Skírnir - 01.01.1845, Page 120
122
var tilgángur þess sá: a5 stvftja og efla trúarbrögS
prdtestanta á |»ý5skalandi, bæbi met> rjtum og
fégjöfum, og ab reisa skorhur viö aÖ þeim væri
raisboðið af pápiskum mönnum: að efla sitgjæði
raeðal prótestanta: að hjálpa [»eiin prótestöntum
er mjög bágt ættu: að útrima , eða reisa skorður
við þeim ókosturn, er til hnekkis væru góðum sib-
um og almennri velmeigun. Gerðust nú margir i
Prussariki, Bajaralandi og viðar á þýðskalandi til
a& gánga inní felag [ietta. En eigi leið á laungu
[lartil stjórnin á Bajaralandi bannaði mönnum ]»ar
að hafa nokkur mök eða viðskipti við felagið; og
bar hún [>að fyrir sig að felagið varðaði menn eink-
is, af [>ví |>ab væri útlendt og ætti heima í Leipzíg.
En aðalorsökin var að stjórnin óttaðist fyrir að
felagið mvmli hnekkja pápiskum siðura þari landi
og skipta ser af stjóriiarmálefnum. I landi þessu
hafa ■ ár, liktog að iiiidanföriiu, verið deilur milli
pápiskra manna og prótestanta út af ymsu er áhrærir
kirkjusiði þeirra ogfleira; liafa prótestantar opt að
undanförnu átt í vök að verjast, sökum þess þeir
eru mannfærri; hafa þó pápiskir menn aldri staðið
þeim á sporði með lærdóm og vitsmuni; en í ár
hafa prótestantar rekið þá viða i vörðurnar og
borið hærri hliitann. Pápiskir raenn þar tjást að
vera að tölu 3,168,610 og prótestantar 1,130,537.
Síðan 1833 hefur mannfj. hjá prótestöntum aukist
ura 80,822, en hjá pápiskum mönnum 100,035.
Af þessu sjest að mannfjöldin þar hefur töluverbt
meira aukist hjá prótestöntum enn hinuin; svo
hefur og verið að undanförnu í Vurteinberg og
víðar á þýðskalandi. — Margir af þjóðverjum