Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Eiturlyfja
neysla á
þýska
þinginu?
SAKSÓKNARAR rannsaka nú
hugsanlega eiturlyfjaneyslu
þýskra þingmanna eftir að leif-
ar af kókaíni fundust á 22 af 28
salernum þinghússins í Berlín.
Wolfgang Thierse, forseti
þingsins, óskaði eftir rann-
sókninni eftir að sjónvarps-
stöðin SAT-1 skýrði frá því hún
hefði látið rannsaka efni, sem
fundust á salernunum, og í ljós
hefði komið að um kókaín væri
að ræða.
ir til grafar
TÓLF sjóliðar, sem fórust þeg-
ar rússneski kafbáturinn
Kúrsk sökk í Barentshafi í
ágúst, voru bornir til grafar í
Sankti Pétursborg í gær. Við
útförina var lesið bréf frá ein-
um sjóliðanna, Dmítrí Kolesni-
kov, er lifði af sprengingu sem
varð til þess að kafbáturinn
sökk.
Komið hefur í ljós að spreng-
ingin olli meiri skemmdum á
stafni bátsins en talið hafði
verið. Dregur það mjög úr lík-
unum á því að hægt verði að ná
upp fleiri líkum úr kafbátnum.
Sjóliðar úr
Kúrsk born-
Fyrstu íbúarnir komnir
í alþjóðlegu geimstöðina
KoroUov. AP, AFP.
Geimfarinn Sergej Krikalev hvflir sig meðan félagar hans, Júrí Gidzenko og Bill Shepherd, ræða við yfirmenn
rússnesku stjórnstöðvarinnar í Koroljov eftir að þeir fóru inn í Alþjóðlegu geimstöðina í gær.
ÞRÍR geimfarar, Bandaríkjamaður og
tveir Rússar, fóru í gær inn í Alþjóð-
legu geimstöðina, sem er í 384 km hæð
yfir jörðu, og urðu þar með fyrstu
geimfaramir sem koma þangað til
langdvalar.
Bandaríkjamaðurinn Bill Shepherd,
sem fer fyrir geimfórunum, og Rúss-
amir Júrí Gidzenko og Sergej Kríkal-
ev fóm inn í geimstöðina einni og hálfri
klukkustund eftir að Sojuz-geimflaug
þeirra tengdist henni laust íyrir klukk-
an hálftíu í gærmorgun að íslenskum
tíma.
Fyrsta verkefni þeirra var að
kveikja l,jósin og koma öllum nauðsyn-
legum kerfúm í gang. Shepherd sagði í
símasamtali við Daniel Golden, yfir-
mann NASA bandarísku geimferðast-
ofnunarinnar, að allt hefði gengið vel
en kvaðst hafa eina ósk. „Fyrstu leið-
angursmennimir í geimstöðinni óska
eftir heimild til að nota heitið Alfa í
fjarskiptum,“ sagði hann og steytti
Imefann glettnislega. Félagar hans
brostu og tóku undir þetta.
Goldin virtist hissa á beiðninni en
samþykkti hana til bráðabirgða.
„Núna getið þið sofið áhyggjulausir að
næturlagi," sagði hann.
Geimfaramir höfðu lengi beitt sér
fyrir því að geimstöðin yrði nefnd Alfa,
en NASA hafnaði því og ákvað að kafla
hana Alþjóðlegu geimstöðina.
Júrí Semjonov, forstjóri rússneska
ríkisfyrirtækisins RKK Energíja, sem
smíðaði rússnesku einingamar í geim-
stöðina, kvaðst vera andvígur því að
geimstöðin yrði nefnd Alfa, sem er
fyrsti stafurinn í gríska stafrófinu og
merkir „sá fyrsti". Semjonov sagði að
rússneska geimstöðin Mír hefði verið
sú fyrsta í röðinni og lagði til að al-
þjóðlega geimstöðin yrði nefnd Beta,
sem er annar stafurinn í gríska staf-
rófinu, eða Mír 2.
