Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 46

Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Móðir okkar, ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin mánudaginn 21. ágúst kl. 14 í safnaðarheimili Innri-Njarðvíkur. Vilborg Gunnarsdóttir, Björk Gunnarsdóttir, Dagmar Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Máría Kamal Gordonsdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF INGVARSDÓTTIR, Miklubraut 54, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, föstu- daginn 18. ágúst, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Magnús V. Pétursson, Jon Nordsteien, Ásdís G. Sigurðardóttir, Guðmundur Alfreðsson, Bára Guðmundsdóttir og barnabarnabörn. Sigríður Valdimarsdóttir, Eyþóra Valdimarsdóttir, Ólöf Flygenring, Valdimar Örn Flygenring, Kristín Magnúsdóttir, Jóhanna B. Magnúsdóttir, Valdimar P. Magnússon, + Útför sonar míns, bróður okkar og mágs, SIGURÐAR RÓSBERGS TRAUSTASONAR frá Hörgshóli, sem lést í Los Angeles 8. júlí sl., fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður að Breiðabólsstað í Vesturhóþi. Trausti Sigurjónsson, Björn Traustason, Sigríður Kerúlf Frímannsdóttir, Þorkell Traustason, Halldóra Kristinsdóttir, Agnar Traustason, Þráinn Traustason, Ása Ólafsdóttir, Guðbjörg Stella Traustadóttir, Sigfús Traustason, Sigurveig Guðjónsdóttir, Hörður Traustason. + Útför SIGURÐAR MAGNÚSSONAR fyrrverandi bónda á Hnjúki, Mýrarbraut 25, Blönduósi, fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 19. ágúst kl. 14.00. Guðrún Jónsdóttir og fjölskylda. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, stuðning og vináttu við andlát og útför elskulegs sonar okkar, VILHJÁLMS EINARSSONAR, Spóarima 1, Selfossi, sem lést miðvikudaginn 30. júlí síðastliðinn. Ingibjörg Eva Arnardóttir og fjölskylda, Einar Nílsen og fjölskylda. Lokað í dag föstudaginn 18. ágúst, vegna jarðafarar ÓLAFAR INGVARSDÓTTUR. Jói útherji knattspyrnuverslun, Ármúla 36, 108 Reykjavík. ÞÓRÐUR ÞORS TEINSSON + Þórður Þor- steinsson fæddist á Grund í Svínadal 27. júní 1913 og dó á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 8. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Ragnhildur Sveins- dóttir, f. 27. júlí 1871, d. 24. feb. 1951, og Þorsteinn Þorsteinsson bóndi á Grund, f. 4. des. 1842, d. 21. ágúst 1921. Þórður átti fjögur alsystkini en þau voru; Ingiríður, f. 4. okt. 1902, d. 29. okt. 1990. Unnusti hennar var Þorsteinn Sölvason, hann dó úr lömunarveiki 1942. Þau voru barnlaus. Ingiríður tók að sér dreng, Pál Eyþórsson, og ól hann upp. Ingiríður starfaði lengi á Landspítalanum. Steinunn, f. 15. ágúst 1905, d. 5. okt. 1993 verka- kona í Alþýðubrauðgerðinni og Rúgbrauðsgerðinni. Hún átti eina dóttur, Ástu Sigfúsdóttur, f. 9. ágúst 1930. Þóra, f. 19. sept. 1908, d. 16. ágúst 2000, var lengi síma- stúlka á Landsímanum. Guðmund- ur, f. 11. okt. 1910, fyrrverandi bóndi á Syðri Grund, kvæntur Guðrúnu Sigurjónsdottur, f. 16. júlí 1922. Þeirra böm era; Val- gerður, f. 18. des. 1945, Sigrún, f. 18. sept. 1947. Þorsteinn, f. 