Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 47
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 4.Z. MINNINGAR ur alla tíð. Þegar við vorum lítil vildi hann alltaf að við værum snyrtilega klædd, fín og flott. Það eru til marg- ar myndir af Egga með okkur þar sem við erum vel klædd og snyrtileg. Þannig vildi Eggi hafa okkur og þannig hefur hann viljað hafa bömin okkar. Eggi fylgdist alltaf vel með okkur, sérstaklega þegar við vorum á ferðalögum til eða frá Ólafsvík. Það vai- föst regla hjá honum að koma til mömmu í Brautarholtið þegar við vorum nýkomin og hann sagði oftast: „Nei, ertu nú komin til mömmu til þess að fá að borða?“ Hann hafði skilning á því hve gott er jafnan að koma til mömmu. Hann lét alltaf álit sitt í ljós ef við vorum á ferðinni í vondum veðrum og á nóttunni. Hon- um var illa við það og hann var ekki í rónni fyrr en við vorum komin heilu og höldnu á leiðarenda. Oft kom það fyrir að Eggi var hringjandi hingað og þangað í ættingja ef einhver var á ferðinni að nóttu til og var ekki kom- inn á leiðarenda, honum var ekki sama fyrr en allir voru heilir í höfn. Honum var illa við vetrarveðrin, erf- ið færð á vegum og vond sjóveður fóru illa í hann og hann var ómögu- legur maður við slíkar aðstæður. Eggi vann lengi á dráttarvél hjá sveitarfélaginu og hafði m.a. það hlutverk að sópa götur bæjarins. Þá fór oftast mikið fyrir honum og hann lét þá heyra það sem ekki pössuðu upp á að færa bílana sína þegar hann sópaði göturnar. Það var dæmigert fyrir Egga, hann fór yfirleitt ekki hljóðlega og vildi hafa hlutina í lagi. Eggi frændi féll skyndilega frá og lést í svefni í rúminu sínu. Einn úr fjölskyldunni er horfinn á braut yfn- móðuna miklu og við söknum öll Egga frænda. Við Maggi, Guðrún og Guðmundur þökkum Egga fyrir samfylgdina og biðjum algóðan Guð að gæta hans og blessa minningu hans. Drífa. Eggert Kristjánsson eða Eggi eins og hann var yfirleitt kallaður í Víkinni var sérstakur maður, hann var ekki allra og allir voni heldur ekki hans, en þeir sem voru hans voni það sama hvað á gekk. Ég kynntist Egga eiginlega um leið og konunni minni fyrir rúmum tuttugu árum, því að hann var órjúf- anlegur hluti af hennar fjölskyldu. Þegar ég kom í fyrsta skipti vestur til Olafsvíkur þá mætti mér þar lítill, kvikur og hávær maður sem mældi mig allan út, hann hafði skoðanir á flestu og auðvitað mér líka. Ég for- vitnaðist að sjálfsögðu um hver þessi maður væri sem byggi inni á heimil- inu og fékk að vita að hann væri alls- endis óskyldur maður sem tengda- foreldrar mínir hefðu tekið inn á heimilið þegar til þess var stofnað og hafi verðið þar síðan sem einn af þeim. Eggi hafði áhuga á mjög mörgu, hann fylgdist vel með fiskeríi hjá bátunum og hringdi þá gjarnan í vini sína á Agli og gaf þeim góð ráð og lagði oftar en ekki til að þeir kæmu sér í land þar sem von væri á hinu versta veðri. Dætrum og barnabörn- um Jóu gömlu og Guðmundar Jens- sonar fylgdist hann mjög vel með og skammaði og kallaði ónytjunga í þeirra eyru ef þannig lá á honum en varð hinn versti ef einhver annar svo mikið sem hallaði orðinu örlítið um þau. Við hin sem tengdust þeim átt- um ekki sjö dagana sæla hjá honum, ekkert okkar var þeim samboðið, allavega ekki svo við heyrðum til. Eggi fylgdist vel með íþróttum og þá sérstaklega knattspyrnunni hér á Nesinu þegar hún var og hét. Vík- ingur var hans lið og Hólmarar hans andstæðingar númer eitt og það heyrðist um allan völl þegar hann var mættur. Uppáhaldsleikmaður- inn hans í gegnum tíðina var hraust- ur múrari úr plássinu sem iðulega spilaði í