Morgunblaðið - 03.11.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYJVDIR
Laugarásbfó
SHAFT★ ★
Leikstjóri: John Singleton. Handrit:
Aðalhlutverk: Samuel L. Jackson,
Vanessa L. Williams, Jeffrey
Wright, Christian Bale og Toni Col-
ette. Paramount 2000.
ÉG ER ein af þeim íslendingum
sem þekkja ekki löggutöffarann
John Shaft, og er litlu nær eftir að
hafa séð þessa mynd.
Myndin segir frá ungum og rík-
um kynþáttahatara, Walter Wade
Jr. (Christian Bale), sem drepur
ungan svertingja fyrir utan bar.
Morðinginn stingur af til útlanda,
en kemur aftur tveimur ái*um síðar
Leirlista-
sýning í
Gerðarsafni
GUÐRÚN Halldórsdóttir leirlistar-
maður opnar sýningu á neðri hæð
Listasafns Kópavogs sem hún nefnir
Freyjur og för á morgun, laugardag,
kl. 16.
Guðrún sýnir 30 gripi, sem eru
unnir á síðustu tveimur árum. Eins
og nafn sýningarinnar ber með sér
er aðalefni hennar konur og skip.
Konur Guðrúnar eru stæðilegar og
bera fomíslensk og norræn nöfn.
Skip hennar minna á för víkinga,
fornnorrænna farmanna og ís-
lenskra -fiskimanna. Guðrún hand-
byggir verk sín og brennir í sagi.
Þetta er íyrsta einkasýning Guð-
rúnar á íslandi, en hún hefur numið
og starfað í Bandaríkjunum undan-
farin 10 ár. Hún hefur haft einka-
sýningar þar og gripir hennar hafa
verið valdir á samsýningar víða um
Bandaríkin. Um þessar mundir eru
verk hennar meðal verka 13 ís-
lenskra listamanna, sem em frammi
í sýningarsal Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins í Washington, DC. Hrefna
Jónsdóttir, Gallery hefur verk Guð-
rúnar jafnan til sýnis og sölu. Vefslóð
listamannsins er gudmnceramic-
sculpture.com.
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga kl. 11 til 17 og stendur til
26. nóvember.
----------------
Prinsessan í
hörpunni
LEIKBRÚÐULAND sýnir í Tjam-
arbíói brúðuleikritið Prinsessan í
hörpunni eftir Böðvar Guðmundsson
- leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Aukasýningamar em laugardaginn
4. nóvember kl. 15 og sunnudaginn 5.
nóvember kl. 15.
Miðar era seldir sýningardagana í
Tjamarbíói frá kl. 11.
Sýningin er ætluð bömum frá 4
ára aldri.
-----------------
Nýjar geislaplötur
• ÚT er komin tvöfold geislaplata
sem inniheldur öll bestu lög Hauks
Morthens. Platan ber heitið Ó, borg
mín borg og^geymir hún alls 46 lög
með Hauki. I fréttatilkynningu seg-
ir: „Upptökumar vom gerðar á ár-
unum frá1952 til 1982 en Haukur
lést árið 1992. í öllum tilfellum er
um að ræða þær upptökur laganna
sem náðu mestum vinsældum og
platan er unnin í náinni samvinnu
við Ragnheiði Magnúsdóttur, ekkju
Hauks. Eins og flestir vita var
Haukur einn alvinsælasti söngvari
íslands á nýliðinni öld en hann söng
einnig mikið á Norðurlöndum.
Haukur var raunar fyrsti Islending-
urinn sem gerði dægurlagasöng að
atvinnugrein.
Meðal laga á plötunum má nefna
Hæ Mambó, Kaupakonan hans Gísla
í Gröf, Ó, borg mín borg, Til era fræ,
Hulda spann, Heima o.fl. gæðalög.“
íslenskir tónargefa út. Verð:
2.499 krónur.
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 39
______LISTIR___
Tætingslegur
töffari
(af óskiljanlegum ástæðum) og þá
fær John Shaft tækifæri á að ná
kauða, og ætlar sér það, jafnvel
þótt hann þurfi að segja sig úr lög-
reglunni.
Einhver hvíslaði því að mér að
konur hefðu fallið í stríðum
straumum fyrir hinum upprana-
lega Shaft, sem einnig hafði eitt-
hvað til síns mál í samfélagsum-
ræðunni. Hvoragt á við um þann
Shaft sem hér er endurborinn, og
af þeim völdum eða öðrum er sag-
an tóm að innihaldi en full af
töffarastælum með réttum tilsvör-
um og ofbeldi sem manni ofbýður.
Maður fær enga tilfinningu fyrir
John Shaft, hver hann er eða hvað
hann vill. Að lumbra á kynþátta-
höturum, já, en eitthvað meira eða
dýpra, nei.
John Singleton virðist bara haft
eina sögu að segja og sagði hana í
fyrstu og bestu mynd sinni, Boyz
’N the Hood (1991), þar sem hann
segir frá því hvernig foreldrum
hans tókst að halda honum frá því
að þræða glæpaveginn, en eftir
það hafa myndir hans verið æði
misjafnar að gæðum. Segjast verð-
ur að það er sjálfsagt mjög erfitt
að skrifa mynd upp úr sjónvarps-
þáttum um eina helstu töffara-
ímynd bandarískra svertingja.
Enda hefur það ekki tekist betur
en svo að myndin er alveg í meðal-
lagi, gæti verið ágætis glæpasjón-
varpsmynd, þar sem fjölmörgum
kynþáttum ægir saman án þess að
verið sé að reyna að segja eitthvað.
Myndin hefur þó sína ljósu
punkta: lagið og leikarana. Aðal-
stefið er virkilega smart og kemur
manni alltaf í gott skap. Jeffrey
Wright og Christian Bale eru mjög
góðir í sínum hlutverkum en
Samuel L. Jackson að vonum eitt-
hvað villuráfandi.
Hildur Loftsdóttir
Styrkur/Sterkur Magi
www.mbl.is
og Kaninko
úr Loftkostolanum
heimsækja Jólnlandið
föst. kl. 6 og laug. kl. 3
JSM)
’4i& 1 2 Rósir
Stk.(minni)
^HÚSV/S^
sími: 5800 500