Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 60

Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR í DAG Danskir dagar í Stykkishólmi DANSKIR dagar verða haldnir í Stykkishólmi 17.-20. ágúst en þetta er í 7. sinn sem þeir eru haldnir. Eins og áður er dagskráin fjöl- breytt, heimamenn sjálfir leggja til megnið af viðburðum hátíðarinnar, en fá einnig til liðs við sig nokkra þjóðkunna listamenn. Dagskráin hófst í gær, fimmtu- daginn 17. ágúst í Stykkishólms- kirkju með tónleikum Jóseps Ó. Blöndals og félögum hans. í dag, föstudag, verður furðufata- gangá kl. 14:30. Trúðar, leikir, grín og gaman. Hátíðin sett, fánar dregn- ir að húni. Firmakeppni Hesteig- endafélags Sth. Börn fá að fara á hestbak. Sund-diskó í sundlauginni. Grillveisla og brekkusöngur Lions- manna. Viðurkenning fyrir fegursta garðinn. Bryggjuball, hljómsveitin Gos leikur. Flugeldasýning í boði Borgarverks ehf. Pétur Kristjáns- son og gargið á Knudsen. Dáta- dinner og Eyjólfur Kristjáns með Sæferðum. Pálmi Sigurhjartarson í Narfeyrarstofu. Á laugardag verður golímót í létt- um dúr í umsjón GMS kl. 10. Rat- leikur Lionsklúbbsins. Flesk og fríkadellur með Sæferðum. Mark- aðstjald, sölu- og kynningarbásar. Súkkulaði- og vöfflusala Lions- klúbbsins Hörpu. Götuleikhús, tón- list, dans. Spákona. „Aksjón Lions- klúbbs Stykkishólms. Knattspyma: Meistaraflokkur HSH-Fjölnir. Go- kart-bílakeppni 13 ára og eldri. Sæþotur við Skipavíkurhöfn. Úti- dansleikur - hljómsveitir á öllum aldri - m.a. táningahljómsveit Is- lands 1971 og Gos. Skemmtun og dansleikur á Fosshóteli. Hljómsveit- imar Egon & Eyþór og Stykk. Pét- ur Kristjánsson og gargið á Knud- sen. Konunglegur kvöldverður og Hafsteinn Sigurðsson með Sæferð- um. Hirðsveinarnir í Narfeyrar- stofu. Á sunnudag verður gönguferð með leiðsögn. Reiðhjólarallý á þrautabraut. íslensk/dönsk messa í gömlu kirkjunni. Héraðsmót HSH í knattspymu 8-15 ára. Sæþotur við Skipavíkurhöfn. Go-kart-bílar og góðakstur. Sprautuboltakeppni. Markaðstjald, sölu- og kynningar- básar. Súkkulaði- og vöfflusala Lionsklúbbsins Hörpu. Spákona. Tónleikar í Stykkishólmskirkju: Guitar Islancio. Alla dagana verður danskt hlaðborð á Fosshóteli Stykk- ishólmi, danskur matseðill á Knud- sen., danskt bakkelsi í Brauðgerðar- húsi Stykkishólms, List- og sögusýning í Norska húsinu. Listsýning ungra listamanna í X- inu. Gallerí Lundi opið. Eyjasigling- ar með Sæferðum og skemmtibáti Farfuglaheimilisins. Latabæjar- leikar á Flúðum SÍÐUSTU Latabæjarleikar sumarsins verða haldnir á Flúðum laugardaginn 19. ágúst. Þetta era 10. leikarair í sumar og sem fyrr verður mik- ið um að vera og margt í boði fyrir krakka 1-12 ára. Dagskráin á laugardaginn er eftirfarandi: Kl. 11 golf- þrautir og æfingar á golfvellin- um á Flúðum. Kl. 14 Latabæj- arleikarnir, leikir og þrautir við hliðina á íþróttahúsinu og í sundlauginni. Kl. 17 bamaball, persómn- úr Latabæ syngja og dansa með bömunum, hljóm- sveitin Þotuliðið spilar undir. Aðgangur er ókeypis og eiga krakkar að mæta í fötum sem mega skitna út. Elsti