Morgunblaðið - 18.08.2000, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 18.08.2000, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Þjóðlaga- og heimstónlistarhátíðin í Falun í sænsku Dölunum FIMMTÁNDA þjóðlaga- og heims- tónlistarhátíðin Falun folkmusik festival var haldin dagana 12.-15. júh' sl. í Falun sem Uggur um það bil 250 kílómetra norð-vestur af Stokkhólmi. Hátíðin er sú stærsta sinnar tegund- ar í Skandinavíu og var nú sótt heim af um 25 þúsund gestum. Líkt og til stóð var hátíðin vel heppnað stefnu- mót fjölbreytilegra tónlistarafbrigða og fólks af margvíslegum toga. Þótt mikið hafi breyst á þeim 15 árum sem liðin eru síðan hátíðinni var hleypt af stokkunum með htlum efnum en miklum vilja virðist hátíðin enn búa yfm sjaldséðum töfrum. Þar rúmast hlið við hlið margar kynslóðir og mörg tónlistarafbrigði, sem samein- ast í þeim góða ásetningi að skapa eina heild og stemmningu sem gerir margvísleg stefnumót kleif. Hátíðin á rætur sínar að rekja til skandinavískrar þjóðlagahefðar. Þótt heyra megi tónhst frá öllum heimsins homum á hátíðinni, og oft samtímis af einhverju af þremur helstu sviðum hátíðarinnar, þá er það samt tónn sænskrar þjóðlagatónlistar sem óm- ar í gegnum allan fjölbreytileikann. Það er sá tónn sem er hinn berandi tónn hátíðarinnar. Fjölbreytt hátíð Hátíðin í ár var mjög fjölbreytt að vanda. Fjölbreytileikinn hefur farið vaxandi með hverju árinu. En kjam- inn er enn sá hinn sami þótt umgjörð- in hafi vaxið og þanist út til alls heimsins. Kjarninn er og hefur verið Laugardag 19. ágúst kl. 15.00 Afmælisboð Hlaðvarpans og síðan Fínar í Grófinni - fjör á menningarnótt fram á nótt! Miðvikudag 23. ágúst 4tet tónleikar kl. xi.oo — jasskvartett frá Hollandi. MIÐASALA í síma 551 9055 ísi i:\sk \ oim is w Sími 511 4201) ÉUdSídJw jJ Gamanleikrit I leikstjórn Siguróar Sigurjónssonar lau 26/8 kl. 20 fös 1/9 kl. 20 Miðasölusími 551 1475 Miðasala opin kl. 15—19 mán—lau. og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir frá kl. 10. I.EIKFÉLAG ÍSt.ANDS 552-3000 THRILLER sýnt af NFVÍ fös. 18/8 kl. 20.00. UPPSELT lau. 26/8 kl. 20.00. örfi sæti laus Síðustu sýningar 530 3030 JON GNARR. Eg var einu sinni nörd fös. 25/8 kl. 20 lau. 2/9 kl. 20 Miðasalan er opin I Loftkastalanum og Iðnó frá kl. 11-17. A báðum stöðum er opið fram að sýningu sýningarkvöld og gm helgar þegar sýning er. Miðar óskast sóttir I víðkomandi leikhús. (Loftkastalinn/lðnó). Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu. Tónlist og gleði í fjóra daga Sænska tónlistarhátíðin í Falun hefur stækkað með hverju árinu sem hún er haldin og þykir nú orðin sú virtasta sinnar tegundar á Norðurlöndum. Guðni Rúnar Agnarsson hefur fylgst með henni í gegnum tíðina og gefur innsýn í hvernig er að upplifa öðruvísi hátíð en hina hefðbundnu rokkhátíð. Papa Wendo, 75 ára öldungur sem lætur hvergi á sjá. Hápunktur hátiðarinnar Frifot; Lena Willemark, Per Gudmundsson og Ale Möller. sænsk þjóðlaga- og þjóðdansahefð. Sjálft hátíðarsvæðið er ekki ýkja stórt. Það leggur vissulega undir sig torgin tvö í miðbæ Falun og garðinn í námunda þeirra, en allt rúmast samt eins og í lófa manns. Maður er fljótur að átta sig á því hvar hvað er og hvaða tónlist eða stemmning er ríkj- andi á hveijum stað. Og í þessum sama lófa rúmast svo mörg þúsund manna án troðnings og þrengsla. Hátíðin er engu að síður umfangs- mikil. Við hana starfa þessa daga um 400 manns, flestir sjálfboðaliðar. Há- tíðin leggur undir sig að meira eða minna leyti allt borgarlífið í þessum 35 þúsund manna bæ þessa hátíðar- daga. Öll hótelin eru yfirfull af tón- listarmönnum, hvarvetna á götum úti er leikin