Skírnir - 01.01.1845, Blaðsíða 63
65
laungum vel stilltur og cn málsnjallasti, verSur
flestu [ní framgéngt er liönum þykir ráð. Hefur
liann nú í 4 ár haldið völdum sínurn, þótt þeir
Thiers hafl á margar lundir reynt til ab steypa
hönura úr völdum; vill Thiers í hanns stað kom-
ast í þá tign er hann fyrr hafði; en eigi eru
mikil li'kindi til að af því verði nieðan Lobvik Fi-
lippus liflr og heldur konúngdómi, þvi að Guizot
geðjast konúngi betur enn Thiers, er hann mjög
ab skapi konúngs í flestum hlutum; leggur hann
allt kapp á það er konúngi best likar, en þab er
einkum, að almennur friður fái haldist; stuðiar
hann til þess að sinu leiti fullt svo mikið sem
Hróbjartur rábgjafi Breta drotningar að sínu; því
ekki verður þess dulist, að Frakkar eru uppstökk-
ari og meira lineigðir til stríðs enn Bretar; lifir
enn hjá raörgum Frakka striðsandi sá en mikli,
er komst inn hjá þjóðinui þá er Napoleon sat að
völdura ; þykir mörgum af hermöiinunura lífið vera
orðið lielður daufligt og sá timinn vera horfínn,
þá er menn af lægstu stigum sökum hreysti sinnar
komust til enna æbstu metorða. Eu Loðvik Fi-
lippus, sera bæði er vitur konúngur og góður, sjer
eð saraa sem flestir mentaðir stjórnendur nú á
dögum, að almennur friður best lientar þjóð sinni,
og að það er þessum friði að þakka að mentun,
atvinnuvegur: akuryrkja, handibnir, verksmiðjur,
járnbrautir, utan- og innanrikis verslun og fleira
það er eflir velmeigun lands lýða, hefur mjög
aukist í flestum siðuðura rikjum á seinni tíinura.
Fyrir þá sök lætur Frakka konúngur sér vera allra
hluta annast um að drepa nibur öllum þeim deilum
5
i