hópur- inn, 11-12 ára, mæti með sund- föt. Nemendamót Steinsstaða- skóla Á ÞESSU ári era liðin 100 ár frá fæðingu Hersilíu Sveinsdóttur frá Mælifellsá sem lengst af starfsævi sinnar var skólastjóri Steinsstaða- skóla í Skagafirði. Af því tilefni ætla nemendur hennar að hittast og gleðjast á Árgarði laugardaginn 26. ágúst nk. og sýna minningu hennar virðingar- og þakklætisvott, segir í fréttatilkynningu. Þátttaka tilkynnist Ferðaþjón- ustu Steinsstaðaskóla sem fyrst, einnig er hægt að panta gistingu á sama stað. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Stórkostleg stund á kristnihátíð ÉG og fjölskylda mín tók- um þátt í kristnihátíðinni á Þingvöllum í júlí sl., báða dagana. Við vorum afar ánægð. Allt dagskrárefni var svo vandað. Uppúr stóð hátíðarmessan og þótti mér það stórkostlega stund. Og þegar allir fóru saman með trúarjátninguna og það hljómaði um svæðið: „Ég trúi á guð föður almáttugan skapara himins og jarðar" var eins og Jesús Kristur væri sjálfur mitt á meðal okkar, sýnilegur. Þarna var stórkostlega nærvera hans sem aldrei gleymist. Við hefðum alls ekki viljað missa af þessu og fjöl- skylda mín minnist þessara daga með gleði. Mig langar til að þakka kristnitöku- nefnd fyrir vel skipulagða dagskrá. Halldóra Ásgeirsdóttir, Hrfsmóum 1, Garðabæ. Vinkonu leitað MOÐIR min, Ingeborg Pederson, fædd Nýgaard Kristensen, 80 ára gömul, kemur til Islands í viku frí 26. ágúst nk. Hún leitar að vinkonu sinni, Sigríði Sveinbjamardóttur, en 1944-46 voru þær saman í hjúkrunarskóla. í síðasta bréfi sem móðir mín fékk frá henni var hún komin aftur til Islands og í júní 1948 bjó hún á Frakkastíg 15, Reykjavík. Á þessum tíma átti Sigríður dóttur, Lilju, sem þá var 15 mán- aða. Ef einhver gæti að- stoðað móður mína við að komast í samband við Sig- ríði þá er heimilisfangið: Ingeborg Nygaard Pedersen, Tousparken 12 st.th. 8230 Ábyhoj, Danmark - eða í síma: 0045-86-255610. Einnig má skrifa í tölvu- póst: haugaard@ maill.stofanet.dk Inge-Lise Haugaard. Myndir af ökuníðingum ÞEGAR þessi alvarlegu umferðarslys verða þá eru birtar myndir af fómarlöm- bunum en mér finnst nóg að sjá sh'kar myndir og dánartilkynningar í blöðun- um. Ég vil snúa þessu við og fá myndir birtar af öku- mðingum sem aka of hratt. Finnst mér rosalegt að menn skuli jafnvel keyra á yfir 160 km hraða eftir þessu miklu slys. Gömul kona. Tapað/fundið Kajak-ár tapaðist ANNAR hluti tvískiptrar kajak-árar tapaðist af bíl á veginum úr Hvalfjarðar- botni til Reykjavíkur að kvöldi 15.8. Árin er svört, úr arðplasti með málm- enda. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 553-1238 eða 863-5381. Giftingarhringur í óskilum GIFTINGARHRINGUR fannst fyrir utan bensín- stöð í Hafnarfirði sl. mivðikudag. Inn í hann er grafið Stella. Upplýsingar í síma 567-0161. Hrakfarir ungs drengs MIG langar til að segja ykkur frá hrakforum sonar míns í sumar. j júnílok fór hann í sund í Árbæjarlaug- ina og þar var skónum hans stolið, nýjum skóm frá versluninni Smash. Þeir voru merktir með nafni og síma en ekki var þeim