lifandi tónlist, af börnum, unglingum eða fullorðnu fólki, flest- um aðkomnum til að vera með á há- tíðinni á einn eða annan hátt. Tónlist- in er þannig ekki lokuð við hátíðarsvæðið eitt, tónleikar eru í kirkjum, á söfnum, í tónleikasölum og á götum úti. Bærinn iðar af tónist. Það gefur hvarvetna að heyra tónlist. Einnig á tjaldstæðunum. Það sem einkennir þessa tónlist sem heyrist í Falun þessa daga er að hún reynir ekki að yfirgnæfa aðra tónlist. Hér gildir það ekM að spila sem hæst og heyrast sem mest. Tónlistin sem hér er flutt er lágstemmd og kallar á allt aðra hlustun en til dæmis rokktónlist. Tónlistin nær þarna sínu markmiði að sameina fólk og skapa hugljúfa stemmningu og það er sjaldgæft að hún nái slíku marki hér í Norðurálfu - og svo oft og svo lengi. Stemmning- in kallar á gleði og það var gleði sem ríkti á hátíðinni, einnig þetta árið, þrátt fyrir rigningu fyrstu þrjá dag- ana og þar af úrhelli stundum. Hátíð fólksins Ölvun var lítt áberandi. Á götunum og fyrir framan sviðin gat hvoru- tveggja að líta unglinga og öldunga sem virtust jafn staðráðnir í ásetningi sínum að njóta tónlistarinnar og skemmta sér þótt tjáningin væri mis- munandi. Hátíðin var jafnt hátíð þjóðlaga- og heimstónlistarinnar, sem og hátíð fólksins. Fólkið naut og skemmti sér saman. Hátíðin virtist ná því markmiði sínu að endurspegla tónlist sem er leitandi og endumýj- andi, jafnframt því að bjóða upp á tónlist sem höfðar til stundarinnar, sem kallar á dansinn, þjóðdansa, jafnt sem magadans og tango. Hátíð- inni virtist takast að axla það erfiða hlutverk að vera í senn bæði nýskap- ari, vettvangur tilrauna og þreifinga, og vera burðarásinn í gróinni þjóð- dansatónlist og jafnframt að bjóða upp á fyrsta flokks hágæða afþrey- ingartónlist á sviði heimstónlistar. Markið var hátt sett og ekki bar á öðru en að það næðist. Sýnt í Tjarnarbíói Sýningar hefjast kl. 20.30 i kvöld fös. 18/8 ðrfá sæti laus fös. 25/8 lau. 26/8 Miðapantanir í síma 561 0280. MiðasölusNTH er opinn alia daga kl. 12-19. Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús. Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn. Falun-tónlistarhátíðin hefur haft óhemju mikla þýðingu íyrir sænska tónlist, ekki aðeins íyrir þann menn- ingargeira sem lýtur að sænskum þjóðlögum. Áhrifin skríða langt yfir mörk þjóðlaga- og heimstónlistarinn- ar. Frá hátíðinni streyma áhrif til allra geira sænskrar tónlistar. Hátiðin hefur breyst En ekki eru samt allir á einu máli um ágæti þeirrar þróunar sem á Fal- un folkmusik festival hefur orðið. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að því að til hátíðarinnar hafa á síðustu árum verið fengnir listamenn sem ekki geta kallast flytja þjóðlagatón- list og varla einu sinni heimstónlist. Um hefur verið að ræða aðsópsmikla tónlistarmenn sem búast má fyrir- fram við að dragi að fjölda manns. Gagnrýnendurnir meina að þama sé verið að draga að fleira fólk til Falun en ástæða er til og það sé verið að umbreyta hátíðinni í sams konar fyr- irbæri og rokkhátíðimar sem fyrst og fremst fjalla um það að lokka til sín fólk. Við þetta breytist stemningin, hávaðastyrkur tónlistarinnar eykst, þrengslin verða meiri og hið fín- stemmda hörfar undan. Kannski er eitthvað til í þessari gagnrýni, því vissulega hefur margt breyst með auknum umsvifum og auðvitað er hægt að setja visst spum- ingarmerki við hvaða erindi lista- menn á borð við Eric Gadd, Billy Bragg og Gipsyland eigi á hátíð innan um sænska fiðluleikara sem bera áfram hefð sænsku þjóðdansanna. Þar kann sitt að sýnast hverjum. Sjálfur naut ég þess að heyra gamla pönkarann Billy Bragg ausa úr branni enska þjóðlagarokksins