Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ _____________UMRÆÐAN Heilbrigðismál eru kjaramál Útgjöld til heilbrigðismála á hvem íbúa $4.178 Útgjöld í Bandaríkjadollurum AF HÁLFU BSRB hefur jafnan verið lögð mjög þung áhersla á mikilvægi þess að styrkja velferðarþjón- ustuna. Á það hefur verið bent að vel rekin velferðarþjónusta sé /orsenda fyrir réttlátu samfélagi og skipti það miklu í kjaralegu tilliti að vel takist til um uppbyggingu hennar. Fari svo að gerðar verði kerfisbreytingar í átt til einkavæðingar til dæmis innan heil- brigðisþjónustunnar eins og margir fjár- málamenn hafa gert kröfu um mun það tvímælalaust leiða til aukinnar gjaldtöku og þar með kjararýrnun- ar hjá þeim sem á þessari þjónustu þurfa að halda. En að öðrum þátt- um er einnig að hyggja. Fyrir skattborgarann skiptir það sköpum að velferðarþjónustan sé rekin á iiagkvæman hátt. Heilbrigðismál eru því kjaramál hvernig sem á málin er litið. I ljósi þessa er vert að gaumgæfa nýútkomna skýrslu frá OECD, Efnahags- og framfarastofnuninni. Þar er að finna mjög athyglisverðan samanburð á útgjöldum til heilbrigðismála í fjölda aðildarrikja OECD. Niðurstöðurnar koma heim og saman við niðurstöður fyrri ára sem jafnan hafa sýnt að útgjöld í bandaríska heilbrigðiskerfinu eru ,Jilutfallslega miklu meiri en annars staðar eða um 15% af landsframleiðslu mið- að við um 10% á Norð- urlöndunum. Ef þess- ar stærðir eru skoðaðar í dollurum og krónum kemur í ljós að tilkostnaðurinn er helmingi meiri í Bandaríkjunum en annars staðar. Þetta kemur fram á með- fylgjandi töflu úr ný- útkominni skýrslu OECD. Einkarekið kerfí dýrt, dhagkvæmt og ranglátt Að sjálfsögðu liggur næst við að spyrja hvort Bandaríkjamenn séu ekki einmitt öfundsverðir af því hve mikið fé rennur til heilbrigðisþjón- ustunnar. Svo væri vissulega ef fjármunirnir nýttust vel. Sú er ekki raunin. Þannig gleypa trygginga- félögin upp óheyrilegar fjársummur og að sjálfsögðu heimta hlutabréfa- eigendur sitt. í mjög fróðlegri grein sem Kristján G. Amgrímsson blaðamaður skrifar í Morgunblaðið í apríl síðastliðnum um rannsóknar- skýrslu sem Parkland-stofnunin við háskólann í Alberta gerði á heil- brigðiskerfinu kom fram að algengt væri að fjárfestar við einkareknar heilbrigðisstofnanir gerðu mjög há- ar kröfur um hagnað og voru 15% nefnd í því sambandi. Þetta gefur vísbendingu um stærðagráðurnar í því fjármagni sem út úr kerfinu Kjaramál Aí hálfu launafóks hefur BSRB beitt sér af alefli, segir Ögmundur Jónas- son, til varnar og sóknar velferðarþj ónustunni. rennur í vasa handhafa hlutabréf- anna. Og hvað tryggingafélögin áhrærir má meðal annars vitna í skýrslu sem bandaríska ríkisbók- haldið (US Generai Accounting Of- fice) gerði og greint var frá í októ- berhefti Newsweek árið 1993 en þar kemur fram það álit að spara mætti þijá milljarða dollara á ári hverju með því að láta eitt opinbert trygg- ingakerfi annast greiðslur í stað þess að þær væru á hendi mörg hundruð tryggingafyrirtækja. Þetta lýtur einvörðungu að skrifstofuhald- inu og er þá ótalinn tilkostnaðurinn við lögfræðiþjónustu sem er geysi- lega fyrirferðamikil og kotnaðarsöm í bandaríska heilbrigðiskerfinu. Að græða peninga eða græða fólk Að mínum dómi er þó alvarlegast af öllu sú mismunun sem fylgir einkavæðingunni. Á Norðuriöndum er fjármálamarkaðurinn að bytja að teygja sig inn eftir spítalagöngun- um og afleiðingarnar eru þegar að koma í ljós. í mars síðastliðum birt- ist mjög athyglisverð grein í norska blaðinu Dagbladet eftir norskan yfirlækni, Dag Johansen og prófessor í læknisfræði Mads Gil- bert að nafni. Þeir vitna meðal ann- ars í könnun sem birst hafði í tíma- riti norsku læknasamtakanna réttu ári áður. Þar kom fram að fjórðung- ur aðspurðra deildarstjóra við norsk sjúkrahús teldu að nýr hugs- unarháttur hefði leitt til þess að meðhöndlun „þungra" sjúklinga með erfiða