Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
253. TBL. 88. ARG.
FOSTUDAGUR 3. NOVEMBER 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þrettánda jafnteflið í Lundúnum
Bflsprengjutilræði í Jerúsalem banar tveimur
Kasparov sigraður
Lundúnum. Reuters.
GARRI Kasparov, fremsti
skákmaður heims síðastlið-
in fimmtán ár, tapaði í gær
tilkallinu til heimsmcist-
aratitilsins til fyrrverandi
lærisveins síns, hins 25 ára
gamla Vladimírs Kramn-
íks, þegar þeir sömdu um
jafntefli í fimmtándu skák-
inni af sextán í einvíg'i sínu
í' Lundúnum. Kasparov
Kramník vann tvær skákir en
Kasparov enga. Jafntefli varð í
þrettán skákum. Virtist mjög af
Kasparov dregið. Hann hafði áður
sagzt vera „þreyttur og þungiynd-
ur“ og nefnt persónulegar ástæður,
sem hann lýsti ekki nánar, fyrir
vondu gengi sínu í einvíginu.
Heimsmeistaratitillinn sem
Kramník tekur nú við er
ekki formlegur, en einvígi
þeirra Kasparovs var engu
að síður almennt álitið
snúast um hver ætti rétti-
lega tilkall til titilsins.
Kasparov sagðist strax
vilja skora á nýja meistar-
ann í annað einvígi hið
fyrsta.
Þótt titilbaráttan sé nú
þegar úti verða þeir að tefla sex-
tándu skákina, sem fram fer á
morgun, laugardag. Verðlauna-
fénu, tveimur mifljónum Banda-
ríkjadala, andvirði um 170 milljóna
króna, verður skipt í samræmi við
endanlegt vinningshlutfall.
■ Einvígið/12/30
Áformuðu vopna-
hléi slegið á frest
Jerúsalem. AP, Reuters.
BÍLSPRENGJA sem sprakk í
grennd við fjölsóttan markað í Jer-
úsalem í gær varð tveimur ísraelum
að bana. Palestínsku öfgasamtökin
Jihad lýstu ábyrgð á tilræðinu á
hendur sér, en það varð til þess að
frestur varð á því að leiðtogar Isra-
ela og Palestínumanna lýstu yfir
vopnahléi eins og til hafði staðið.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, og Shimon Peres, friðarverð-
launahafi Nóbels, höfðu náð sam-
komulagi um vopnahléð aðfaranótt
gærdagsins, í því skyni að binda
enda á ofbeldisöldu síðastliðinna
fimm vikna. Hún er sú alvarlegasta
frá því Óslóar-samningarnir voru
gerðir árið 1993.
Átök héldu áfram á sjálfstjórnar-
svæðum Palestínumanna. Tveir Pal-
estínumenn létu lífið og um 80 særð-
ust í óeirðum á Vesturbakkanum.
Þessar nýjustu ofbeldisaðgerðir
ógnuðu, en eyðilögðu þó ekki alveg
Bandaríkin
Hart lagt að
Nader að
draga sig í hlé
Washington. Reuters, AP.
HART er nú lagt að Ralph Nader,
forsetaframbjóðanda græningja í
Bandaríkjunum, að draga sig í hlé
þar sem framboð
hans geti tryggt
George W. Bush
sigur í nokkrum
mikilvægum ríkj-
um. En Nader
segir sem fyrr að
ekki sé neinn
verulegur munur
á stefnu þeirra
Bush og Gore og
lætur áköllin sem vind um eyru
þjóta, gerir jafnvel gys að þeim. Ef
Gore tapar „mun verða ljóst að hann
barðist sjálfur til ósigurs" sagði
Nader ígær.
Bush hefur sem fyrr dálítið for-
skot á aðalkeppinaut sinn, A1 Gore
varaforseta, ef marka má skoðana-
kannanir. Mælist það nú um 3% á
landsvísu.
■ Clinton til hjálpar/26
Ralph Nader
Reuters
Ungur Palestinumaður miðar teygjubyssu að ísraelskum hermönnum í Hebron á Vesturbakkanum í gær.
Fjölþjóðleg rannsókn á þróun loftslags í Evrópu fram til ársins 2100
Lundúnum. AP.
SUÐUR- og Suðaustur-Evrópu-
búar munu að líkindum koma einna
verst út úr þeim breytingum á lofts-
lagi í Evrópu, sem vísindamenn spá
að muni eiga sér stað fram til næstu
aldamóta. íbúar norðurhluta álf-
unnar munu hins vegar að jafnaði
njóta góðs af hlýnandi loftslagi.
Sérskipaður hópur 30 óháðra
sérfræðinga hefur í umboði Evr-
ópusambandsins (ESB) rannsakað
hvernig búast megi við að hlýnun
loftslags af völdum gróðurhúsa-
áhrifanna muni lýsa sér í Evrópu
næstu 100 árin.
Komast þeir meðal annars að
þeirri niðurstöðu, að það sé sama
hve mikið alþjóðasamfélagið leggi á
sig til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda á næstu árum,
loftslag muni óumflýjanlega halda
áfram að hlýna og þessum loftslags-
breytingum muni Evrópubúar
verða að gjöra svo vel að laga sig að.
