Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Ossur hf. kaupir sænsk stoðtækjafyrirtæki
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf., Yvonne Meyer, Pi Medical og Jonas
Bergström, Karlsson & Bergström
Samningar
undirritaðir
Lína.Net undirritar
lánssamning við NIB
og Islandsbanka-FBA
Morgunblaöið/Kristinn
1
Frá undirskrift lánasamningsins.
ÖSSUR hf. hefur undirritað samn-
ing um kaup á öllum hlutabréfum
sænsku fyrirtækjanna Pi Medical
og Karlsson & Bergström og greið-
ir Össur hf. fyrir hlutabréf fyrir-
tækjanna með 6,9 milljónum hluta í
Össuri hf. á næstu þremur árum og
nemur greiðslan nú 4,7 milljónum
hluta. Aukning hlutaljár Össurar
hf. til að mæta þessari fyrstu
greiðslu hefur þegar farið fram.
Undirritun kaupsamninga fór
fram í Stokkhólmi og skrifaði Jón
Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.,
undir fyrir hönd Össurar hf. en
Yvonne Meyer fyrir hönd Pi
Medical og Jonas Bergström fyrir
hönd Karlsson & Bergström.
Formlegt samstarf fyrirtækjanna
hefst nú þegar undirritun kaup-
samnings er lokið en sænsku fyrir-
tækin verða síðan sameinuð undir
nafninu Össur Nordic AB frá og
með næsta ári. Höfuðstöðvar nýja
fyrirtækisins verða í Uppsölum í
Svíþjóð.
LÍNA.Net, Norræni fjárfestingar-
bankinn (NIB) og Islandsbanki-
FBA hafa undirritað samning um
400 milljóna króna lán til Línu.Nets.
NIB veitir Línu.Neti 200 millj'óna
króna lán til uppbyggingar á ljósleið-
arakerfi fyrirtækisins og er lánið til
fimm ára með möguleika á framleng-
ingu um önnur fimm ár. NIB hefur á
undanförnum árum veitt lán til nor-
rænna fjarskiptafyrirtækja og
Lína.Net bætist nú í þeirra hóp.
FBA, fjárfestingabankahluti Is-
landsbanka-FBA, lánar Línu.Neti
200 milljónir króna til sex ára. FBA
hefur veitt íslenskum fyrirtækjum í
fjarskiptum og upplýsingatækni víð-
tæka þjónustu í fjármögnun, um-
breytingu og ráðgjöf og er fjármögn-
un ljósleiðaranets Línu.Nets enn eitt
dæmið um aðkomu FBA að verkefn-
um íyrir fjarskiptafyrirtæki á ís-
landi.
Lína.Net hefur byggt upp Ijós-
leiðaranet sem nær nú yfir allt höf-
uðborgarsvæðið og helstu þéttbýlis-
kjarna Suðurlandsundirlendisins.
Fyrirtækið hefur einnig komið upp
örbylgjukerfum á höfuðborgarsvæð-
inu, Akureyri, Selfossi og í Hvera-
gerði. í tilkynningu um lánssamn-
Samruni Den
norske Bank
og Storebrand
ólíklegur
Ósló. Morgunblaðið.
SVEIN Aaser, forstjóri Den norske
Bank (DnB), lýsti því yfir þegar af-
koma bankans var kynnt í gær að ólík-
legt væri að af samruna DnB og
norska trygginga- og fjárfestingarfé-
lagsins Storebrand yrði í bráð, að því
er fram kemur á norska viðskipta-
vefnum Imarkedet. Undanfarið hefur
mildð verið rætt um hugsanlegan
samruna DnB og Storebrand, sér-
staklega í kjölfar þess að tilkynnt var
um samruna sænsk-finnska bankans
MeritaNordbanken og norska Kred-
itkassen.
Forsvarsmenn DnB og Storebrand
hafa ekki tjáð sig með svo afgerandi
hætti um hugsanlegan samruna félag-
anna hingað til. í kjölfar ummæla Aas-
er lækkaði gengi hlutabréfa Store-
brand en gengi DnB hélst óbreytt.
