Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Barry
Millinglon
Richard
Wagner
Selma
Guðmundsdóttir
Björnsson
„Islendingar fái
þann heiður sem
þeir eiga skilið“
RICHARD Wagner félagið á ís-
landi hefur frá upphafi lagt sér-
staka áherslu á að beita sér fyrir
rannsóknum og kynningu á áhrif-
um íslenskra fornbókmennta á líf
og starf tónskáldsins. Fyrir tilstilli
félagsins og margra stuðningsaðila
þess hefur dr. Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur getað helgað sig
rannsóknar- og ritstörfum á þessu
sviði um nokkurt skeið. Rannsóknir
Árna hafa einnig verið styrktar af
menntamálaráðuneytinu.
Bókin „Wagner og Völsungar",
sem nú kemur út hjá Máli og
menningu, er rúmlega 200 síður
með miklu myndefni og hefur Árni
Tómas Ragnarsson verið ritstjóri
þess. Á afmælishátíð félagsins, sem
hefst kl. 18 á morgun, verður Birni
Bjarnasyni menntamálaráðherra
afhent fyrsta eintak af bókinni.
„Niðurstöður Árna eru mjög at-
hyglisverðar og eiga ekki síður er-
indi á alþjóðavettvangi en hér
heima. Það er vissulega enginn
nýuppgötvaður sannleikur að
Eddukvæðin, Snorra-Edda og
Völsungasaga, svo dæmi séu tekin,
hafi verið ákaflega mikilvægur
bakgrunnur fyrir samningu Nifl-
ungahringsins. Frá því er sagt í
fjölmörgum bókum og ritum. Pað
sem vekur spurningar er einkum
sú staðreynd að sjaldnast er talað
um þessi verk sem íslenskar bók-
menntir heldur talað um annað-
hvort norrænar bókmenntir, með
orðunum „nordic“ og þó oftar orð-
inu „norse“, eða þá að talað er um
skandinavískar bókmenntir,“ segir
Selma Guðmundsdóttir, formaður
Richard Wagner félagsins á ís-
landi.
Frá íslenskum sjónarhóli
„Skylt og rétt er að íslenskar
bókmenntir verði rétt feðraðar í
þessu samhengi og Islendingar fái
þann heiður sem þeir eiga skilið
fyrir. Það getur vel verið að hinn
almenni óperugestur muni trúa því
eftir sem áður að Wagner hafi
byggt Niflungahringinn á Nifl-
ungaljóðinu þýska, sama hvað allri
fræðilegri umræðu og umfjöllun
líður. En það er engu síður löngu
tímabært að fjallað verði um tengsl
íslenskra bókmennta og Wagners
frá íslenskum sjónarhóli af aðilum
sem gjörþekkja okkar bókmennta-
arf og að það verði gert þannig að
eftir því verði tekið, bæði hér
heima og erlendis," segir Selma
ennfremur.
Niðurstöður Árna sýna, að sögn
Selmu, með óyggjandi hætti að
vægi íslensku ritanna sem Nifl-
ungahringurinn sækir söguefni sitt
til er enn meira en búist hafði verið
við. Ámi hefur fundið út að um 80%
af aðfengnum efnishugmyndum
Wagners í Niflungahringnum komi
frá íslenskum bókmenntum ein-
göngu, um 5% frá þýska Niflunga-
ljóðinu og öðrum þýskum heimild-
Richard Wagner félagið
/
á Islandi er fimm ára.
--7--------------------
A afmælishátíð á laug-
ardag verður sérstak-
lega fagnað útkomu
bókarinnar „Wagner
og Völsungar“ eftir
-----------------------
dr. Arna Björnsson. Þá
mun breski Wagner-
sérfræðingurinn Barry
Millington halda tvo fyr-
irlestra á vegum félags-
ins. Orri Páll Ormars-
son ræddi við Selmu
Guðmundsdóttur,
formann félagsins.
um en að um það bil 15% séu
þessum fornu bókmenntum sam-
eiginleg.
Unnið er nú að þýðingu bókar-
innar til útgáfu erlendis.
Tveir fyrirlestrar
Fleira verður um að vera á af-
mælishátíðinni, því þekktur bresk-
ur Wagner-sérfræðingur, Barry
Millington, mun koma í heimsókn
og halda tvo fyrirlestra á vegum fé-
lagsins. Sá fyrri verður í samstarfi
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
Laugavegi 178, í dag kl. 17 og nefn-
ist: „Fyrirmyndir Wagners að tón-
listinni í Tristan og Isolde.“
Fjallað verður um áhrif frá tón-
skáldunum Spohr, Bellini, Beethov-
en og Berlioz og rætt um athyglis-
verða notkun Wagners á tóna-
ljóðinu „Nirvana" eftir Hans von
Biilow. Síðustu taktana úr því verki
notaði Wagner og umbreytti í tón-
list Ástardauðans (Liebestod).