Höfundar skýrslunnar eru ekki í
Breytingarnar
taldar N-Evrópu
hagstæðar
vafa um að þetta séu íbúar álfunnar
tæknilega færir um að gera, en
sameiginlega stefnu Evrópusam-
bandsins í landbúnaðar-, sjávarút-
vegs- og byggðaþróunarmálum
verði að endurskoða með tilliti til
loftslagsbreytinganna í því skyni að
draga úr skaðlegum þáttum þessar-
ar þróunar og nýta sem bezt þau
tældfæri sem hún býður upp á.
Niðurstöður vísindamannanna
voru kynntar í Lundúnum í gær, en
þær eru framlag til þriðju alls-
herjarmatsskýrslu Milliríkjahóps-
ins um loftslagsbreytingar (IPCC),
sem þúsundir vísindamanna um all-
an heim koma að og birt verður
formlega á næsta ári.
Þótt heildaráhrif væntanlegra
loftslagsbreytinga á heimsvísu hafi
verið gerð góð skil í fyrri skýrslum
IPCC er hin nýja rannsókn
evrópsku vísindamannanna sú
fyrsta sem fer náið ofan í hver áhrif
breytinganna verða innan Evrópu.
Spá þeir m.a. því, að meðalhiti í
löndunum við austanvert Mið-
jarðarhaf muni hækka það mikið og
draga svo úr úrkomu að ferðamenn
myndu ekki sækja eins mikið á þær
slóðir. Úrkoma í Ölpunum muni að
meira leyti koma niður sem regn en
snjókoma, með þeim afleiðingum að
skíðaferðamennska drægist saman.
Jöklar Alpanna muni minnka um
helming.
Á norðlægari slóðum er því spáð
að harðir vetur verði um árið 2020
helmingi sjaldgæfari en áður og
þeir muni með öllu heyra sögunni
til þegar komið verður fram til árs-
ins 2080. Einnig muni hlýnunin,
sem þó verður ekki meiri en 0,1 til
0,4 gráður á celsíus á áratug, hafa
jákvæð áhrif á norður-evrópskan
landbúnað, skógarvöxt og fiskveið-
ar, auk þess sem meira en nóg verð-
ur af ferskvatni. Neikvæðu áhrifin
gætu orðið aukin tíðni flóða.
síðustu tilraunina til þess að koma á
vopnahléi í átökum Palestínumanna
og öryggissveita Israela. Arafat og
Ehud Bai'ak, forsætisráðherra ísra-
els, höfðu ætlað að lýsa samtímis yfir
vopnahléi klukkan 14 að staðartíma í
gær, eri því var síðan frestað.
Arafat harmar tilræðið
Arafat harmaði sprengjutilræðið í
Jerúsalem og sagðist vilja bíða og sjá
hvort ísraelar myndu standa við
sinn hluta af vopnahléssamkomulag-
inu. Hann gekk ekki svo langt að
mæta kröfum Israela um að hvetja
Palestínumenn opinberlega til að
hætta óeirðum. Þess í stað gaf
heimastjóm PLO út yfirlýsingu þar
sem skorað var á Palestínumenn að
skipta yfir í friðsamlegar aðferðir í
baráttunni fyrir sjálfstæðu ríki.
Barak krafðist þess að palestínsk
stjórnvöld handtækju alla palest-
ínska öfgamenn sem gefið var frelsi
eftir að átökin blossuðu upp.
Bílsprengjan sprakk í mjórri götu
rétt við Mahone Yehuda-markaðs-
torgið, en hryðjuverkamenn araba,
andsnúnir friðarsamningum við
ísrael, hafa oft áður valið þennan
stað til að fremja slík hermdarverk.
í Beirút, höfuðborg Líbanons,
gáfu palestínsku öfgasamtökin Jihad
(„heilagt stríð“) út yfirlýsingu, þar
sem þau segjast hafa framið tilræðið
„sem hluta af viðbrögðum okkar við
þeim glæpum sem óvinurinn Israel
hefur gert sig sekan um gagnvart
varnarlausum Palestínumönnum".
AIls hafa nú að minnsta kosti 168
manns látist í átökum liðinna vikna,
næstum allt Palestínumenn.
Færeyjar
Atkvæði
greidd í vor
Kaupniannahöfn. Reuters.
LAJSTDSTJÓRN Færeyja tilkynnti í
gær, að þjóðaratkvæðagreiðsla um
breytt færeysk sjálfstæðisáform
yrði haldin í apríl á næsta ári.
„Þjóðaratkvæðagreiðsla verður
haldin í Færeyjum í apríl 2001, þar
sem Færeyingar verða spurðir hvort
þeir styðji fullveldisáætlun land-
stjórnarinnar," lýsti hún yfir.
Verður þjóðaratkvæðagreiðslan
byggð á nýrri sjálfstæðisáætlun,
sem Anfinn Kallsberg, lögmaður
Færeyja, hefur boðað að muni ganga
út frá gildandi heimastjómarlögum
en veita Færeyjum aukna sjálfstjórn
í áföngum, unz þær verða að full-
valda ríki. Þá verði haldin önnur
þjóðaratkvæðagreiðsla um stjómar-
skrá Færeyja.
MOROUNBLAÐIÐ 3. NÓVEMBER 2000
5 6909C
0 090000