Morgunblaðið - 15.12.2000, Síða 42

Morgunblaðið - 15.12.2000, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson Abstraktmynd með fangamarki Finns Jónssonar. Enn um blessaðan módernismann MYNDLIST Listasafn íslands MÁLVERK & RÝMISVERK ÍSLENSKIR LISTAMENN Á 20. ÖLD Til 15. janúar. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 11-17. JÓLASÝNINGAR Listasafns ís- lands að þessu sinni eru helgaðar listamönnum fasddum fyrir 1910 og svo nokkrum fæddum eftir miðja öldina, en þeir eru í salnum bakvið afgreiðsluna. Það er þó eilítið á reiki hvort um er að ræða eina sýningu eða tvær. Þar sem núlifandi lista- mennirnir eru þó allir myndhöggv- arar en hinir látnu málarar segir skynsemin manni að rétt sé að gera greinarmun á sal númer tvö og rest- inni. Hins vegar ætti að vera óhætt að fjalla um sýningamar saman því um er að ræða upphengi og skipan sem ekki er fylgt eftir með ákveðinni hugmynd að heitið geti. Ef til vill er miður desember til miðs janúar svo dauður tími að ákveðnari hugmyndir væru til lítils. Eins má vera að sýningarnar séu stflaðar á túristamarkaðinn sem sagt er að hingað streymi um jól og ára- mót. Reyndar er sorglegt að ekki skuli vera til nægilega stórt listasafn til að hýsa yfirlit yfir alla öldina, eða frá Þórami B. til okkar daga. Út- lendingum finnst fúlt að fá ekki að sjá gegnumskurð af listasögu okkar, og reyndar er það með ólíkindum að ekki skuli vera fyrir löngu búið að gera myndband eða skyggnuröð svo sjá megi það sem í salina vantar. Vandræði upphengis á borð við það sem sjá má í sölunum þrem - fyrsta, þriðja og fjórða - er að gestir frá öðmm löndum taka slíkt upp- hengi íyrir heildarmynd af nútíma- list okkar. Einhvern veginn er það svo að upplýsingar, fjölbreyttar og aðgengilegar, vantar á öllum söfnum okkar, en hvergi er þessi upplýsinga- skortur jafnbagalegur og einmitt á Listasafni íslands. Þangað hljóta menn að sækja með stærstu vænt- ingamar um landsins dýpstu vitn- eskjubmnna á sviði myndlistar eink- um þar sem alkunna er að Islendingar em í fararbroddi hinnar nýju upplýsingabyltingar. Og svo er ekkert að hafa þegar á hólminn er komið. Fyrir þá sem þekkja okkar stuttu nútímalistasögu mætti segja að svona upphengi dygði, en varla meir. Það er hins vegar lítt uppbyggilegt fyrir þær kynslóðir sem nú em að vaxa úr grasi. Það virðist fátt vera gert til að laða að þá sem erfa eiga landið nema ef vera skyldi í formi skólaheimsókna. Slíkar hópheim- sóknir em þó takmarkaðar og fæstir þeirra sem fá varanlega ást á því sem hangir í söfnum verða fyrir slíkri reynslu í ærslafengnu bekkjarefli. Einblöðungamir - sem aðeins fundust yfir framherjana frægu í fyrsta sal - era einungis á íslensku og fjalla í alltof stuttu máli um lista- mennina óháð því sem fyrir augu ber. Þeir em hraðsoðið málamynda- plagg sem engan veginn gengur eitt og sér. Það hefði því verið mun gæfu- legra að einskorða upphengið betur við ákveðið tímabil eða ákveðna hug- mynd svo fylgja mætti því úr hlaði með haldbæmm og tæmandi upplýs- ingum, að minnsta kosti á íslensku og ensku. Þá er hann orðinn býsna þreyttur þessi einhæfi vinkill þar sem sveita- landslagi framherjanna er teflt gegn sjávarþorpalýsingum millikynslóð- arinnar. Það er eins og engin önnur sýn komi til greina. Það hefði til dæmis verið tilvalið að spá í hin miklu umskipti sem urðu á stfl Finns Jónssonar fyrir og eftir sýninguna hjá Nathan & Olsen úr því verið er að sýna abstraktmyndimar við hlið sjómannsins hans í öldurótinu. Varla er það lengur tabú hvernig landinn tók módernískum tilraunum Finns, eða öðmm módernískum til- raunum um miðjan þriðja áratuginn, svo sem kvæði Halldórs um Ungling- inn í skóginum. Eða em menn hræddir um að það rýri sjálfsálit okkar sem framsækinnar og stór- huga þjóðar? Þögnin umleikis sýn- ingamar á Listasafninu er draugur frá fyrri tíð. Það er löngu fyrir bí að gestir vafri um sali safna einvörðungu til að dásama formræn og krómatísk gildi. Þeir vilja vita og eiga heimtingu á að vera upplýstir. Þá er ömggt að mun meiri og aðgengilegri upplýsingar þarf að setja í sal númer tvö. Þar em MEE TOO svart vínrautt brúnt army Kr. 7.990,- LOGO 69 svart camel Kr. 9.590,- CAROSELLO svart hvítt rautt beige Kr. 4.990,- RIZZO svart hvítt vínrautt army Kr. 6.590,-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.