Síðari fyrirlestur Millingtons
verður á afmælishátíðinni á morg-
un kl. 18.15 og heitir „Wagner og
annað fólk“ (Wagner as a Social
Being). Athugun á félagslegum
kringumstæðum skoðana og hátta-
lags Wagners í ljósi tilhneiginga til
að gera skratta úr honum.
Jóhann Friðgeir Valdemarsson
tenórsöngvari mun syngja á afmæl-
ishátíðinni á morgun við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar píanó-
leikara kl. 19.30. Að söng loknum,
kl. 20, verður borðhald.
Endurgalt þakkarskuld
Richard Wagner félagið var
stofnað í desember 1995, ári eftir
að stytt útgáfa á Niflungahring
Wagners var sýnd á Listahátíð
1994 í samvinnu við Wagner-hátíð-
ina í Bayreuth. „Sýningin vakti at-
hygli og aðdáun bæði hér á landi og
víða um heim og markaði tímamót
á margan hátt,“ segir Selma.
Aldrei áður höfðu afkomendur
tónskáldsins staðið að styttum upp-
færslum á þessu risaverki Wagners
sem samanstendur af 4 óperum og
er samanlagt um 15 tímar að lengd.
„Með stuðningi sínum og hvatn-
ingu að þessu verkefni vildi sonar-
sonur tónskáldins og núverandi
stjórnandi í Bayreuth, Wolfgang
Wagner, endurgjalda þakkarskuld
þá sem f slendingar áttu inni vegna
hins mikilvæga hlutverks sem ís-
lenskar fornbókmenntir gegndu við
tilurð Niflungahringsins.
Sýning Niflungahringsins á ís-
landi varð til að þjappa saman
áhugamönnum um Wagner á land-
inu. Ári síðar fór 30 manna hópur
íslendinga í heimsókn á Bayreuth-
hátíðina og þar úti var haldinn und-
irbúningsfundur að stofnun félags-
ins. Félagar í dag eru um 160
talsins. Fyrir utan þá áherslu sem
lögð hefur verið á að stuðla að
rannsóknum og kynningu á áhrif-
um íslenskra fornbókmennta á
Niflungahringinn hefur markmið
félagsins verið að auka skilning á
verkum Wagners. Óperur Wagners
hafa verið sýndar af myndböndum
og haldnir hafa verið kynningarfyr-
irlestrar og málþing um þær og
önnur efni tengd tónskáldinu," seg-
ir Selma.
Richard Wagner félagið hefur
haft milligöngu um að senda ís-
lenska styrkþega sem gesti á Bayr-
euthhátíðina. Styrkþegar fram að
þessu hafa verið Anna M. Magnús-
dóttir, tónlistarfræðingur og sem-
balleikari, og bassasöngvararnir
Bjarni Thor Kristinsson og Tómas
Tómasson. Á liðnu sumri tók
Magnea Tómasdóttir sópransöng-
kona sem fulltrúi félagsins þátt í al-
þjóðlegri keppni Wagnersöngradda
í Þýskalandi og komst í 16 manna
úrslit.
Auk þess hefur fjöldi Islendinga
á undanförnum árum getað séð
sýningar á Bayreuthhátíðinni
vegna þeirra tengsla sem komist
hafa á við Bayreuth og Wolfgang
Wagner. „Það eru mikil forréttindi
því hátfðin er afar eftirsótt og bið
eftir miðum á hana að jafnaði um
sjö ár,“ segir Selma.
Stjórn Richard Wagner-félagsins
er þannig skipuð: Formaður frá
upphafl Selma Guðmundsdóttir,
varaformaður Jóhann J. Ólafsson,
gjaldkeri Jón Ragnar Höskuldsson,
ritari Halldór Halldórsson og Sól-
rún Jensdóttir. Varastjórn Árni
Björnsson, Árni Tómas Ragnar-
sson og Gretar Ivarsson.
Þess má geta að Barry Milling-
ton, sem er orgelleikari, mun koma
fram á tónleikum ásamt eiginkonu
sinni, Deborah Calland trompet-
leikara, á tónleikum á Tónlistar-
dögum Dómkirkjunnar á sunnudag
kl. 17.
Ungling’akórar í
Langholtskirkj u
TÓNLEIKAR á vegum Kristni-
hátíðarnefndar Reykjavíkur-
prófastsdæma verða í Langholts-
kirkju á sunnudag kl. 17.
