Morgunblaðið - 15.12.2000, Page 2

Morgunblaðið - 15.12.2000, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Gullfoss í klakaböndum Fjöldi vísbend- inga hefur borist Sex slösuðust í árekstrinum á Eyrarbakkavegi í gærkvöldi. Fjögurra bfla árekstur ÞRENNT var flutt á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss eftir harðan árekstur fjögurra bif- reiða á Eyrarbakkavegi í gærkvöldi. Ails slösuðust sex manns í árekstr- inum en þrír fengu að fara heim að lokinni læknisskoðun. Lögreglan á Selfossi segir tildrög slyssins ekki með öllu ljós. Svo virð- ist sem bilaðri bifreið hafi verið lagt í vegarkant skammt sunnan bæjarins Stekka í Sandvíkurhreppi. Annarri bifreið var lagt í öfuga akstursstefnu gegnt bilaða bílnum, en ökumaður- inn mun hafa komið ökumanni og farþega bilaða bílsins til aðstoðar. Þriðji bfllinn, sem ekið var suður Eyrarbakkaveg, lenti þá aftan á bil- aða bflnum sem skall á bifreiðinni sem lagt var fyrir framan. Stuttu síð- ar skall fjórði bfllinn aftan á þeim þriðja. Heims um ból í Páfa- garði KRISTJÁN Jóhannsson tenór- söngvari mun syngja i hátíðar- messu Jóhannesar Páls páfa II í Páfagarði á aðfangadag. Krist- ján mun m.a. syngja sálminn Heims um ból á íslensku. „Það var búið að setja á oddinn að þetta yrði sungið á latínu en páf- inn messar auðvitað á latínu," sagði Kristján. „En það endaði með því að ég mun syngja á ís- lensku.“ Hann segist afar stolt- ur af að hafa verið fenginn til þessa verkefnis, ekki síst vegna þess að hann fær að syngja sálminn á móðurmálinu en einn- ig vegna þess að hann er sjálfur lúterstrúar. Fjölskylda Krist- jáns verður við messuna. „Þar er búið að taka frá fyrir okkur fremsta bekk og páfinn ætlar að heilsa upp á bömin mín,“ segir Kristján, sem kom til landsins í gær frá Italíu í stutta heimsókn. Slóg*ust eftir árekstur TIL HANDALÖGMÁLA kom á milli ökumanna tveggja bíla sem rákust saman á gatnamótum Lauga- vegar og Nóatúns í gærkvöldi. Að sögn lögreglu urðu bflstjórarnir ósáttir og slógust á götunni. Tók far- þegi í öðrum bílnum þátt í áflogun- um. Fólk dreif að og tókst að skakka leikinn áður en lögreglu bar að. Ekki er talið að mennimir hafí meiðst. GULLFOSS er ávallt tignarlegur á að líta og ekkert síður í klakabönd- um og vetrarskrúða en það vakti athygli ljósmyndara í gær að lítið vatn er í fossinum. Allar líkur eru taldar á að lítið vatnsrennsli stafi af óvenju miklum þurrkum á sunnan- og vestanverðu landinu að und- anförnu. Skv. upplýsingum Veð- urstofunnar hefur veðurlag verið óvenju stöðugt undanfarnar vikur og austan- og norðaustanáttir verið ríkjandi með mjög úrkomulitlu veðri um landið suðvestanvert. Horfur eru þó á að þetta sé að breytast og er því spáð að úrkomu- svæðið sé að færast inn á suðvest- anvert landið með slyddu eða snjó- komu til að byrja með, en síðan slyddu eða jafnvel rigningu. LÖGREGLUNNI í Vestmannaeyj- um hefur borist fjöldi vísbendinga vegna brunans í húsi Isfélagsins síðastliðið laugardagskvöld. Vett- vangsrannsókn leiddi í ljós að miklar líkur eru til þess að kveikt hafi verið í húsinu. Tryggvi Ólafsson, lögreglu- fulltrúi hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum, segir