Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 43

Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 43 , SKOÐUN MINNINGAR antekning hér á landi. Mér hefur einnig virst að það tíðkist ekki að menn undirbúi sig áður en þeir koma fram í fjölmiðlum til að tjá sig um aðskiljanlegustu efni. Oftar en einu sinni hefur mig til dæmis grunað að fólk sem fengið var til að tjá sig um bækur í sjónvarpi hafi alls ekki verið búið að lesa bókina sem það var að tala um. Ovandvirkni er þjóðarósómi Þessi landlæga óvandvirkni er að mínu áliti þjóðarósómi og hún kem- ur ótrúlega víða fram. Mér finnst hún koma berlega í ljós í allri um- fjöllun um mál sem ég hef eytt miklum tíma í að rannsaka og mér finnst hún einnig koma fram í ófremdarástandi skjala- og heim- ildavörslu, að minnsta kosti hvað samtímaheimildir varðar. Því er þetta rifrildi um fjárhagsleg tengsl íslenskra sósíalista og Sovétmanna eins konar sjúkdómseinkenni. Það er hægt að fjasa mikið um þetta efni, nota það til upphlaupa, ásak- ana og gervi-afhjúpana. Nær væri að setjast niður og velta fyrir sér spurningunum sem raunverulega skipta máli: Hvernig stendur á því að for- maður Sósíalistaflokksins hafði miklu betri og nánari tengsl við ráðamenn stórveldisins í austri heldur en andstæðingar hans í póli- tík virðast hafa haft við sína banda- menn erlendis? Hvað græddu sós- íalistar pólitískt á Moskvutengslunum? Hverju töp- uðu þeir? Hvers konar afl voru sós- íalistar í íslenskri pólitík? Hver er arfleifð sósíalismans á Islandi? Hver er þáttur Alþjóðasambands kommúnista í uppbyggingu og gerð vinstrihreyfingarinnar hér á landi? Þannig má lengi áfram telja. Hvers vegna skrifar fólk ekki greinar í blöðin um þessar spurningar frekar en að einblína á aukaatriði? Höfundur er forstöðumaður Hugvís- indastofnunar Háskóla Islands. haft Rússagull. Áki sagði mér einn- ig að hann væri að skrifa formála fyrir útgáfu á hinni frægu ræðu Krúsjeffs þar sem hann fletti ofan af stjórnarháttum Stalíns. Áki Íleyndi því ekkert að það væri Mót- virðissjóður Marshall-hjáparinnar sem legði fram peningana fyrir út- gáfunni. Gömlu róttæklingarnir voru heiðvirðir hugsjónamenn sem skilja eftir sig djúp spor til hins betra á öllum sviðum íslensks þjóð- lífs. Þetta er auðvelt að sanna. En þeir höfðu rangt fyrir sér með Stal- ín og Sovétríkin og fyrir það skulu þeir svertir í gröfinni. Það hefur aldrei þótt góður siður á íslandi að Íleggjast á náinn en ýmsir sálufélag- ar Arna Snævarr stunda samt þá iðju og telja það hrósvert. Ég hef nefnt bók Jóns Ólafsson- ar, Kæru félagar, í þessum pistli. Mér finnst þetta góð bók, þó með þeim galla að sums staðar gætir nokkurs tvískinnungs í niður- stöðum frásagnar. Eg nefni tii stuðnings þessu áliti mínu t.d. bls.ll (í formála) þar sem er sett I fram bein fullyrðing og vísað til Ifréttar Árna Snævarr á Stöð 2 í lok októbermánaðar 1999. En á bls. 195 er líka vitnað til þessarar sömu fréttar Árna en sagt: „Nú liggja ekki fyrir aðrar heimildir fyrir um þessar úthlutanir en tölur á blaði - - -“ Og Jón setur fram þá tilgátu, sem hann segist