sjúkdóma væri látin víkja fyrir „ábatasamari" sjúkling- um sem heimild væri fyrir að krefja um borgun. I greininni segir enn fremur á þessa leið: Reynslan sýnir ótvírætt að mjög fljótlega eftir að markaðslögmálin hafa verið virkjuð innan heilbrigðisþjónustunnar taka þau völdin. Fjárhagslegur ávinning- ur vegur þá þyngra en almannahag- ur og læknisfræðileg sjónarmið víkja fyrir peningalegum. Með öðr- um orðum einkareksturinn byggir á því að græða peninga, almannaheil- brigðisþjónustan þjónar fólki, hún græðir fólk. Heilbrigðisþjónusta í þágu aílra Auðvitað kemur öllum við hvern- ig velferðarþjónustan í landinu er skipulögð og það skiptir sköpum jafnt fyrir notendur sem skattborg- ara hvemig tekst til. Af hálfu launa- fólks hefur BSRB beitt sér af alefli til vamar og sóknar velferðarþjón- ustunni. Á vegum samtakanna var gerð ítarlegasta könnun sem fram- kvæmd hefur verið til þessa um af- stöðu Islendinga til skipulags og fjármögnunar velferðarþjónustunn- ar. Þar kom fram yfirgnæfandi meirihlutavilji íyrir samfélagslega rekinni þjónustu. Menn höfnuðu hvers kyns mismunun og gjaldtöku. I kjölfar þessarar könnunar efndi BSRB til umræðufunda um leiðir til að bæta velferðarþjónustuna. Sam- tökin hafa boðið til samstarfs við stjórnvöld um leiðir að þessu marki og nú síðast hefur slíku erindi verið komið á framfæri við heilbrigðis- ráherra. Eins og sjá má af framan- greindum dæmum er mikið í húfi að okkur takist að standast atlögu gróðaaflanna að heilbrigðisþjónust- unni og byggja hana þess í stað upp á samfélagslegum grunni til hags- bóta fyrir þjóðfélagið allt. Höfundur er alþingismaður ogform. BSRB. Ögmundur Jónasson Ihaldið skelfur ÞEGAR foringjum Sjálfstæðisflokksins líður illa er venjan að leita til hirðskálda flokksins, þeirra Hann- esar Hólmsteins Giss- urarsonar og Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar, og senda þá fram á ritvöllinn til að lemja á andstæðingun- íim. Spilafélagi Davíðs Oddssonar til margra ára, Jón Steinar Gunn- laugsson, reynir af veikum mætti að verja flokkinn sinn í Mogun- blaðinu 12. september sl. Honum tekst þó ekki að sannfæra almenning um sakleysi Sjálfstæðisflokksins í mannaráðningum, hvort sem það er í Hæstarétti eða annars staðar. í þessum efnum kemst enginn flokkur með tæmar þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur hælana. Og ekki tekst Jóni Steinari lög- fræðingi heldur að verja gerræðis- legan úrskurð menntamálaráðherra k málefnum Reykjavíkurborgar. Sjálfur stóð þessi sami lögfræðingur í ströngu fyrir hönd Heklu hf. að verjast þáverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Friðriki Skólavðrðustíg 21 • sími 551 4050 •Reykjavík Sophussyni, sem ætlaði að ógilda samning við Reykjavíkurborg með nákvæmlega sama hætti og nú á sér stað. Þá stóð Jón Steinar þéttvið hlið borgaryfir- valda. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Jón Steinar snýst eins og skopparakringla. Guð forði okkur frá því, að Davíð skipi þennan snilling og spilafélaga sinn í Hæstarétt. Stöðuveiting mín á sínum tíma var í sjálfu Stjórnmál Mín skoðun er sú, að vinstri- o g miðflokkar á ----7---------------------- Islandi eigi að gefa Sjálfstæðisflokknum frí frá landsstjórninni, seg- ir Aifreð Þorsteinsson, með sama hætti og hon- um var gefíð frí í Reykjavík. sér ekkert meridlegri en þegar Davíð Oddsson var skipaður skrif- stofustjóri og síðar forstjóri Sjúkra- samlags Reykjavíkur á svipuðum tíma. Hveijir skyldu nú hafa ráðið Davíð til Sjúkrasamlagsins? íhaldið má skjálfa mín vegna. Mín skoðun er sú, að vinstri- og miðflokk- ar á íslandi eigi að gefa Sjálfstæðis- flokknum frí frá landsstjóminni með sama hætti og honum var gefið frí í Reykjavík. Það hefur gefist vel, eins og kunnugt er. Höfundur er borgarfuUtrúi i Reykjavík. Alfreð Þorsteinsson Er Baugur í raun að tapa á mjólkurvörum? UNDANFARIÐ hefur mátt