Þessi deila dró þó ekki úr fógnuðin-
um meðal um 500 manna sem söfnuð-
ust saman í rússnesku stjómstöðinni
til að fylgjast með atburðinum. Mikil
fagnaðarlæti bmtust þar út þegar
geimflaugin tengdist geimstöðinni í
384 km hæð yfir Kasakstan þar sem
Sojuz-flauginni var skotið á loft frá
Baikonur-geimferðamiðstöðinni á
þriðjudag. „Þetta er sögulegur og ótrú-
legur dagur,“ sagði Vladímír Solovjov,
yfirmaður rússnesku stjómstöðvarinn-
ar. „Þetta er í fyrsta sinn sem ríki taka
höndum saman og leggja þekkingu
sína í púkk til að búa til alþjóðlega
geimstöð."
„Þetta er stórkostlegur viðburður,“
sagði bandaríski geimfarinn Frank
Culbertson, sem á að stjóma leiðangri í
geimstöðina á næsta ári. „Eg trúi því
ekki enn að okkur skuli hafa tekist það
sem við höfúm unnið að í öll þessi ár.
Ég tel að það taki fólk nokkum tíma að
átta sig mikilvægi þessa atburðar,"
sagði hann.
Alþjóðlega geimstöðin er samstarfs-
verkefiii sextán ríkja, en auk Banda-
ríkjanna og Rússlands er um að ræða
aðildarríki Evrópsku geimferðastofn-
unarinnar, Kanada, Brasifíu og Japan.
Gert er ráð fyrir að geimfaramir þrír
dvelji í geimstöðinni í fjóra mánuði og
geri þar ýmsar læknisfræðilegar, líf-
fræðilegar og tæknilegar tilraunir.
Fótverndardagurinn
4. nóvember 2000
FÉLAG ÍSLENSKRA FÓTAAÐGERÐAFRÆÐINGA
Komið í Kringluna laugardaginn
4. nóvember næstkomandi milli kl.
10 og 18 og hittið fótaaðgerðafræð-
inga og fræðist um hvað þeir geta
gert til að bæta heilbrigði fótanna og
koma í veg fyrir fótamein.
Orsakir flugslyssins á Taívan óljósar
V élarbilun olli
slysinu í Angóla
Luanda, Tapei. AP, AFP.
EKKERT hefur frekar skýrst um
orsakir flugslyssins í Tapei á mánu-
dag. Þá fórst flugvél Singapore Air-
lines, af gerðinni Boeng 747-400. 81
af 179 manns um borð létu lífið.
Fleiri spurningar vöknuðu við
fyrstu rannsóknir en svör, að sögn
starfsmanna flugöryggisráðs Taívan
sem fer með rannsókn málsins.
Engar vísbendingar fundust að
sögn þeirra um að flugvélm hefði
farið yfir grasið sem skilur að flug-
brautimar tvær, 05R og 05L sem
liggja samsíða. Jung-Kai, yfirmaður
ráðsins, neitaði hins vegar að svara
spurningum blaðamanna um hvort
rannsóknimar hefðu leitt í Ijós að
vélin hefði tekið á loft frá vitlausri
flugbraut, þeirri sem lokuð var
vegna viðgerða, 05R.
Sú getgáta hefur verið sett fram,
m.a. studd með myndum sjónvarps
af skemmdum gröfum á lokuðu
brautinni, auk þess sem tveir flug-
menn flugfélagsins China Airlines,
sem biðu brottfarar og horfðu á
flugslysið, sögðu við fjölmiðla að
þeir hefðu horft á flugvélina nota
lokuðu flugbrautina. Jung-Kai neit-
aði að segja nokkuð um þessi um-
mæli og talsmaður kínverska flugfé-
lagsins benti á að það væri ekki víst
að þeir hefðu séð rétt.
Mestur hluti flaksins fannst á
lokuðu flugbrautinni, 05R. Því hefur
einnig verið haldið fram að sterkar
vindhviður hvirfilbylsins sem var í
aðsigi á mánudagskvöldið, hafi vald-
ið því að flugvélina hafi borið á
ranga braut, en þá hefðu átt að
sjást merki þess, sem er ekki raun-
in.