þó ekki geta sann- að, að Mál og menning hafi fengið þessa peninga. En Árni sagði hik- laust að Sósíalistaflokkurinn hefði í fengið þá. IEg hygg að Jón Ólafsson geti verið mér sammála um það að það sé ekki hægt að sanna að tilgreind- ar greiðslur hafi verið inntar af hendi, vegna þess að það er alltaf hægt að draga í efa dókumentasjón sem kemur frá annarri hliðinni. Ótvíræðar sannanir fást ekki fyrr en við getum fylgt greiðslunni frá einum aðila til annars. Þetta skilja Árni Snævarr og sálufélagar ekki þótt þeir séu sagnfræðingar. Höfundur er líhuganiaður um sagnfræði. + Haukur Bald- vinsson fæddist á Akureyri 24. febrúar 1914. Hann lést 25. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Svava Jónsdóttir og Baldvin Jónsson. Hann var eiim sex barnaþeirra hjóna. Árið 1938 kvæntist hann Vilmu Magnús- dóttur frá ísafirði, f. 28. mars 1910. Hún lést 18. nóvember 1977. Börn Hauks og Vilmu eru: 1) Svavar, búsettur í Gautaborg og á hann tvö börn. 2) Örn, búsettur á Hvolsvelli, kvænt- ur Sigríði Þorsteinsdóttur og eiga þau tvær dætur. 3) Edda, sem lést í bflslysi í Bandaríkjunum árið 1991. Hún átti tvær dætur. 4) Hrafn, búsettur í Reykjavík, kvæntur Sólveigu Þorleifsdóttur. Elsku pabbi minn! Mig langar að kveðja þig með örfáum orðum og þakklæti fyrir allt og allt. Minning- arnar eru óteljandi eins og sand- korn og læt ég þær vera hér. Ég veit að þú ert kominn á betri stað þar sem mamma og Edda systir hafa tekið þér opnum örm- um. Pabbi minn - hvíl þú í friði. Þín dóttir, Svava. Ég vil með nokkrum orðum minnast vinar míns, Hauks Bald- Hann á þrjú börn af fyrra hjónabandi. 5) Svava, búsett á Hvolsvelli og á hún eina dóttur. Barnabörn Hauks eru tíu talsins og barnabarnabörnin níu. Haukur lærði garðyrkju- og gróð- urhúsarækt og hélt til til framhaldsnáms á Jótlandi í Dan- mörku. Að loknu námu hóf hann vinnu í garðyrkju- stöðinni að Reykjum í Mosfells- sveit, en árið 1939 flutti hann til Hveragerðis og rak gróðrarstöð- ina Lindarbrekku frá 1941 til árs- ins 1981. Þá seldi hann stöðina og fluttist á Hvolsvöll, þar sem hann bjó til dauðadags. Útför Hauks fór fram frá Kot- strandarkirkju 1. ágúst. vinssonar, sem ég kynntist skömmu eftir að hann fluttist á Hvolsvöll er við Golffélagar RLR tókum upp árlega keppni í golfi við félaga Golfklúbbs Hellu. Frá þeim tíma tókst með okkur óvenju góð vinátta, þótt við hittumst því miður sjaldnar hin síðari ár. Þegar samstarf okkar hófst við þá GHR-golfara var gamli golfvöll- urinn, sem margir muna eftir, í kringum bæinn að Strönd. í þá daga var Hermann Magnús- son formaður klúbbsins og upp- byggingarstarfið þar að hefjast. Mér er í fersku minni þegar Her- mann var að segja mér frá hug- myndum sínum um 18 holu golf- völl. Ég hélt að hann væri ekki með öllum mjalla og hafði enga trú á þetta tækist. Þeir félagarnir í GHR undir for- ystu Hermanns héldu ótrauðir ætl- unarverki sínu og 18 holu golfvöll- ur að Strönd varð að veruleika. Ég held að allir séu sammála um að Hermann Magnússon, þá sím- stöðvarstjóri á Hvolsvelli, hafi ver- ið sterki maðurinn í allri uppbygg- ingu