Afkoma Den norske Bank fyrir
fyrstu níu mánuði ársins var betri en
búist var við en hagnaðurinn sam-
svarar um 35 milljörðum íslenskra
króna, sem er 29% aukning frá sama
tíma í fyrra. Norska ríkið á um 60%
hlutafjár í DnB og segir Aaser að lík-
legt sé að ríkið muni minnka eignar-
hlut sinn á næsta ári.
inginn kemur fram að lagningu
ljósleiðaranetsins hefur verið flýtt
en jafnframt hafi umfang þess verið
aukið. Upphaflega var áætlað að
leggja 125 km fyrir lok árs 2001 en
lagðir verða 370 km fyrir árslok
2000. Þá rekur Lína.Net Tetra
fjarskiptakerfið fyrir neyðaraðila og
stærri fyrirtæki og Lína.Net hefur
undirritað samstarfssamning við Er-
icsson um ljósleiðaratengingu heim-
ila í Reykjavík.
Allt að 3,6 millj-
arðar króna í út-
boði Pharmaco
GERT er ráð fyrir að hlutafé í
Pharmaeo hf. að nafnvirði sam-
tals allt að 90 milljónir króna,
eða um 3,6 milljarðar króna mið-
að við núverandi gengi bréfa fé-
lagsins, verði selt í útboði sem
félagið stefnir að fyrir lok þessa
árs í kjölfar kaupa Pharmaco hf.
á öllum hlutabréfum í Balkan-
pharma. í tilkynningu til Verð-
bréfaþings kemur fram að þar
af verði nýtt hlutafé fyrir allt að
40 milljónir króna að nafnvirði,
en afgangurinn yrði hlutafé sem
nú er í eigu Deutsche Bank.
Fram kemur að núverandi
áætlanir geri ráð fyrir að hluti
verði seldur beint til fagfjár-
festa og hluti með áskriftarfyr-
irkomulagi til almennings, en
endanleg ákvörðun um sölu-
fyrirkomulag mun verða tekin á
næstu vikum.
Að teknu tilliti til væntanlegs
hlutafjárútboðs er gert ráð fyrir
að hluthafar Pharmaco verði
Amber International með
29,62%, sem er eignarhaldsfélag
í eigu Björgólfs Guðmundssonar
og sonar hans Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hluthafar
Pharmaco fyrir sameiningu, án
Amber, 31,13%, nýir hluthafar
21,87%, stjórnendur Pharmaco
11,25%, Deutsche Bank 5,66%
og Standard Bank með 0,47%.
Markaðsyfirlit FBA
Framleiðni vex
hægt hér á landi
„MIKLA undirliggjandi verð-
bólgu má rekja annars vegar til
hægs framleiðnivaxtar og hins
vegar mikilla launahækkana,"
segir í nýju Markaðsyfirliti
FBA. Fram kemur að árlegur
vöxtur framleiðni hafí verið
1,4% að meðaltali á þessum ára-
tug og að hann verði í/2% á
þessu ári. „Þetta er hægur vöxt-
ur,“ segir í Markaðsyfirlitinu,
„sérstaklega í ljósi þess hraða
framleiðnivaxtar sem er að sýna
sig í opnum og tæknivæddum
samfélögum þar sem markaðs-
öflin fá að njóta sín.
Hægur framleiðnivöxtur und-
irstrikar að hér á landi skortir
enn nokkuð á að starfsumhverfi
fyrirtækja sé með þeim hætti er
best verður á kosið.“
Meíri iaunahækkanir
á þessu ári
FBA segir að allt bendi til að
laun hækki meira í ár en í fyrra
og að kaupmáttur launa hafi
aukist um 3,7% síðasta árið.
Þetta sé meiri kaupmáttaraukn-
ing en á sama tímabili í fyrra en
útlit sé fyrir að úr kaupmáttar-
aukningu muni draga.
Þegar litið sé til þróunar
krónunnar næstu misseri séu
miklar launahækkanir og lítill
framleiðnivöxtur áhyggjuefni.
FBA telur þó að upp að vissu
marki fari hægari vöxtur eftir-
spurnar að skila sér í minni
spennu á vinnumarkaði og að
laun hér á landi fari að hækka
meira í takt við það sem gerist í
viðskiptalöndum Islands. Þess
vegna segist FBA ekki sjá
ástæðu til að breyta gengisspá
sinni frá síðasta mánuði, og ger-
ir ráð fyrir að gengisvísitala
krónunnar verði 120 í lok næsta
árs.
í Markaðsyfirlitinu kemur
fram að gengislækkun krónunn-
ar ætti að draga úr innflutningi
og auka útflutning og minnka
þannig viðskiptahallann. Þá seg-
ir að minnkandi viðskiptahalli
dragi úr útstreymi fjármagns og
þar með úr þrýstingi til lækkun-
ar krónunnar.