„Ég er eingöngu að segja ykkur
frástaðreyndum. Allar greiningar
munu hefjast á morgun [í dag] þeg-
ar hópar sérfræðinga frá Singapore,
Bandaríkjunum og Ástralíu bætast í
hóp okkar,“ sagði Jung-Kai. Flug-
véhn sem fórst var í eigu Singapore
Airlines. Talsmenn þess hafa alger-
lega hafnað því að flugvélin hafi
flogið frá vitlausri flugbraut og
segja flugmanninn Foong Chee
Kong þekkja vel til flugvallarins.
Ættingjar þeirra sem fórust með
vélinni hafa ásakað stjórn flugvall-
arins og flugmennina fyrir að hafa
tekið á loft í allt of vondu veðri til
flugs. Flugmálayfirvöld hafa hins
vegar bent á að það hafi verið flug-
fært samkvæmt alþjóðlegum stöðl-
um.
Engin leið að bera kennsl
á líkin í Angóla
Antonov 26 vélin, sem fórst á
þriðjudag í Angóla, varð að öllum
líkindum fyrir vélarbilun. Kom
þetta fram í máli hershöfðingjans
Joao Soker í gær. Staðfest hefur
verið að allir um borð létust, en tal-
ið er að það hafi verið 48 manns. Að
sögn embættismanns í Lunda-Sul
héraðinu fann herinn flakið, „sem
var í ótal hlutum og verður ekki
hægt að endurheimta lík farþeg-
anna.“ Soker hershöfðingi sagði
einnig að engin leið yrði að bera
kennsl á líkin og gat ekki staðfest
hverrar þjóðar farþegamir voru.
Áhöfnin var að sögn Interfnx-írétt-
astofunnar rússnesku talin vera frá
Ukraínu.
Lunda-Sul héraðið er í NA-hluta
Angóla, en slysið átti sér stað 45 km
austur af Saurimo, höfuðstað
héraðsins. Það er áttunda flugslysið
sem hefur átt sér stað sl. fimm ár í
NA-Angóla. Þar eru helstu dem-
antanámur Angóla, og bítast her
landsins og uppreisnarhreyfingin
UNITA um völdin þar.
AP
Leiðangurinn
„Breiddar-
baugur núll“
áenda
Genf. AP.
Þ AÐ voru fagnaðarfundir hjá ævin-
týramanninum Mike Horn og Cathy
eiginkonu hans er þau hittust eftir
sautján mánaða ferð Horns um-
hverfis miðbaug jarðar.
Hom er sá fyrsti til að fara þessa
leið án þess að hafa stuðst við vél-
knúin farartæki, en hann komst
leiðar sinnar fótgangandi, á segl-
báti og hjólandi.
Horn lagði af stað í leiðangurinn,
sem bar heitið „Breiddarbaugur
núll“, 2. júní, 1999 frá Libreville í
Gabon, á vesturströnd Afríku. Það-
an hélt hann sem leið lá yfir
Atlantshaf til Brasilíu og fylgdi
miðbaug þar til kom að leiðarlokum
í vikunni. Þar með hafði hann lagt
40.000 kflómetra að baki og segist
aldrei hafa vikið meira en 25 km frá
miðbaug á leiðinni.
Hom sagði blaðamönnum í Genf
að hann hefði komist I hann krapp-
astan á leiðinni þegar hann lenti i
hvirfilbyl á Indlandshafi og þegar
hann lenti íþoku átoppi snæviþak-
ins Kenyafjalls. Reyndar var hann
einnig handtekinn við komuna til
Kongó og sat hann inni í fjóra daga,
og var búið að fyrirskipa aftöku
hans þegar hann losnaði úr
prísundinni. Hom sagði líka að
hann hefði sennilega komist leiðar
sinnar á tólf mánuðum, væm cngir
menn á jörðinni.