27. nóv. 1952, og Sveinn Helgi, f. 17. jan. 1956. Þórður átti sjö hálf- systkini samfeðra. Stúlka, f. 9. júlí 1867, d. 9. júlí 1867. Oddný, húsfrú í Reykjavík, f. 31. ágúst, 1868, d. 24. nóv. 1934. Ingiríður, ógift, f. 3. feb. 1871, d. 11. júní 1894. Þorsteinn bóndi á Geithömrum, f. 12. mars 1873, d. 27. jan. 1944. Jakobfna húsfrú í Hnausum, f. 3. maí 1876, d. 3. maí 1948. Jóhanna kennslukona í Reykja- vík, f. 29. maf 1879, d. 13. júlí 1957. Sigur- björg, húsfrú í Hnaus- um, f. 29. maí 1879, d. 4. nóv. 1948. Hinn 17. maí 1941 kvæntist Þórður eftir- lifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Jakobsdótt- ur, f. 2. okt. 1921. Þau bjuggu á Grund allan sinn búskap. Hún er dóttir hjónanna Jakobs Lárussonar smiðs, f. 12. apríl 1874, d. 26. nóv. 1936, og Guðnýjar Hjartardóttur, f. 25. ágúst 1885, d. 15. okt. 1956. Þau bjuggu í Litla- enni á Blönduósi. Guðrún var tekin í fóstur nokkurra vikna gömul af þeim Lárusi Stefánssyni bónda í Gautsdal, f. 6. mars 1887, d. 3. jan. 1974, og konu hans Valdísi Jóns- dóttur, f. 1. sept. 1886, d. 25. maí 1929. Þegar Valdís dó fór Guðrún aftur í fóstur til systur Valdísar, Ingiríðar Jónsdóttur, f. 15. júní 1888, d. 23. júní 1976, og Eiríks Grímssonar bónda i Ljótshólum, f. 12. júlí 1873, d. 7. sept. 1932. Var hún þar öll sín uppvaxtarár. Þórð- ur og Guðrún áttu fjögur börn, en þau eru: 1) Lárus kennari, f. 3. júlí 1942, giftist Sesselju H. Guðjóns- dóttur kennara, f. 6. sept. 1966. Þau skildu. Þau eiga tvö börn, Steinunni Ástu matarfræðing, f. 1. april 1970, gift Baldri Þórarins- syni vélvirkja, f. 29. ágúst 1967. Börn þeirra eru Elfa og Elías. Guð- Tengdafaðir minn, Þórður Þor- steinsson, fyrrverandi bóndi á Grund í Svínadal, er farinn yfir móðuna miklu á fund feðra sinna. Er mér ljúft að minnast hans hér nokkrum orðum. Þórður var fremur lágvaxinn og þéttvaxinn án þess þó að vera feit- ur. Hann var laglegur og hýr í and- liti og bar sig jafnan vel. Hann var brúnamikill og fór vel. Úr augun- um, sem jafnan eru kölluð spegill sálarinnar, geislaði gleði og glettni og örlaði stundum á stríðnisglampa. Brosið var hýrt og mikið og lék brosið um allt andlitið þar sem aug- un léku stærsta hlutverkið. Þórður var félagslyndur og skemmti sér vel í góðum félagsskap. Var hann hlát- urmildur og skemmti sér oft manna best án þess að þurfa á aðstoð Bakkusar að halda, en vín setti hann sjaldan inn fyrir sínar varir. Eftirlifandi eiginkona Þórðar er Guðrún Jakobsdóttir sem dvelur nú á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi. Segja má að Þórður hafi rétt brugð- ið sér yfir lækinn til að ná sér í eig- inkonu, því Gunna, eins og Guðrún er jafnan kölluð, var alin upp í Ljótshólum, sem er rétt framan við Grund í dalnum. Gunna er greind kona og góð kona, er vel að sér um flesta hluti og hefur alveg einstaka tónlistarhæfileika. Hún er gædd þeim eiginleika að fólki líður vel í návist hennar og átti hún kannske hvað mestan þátt í því hversu gest- kvæmt var alla tíð á Grund. Þau hófu búskap á Grund í félagi við bróður Þórðar, Guðmund, og