á Strönd á árunum eftir 1980. Gerð vallarins tókst það vel, að stjórn GSI ákvað að Landsmótið í golfi í meistara og 1. flokkum karla og kvenna yrði haldið þar árið 1991. Það var stór stund hjá þess- um litla golfklúbbi, þegar Her- mann setti mótið og sló fyrsta höggið. Mér var sagt að útlending- ar sem voru að leika golf á Strand- arvelli hafi undrast að klúbbur sem teldi aðeins 30-40 félaga ætti slíkan völl og spurt hvernig þetta væri hægt. Sá sem varð fyrir svörum sagði einfaldlega: „Ég veit það ekki, en það er hægt.“ Það var samhentur hópur sem stóð að baki Hermanns við upp- bygginguna. Þeirra á meðal var Haukur Baldvinsson. Hann hafði kynnst golfinu í Hveragerði og ásamt nokkrum fé- lögum sínum stofnaði hann golf- klúbb þar árið 1952 og þeir gerðu völl í landi Fagrahvamms. Þetta mun hafa verið þriðji golfvöllurinn sem stofnaður var á landinu. Golf- klúbburinn starfaði aðeins í sex ár. Þá lagði Haukur kylfurnar á „hill- una“ eins og sagt er á máli íþrótta- manna. Þegar hann, 67 ára gamall, seldi gróðrarstöðina í Hveragerði og fluttist á Hvolsvöll fór að leika golf á ný, auk þess sem hann tók mik- inn þátt í uppbyggingu vallarins. Verk Hauks á Strandarvelli HAUKUR BALDVINSSON + Mohamed Jósef Daghlas fæddist í Jórdaníu 20. ágúst 1971. Hann lést af slysföruin 7. ágúst síðastliðinn. Hann var þriðji í röðinni af níu systkinum, þar af sex bræður og þijár systur. Foreldrar hans voru frá Palest- ínu og flúðu þau stríðið árið 1967 frá Nablus. Faðir Moha- meds lést árið 1988. Mohamed kom til Islands seinni hluta árs 1989, aðeins 18 ára að aldri. Mohamed var búinn að ljúka menntaskólanámi í Jórdaníu og kom hann til Islands til að mennta sig enn frekar. Tveir eldri bræður Elsku Mohamed. Þú bjóst yfir svo mikilli fegurð og ást, þú varst alveg einstakur, þú varst alltaf svo glaður hvert sem þú komst, ætíð varstu brosandi, þú geislaðir. Kurteisi og hjálpsemi einkenndu þig- Við vorum svo lánsöm að fá að kynnast þér fjótlega eftir að þú komst hingað til lands, og eru allar stundirnar sem við öll áttum sam- an óteljandi og ógleymanlegar. Þú varst okkur alltaf eins og bróðir. Þú varst alveg einstaklega barn- góður, börnin munu sakna þín sárt, þau munu sakna daganna sem þú tókst þau með í Bláa lónið, í veiði- ferðir, keilu og hvaðeina. Öll börn elskuðu þig og dáðu. Alltaf varstu tilbúinn að gefa þér tíma til að leika við þau, þó að þú værir að- eins að koma í stutta heimsókn. Það er erfitt að trúa og sætta sig við að þú skulir vera farinn frá okkur, til nýrra heima, yfir móð- una miklu, sem við öll væntum en erum þó aldrei tilbúin þegar að því kemur. Fegurð hjarta þíns var fólgin í fallegum hugsunum og já- kvæðu viðhorfi á lífið, og mun það hans voru þá búsett- ir hér á landi, Samir og Semi. Mohamed ákvað að leggja flugnám fyrir sig og lærði hann að fjúga hér á landi og einnig í Ameríku. Flugið átti hug hans allan. Hann lagði hart að sér til að fjármagna námið og kom hann víða við, má þar nefna bygginga- vinnu, pitsugerð og kenndi hann einnig flug hjá Flugmennt. Mohamed kenndi líka arabísku fyrir yngri kynslóðina