Þar koma fram sjö unglinga-
kórar við kirkjur prófastsdæm-
anna, alls um 270 söngvarar,
ásamt 20 manna hljómsveit, einn-
ig skipaðri unglingum. Kórarnir
flytja saman þrjá þætti úr Gloria
eftir Vivaldi og einnig fjölbreytta
efnisskrá hver fyrir sig. Þetta er
einn liður í hátíðahöldum Reykja-
víkurprófastsdæma á Kristnihá-
tíðarári, en síðastliðið vor sungu
yngri barnakórar, alls um 400
börn, á söngdegi í Digraneskirkju.
Kórarnir sem syngja á sunnu-
daginn eru Unglingakór Fella- og
Hólakirkju, stj. Þórdís Þórhalls-
dóttir, Unglingakór Grafarvog-
skirkju, stj. Oddný Þorsteinsdótt-
ir, Stúlkna- og Kammerkór
Bústaðakirkju, stj. Jóhanna Þór-
hallsdóttir, Kór Snælandsskóla,
stj. Heiðrún Hákonardóttir,
Stúlkna- og Kammerkór Grens-
áskirkju, stj. Margrét Pálmadótt-
ir, Unglingakór Hallgrímskirkju,
stj. Bjarney Ingibjörg Gunnlaugs-
dóttir, og Gradualekór Langholts-
kirkju, stj. Jón Stefánsson.
Kórarnir gegna allir mikilvægu
hlutverki við kirkjur sínar og hafa
einnig haldið sjálfstæða tónleika
og verið boðið í tónleikaferðir er-
lendis.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
HAPPDHÆTTI
ást dae
Vinningaskrá
27. útdráttur 2. nóvember 2000
íbnðavinitingur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
49264
F erðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
5009
36946
44 124
69878
Ferðavinningui
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
869 11498 39547 45764 57716 67183
9376 32669 45578 51626 57826 69392
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
984 10469 17282 28541 40907 49503 60456 72270
3492 10632 18500 28889 42904 49622 60848 73499
4879 11000 18703 29179 44038 51756 61286 73756
5164 11943 19034 29266 44044 52138 61315 74142
5436 12558 20642 31125 45721 53080 61948 74756
5608 12600 21431 31841 45777 53612 64849 75534
5737 13568 21848 35786 46301 53705 65019 76147
5741 14176 23042 36425 46399 54936 67326 76530
6060 14984 23508 37524 46520 55574 67687 77688
6112 15340 25072 39825 46797 58380 69318
6869 15618 25299 39828 47271 58619 69726
7184 15682 25453 39905 47536 59505 70871
9862 16123 26688 40499 49265 59750 71371
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
34 7968 16364 30658 41334 49747 57806, 70077
204 8381 16743 31137 41361 49847 57895 70566
463 8563 17631 31447 42136 50124 57995 70847
579 8590 18150 32139 42169 50273 58030 71637
735 8657 19267 32775 42728 50279 59266 72238
911 9569 19741 32924 42932 50794 59672 73411
1114 9587 19852 33034 43196 50833 59730 73940
1344 9918 20574 33229 43911 51246 59830 74488
1364 9957 21093 33329 43915 51313 60234 74687
1624 10148 21552 33845 44519 51452 61030 74716
1732 10464 22202 33995 44585 51469 61649 74770
1927 10719 22221 34240 44683 51904 62002 76090
2110 11351 23986 34748 44781 52274 62137 76386
2470 11813 24158 34852 45282 52430 62874 76520
2649 11974 24198 35164 46078 52437 63019 76986
2925 12368 24742 35883 46694 54061 63609 77068
3330 12464 25177 36324 46722 54171 63806 78399
3671 12507 25452 36398 46773 54283 64071 78701
3817 12693 25632 36592 46789 54456 64079 79233
4145 13060 25793 36647 46801 54770 64219 79237
4465 13327 26812 37042 46883 55032 65526 79307
4668 13373 26942 37254 48265 55142 65588 79316
5568 13591 26992 37470 48266 55227 65652 79358
5586 13646 27981 37550 48553 55326 66274 79406
6085 13969 28637 37578 48641 55453 66385 79458
6164 14341 28831 38262 48651 56055 66392 79689
6743 14732 29002 39434 48736 56502 66746
6909 14773 29167 39894 49036 56843 67350
7259 15497 29465 40283 49039 56844 68569
7829 15899 29474 40363 49387 56857 69513
7876 16156 29962 40621 49555 56900 69612
7955 16332 30402 40918 49559 57742 70028
Næstu útdrættir fara fram 9. nóv., 16. nóv., 23. nóv. & 30. nóv. 2000
Heimasiða á Interneti: www.das.is