að verið sé að meta vísbendingarnar en enn liggi enginn undir grun. Lögreglan hefur rætt við fjölda manns vegna málsins. Þá hefur verið athugað með ferðir nokkurra einstaklinga sem voru tilgreindir í vísbendingum sem bárust lögregl- unni. Morgunblaðið/Rax Hæstiréttur um milligöngu stjórnar við sölu hlutabréfa Tilkynna þarf seljanda nýtingu á forkaupsrétti HÆSTIRÉTTUR segir að í lögum um einkahlutafélög sé ekki að finna ákvæði um milligöngu stjómar félags varðandi tilkynningar hluthafa um nýtingu á forkaupsrétti. Rétturinn segir því hluthafa í einkahlutafélagi hafa verið í fullum rétti til að fram- selja bréf sín til tveggja forkaupsrétt- arhafa þótt sá þriðji hafi haft áhuga á kaupum, enda hafi sá beint tilkynn- ingu sinni þar um til stjómarinnar, en ekki seljandans. Málið snerist um að maður, sem átti hlut í einkahlutafélagi, fékk tilboð í hlutabréf sín og vfldi selja. Hann sendi stjórn fyrirtækisins tilkynningu um fyrirhugaða sölu. Stjómin ákvað að neyta ekki forkaupsréttar síns, en greindi öðrum hluthöfum skriflega frá tilboðinu, í samræmi við lög. Með tilkynningunni fylgdi sú athugasemd að svari skyldi beint tfl stjómaiinnar innan ákveðins frests. Tveir aðilar lýstu áhuga á að kaupa hlut mannsins og hann seldi þeim hlutinn þegar fresturinn var liðinn, enda höfðu honum ekki borist til- kynningar frá öðrum hluthöfum um að þeir vildu neyta forkaupsréttar. Einn hluthafi hafði hins vegar til- kynnt þann áhuga sinn tfl stjómar- innar á lokadegi frests og hafði selj- andinn spumir af því degi síðar. Mönnum bar ekki saman um hvort beina hefði átt tilkynningu um nýt- ingu forkaupsréttar til sjálfs seljanda hlutabréfanna, eða hvort nægjanlegt hefði verið að beina henni til stjómar félagsins. Héraðsdómur taldi tilkynn- ingu til stjómarinnar fullnægjandi, en Hæstiréttur er á öðm máli. Hann sagði það vera almenna reglu að eig- andi hlutar í einkahlutafélagi gæti framselt hann að vild nema annað leiddi af lögum, samþykktum félags eða öðram samningum. Lög um einkahlutafélög heimiiuðu að við eig- endaskipti, önnur en við erfð eða bú- skipti, skyldu þær hömlur settar á framsal að hluthafar eða aðrir hefðu forkaupsrétt. Stjóm félags væri sam- kvæmt lögunum ætlað nokkurt hlut- verk í framkvæmd varðandi nýtingu forkaupsréttar, t.d. skyldi hún þegar í stað greina forkaupsréttarhöfui skriflega frá tilkynningu um tilboð. „ lögunum era hins vegar ekki ákvæi um hliðstæða milligöngu stjórna félagsins varðandi tilkynningar hlui hafa um nýtingu á forkaupsrétti sír um. Verður það hlutverk félagsir ekki heldur leitt af því einu að hlic stæð efnisrök og liggja að baki hinui lögákveðnu tilvikum kunni að mæi með slíkri milligöngu enda væri slfl skyldubundið hlutverk félagsstjórna takmörkun á framangreindri megir reglu um frelsi eiganda hlutar til a framselja hann,“ segir Hæstiréttu Hann segir því að yfirlýsingu ui áhuga á kaupum hefði átt að beina t seljandans sjálfs. / / BIOBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUM ísfirðingar lögðu Keflvíkinga óvænt/B3 »•••••••••••••••••••••••••• Skuidir boltagreinanna 400 milljónir/Bl Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.