vörninni, skýringin var ein- föld; hann sparkaði manna hæst og lengst og á meðan boltinn var í loft- inu þá skoruðu helv... Hólmararnir ekki. Eggi var pólitískur með ein- dæmum og var tilbúinn til að verja sína menn með miklum skörungs- skap og látum þegar sá gállinn var á honum. Hann varð snemma hrifinn af Alexander Stefánssyni og Fram- sóknarflokknum og því gat ekkert breytt. Eggi dvaldi nokkra vetur hjá okk- ur Jóhönnu í Reykjavík eftir að hann hætti að vinna, það var honum góð tilbreyting frá verunni í Ólafsvíkinni og ágætis stytting á vetrinum. Þar kynntist hann körlunum í götunni sem voru á svipuðu reki og tókst með þeim hinn besti vinskapur. Börnun- um mínum og okkur var hann sér- lega góður eins og öllum sem tóku honum eins og hann var. Þegar maður svo situr og hugsar til baka þá áttar maður sig á að svona menn eins og Eggi eru að hverfa út úr þjóðfélaginu og heimil- unum og eftir verður fátæklegri heimur. Það voru ekki ófá mannamótin þar sem hann hélt uppi umræðunni eða þá þegar hann ekki var viðstaddur gekk umræðan út á hann eða eitt- hvað sem karl hafði sagt eða gert. Eggi, við kveðjum þig með sökn- uði og trega því við vitum að við eig- um eftir að sakna þín um ókomna tíð. Þínir vinir í Skógargerði 3, Reykjavík, _ Gunnar Örn, Jóhanna og börn. Eggi, við þökkum þér fyrir að hafa lesið fyi-ir okkur öll kvöldin þegar þú varst hjá okkur í Reykjavík, allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an og allt nammið sem þú gafst okk- ur. Takk fyrir að hafa passað Kalla kanínu fyrir Asu. Okkur langar að láta bænina sem við förum svo oft með á kvöldin fylgja: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þínir vinir, Jónas og Gunnar. Þóttégsélátinn harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir migogkveiur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug sál mín lyftist upp i mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfirlífinu. (Höf.óþ.) Við fráfall heiðursmannsins Egg- erts Kristjánssonar leitar hugurinn rúma tvo áratugi aftur í tímann þeg- ar við strákarnir í Víkingi Ólafsvík reyndum að halda uppi heiðri bæjar- ins í íþróttum með því að leggja okk- ur fram á knattspymuvellinum. Ég veit ekki til þess að Eggert hafi misst af einum einasta leik í Ólafsvík þegar hann var heima enda hefði hann líklega ekki komist upp með það. Hann var jafnsjálfsagður hluti af leiknum og leikmennimir, dómarinn og línuverðirnir. Líklega hafa aðkomumenn haldið að Eggert væri þjálfari Víkings því hann lét stöðugt í sér heyra og hafði skoðanir á öllu, innan vallar sem ut- an. í rauninni komst maður aldrei al- mennilega í gang fyrr en Eggert lét til sín taka. Hann hrósaði mönnum, skammaðist, bölvaði, skellihló eða gekk meðfram hliðarlínunni, allt eft- ir því hvað átti við hverju sinni. Gott ef línuverðirnir reyndu ekki að forð- ast að vera fyrir honum því ekkert fékk stöðvað hann þegar hann var í ham. Eggert er einn eftirminnilegasti áhorfandi og stuðningsmaður sem ég komst í kynni við á 15 ára knatt- spymuferli. Honum var ekkert óvið- komandi. Hann hafði ætíð hugrekki til að vera hann sjálfur, fór ekki leynt með skoðanir sinar en var engu að síður nærgætinn og hlýr. Og það var notalegt að ræða við hann um alvar- legri hugðarefni en boltaspark. Ég efast um að leikmenn, sem spiluðu gegn Víkingi á Ólafsvíkurvelli, hafi gleymt þeim hnitmiðuðu athuga- semdum sem Eggert viðhafði fyrir leiki, í hita leiksins og eftir að leikj- um lauk. Og hann hitti yfirleitt nagl- ann á höfuðið. Þegar maður hefur búið lengi fjarri æskustöðvum sínum verður hvert augnablik fortíðarinnar