skil- að. Nokkrum dögum síðar var handklæðinu hans stol- ið þrátt fyrir að handklæðið var merkt með stórum stöf- um með nafninu hans. En í gær 15. ágúst glat- aði hann GSM-símanum sínmn, Nokia 3210, í svörtu leðurhulstri. Sonur minn er bara þrettán ára og hann hafði safnað fyrir símanum sjálfur á löngum tíma. Hann var á leið heim með SVR leið 6, frá Skelja- granda að Lækjargötu, hann gekk upp Laugaveg- inn að Hlemmi, á þessari leið hefur síminn dottið upp úr hliðarhólfi á sundtösku sem hann var með. Eins og nærri má geta er sonur minn alveg niðurbrotinn vegna missisins, ef einhver heiðarlegur og góðhjartað- ur finnur símann er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 861-9599. Fundarlaunum heitið. Svart fjallahjól týndist SVART Mongoose-fjalla- hjól hvarf frá Brávallagötu um verslunarmannahelg- ina. Finnandi vinsamlega hringi í síma 552-9338. Dýrahald BANGSI er 3ja ára gul- bröndóttur geltur kisi. Hann hvarf að heiman úr Setbergshverfi, Hafnar- firði, föstudaginn 11. ágúst. Hann er merktur með blárri ól og nafnspjaldi. Bangsi er afskaplega gæf- ur og mannelskur og svarar kalli. Þar sem hann er afar forvitinn gæti hann hafa farið einhvers staðar inn í bílskúr og lokast inni. Hann hefur líka bíladellu og gæti hafa borist eitthvað með bíl. Ef einhver veit Um af- drif Bangs væru allar upp- lýsingar vel þegnar því hans er sárt saknað. Okkur er að finna í símum 565- 3690,896-3568 og 551-1980. SKAK Umsjón Ilelgi Áss Crélarsson STAÐAN kom upp í Mipap mótinu í Olomouc er lauk fyrir skömmu. Hvítt hafði tékkneska skákkonan Lenka Ptacníková (2232) gegn stöllu sinni frá Spáni, Mon- iku Calzettu (2282). 38. Rf5! Dxe3 39. Rxe3 Bf3 40. Rxc4 Bxdl 41. Hxdl bxc4 42. b5 Re6 43. b6 og svart- ur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Dav- id Navara (2433) 8 Vz v. 2.-3. Radek Sluka (2302) og Lenka Ptacníková (2232) 7 '/> v. 4. Richard Biolek (2420) 6 V4 v. 5. Dimitry Schneider (2382) 6 v. 6.-8. Petr Bazant yngri (2274), Eduard Hagara (2373) og Bemd Rechel (2402) 5 v. 9.-11. A. Czerwonski (2375), Lúkas Cemousek (2259) og Mon- ika Calzetta (2282) 4 v. 12. John Nicholson (2204) 3 v. Borgarskákmótið verð- ur haldið í dag, 18. ágúst, í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15:00. Tefldar verðar 7 um- ferðir með 7 mínútna um- hugsunartíma. Aðgangur og þátttaka er ókeypis! Vflkverji skrifar... XXX VÍKVERJI kvartaði yfir því í lið- inni viku að Breiðvarpið næðist ekki í götunni þar sem hann býr og Landssíminn hefði af einhverjum ástæðum ekki hug á að ráða bót á því ástandi. Af þessu tilefni barst honum eftirfarandi bréf frá Sigurði Þór Salvarssyni á Akureyri: „Vegna skrifa Víkveija í blaðinu í dag (11.8.) um Breiðvarp Landsím- ans og óánægju með að Breiðvarpið skuli ekki nást í öllum hverfum höf- uðborgarinnar, vil ég bara benda á að þetta ágæta Breiðvarp næst hvergi á landinu nema á höfuðborg- arsvæðinu ef Húsavíkurkaupstaður er undanskilinn. Og Víkverji spyr hvort fólk í Hlíðunum sé ekki talið jafn mikilvægt og fólk á Melunum og þurfi þess vegna ekki