lesa greinar á síðum Morgunblaðsins er fjallað hafa um Baug, álagningu fyrirtækisins á mjólkurvör- ur og þá fullyrðingu for- stjóra fyrirtækisins, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að Baugur tapi á því að selja mjólkurvörur. í Morgun- blaðinu 2. september færir svo framkvæmdastjóri Nýkaups, Finnur Árnason, rök fyrir þeirri fullvrðingu að Baugur tapi á sölu mjólkurvara. í grein sinni víkur Finn- ur að álagningu fyrirtækis- ins á matvæli, sem er 19,3%. Einnig nefnir hann álagn- ingartölur á mjólkurvörur og vitn- ar þar í grein Ara Teitssonar, for- manns Bændasamtaka íslands, sem birtist í Morgunblaðinu 31. ágúst. í grein Ara kemur fram að í norskum verslunum, sem eru sam- bærilegar og Hagkaup og Nýkaup, er álagning á mjólkurvörur 11,6%. í Nýkaupum, segir Finnur, er álagningin 12% „sem hlutfall af söluverði án vsk“. Þetta er raunar bráðskemmtileg framsetning, en hér er átt við að álagningin sé í raun 13,6% (venja er að tala um álagningu ofan á grunnverð). Að sama skapi er því álagning á mat- vöruna væntanlega 23,9%. Þá víkur Finnur að kostnaðar- útreikningum á því hvernig þeir tapa á sölu mjólkurvara. Ekki ætla ég að rengja þau hlutföll sem hann nefnir varðandi ýmiss konar kostn- að við mannahald ofl. Hinsvegar er ég ósammála þeirri niðurstöðu að tap sé á sölu mjólkurvara. Er rétt- lætanlegt að reikna sama kostnað á vörur sem þurfa annarsvegar mikla þjónustu og hinsvegar litla? Rætt hefur verið um þýðingu veltuhraða og áð- ur hefur verið vitnað til norskra talna (í grein Ara Teitssonar). Skiptir virkilega ekki máli hvort hægt er að selja margfalt fleiri einingar af einni vörutegund mið- að við aðra? Þetta hefur verið skoðað mjög gaumgæfilega af norska mjólkur- iðnaðinum (1999) sem komst að þeirri niðurstöðu að mjólkurvörur (í Noregi) hafa nærri þrefalda veltu (2,97) á við allar aðrar vörur, umreiknað á fermetra - þ.e. það pláss sem vörurnar taka í verslunum. Á íslandi gæti þetta jafnvel verið hærra hlutfall, enda íslendingar annálaðir mjólkur- vöruneytendur. En hvað þýðir þessi aukni veltu- hraði? Tökum dæmi: Matvara er með 23,9% álagningu (meðalálagn- ingin hjá Baugi) og kostar það sama og mjólk. Til að gera dæmið einfalt skulum við segja að tekjur fyrirtækisins séu 23,9 kr af sölu á þessari matvöru. Álagningin fyrir mjólkina er lægri (13,6%) en veltu- hraðinn þrefalt meiri. Hver ferna skilar í þessu dæmi 14,9 kr í tekjur og því eru heildartekjur 44,7 kr (14,9 x 3). I dæminu eru rauntekj- urnar 20,8 kr hærri af mjólkursöl- unni, en af matvörunni með hærri álagninguna. Þá er ónefndur mikilvægur þátt- ur sem er eftirspurn mjólkurvar- anna. Ljóst er að mjólkurvörur eru mjög eftirsóknarverðar vörur Verðmyndun Stjórnendur hjá Baugí þurfa að taka tillit til þessara mikilvægu þátta, segir Snorri Sigurðsson, og meta svo af sanngirni hvort tap sé í raun og veru á sölu mjólkurvara. og leiða til sölu á öðrum vörum í öllum verslunum og erlendis mjög þekkt að nota þær til að fá við- skiptavini. Hérlendis er þessu eins farið, enda varla tilviljun að mjólk- urkælar eru yfirleitt innarlega í verslunum. Ef menn hafa ekki trú á þessum áhrifum mjólkurvaranna, því þá ekki að prófa að staðsetja kælana næst búðakössunum og sjá þannig þessi hliðaráhrif mjólkur- vara? Ætli sala á ýmsum vörum myndi ekki minnka? Af framansögðu má vera ljóst að veltuhraði og eftirspurn matvara skiptir miklu máli fyrir verslunar- eigendur og ætti e.t.v. að taka rík- ara tillit til slíkra þátta við álagn- ingarákvörðun ólíkra matvara. Stjórnendur hjá Baugi þurfa að taka tillit til þessara mikilvægu þátta og meta svo af sanngirni hvort tap sé í raun og veru á sölu mjólkurvara. Reikni þeir dæmið til enda, munu þeir væntanlega kom- ast að sömu niðurstöðu og undir- ritaður. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. Snorri Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.