Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 52

Morgunblaðið - 18.08.2000, Síða 52
^2 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR , Brennureið og töðugjöld á Kaldármelum Brennureið og töðugjöld verða haldin á ^Kaldármelum laugardaginn 26. ágúst næst- komandi. Ásdís Haraldsdóttir spjallaði við Bjarna Frey hjá Utilífsmiðstöðinni í Húsa- felli sem skipuleggur brennureiðina og ætl- ar auk þess að standa fyrir Hestaþingi í Borgarnesi kvöldið áður. HESTAÞINGIÐ hefst kl. 17.30 á fóstudaginn 25. ágúst í Hótel Borg- arnesi. Að sögn Bjarna Freys munu Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma fjalla um markaðs- «tegt gildi heilbrigðis hrossa, Bjarni Maronsson, héraðsfulltrúi Land- græðslunnar, um gæðavottun landnýtingar, Ingimar Sveinsson, fyrrverandi kennari á Hvanneyri, um sérstöðu Islenska- hestsins og fulltrúi Hrossaræktarsambands Vesturlands fjallar um ræktunar- mál á Vesturlandi. Að loknum kvöld- verði mun Hrossaræktarsamband Vesturlands veita viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahross á svæðinu á þessu ári og velja hross- . aræktanda ársins á Vesturlandi. Brennureiðin og töðugjöld hefjast með því að hestamenn leggja af stað úr öllum áttum í átt að Kaldármel- um. Gert er ráð fyrir að allir mætist undir Fagraskógarfjalli um kl. 16á laugardag og þaðan verður riðið inn á mótssvæðið á Kaldármelum. Dagskráin hefst með setningarat- höfn kl. 18. Síðan verður grillað og á eftir verða kappreiðar og skemmti- atriði. Að þeim loknum verður verð- launaafhending fyrir kappreiðar og einnig gefst hestamannafélögunum á svæðinu tækifæri til að veita verð- laun fyrir framúrskarandi árangur. Um kl. 22 verður kveikt í bálkestin- um og klukkutíma síðar hefst dans- leikur. Bjarni Freyr segist vænta góðrar þátttöku í brennureiðinni og segir hann að reynt verði að gera alla um= gjörð hennar veglega. Meðal annars hefur verið smíðaður stór Tróju- hestur sem verður uppistaðan í bálkestinum. Boðið verður upp á beit fyrir hross í hólfum við Kaldármela. Einnig verður hægt að tjalda á svæðinu. Ráðstefnugjald á Hestaþingi verður 1.000 kr., en aðgangseyrir á Brennureið og töðugjöld verður 2000 kr.fyrir 14 ára og eldri. Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar um viðburðinn á heima- síðu Útilífsmiðstöðvarinnar og í síma 435-1550 en miðar verða seldir í Ástund í Reykjavík og Upplýsinga- miðstöð ferðamála í Borgarnesi. Morgunblaðið/Valdtaar Kristinsson V ordís frá Sandhólaferju hefur á 30 árum skilað þrettán afkvæmum og þar af hafa átta þeirra hlotið 1. verðlaun í kynbótadómi, Einar Ellertsson, eigandi Vordísar og Adams, situr Vordísi lengst til vinstri á landsmótinu 1994 þegar hún hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Adam frá Meðal- felli felldur ásamt móður sinni STÓÐHESTURINN kunni Adam frá Meðalfelli var fyrr í vikunni felldur tuttugu og eins vetra gamall ásamt móður sinni Vordísi frá Sand- hólaferju og voru þau grafm saman. Með þeim eru horfin af sjónar- sviðinu kynbótahross sem sett hafa mark sitt á íslenska hrossarækt síð- ustu tvo áratugina. Adam var einn af mörgum sonum Hrafns frá Holts- múla en hann vakti fyrst athygli á sýningu stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti 1983 þá fjögurra vetra er hann stóð efstur með 7,90 fyrir sköpulag og 8,35 fyrir hæfíleika, í aðaleinkunn hlaut hann 8,13. Var hann fyrsti fjögurra vetra stóðhest- urinn á stöðinni sem hlaut 1. verð- laun. Árið eftir hlaut hann 7,83 fyrir sköpulag og 8,65 fyrir hæfileika og ,24 í aðaleinkunn. LÍFRÆN UPPSKERUHÁTÍÐ LIFANDI TÓNLIST í dag föstudaginn 18. ágúst á torginu fyrir framan Kárastíg 1. • Bændur sem rækta lífrænt mæta sjálfir á staðinn og selja afurðir sínar. • Úrval af bragðgóðu lífrænt ræktuðu grænmeti og ávöxtum • Jónas Þórir og hljóðfæraverslunin Rín ehf sjá um ýmsar tónlistaruppákomur milli kl. 16.00 og 19.00. Yggdrasill, Akur, Laugarási, Hæðarendi, Grímsnesi, Skaftholt, Gnúpverjahreppi, Sólheimar, Grímsnesi, Brauðhúsið, Grimsbæ. Komið og sannfærist um gæði lífrænt ræktaðra afurða. Yggdrasill sérverslun með lífrænt ræktaðar afurðir, Kárastíg 1. Veðreiðar Fáks hefjast á ný FYRSTU kappreiðar hesta- mannafélagsins Fáks fóru fram í Víðidal í gær. Af óviðráðanleg- um orsökum var ekki hægt að sjónvarpa þeim í þetta sinn og ekki hægt að veðja á hestana af þeim sökum.Að sögn Þórðar Ól- afssonar stjórnarmanns í Fáki hefur verið samið við sjónvarps- stöðina Sýn um að senda út veð- reiðar Fáks á fimmtudögum út ágúst og í september. Veðreið- arnar verða haldnar í alls sex skipti, en ekki tókst að sjón- varpa þeim fyrstu sem fram fóru í gærkveldi. Sjónvarpað verður frá veðreiðunum fimm næstu fimmtudaga og hefjast þær um klukkan 17.30. Þá verð- ur jafnframt hægt að veðja á hesta í hlaupunum ýmist á staðnum, í gegnum heimasíðu íslenskrar getspár á netinu eða með WAP símum. Keppt verður í 800 og 350 m stökki og 150 og 250 m skeiði. Þórður sagði að áhugi væri greinilega mjög mikill á þessum kappreiðum. Aðeins var hægt að skrá hross í einn dag, þ.e. sl. mánudag, og voru skráð hátt í 60 hross fyrir kappreiðarnar í gær. Þórður sagði það lofa góðu um framhaldið. Þátttaka hefur verið mjög góð í þessum síðsum- arkappreiðum og áhugi almenn- ings mikill. Hann sagði að alltaf væri nokkuð um að áhorfendur kæmu á staðinn til að fylgjast með, en margir telja mun betra að fylgjast með í sjónvarpi. Þótt ekki hafi Þórði fundist mikið veðjað í fyrra hafi það þó aukist á milli ára þessi ár frá því að veðreiðarnar hófust á ný. Hann sagðist halda að veðreiðar Fáks hafi orðið mikil lyftistöng fyrir kappreiðar um allt land. Milli manns og hests... ... er # nsTuno arhnakkur flSTuno FREMSTIR FYRIR GÆÐI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.