Breiðvarp. Áð sama skapi mætti þá spyrja hvort fólk á landsbyggðinni sé ekki talið jafn mikilvægt og obbinn af íbúum höfuðborgarsvæðisins, því mér vitanlega era mörg ár þar til íbúar landsbyggðarinnar geta gert sér vonir um að njóta þjónustu Breiðbands Landssímans." Víkverji dagsins er afhjúpaður sem fáfróður um Breiðbandsmálin úti á landi og hefði betur kynnt sér þau áður en hann fór að tjá sig um eigin vanda. En eftir stendur að hann og Sigurður Þór vita jafn lítið um forsendur Landssímans fyrir því að bjóða sumum íbúum landsins þessa þjónustu en ekki öðram. Hverjar ætli þær séu? VÍKVERJI er fyrrverandi reyk- ingamaður og eins og aðrir slíkir gamlir syndarar, fullur hneykslunar gagnvart þessum minnihlutahópi. Honum finnst það fagnaðarefni að sífellt færri íslend- ingar skuli eitra fyrir sjálfa sig með þessum öragga en seinvirka hætti. Hann verður samt að viðurkenna að stöku sinnum er of langt gengið. Á sumum vinnustöðum virðast menn gleyma öllu tilliti til þeirra sem vilja fá að stunda sína heimsku án af- skipta annarra. Ef þeir gera það án þess að dæla reyknum rakleitt niður í lungun á Víkverja og öðram er vafalaust ekki skynsamlegt að refsa þeim með öðru en háðsglósum. Ef við hin gengjum lengra og skipuðum þeim að greiða meira til heilsugæslukerfisins en reyklausum gæti reikningsdæmið orðið flókið. Þeir benda okkur þá á að megnið af kostnaði kerfisins hlýst af umönnun aldraðra og lyfjum fyrir þá. En vegna óhollustunnar lifa reykinga- menn að jafnaði skemur en við og valda þess vegna minni útgjöldum þegar upp er staðið. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin legg- ur til að tóbaksverð sé hækkað, það sé einfaldasta leiðin til að draga úr neyslunni. En undarlegt er að ein af ástæðum þess að fjármálaráðherra er illa við að hækka skatta á tóbak til að draga úr notkuninni er að þá hækkar vísitalan! Víkverja finnst að sé þetta þröskuldurinn hljóti að vera kominn tími til að ræða við þá sem reikna út vísitöluna. Varla er það gert af öflum sem era utan við valdsvið okkar manna. XXX NÝ hætta vofir nú yfir eða það óttast Víkverji að minnsta kosti. Hann sá að breskt dagblað fjallaði um niðurstöður vísinda- manna hjá Islenskri erfðagreiningu. Þeir hafa rannsakað erfðaefnið í okkur og segja að það gefi til kynna að flestir karlar sem námu hér land til foma hafi komið frá hinum Norð- urlöndunum. Konurnar hafi hins vegar skipst nokkuð jafnt, önnur hver þeirra hafi verið frá Bretlands- eyjum. Blaðið veltir því upp hvort víkingamir hafi rænt breskum kon- um eða fengið þær til að koma með sér af fúsum og frjálsum vilja. Vonandi nægir að við karlar biðj- um afkomendur bresku formæðr- anna afsökunar á þessu athæfi og bendum á að forfeðurnir hafi nú ver- ið hálfgerðir villimenn og fátt vitað um mannréttindi. Hitt væri verra ef þær færu í mál og heimtuðu skaða- bætur fyrir hönd landnámskvenn- anna þótt langt sé um liðið. Hver veit hvað lögfræðingar geta fundið af röksemdum ef þeir halda að von sé um að vinna málið?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.