konu hans Guðrúnu Sigurjónsdótt- ur. Grund var síðan skipt í tvær jarðir, Guðmundur og Guðrún Sig- urjónsdóttir fluttu á syðri partinn og nefndu Syðri Grund en Þórður og Gunna bjuggu á Grund. Þórður hóf strax uppbyggingu á jörðinni þrátt fyrir erfiða tíma og nauman fjárhag. Hann stækkaði og endur- bætti íbúðarhúsið, byggði ný fjár- hús ásamt hlöðu og síðar nýtt fjós og fjóshlöðu og standa öll þessi hús enn og gegna vel sínu hlutverki. Þá þurrkaði hann landið og ræktaði mikið. Þeir bræður unnu það þrek- virki að virkja bæjarlækinn og raflýsa þannig báða bæina. Voru það fyrstu bæirnir í sveitinn sem „fengu“ rafmagn. Rafstöðin var byggð af mikilli vandvirkni sem sést af því að hún gengur enn. Þórður og Gunna voru samhent hjón og skópu heimili sem unun var að koma á og dvelja. Var þar jafnan glatt á hjalla og aldrei vantaði um- ræðuefni. Þórður hafði ákveðnar skoðanir á flestum málum, helst til ákveðnar á stundum, fannst mér. En fyrir vikið voru umræðurnar oft fjörlegar og skemmtilegar. Gest- risni þeirra hjóna var með eindæm- um og sjaldan kom sá dagur að ekki kæmu gestir að Grund. Var þeim þá jafnan boðið í eldhúsið, þar sem hjarta heimilisins slær. Ailir fundu sig jafn velkomna og engin leið var að komast hjá því að þiggja veiting- ar, sem ekki voru af skornum skammti. Það var sama hvernig á stóð og hversu mikið var að gera, alltaf var nægur tími til að sinna gestum, alltaf jafn sjálfsagt að þeir kæmu í bæinn til að þiggja veiting- ar og spjalla. Þórður hafði mjög gaman af hest- um og var alltaf vel ríðandi. Hann var óþreytandi að segja mér sögur af hestunum sínum eins og Faxa og Rauð sem hann mat mest þeirra allra. Hann var ungur þegar hann fór fyrst í göngur á Auðkúluheiði og fór eftir það flest ár í göngur fram yfir sjötugt. Var hann alltaf á sterk- um og liprum gangnahestum, enda eins gott fyrir kvíslaforingja, sem Þórður var lengst af. Þórður hafði gaman af að fara í göngur og entust honum gangnasögurnar jafnan nokkuð fram eftir vetri. Þórður hafði mikið yndi af ljóðlist og var ágætur hagyrðingur. Var hann næmur á hið spaugilega í til- verunni sem oft varð kveikjan að góðri vísu. Eru margar af vísum hans sannkölluð listasmíð. Hann hirti lítt um að færa vísur sínar í let- ur, fannst nóg að hafa þær í kollin- um, svo það hefur komið í hlut ann- arra að forða þeim frá gleymsku. Hann kunni ógrynnin öll af ljóðum. Fyrir honum var Davíð Stefánsson mestur allra ljóðskálda og kunni hann utan að meiri hlutann af ljóð- um Davíðs. Alltaf hafði hann á hraðbergi vísu eða ljóð sem féll að umræðuefninu hverju sinni. Af rit- höfundum unni hann mest Einari jón Ými, f. 13. júlí 1975, iðnfræð- ingur, sambýliskona hans er Sig- rún A. Þórsdóttir starfsmaður á leikskóla, f. 1. ágúst 1979.2) Valdís nuddfræðingur, giftist Jóhanni P. Jóhannssyni bifreiðarstjóra, f. 27. nóv. 1943. Þau skildu. Þau eiga tvo syni, sem eru Þórður Gunnar vél- stjóri, f. 29. sept. 1966, kvæntur Kristínu R. Stefánsdóttur, f. 4. maí 1967, þau eiga tvær dætur, Karenu Osk og Katrínu Ingu. Jóhann Ing- var bifreiðastjóri, f. 27. des. 1970, kvæntur Margréti Jóhannsdóttur, f. 6. jan. 1972, þau eiga tvö börn, Aron Inga og Hafdisi Rán. Áður átti Jóhann einn son Karl Alex- ander. 