hjá Náms- flokkunum í Reykjavík. títför Mohameds fór fram frá Fossvogskapellu 12. ágúst. hjálpa okkur að lifa áfram. Gleði þín var eins og vorið, svo hlý að hún lét blómin springa út í höndum okkar. Elsku vinur, við munum minnast þín um alla eilífð, við munum sakna þín sárt. Minning þín mun vera geymd í hjörtum okkar allra. Elsku Mohamed, við vitum aldrei hver fer næstur, vegir guðs eru órannsakanlegir. Allah maak, Guð veri með þér. Abraham, Diana og börn, Hilda, Magnús og Emilía, Sigurlaug, Kristinn og Sara, Jamil, Bára og synir. Kæri Mohamed. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Það var snemma árs 1994, að ég lét gamlan draum rætast og lét verða af því að byrja að læra til einkaflugmanns. Við vorum nokkr- ir öldungar yfir þrítugu í leit að áhugamáli ásamt fríðum hópi ungs fólks, sem stefndu á að gera flug- mannsstarfið að ævistarfi. Flug- mannsnámið er strangur skóli frá byrjun, en ég var svo lánsamur að lenda í skemmtilegum og góðum hópi hjá afbragðs kennurum flug- skólans Flugmennt^ sem starfaði á vegum Leiguflugs ísleifs Ottesen. Þarna kynntist ég þér, brosmildum heiðursdreng, sem sannarlega lýst- ir upp umhverfi þitt. Þú hélst þínu striki og fórst í atvinnumennskuna sem þú lagðir stund á bæði hér og í Bandaríkjunum. Það kom mér ekki á óvart, að þú að námi loknu hæfir störf sem flugkennari hjá Flugskóla íslands og flugstjóri hjá Leiguflugi ísleifs Ottesen. í þessi ábyrgðarstörf eru aðeins þeir bestu ráðnir. Aðstæður í innan- landsflugi á íslandi eru oft mjög erfiðar og ekki erfitt að skilja að íslenskir flugmenn séu jafn eftir- sóttir um heim allan og raun ber vitni. En örlög okkar mannanna eru óútskýi-anleg. í hörmulegu flugslysi, mánudaginn 7. ágúst sl. lauk þessari jarðvist þinni skyndi- lega. Aðstandendum ungmennanna þriggja sem fórust ásamt þér, votta ég samúð mína og piltanna tveggja sem komust lífs af vegna skjótra viðbragða hjálparsveita og björgunarmanna, bið ég guð okkar allra að gæta. Ég þakka þér alla aðstoðina sem þú veittir mér ávallt með glöðu geði, þegar ég leitaði eftir aðstoð í viðhaldi einkaflug- mannsréttinda minna til þeirra flugi’ekstrar feðga, ísleifs og Frið- riks. Ég votta þeim og öðru sam- starfsfólki samúð vegna þessa hörmulega slyss. Mannkostir þínir og allt framferði gagnvart sam- ferðamönnum í jarðvist þinni eru sannarlega meðmæli um fjölskyldu þína og þjóð. Megi góður guð styrkja móður þína, systkini og vini í sorginni yfir þeirra mikla missi. Þú hafðir þann hæfileika að gera þá sem þér kynntust ríkari með allri þinni ljúfmannlegu fram- komu og hátterni. Þakka þér, Mohamed, og góða ferð þangað sem þín er þarfnast. Jónatan Karlsson. Elsku Mohamed okkar. Snöglega varstu tekinn frá okk- ur í þessu hræðilega flugslysi. Það er erfitt að sætta sig við að fá ekki að sjá þitt fallega bros og MOHAMED JOSEF DAGHLAS munu lengi standa og minna á hann um mörg ókomin ár, því hann gróðursetti a.m.k. 10 þúsund plönt- ur á vellinum. Mest er þetta Al- askavíðir, eftir því sem hann sagði v*. mér á sínum tíma, auk nokkurra annarra tegunda sem hann var að