka í Berg-
en 14. september.
Raddir Evrópu er viðamesta sam-
starfsverkefni menningarborganna
og kom hugmyndin að verkefninu
frá íslandi. I kórinn voru valdir tíu
söngvarar úr hverri borg og mun á
flestum stöðum hafa verið undan-
keppni. „Þetta eru allt krakkar sem
hafa ótrúlega fallega rödd frá nátt-
úrnnar hendi og það yljaði mér að
heyra tónana á æfingunni í morgun
“ segir Þórunn Björnsdóttir, verk-
efnastjóri Radda Evrópu.
Næstu daga mun kórinn æfa stíft
þau verk sem flutt verða í tónleika-
förinni. Það eru verk frá öllum
menningarborgunum og að auki
tónsmíð eistneska tónskáldsins
Arvo Párt sem hann samdi sérstak-
lega fyrir kórinn.
Heiður að frumflytja
verk Arvo Part
í hádeginu var gert hlé á söngæf-
ingum og þá gafst einnig tími fyrir
spjall. Yfir hrísgrjónagraut og ís-
lenskum silungi ræddu þátttakend-
urnir um verkefnið. „Það mun ör-
ugglega ganga vel að æfa,“ segir
Helgi Hrafn Jónsson. „Allir söngv-
ararnir eru mjög hæfir og vel undir-
búnir, það gerir þetta svo auðvelt og
við getum framkvæmt mikið á stutt-
um tíma.“ Hver tíu manna hópur
hefur í sínu landi æft verkin í eitt ár.
Inga Harðardóttir bendir á að sam-
æfingarnar í Reykholti verði stífar
enda fáir dagar til stefnu. Elva
hún skyldi ekki vera með,“ segir
Þorgerður Ingólfsdóttir, aðalstjórn-
andi kórsins. „Hugmyndin var að
brúa bilið milli popptónlistar og kór-
tónlistar. Það olli okkur auðvitað
vonbrigðum að þessi þáttur skyldi
detta út.“ Þórunn Björnsdóttir
bendir á að það hafi hins vegar verið
mjög gaman að hafa Björk á tónleik-
unum í Perlunni og í Hallgríms-
kii’kju um jólin.
Á efnisskrá tónleikanna eru ólík
verk, sem fulltrúar í hverri borg
hafa valið sem kynningu á sinni kór-
tónlist. Þar má nefna þekkt verk
eins og Agnus Dei eftir Pendereeki,
Requiem eftir Jón Leifs og 0 Sacr-
um Convivium eftir Messiaen. Einn-
ig er þar að finna tónverk sem færri
kannast við eins og Negra Sombra
eftir Montes frá Santiago de
Compostella og Bruremarsj eftir
norska skáldið Forde.
Hver borg hefur tilnefnt kór-
stjóra úr sínum röðum, sem séð hef-
ur um undirbúning kórsöngvaranna
heima fyrir og stjórnar tónlist sinn-
ar borgar. Þau eru Michel Capperon
frá Avignon, María Gamborg Hel-
bekkmo frá Bergen, Pier Paolo
Scattolin frá Bologna, Denis Menier
frá Brussel, Timo Lehtovaara frá
Helsinki, Stanislaw Krawzynski frá
Kraká og Maximino Zumalave frá
Santiago de Compostella
Reykholt tilvalinn
æfingastaður
Verkið sem frumflutt verður eftir
Arvo Párt heitir ...Wich was the son
of... og mun höfundurinn verða við-
staddur frumflutninginn í Hall-
grímskirkju. „Hugmyndin á bak við
verkið er mjög í samræmi við hans
djúpu hugsun sem nær út fyrir
fagsviðið tónlist. Hann valdi texta úr
Lúkasarguðspjalli, þar sem fai'ið er
með ættartölu Jesú, vegna þess að
hann varð svo hrifinn af nafnahefð
okkar íslendinga þegar hann kom
hingað fyrir tveimur árum,“ segir
Þorgerður en verkið er jafnframt
tileinkað henni.
Raddir Evrópu munu einnig
flytja Evrópskt rapp eftir Atla
Heimi Sveinsson. „I tónverkinu á að
vera einskonar viðkoma í öllum
borgum, sem felur í sér sameining-
armerkingu," útskýi-ir Þorgerður.
Helgi Hrafn Jónsson mun spila á
básúnu í því verki en að öðru leyti
verða engin hljóðfæri á tónleikum
kórsins.
Þórunn bendir á að margt sé á
dagkrá kórsins í Reykholti utan
hefðbundinna söngæfinga. „I kvöld
verður haldin íslensk kvöldvaka, við
fáum þjóðdanshóp úr Borgarnesi
sem ætlar að kenna krökkunum ís-
lenska þjóðdansa og svo ætlar Diddi
fiðla að koma og spila. Á laugar-
dagskvöldið ætlum við einnig að
fara og skemmta okkur með sveit-
ungum á töðugjaldaballi í Loga-
landi.“
Þær Þorgerður og Þórunn eru
sammála um að Reykholt henti
einkar vel fyrir undirbúning af
þessu tagi. „Það er mjög gott að æfa
í kirkjunni og andrúmsloftið hér í
Reykholti er yndislegt," segir Þor-
gerður. Raddir Evrópu munu á
sunnudaginn syngja messu í Reyk-
holtskirkju.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kórinn hóf æfíngar í Reykholti í gær en þar munu krakkarnir vera til 25. ágúst.
Raddir Evrópu
hljóma í Reykholti
Dögg Melsteð segir það vera hrein
forréttindi að taka þátt í þessu verk-
efni með einvala liði söngvara og
stjórnenda. í framhaldi af því bend-
ir Helgi á að efnisskráin sé mjög
metnaðarfull. „Það er til dæmis
mikill heiður fyrir okkur að fá að
taka þátt í heimsfrumflutningi á
verki Arvo Párt,“ segir hann. „Það
að hann skuli semja verkið fyrir
kórinn sýnir í raun hvað það er lagt
mikið í þetta verkefni."
Raffaele Glordani frá Bologna á
Italíu er á því að það sé blæbrigða-
munur á söngstíl þeirra sem koma
annars vegar frá Skandinavíu og
hins vegar Suður-Evrópu. „Við get-
um lært mikið af hvert öðru, en við
þurfum að nota tímann til að sam-
hæfa okkur og mynda áhrifaríka
heild.“
Rrökkunum er tíðrætt um fyrir-
hugað tónleikaferðalag. Af máli
þeiira er ljóst að þau hlakka í senn
mikið til en búast einnig við hörku
púli. „Eg veit að það verður ákaf-
lega skemmtilegt að koma fram í öll-
um þessum borgum og syngja með
kórnum. En ég veit líka að maður
verður þreyttur eftir öll ferðalögin,"
segir Marta Stanczyk frá Kraká.
Eitt helsta markmið verkefnisins
er að kynna tónlist frá öllum menn-
Þorgerður Ingólfsdóttir, aðalstjórnandi kórsins, og Þórunn Björnsdótt-
ir verkefnastjóri ásamt Pier Paolo Scattolin, kórstjóra frá Bologna.
ingarsvæðunum og verður því sung- Guðmundsdóttur með í tónleikaför-
ið á mörgum þjóðtungum. I upphafi inni en frá því hefur verið horfið.
var hugmyndin einnig að hafa Björk „Það breytti auðvitað töluverðu að
;