3) Ragnhildur húsmóðir, f. 12. nóv. 1951, gift Sigurði H. Pét- urssyni, héraðsdýralækni, f. 16. mars 1946. Þau eiga tvö börn Guð- rúnu Valdísi nema við HÍ, f. 24. mars 1976, sambýlismaður hennar er Jóhann Haukur Björasson, nemi við HÍ, f. 7. maí 1976, og Pét- ur Magnús nema við HÍ, f. 9. mars 1979. 4) Þorsteinn Trausti, starfs- maður við málmiðnað, f. 11. maí 1959, sambýliskona hans er Guð- rún Atladóttir, stuðningsfulltrúi, f. 9. nóv. 1951. Þórður var í Héraðsskólanum á Laugarvatni í tvo vetur 1934-36 og tók þar mikinn þátt í félags- störfum og var t.d. formaður skólafélagsins seinna árið. Hann tók mikinn þátt í félagsstörfum innansveitar og utan. Hann sat lengi í hreppsnefnd og sýslunefnd. Hann var lengi formaður skóla- nefndar, sóknarnefndar og búnað- arfélagsins. Hann var formaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og síðar heiðursfélagi kórsins. Hann var mörg ár í sýslunefnd og sat í miðstjóm Framsóknarflokks- ins um skeið. títför Þórðar fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Auðkúlukirkjugarði. H. Kvaran og taldi margar sögur hans vera betri en nokkur prédik- un. Þegar Þórður var að alast upp var ekki algengt að unglingar sæktu skóla um langan veg. Þórður var einn þeirra heppnu og var í Héraðsskólanum á Laugarvatni í tvo vetur. Taldi Þórður það hafa verið mikla gæfu fyrir sig að fá að njóta skólagöngu þar. Hélt hann mikið upp á Laugarvatn og margar sögur hefur hann sagt mér frá skólalífinu þar. Þar var lagður grunnur að félagsmálastörfum Þórðar seinna á lífsleiðinni, því seinni veturinn á Laugarvatni var hann formaður skólafélagsins. Þórður tók mikinn þátt í félags- málum bæði innan sveitar og utan. Hann var ungur kosinn í hrepps- nefnd, var lengi formaður skóla- nefndar, sóknarnefndar og búnað- arfélagsins. Þá var hann gjaldkeri sjúkrasamlagsins í sveitinni á með- an það starfaði, og fleira mætti til taka af innansveitarmálum. Hann var lengi í sýslunefnd og sat um skeið í miðstjórn Framsóknar- flokksins. Þórður var ágætur söngmaður og söng lengi tenór í Karlakór Ból- staðarhlíðarhrepps. Var hann lengi formaður kórsins og síðar heiðurs- félagi. Kórinn var honum mjög kær og lét hann fátt aftra sér frá því að mæta á æfingar. Sem formaður kórsins lagði hann mikinn metnað í það að kórnum vegnaði vel. Ég vil að lokum þakka Þórði fyrir að hafa verið mér góður tengdafað- ir og börnum okkar einstakur afi. Þótt Þórður sé farinn mun minning- in um hann lifa, hún mun aldrei hverfa okkur. Um Þórð má segja eins og segir í Hávamálum: deyr sjálfur it sama en orðstírr deyr aldregi hveim er sér góðan getur Far þú í friði, friður guðs sé með þér og hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurður H. Pétursson. Mig langar í fáum orðum að minnast afa míns, Þórðar á Grund. Ég var svo heppin að fá að alast upp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.