Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 73
FOLKI FRETTUM
Unglist sett í kvöld í Ráðhúsi Reykjavíkur
Drekar í tónaflóði
LISTAHÁTÍÐ ungs fólks, eða
Unglist eins og hún kallast, er orð-
in það staðfastur liður að vetrinum
að það myndi jafnast við
brotthvarf jólahátíðarinnar ef
hana vantaði.
Setning Unglistar í ár
fer fram í Tjarnarsal
Ráðhússins og hefst ^
klukkan átta. Þar
mun m.a. Dagný Arnalds
söngkona og Daniel
Bjarnason píanóleikari
frumflytja lög eftir Davíð
Franzsonar við nokkur
ljóð Sindra Freyssonar úr
ljóðabókinni Harði kjarninn
Katla Þórarinsdóttir mun
dansa verk eftir Ólöfu Ingólfsdótt-
ur. Verkið heitir „Ég átti leið hjá“
og er tónlistin eftir hljómsveitina
múm.
Hrint verður af stað Ijósmynda-
og myndlistarmaraþoni Unglistar
sem um árabil hafa verið geysilega
vinsœl, enda ávallt glæsilegir vinn-
ingar í boði.
„Það sem er mjög einkennandi á
þessari Unglist er það hve
mikið er um tón-
Iist,“ segir Ása ^ ■
Ilauksdóttir
verkefnastjóri
menningarsveitar Hins Húss-
ins. „Sem kannski bara endur-
speglar hvað er mikið að gerast í
tónlistarlífínu. Yfírleitt hafa alltaf
vérið haldnir rokk, djass og klass-
ískir tónleikar en núna verða líka
rafrænir, harðkjarna og Hipp-
hopp. Það er eins og ungt fólk sé
farið að skipa sér í stefnur. Það er
mín tilfínning að það sé annað fólk
sem mætir á harðkjarnatónleikana
en hefðbundnu rokktónleikana.
Áður fyrr gat maður sagt að rokk-
ið hafí verið sameiningartákn fyr-
ir ungt fólk en nú eru margar und-
irstefnur í gangi. Þetta er að vissu
leyti farið að vera mun sérhæfð-
ara.“
Tónaflóð, yfír og undir
vatnsyfírborðinu
Fyrstu tónleikarnir verða haldn-
ir á morgun, undir vatnsyfirborði
djúpu laugarinnar í Sundhöllinni.
Þar lcika m.a. tónlistarmennirnir
Borko, Músíkvatur og Kristín
Björk. Eina leiðin til þess að heyra
tónlistina á þessum tónleikum er
að „kasta sér út í djúpu laugina", í
fyllstu merkingu, því áheyrandinn
heyrir ekkert án þess að dýfa
hausnum undir vatnsyfírborðið.
„Þetta er haldið í þriðja og al-
síðasta skiptið," segir Ása. „Þarna
tengist sam-
an hið sjón-
ræna og hið
skynræna. Þetta
er líka innsetn-
ing. Þetta hef-
ur aidrei verið eins hverju sinni
af því þau hafa verið að leika sé_r
með þetta rými í Sundhöllinni. I
fyrra voru þau með myndbands-
varpa en í ár verður meira um
ljóskastara, ofan í lauginni."
Á sunnudeginum verður svo
djassað í Ráðhúsinu. Á fimmtudeg-
inum verður síðasta „Sveimið í
svart/hvítu" haldið en þar leika
raftónlistarmenn undir sýningar á
gömlum klassískum þöglum mynd-
um.
Á föstudagskvöldinu verða
haldnir harðkjarnarokktónleikar i
Hlöðunni í Gufunesbæ en á laugar-
dcginum verða haldnir svokallaðir
Banka-rokkstónleikar í Loftkast-
alanum.
„Ef við horfum aðeins til baka,
til þess tíma þegar fyrsta Sveimið
var haldið, þá áttar maður sig á
því að þarna var kannski upphafíð
á þeirri raftónlistarbylgju sem er í
gangi í dag. Fyrstu NeoGeo-ið
[neðanvatnstónleikarnir] fóru t.d.
framhjá mörgum. Fólk frétti síðan
af þessu eftirá og mætti árið eftir.
Það er bara vonandi að við fáum
jafn frábærar hugmyndir í fram-
tíðinni."
Ár drekans
„Alltaf í gegnum öll 9 ár Ung-
listar hafa ungmenni hannað vegg-
ALMEIXIKMUR
DAIMSLEIICUR
með Wjómsveítírmí KOS
í Ásgardi, Glæsibæ,
í kvöld.
Húsið opnað kl. 22.00. Allir velkomnir!
Kripalu yoga
“ I Byrjenda-
He'ga námskeið
Mogensen
'HRAm'
HÖSI0,
Simi 551 5103
HARMONIKUBALL
„Meðan ég enn er frá á fæti fer ég á
ball....“ Dansleikur í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima, í kvöld. Félagar úr
Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir
dansí. Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Allir velkomnir.
spjöld og merki hátíðarinnar,"
segir Ása. „Núna var hönnunin
höfð sem verkefni fyrir fyrsta árs-
nema í grafískri hönnun í Listahá-
skólanum. Það voru 20 nemendur
spreyttu sig á þessu og síðan fór
dómnefnd yfir allar tillögurnar."
Hönnuðurinn ungi sem þótti
standa upp úr heitir Gunnar Þór
Arnarsson, en hann hefur gefíð
Unglist kínverskt blæ í ár. Sam-
kvæmt kínverskri stjörnu-
speki er „ár drekans" og því
er hann tákn Unglistar í ár.
„Hann fær þarna tæki-
færi til þess að spreyta sig
á alvöru verkefni. Fær að
fylgja því frá upphafitil
enda,“ segir Ása. „Ég
veit að nemendunum
fannst þetta gefandi
verkefni."
Unglist er haldin í Reykjavík, á
Akureyri, Vesturlandi og Austur-
landi og er hátíðin liður í dagskrá
menningarborgar Evrópu árið
2000. Eins og alltaf verður frítt inn
á allar uppákomur Unglistar.
ALSA
með Carlos
M Ný námskeið
oö hefjast
L Á Byrjendur og
Carlos ftamhald sími 5515103
MIMISBAR
Lifandi tónlist
um helgina.
SIGHVATUR
SVEINSSON
spilar og syngur.
Opið löstudags- og
laugardagskvöld
ítdtASt>t\
HOTELS ft RESORTS
Radisson SAS Hótel Saga, sími 525 9900
Snyrti og nuddstofan
DADADÍÖ
Laugarnesvegi 82
S: 553 1330
20 ára
afmæli og útgáfupartý
Viðskiptavinir og velunnarar!
Ykkur er boðið að piggja veitingar
laugardaginn 4. nóv. milli kl. 14 og 18
>
KNICKERBOX
A 5 ára
,|Tra Veislan heldur
' m áfram
KNICKERBOX
Laugavegi 62
Sími 551 5444
ICK
Afmælisvika
til sunnudagsins
5. nóvember
Milli kl. 14 og 16 á
morgun, laugardag, er
tískusýning í verslun
okkar í Kringlunni.
Einar Ágúst mun koma
í heimsókn og flytja
nokkur lög.
20% afsláttur
af öllum vörum
| Sendum í póstkröfu
Fylgstu með afmælisleik
okkar á FM 95,7
ox
lunni Glæsileg
verðlaun