og Gipsyland vom ekki síðri en Gipsy- kings, frábærir að dansa eftir. En eins og Hans Hjörth, helsti for- sprakki hátíðarinnar, sagði: „Hátíð- inni er ætlað að endurspegla fjöl- breytileikann. Hver og einn getur valið eftir eigin hentugleika saman þær einingar sem hentar og búið sér til sína eigin hátíð sem passar." Og vissulega er það hægt, því úr nægu er að velja. Úr meir en 50 skipulögðum tónlistaratriðum á sjálfri hátíðinni, fyrir utan allt annað sem skaut hér og hvar upp kollinum og sem í sumum tilvikum var með því eftirminnilegasta. Hápunktarnir Ef ég ætti að nefna nokkur eftir- minnileg atriði þá er fyrst að telja hljómsveit Papa Wendos frá Kongó. Þrátt fyrir árin 75 er enga hrömun að finna hjá Papa Wendo, ramban er óaðfmnanleg, útgeislunin er sterk. Röddin er líka furðu kraftmikil og all- ar hreyfingar hans á sviði em glæsi- legar og bera vott um fágun og stfl. Þá varð ég orðlaus yfir snilli þeirra félaga Martin Hayes og Dennis Ca- hill. Þvílíkui' töframaður Martin Hayes var með fiðluna sína. Það er ekki einlefldð hvemig þeir blanda og þræða saman írskum rælum og jigg- um í langar og unaðslegar svítur. Mörgum á óvart kom hin óþekkta hljómsveit Filska frá Hjaltlandseyj- um. Og sömuleiðis hin nokkuð þekkt- ari Ekova frá Frakklandi. En líklega vom mínar mestu ánægjustundir á hátíðinni tengdar Ale Möller. Hann er óhemju fjölhæf- ur tónlistarmaður, einn helsti lykil- maðm- sænskrar þjóðlagatónlistar og einn helsti lykilmaður tónlistarhátíð- arinnar í Falun. Á honum hvfldi hvorki meira né minna en að halda utan um alla tónlistina sem fram fór í heimstónlistartjaldinu 2-3 klukku- tíma á hverju kvöldi. Hann hafði þar í liði með sér úrvalssveit sænskra tónl- istarmanna og síðan var gestum héð_- an og þaðan boðið til að spila með. Á sviðinu var því alltaf fjöldi manns, tónlistarmenn hvaðanæva úr heimin- um, þótt sami kjaminn væri alltaf til staðar, með Ale Möller í fararbroddi. Tónlistin tók breytingum eftir því hver eða hverjir gestimir vom hverju sinni, þar hljómuðu á sama kvöldi, af sama sviði með svo að segja sömu hljómsveit mörg mismunandi tónlist- arafbrigði. Eitt sinn var það suður- ríkjablús þegai’ blúshetjan Louisiana Red steig á svið og dreif hijómsveit- ina með sér. Þá vom einnig á sviðinu, auk sænska kjarnans, meðlimir úr frönsku hljómsveitinni Ekova og blúsuðu með. Rétt áður hafði stór- hljómsveitin fylgt þeim í tónlistar- ferðalag um allan hinn fransk-arab- íska tónlistarheim þaðan sem ofnar vora saman ólíkar laglínur og taktar við hina sænsk-norrænu músíkhefð. Og þannig var það kvöld eftir kvöld í heimstónlistartjaldinu. Stundum var bræðingurinn tregur á að renna sam- an en oftar en ekki small allt saman og tjaldið iðaði af tónlistarstraumum sem vom að skapast og koma fram einmitt þá stundina. Nokkuð í sama anda og þetta fram- tak Ale Möllers vom tónleikar Global Vocal Meeting. Þar lágu vissulega að baki langar æfingar þannig að svig- rúmið fyrir spunann og hið óvænta var ekki svo mikið. í Global Vocal Meeting vom saman komnir söngv- arar og tónlistarmenn frá ólíkum tónlistarheimum, frá Indlandi, Malí, Madagaskar, Bandaríkjunum, Ung- veijalandi og Sviss og fundu sameig- inlegan farveg fyrir tónlist sem þau sköpuðu saman. Þeir spiluðu einnig hvert fyrir sig sína tónlist, en hápun- kturinn var samt þegar þau tóku saman höndum og fluttu tónlist sem gat jafn mikið átt heima í Malí sem Sviss, eða á Indlandi og meðal síg- auna í Ungverjalandi. Frábært. Þess má að lokum geta að Rflds- útvarpið Rás 1 var á hátíðinni og mun u.þ.b. tíu tónleikum þaðan verða út- varpað í vetur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.