prufa sig áfram með. Þeir sem leika á Strandarvelli taka t.d. eftir því hvað kominn er skemmtilegur skógarlundur við 3. teig. Trén hans Hauks eiga ekki hvað minnstan þátt í því að gera Strandarvöll að þeirri golfparadís sem hann er í dag. Haukur var virkur keppandi í golfi allt fram á síðasta ár og lék golf daglega yfir sumarið um ára- bil. Það voru ekki ófá mótin, þar sem við vorum saman í „holli“ og gekk á ýmsu. Oftar en ekki varð ég að lúta í lægra haldi. Þessi ljúfi og hægláti maður, var undir niðri mikill keppnismaður og lét ekki hlut sinn fyrr en í fulla hnefana. Auk þess að gera liðtækur golf- ari var hann góður bridsspilari og harður keppnismaður á þeim vett- vangi. Þá má geta þess að Haukur var góður knattspyrnumaður á yngri árum og lék mikið þegar hann var við nám í Danmörku. Haukur var gerður að heiðursfé- laga í GHR fyrir störf í þágu klúbbsins. Það eru margir eldri kylfingar sem sakna Hauks og við golffélag- ar RLR kveðjum góðan vin og' sendum börnum hans og öðrum ættingjum samúðarkveðjur. Ég þakka honum skemmtilegu stundirnar sem við áttum á Strand- arvelli í keppni og leik. Ég hef það fyrir satt, að þar sem hann er nú séu góðir golfvellir. Ég trúi ekki öðru en að hann verði búinn að panta rástíma og setja okkur sam- an í holl, þegar að því kemur að ég mæti á svæðið. Helgi Daníelsson. góðmennskuna sem alltaf skein af þér. Þú varst perla sem allir elskuðu. Prúður og kurteis varstu alltaf við alla. Þegar þú komst í heimsókn til okkar upp í sumarbústað í maí, þá komstu með Alexöndru bróður- dóttur þína, og ekki var að sökum að spyrja, þú varst kominn í heita pottinn með alla krakkana hjá þér og skemmtið þið ykkur konung- lega. Og svo var Sara litla þarna líka sem var þá bara sex vikna gömul. Þú spurðir hvort þú mættir halda á Söru og gefa henni að drekka sem var ekkert annað en sjálfsagt og var auðvitað tekin mynd af þér og Söru. Þetta er svo lýsandi dæmi um þig. Elsku vinur við viljum þakka þér fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman með þér, hvort sem það var í matarboði, kaffiboði, veislum, sumarbústað, útilegu eða bara heima í kaffisopa. Þín verður sárt saknað og minn- ingin þín mun lifa í huga okkar all- ra. Þínir vinir, Salmann, Ingibjörg, Rakel, Nazíma og Sara Ósk. Elsku Mohamed minn. Ég vil þakka þér allar þær stundir sem ■ við áttum saman. Ég man þegar þú hringdir í mig og bauðst mér í út- sýnisflug til Vestmannaeyja og fékk ég að sitja við hliðina á þér í flugvélinni. Ég mun aldrei gleyma þessari æðislegu flugferð. Alltaf þegar þú komst til mömmu og pabba, gastu gefið þér tíma til að tala við mig um flugvél- ar því það er mitt uppáhald. Svo þegar ég, þú og pabbi fórum til Þýskalands í flugvél sem heitir Boeing 757 þá spurði ég þig hvort mögulegt væri að skoða flugstjórn- arklefann, þá þekktir þú flugstjór- ' ann og leyfði hann okkur að skoða klefann og það var æðislegt og fékk ég að taka nokkra myndir. Ég mun sakna þín sárt og alltaf minnast þín þegar ég heyri í flug- vél. Þinn vinur, Yousef Ingi Tamimi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.