dýr- mætara með hverju árinu sem líður. Manni birtast einatt myndir af at- burðum, einstaklingum og aðstæð- um sem höfðu áhrif í uppvextinum. Hlýlegt viðmót Ólsara, prakk- arastrikin, fjallaferðirnar, bátarnir að sigla í land með fullfermi, sveita- böllin og svo mætti lengi telja. Mað- ur fyllist eftirsjá og söknuði og þráir að hverfa aftur í tímann til að ylja sér við augnablikin sem skiptu máli. Ólafsvík verður ætíð minn heima- bær og Eggert er einn af þeim sterku persónuleikum sem koma oft upp í hugann þegar nostalgían tekur völdin. Hann setti svip sinn á bæinn, var hreinn og beinn, fór ekki í mann- greinarálit og það var sama undir hvaða kringumstæðum maður hitti Eggert, fyrir vestan eða í Reykjavík, hann gaf sér alltaf tíma til þess að ræða málin og spyrja frétta. Ég mun sakna þess að eiga ekki lengur von á því að hitta einn af merkisborguram Ólafsvíkur, Eggert Kristjánsson, þegar ég heimsæki æskustöðvarnar. Ef ég þekki Eggert rétt mun hann ekki láta fótboltann og fólkið sitt framhjá sér fara, jafnvel þótt hann hafi yfirgefið þetta líf. Þorgrímur Þráinsson. v/ Possvogsl<i»4<jwgatt9 Sími* 554 0500 t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Neðstabergi 12, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut miðvikudaginn 1. nóvember. Sölvi M. Egilsson, Einar M. Sölvason, Hafdís Steina Árnadóttir, Svavar E. Sölvason, Heiða Sigrún Andrésdóttir, Lárus A. Sölvason, Daníel R. Sölvason og systkini. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HRÖNN AÐALSTEINSDÓTTIR, Huldubraut 9, Kópavogi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 31. október. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtu- daginn 9. nóvember kl. 13.30. Gunnar R. Bjarnason, Sigurjón Páll Högnason, Halla Sólveig Haildórsdóttir, Jórunn Gunnarsdóttir, Skapti Valsson, Gunnar Snorri Gunnarsson, Nanna Herdís Eiríksdóttir og barnabörn. t Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, EGILL BJÖRGÚLFSSON, Hlíðartúni 4a, Mosfellsbæ. lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju- daginn 31. október. Þórdís Tryggvadóttir, Sigríður Egilsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson, Helga Egilsdóttir, Björgúlfur Egilsson, Lísa Pálsdóttir, Tryggvi Egilsson, Elín Magnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR BÁRA HJALTADÓTTIR, Seljalandsvegi 78, ísafirði, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 1. nóv- ember. Útför hennar fer fram frá ísafjarðarkirkju laug- ardaginn 11. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Þórður Júlíusson, Ásthildur Cesil Þórðardóttir, Elías Skaftason, Jón Ólafur Þórðarson, Hjalti Þórðarson, Gunnar Þórðarson, Halldóra Þórðardóttir, Sigríður Þórðardóttlr, Inga Bára Þórðardóttir, Bjarnveig Bjarnadóttir, Guðbjörg K. Jónsdóttir, Kristln Hálfdánardóttir, Sævar Óli Hjörvarsson, Ragnar Haraldsson, Jón Heimir Hreinsson, barnabörn og langömmubörn. t r Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. iO Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins meg þjónustu allan sólarhringinn. 7* Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja \ ¥ UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER ÞORFINNSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju I dag, föstudaginn 3. nóvember, kl. 14.00. ; Róbert Lauridsen, Sigurður Dagsson, Birgir Einarsson, Gísli Einarsson, Einar Emil Einarsson, Emelía H. Einarsdóttir, Stefán M. Autrey, barnabörn og barnabarnabörn. Sigrfður Magnúsdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir, Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.