íslenski hugbúnaðar
sjóðurinn kaupir
í TölvuMyndum
Hugsanlegt tilboð
Nasdaq í LSE
Óslci. Morgunblaðið.
ÍSLENSKI hugþúnaðarsjóðurinn
hefur fest kaup á hlutafé fyrir
4.483.192 krónur að nafnverði í
Tölvumyndum hf. og er það um
3,43% eignarhlutur í félaginu. ís-
lenski hugbúnaðarsjóðurinn er
áhættufjárfestingasjóður sem á ráð-
andi hlut í leiðandi fyrirtækjum á
sviði upplýsingatækni á íslandi og
beinast fjárfestingar sjóðsins að fyr-
irtækjum á sviði upplýsingatækni
með mikla útrásarmöguleika. Sjóð-
urinn leggur sérstaka áherslu á
miðlun þekkingar og viðskipta-
tengsla á milli fyrirtækja sem sjóð-
urinn á eignarhlut í auk samstarfs
við innlenda og erlenda áhættufjár-
festa.
Tölvumyndir hf. eru leiðandi
þekkingar- og hugbúnaðarfyrirtæki
á íslenskum markaði. Fyrirtækið
starfar á fimm kjörsviðum sem ýmist
eru sjálfstæð rekstrarsvið eða dótt-
urfélög. í dag starfa Tölvumyndir og
dótturfyrirtæki í sex löndum og flyt-
ur fyrirtækið út staðlaðar hugbúnað-
arlausnir á tveimur kjörsviðum.
Tölvumyndir hafa tvö síðustu ár
fengið viðurkenningu sem eitt af
framsæknustu fyrirtækjum Evrópu.
Athugasemd
í viðtali við Ásgrím Hilmarsson,
útibústjóra Búnaðarbankans á Ak-
ureyri, í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær kemur fram að nýtt
útibú þar sé fyrsta bankaútibúið á
landinu með sjálfsafgreiðslu. í at-
hugasemd frá S24 kemur fram að
S24 sem hóf starfsemi sína fyrir
ári, stendur fyrir bankaþjónustu
24 tíma á sólarhring. S24 býður
upp á bankaþjónustu bæði í gegn-
um tölvu og síma og auk þess að
bjóða upp á tölvu- og símaþjónustu
er sölustaður Kringlunni (sjálfsaf-
greiðsluútibú) þar sem viðskipta-
vinir S24 geta skilað inn og sótt
gögn.
Engir gjaldkerar eru á staðnum
en viðskiptavinirnir hafa mögu-
leika á að afgreiða sig sjálfir í
gegnum tvo hraðbanka og tvo
snertibanka sem þar eru.
ÓNEFNDUR innanbúðarmaður hjá
bandarísku kauphöllinni Nasdaq segir
í samtali við Wal/ Street Journal að síð-
ustu þrjá mánuði hafi ráðgjafar Nas-
daq skoðað ýmsa möguleika varðandi
hugsanlegt tilboð Nasdaq í Kauphöll-
ina í London (LSE) og að draga muni
tíl tíðinda innan sex mánaða. Þetta
kemur fram í Dagens Industrí.
Don Cruickshank, stjómarformað-
ur LSE, hefúr talað gegn samruna við
Nasdaq eins og allar aðrar kauphallir,
eftir að iX samruninn við Deutsche
Börse var blásinn af. Það hefúr einnig
fengist staðfest að Nasdaq hefur átt
viðræður við aðrar evrópskar kaup-
hallir, þ.á m. OM, sem rekur kauphöll-
ina í Stokkhólmi og býður nú í LSE.
OM þarf að berjast á fleiri vígstöðv-
um þar sem stjómarformaður fyrir-
tækisins, Olof Stenhammar, er nú
flæktur í meint mútumál. Efnahags-
brotadeild sænsku lögreglunnar hef-
ur nú tekið upp rannsókn að nýju á
því hvort Svíar hafi beitt mútum til að
tryggja sér að sumarólympíuleikamir
yrðu haldnir í Stokkhólmi árið 2004.
Málinu hafði lokið síðasta vor án þess
að nokkur hlyti áminningu en sænska
dagblaðið Expressen hefur íjallað um
það í nýju Ijósi. Stenhammar er nú
gmnaður um að hafa borgað meðlim-
um Alþjóða ólympíusambandsins há-
ar fjárhæðir árið 1997.